18.10.1967
Neðri deild: 5. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í C-deild Alþingistíðinda. (2287)

7. mál, efnahagsaðgerðir

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein) :

Herra forseti. Það mál, sem hér er til umr., er nú þegar orðið töluvert rætt, en það er reyndar engin furða um mál þess eðlis, sem það er, og ég dreg ekki í efa, að þær umr., sem hér hafa farið fram, hafa orðið til þess að skýra málið betur frá öllum sjónarmiðum.

Það eru í raun og veru í mínum huga mjög einföld atriði, sem mjög nauðsynlegt er að menn geri sér grein fyrir í sambandi við málið og reyni ekki að draga fjöður yfir, og það eru meginorsakirnar, eins og hefur verið margskýrt af hálfu ráðh. hérna, til þeirra ráðstafana, sem nú hafa verið gerðar. Það eru fyrst og fremst þessar einföldu staðreyndir, að verðfallið á freðfiski í Bandaríkjunum er talið nema að því er sumir segja milli 10 og 20% eða við skulum segja um 15%, eins og nú er, og hófst á s.l. ári og hefur því miður ekkert dregið úr, og á öðrum mörkuðum um 10–12%. Á bræðslusíldarafurðunum nemur verðfallið miklu meiru eða allt frá 30% og á milli 50 og 60%, eftir því við hvað er miðað, en allavega 40–50% miðað við það, sem menn höfðu gert ráð fyrir á s.l. ári. Og menn sjá, hversu geigvænlega mikið þetta er, ef t.d. miðað er við verðlag í dag á helztu síldarafurðum og verð á bræðslusíldarafurðunum á árinu 1965, þá þýðir verðfallið það, að mjölið falli úr 9240 kr. á lest í ca. 5880 kr. eða um 36%, ef við þetta er miðað, og lýsi falli úr ca. 9100 kr. á lest fob. í ca. 3960 kr. á lest eða um ca. 56%. Þetta eru gífurlegar upphæðir, sem þjóðarbúið missir hér af og gerð hefur verið grein fyrir að skipta hundruðum millj. kr.

Það hagar þannig til á þessu ári, að engin síldarsöltun hófst hér á landi fyrr en komið var fram í októbermánuð. Það er ekki búið að salta eina einustu tunnu af saltsíld, þegar ríkisstj. er að undirbúa fjárlög og sínar efnahagsráðstafanir eða till. til efnahagsráðstafana. Nú hefur nokkuð úr rætzt, og menn binda vonir við það, að enn þá haldi áfram að rætast úr með saltsíldina, sem að sjálfsögðu hefur gífurlega mikið að segja, ekki aðeins hvað verðmæti snertir, heldur og að við getum staðið við samninga, sem við höfum gert að þessu leyti, þó að þeir séu með fyrirvara um, að það aflist. En auðvitað væri mikill hnekkir fyrir okkur sú niðurstaða, að Íslendingar hefðu ekki getað afbent neina saltsíld upp í þessa gerðu samninga, og gæti haft ófyrirsjáanleg áhrif í framtíðinni.

Mér finnst, að menn hafi ekki alveg gert sér grein fyrir því hér eða tæplega komið nægjanlega skýrt fram í umr., hversu skreiðarframleiðslan stendur höllum fæti hér á landi og hversu gífurlega erfiðleika þar er við að etja. Við fluttum út til Ítalíu, þar sem er bezti markaðurinn og verðið er bezt, 1965 3460 tonn, 1966 2050 tonn, og það er ráðgert í ár, að þangað seljist 1200 tonn. Og það er vegna þess, að veðráttan var svo erfið hér á s.l. vetri, að mikið af skreiðinni fraus, og við það verður hún óseljanleg á Ítalíumarkaðinum. En aðalmarkaðurinn að magni til, sem hefur verið í Afríku, hefur, eins og kunnugt er, að mestu leyti lokazt, og þannig er það. Í júlí og ágúst og september 1965 voru send til Nígeríu 1415 tonn af skreið, en í júlí og ágúst og september til Afríku í ár 231 tonn. Við liggjum nú með birgðir af skreið í landinu, Afríkuskreið, upp á 6600 tonn, þegar komið er fram í september, og heildarframleiðslumagnið af skreið á þessu ári er 7800 tonn. Og þetta er að verðmæti um 200 millj. kr., og við sjáum, hvaða þýðingu það eitt út af fyrir sig hefur, en einnig hitt, að Seðlabankinn og viðskiptabankarnir lána út á þessa skreið 70%, og eru bundnar 60 millj. kr. í þessum verðmætum hjá þeim mönnum, sem stunda skreiðarframleiðsluna, og algerlega borin von um, hvenær eða hvort þessi atvinnugrein yfirhöfuð fær greitt, því að enda þótt menn tengi vonir við það nú, að þeirri borgarastyrjöld, sem útilokaði þennan markað fram til þessa á þessu ári, kunni að ljúka, hvernig verður þá ástandið að henni lokinni, hvernig verður möguleiki fyrirtækja þar og þjóðarinnar, sem hefur keypt þessa vöru, að kaupa hana og greiða hana og við hvaða verði? Og ekki má gleyma því, að frá því í maímánuði og hingað til hefur algerlega tapazt þetta neyzlutímabil, og hvaða aðstöðu höfum við til þess að vinna þetta upp? Hér er þess vegna um gífurlega mikla örðugleika í sambandi við þessa atvinnugrein að ræða og alveg ósýnt í dag um það, hvað fæst út úr þeim verðmætum, sem svo gífurlega miklir fjármunir hafa verið festir í.

Í heild er áætlað, að útflutningsverðmæti ársins 1967 verði e. t. v. um 25% minni en s.l. ár eða á annað þús. millj. kr. og e. t. v. allt að 1500 millj. kr. Það hljóta auðvitað allir að viðurkenna, að þetta er geigvænlegt áfall fyrir þjóðarbúskapinn og þetta krefst sérstakra ráðstafana. Mönnum er ljóst, að það er ekki hægt að komast hjá því, þegar svona horfir, að gera sérstakar ráðstafanir og horfast af einlægni og alvöru framan í erfiðleikana. Það er að vísu svo, að hér í þingsölunum virðast vera menn, sem finnst þetta engu máli skipta, þetta sé bara sáralítið, sem ekki sé umtalsvert, og þó er þar fremstur í flokki formaður Framsfl., hv. 1. þm. Austf., og honum hefur að vísu fylgt í þessari skoðun hv. þm. Kristján Thorlacius, sem lagði hér orð í belg í gær. Þetta eru smámunir, sem engu máli skipta, segja þessir menn. Stundum segja þeir, að það skipti einhverju, en gera sem allra minnst úr því, og allt er þetta því að kenna, segja sumir hv. þm., hvernig komið er, hve illa hefur verið stjórnað, hvað ríkisstj. hefur staðið illa í ístaðinu, og það er þvaðrað um, að það hafi verið svikizt aftan að þjóðinni og þjóðinni hafi verið sagt ósatt og nú sé þjóðin að borga kosningavíxla. Þetta er síendurtekið, sem er allt meira og minna út í hött og gersamlega útilokað hjá þessum mönnum að færa orðum sínum stað.

Ríkisstj. núv. hefur hvorki fyrr né síðar sýnt neina tilraun til þess að blekkja þjóðina eða verið gerð nokkur tilraun til þess í málflutningi stjórnarsinna, eins og látið hefur verið liggja að, fyrir kosningar að segja hlutina eða láta líta út fyrir, að hlutirnir væru öðruvísi en þeir í raun og veru eru. Það er sagt, að það sé annað hljóð í okkur nú en fyrir kosningar og þá höfum við verið að miklast yfir viðreisninni og enda þótt eitthvað gæfi á bátinn, þyrfti ekkert að óttast. Sannleikurinn er sá, að það kom margoft fram, eins og komið hefur fram hér, sérstaklega í ræðu hæstv. forsrh., að við lýstum allt öðru yfir, og spurningin er um það, hvort framsóknarmenn hafi verið svo miklu framsýnni en allir aðrir hér á landi, að þeir hafi séð fyrir, að borgarastyrjöld mundi geisa í Nígeríu með þeim afleiðingum fyrir skreiðarframleiðslu og skreiðarsölu okkar, sem ég nú hef lýst, að síld mundi engin veiðast á venjulegum slóðum allt sumarið, en 700–800 km norður í hafsauga, að engin söltun mundi verða allt sumarið og ekki fyrr en í október, að verðfallið á síldarafurðum, lýsi og mjöli, mundi stöðugt halda áfram að aukast stórlega og að ekkert, nema síður væri, rættist úr freðfiskmarkaði okkar. Ég geri ekki ráð fyrir, að nokkur ætli, að framsóknarmenn hafi verið svo framsýnir að sjá fram á þetta öðrum fremur.

En einmitt vegna þess, að menn gátu ekki séð fram á þessa hluti, hvernig þeir mundu verða, ekki séð þá fyrir, voru fyrirvarar um það hjá okkur fyrir kosningar og á s.l. vetri strax, að vitaskuld yrði að mæta nýjum viðfangsefnum með nýjum úrræðum, og einmitt varað við því, að ef verðfallið héldist til lengdar, yrði að gera sérstakar ráðstafanir til þess að mæta afleiðingum þess. Við sögðum, sjálfstæðismenn, fyrir kosningarnar: Vegna þess að viðreisnin hefur lánazt vel, efnahagur þjóðarinnar er traustur og við eigum verulegan gjaldeyrisvarasjóð, þá erum við nú betur undir það búnir að mæta þeim erfiðleikum, sem að steðja og nú er vitað um, og þeim örðugleikum, sem þá þegar höfðu að steðjað. Ríkisstj. hafði þá þegar gert ráðstafanir til stuðnings atvinnuvegunum, fyrst og fremst með verðstöðvuninni í nóv. 1966, sem átti að gilda frá ágústmánuði sama ár. Það er sagt, að það hafi ekki verið aflað fjár til þeirra niðurgreiðslna. Það er að því leyti rétt, að það voru ekki lagðir á nýir skattar til þess að mæta þessum niðurgreiðslum. En það var hægt að mæta þeim vegna þess, hversu hagur ríkissjóðs var þá góður og tekjuafgangur mikill á árinu 1966, eins og margsinnis hefur verið tekið fram. Ríkisstj. hafði einnig þá þegar gert ráðstafanir til þess að bæta upp fiskverðið um áramótin til útvegsmanna og sjómanna, sem áætlað var að mundi nema um 100 millj. kr., og einnig að leggja 100 millj. kr. í verðjöfnunarsjóð, sem gert var ráð fyrir í ráðstöfunum til stuðnings sjávarútveginum, eins og hv. þm. er kunnugt um. En þó að slíkar ráðstafanir hafi þurft að gera, sem oft hefði verið erfitt að komast yfir og hefur reynzt erfitt að komast yfir slíkar ráðstafanir án þess að leggja á nýja skatta, var það hægt eins og á stóð og vegna þess, hve fjárhagur landsins einmitt var traustur eftir viðreisnartímabilið, sem þá hafði staðið um 7 ára skeið. Engar grundvallarbreytingar þurfti að gera í sambandi við innflutningsfrelsi og frelsi í viðskiptum, en á öðrum tímum hefði sennilega ekki verið hægt að mæta svona áföllum, eins og þá þegar voru komin fram, nema með einhverjum alvarlegum ráðstöfunum í því sambandi, kannske að takmarka innflutning, takmarka gjaldeyri, setja á höft o.s.frv.

Við sögðum og gerðum grein fyrir því og lýstum því fyrir fólki, að vegna þessara ástæðna, vegna trausts fjárhags og góðrar efnahagsafkomu, væri hægt að mæta erfiðleikunum um skeið a. m. k. án eysteinskra harðræðisráðstafana, hallærisráðstafana, svo sem innflutningshafta og leyfafargans opinberra úthlutunarnefnda. Við leyfðum okkur hins vegar þá bjartsýni að vona, að úr þessu mundi rakna, en sögðum þá um leið, að nýjum viðhorfum yrði að mæta með nýjum úrræðum á hverjum tíma. Og ef erfiðleikarnir eða verðfallið og við skulum segja aflatregða, eins og þá var á vetrarvertíðinni, héldi áfram, gætum við engu að síður byggt á traustum grunni. Og það er hverju orði sannara. Við ættum nýjan fiskiskipaflota, sem við vorum búnir að endurnýja á undanförnum árum, og þyrftum ekki að verja fjármunum til þess að halda áfram endurnýjun á honum í bili, ef á bjátaði, við ættum nýjar vélar og verkfæri í landinu í miklu ríkari mæli en nokkru sinni áður, við ættum fleiri byggingar og meiri nýrækt heldur en þjóðin hefur nokkru sinni áður búið við og fjárfestingin almennt hefði aldrei verið eins mikil í landinu og á undanförnum árum. Við það hefði hafið göngu sína stóriðja í landinu fyrir tilverknað viðreisnarstjórnarinnar gegn andmælum stjórnarandstöðunnar, en einmitt vegna stóriðjunnar, væntanlegrar stóriðju og hinna stærstu rafvirkjana eða raforkuframkvæmda, sem við höfum staðið í, í tengslum við hana mundum við á komandi árum vera betur undir það búnir að mæta skakkaföllum í rekstri annarra atvinnugreina okkar en ella mundi vera. Þetta hefur orðið deginum ljósara þegar á þessu ári, sérstaklega í sambandi við vinnumarkaðinn, hvað þessar stórframkvæmdir hafa haft mikla þýðingu að því leyti. Það kemur til með að hafa enn meiri þýðingu í sambandi við áframhaldandi byggingar þessara stórframkvæmda. Landið fær þegar nokkurn gjaldeyri og mun fá meiri gjaldeyri í sambandi við byggingar á álbræðslunni, þar sem vinnuaflið og allt annað, sem keypt er hér innanlands, efni og annað, er borgað í erlendum gjaldeyri, og stórframkvæmdir eins og við Búrfellsvirkjunina er hægt að ráðast í og halda áfram og ljúka án þess að nota til þess nokkuð af þeim gjaldeyri, sem atvinnuvegirnir afla, vegna þess að til þess eru notuð erlend lán, sem okkur tókst að fá á erlendum peningamarkaði eingöngu vegna þeirra samninga, sem við höfðum gert um álbræðsluna, og þess raforkusamnings, sem við í því sambandi gátum lagt á borðið með okkur, þegar óskað var eftir þessum erlendu lánum, en eins og kunnugt er, stendur raforkusalan til ÍSAL undir öllum afborgunum og vöxtum af hinum erlendu lánum til hinnar stóru Búrfellsvirkjunar.

Ég sagði áðan, að formaður Framsfl. eða hv. 1. þm. Austf. hefði sagt, að erfiðleikarnir séu raunar engir, bara lítilræði, aðeins röng stjórnarstefna, og til þess að færa þessum orðum sínum stað, hefur hann sí og æ vitnað í það, að í raun og veru sé verðið á útflutningsafurðum okkar eiginlega ekkert lægra nú en það var, — ég held, að hann hafi nefnt árið 1962, eða eins og stundum hefur verið orðað: um það bil í byrjun viðreisnarinnar. Við höfum margsinnis sýnt fram á, talsmenn ríkisstj., að á sama tíma hefur hið aukna verðlag orðið til þess, að almenningur hefur búið við meiri hagsæld en áður og almennt kaupgjald hefur hækkað í landinu stórkostlega á undanförnum árum, þannig að ef við miðum við tímakaup, hvort sem er verkamanna eða annarra hér á þessu landi, annarra launamanna, hefur það hækkað um og yfir 100% frá því 1962. Þetta háa kaupgjald verða atvinnuvegirnir nú að borga með því verðfalli, sem orðið er, og sjá allir, hversu miklir erfiðleikar hljóta að verða því samfara. En þegar útflutningsframleiðslan hefur fallið svona gífurlega í verði eða af öðrum ástæðum er óseld, eru menn nú beðnir um aðeins að falla frá kauphækkun, sem nemur annaðhvort 4.5% eða 7.5% eftir því, við hvaða vísitölu verður endanlega miðað. Það er enginn að tala um það, að menn skeri niður kaup sitt um helming núna til þess að skera það niður í það sama, sem það var 1962. Og það er furðulegt, að menn skuli láta sér detta í hug að tala um, að það sé í raun og veru ekkert verðfall, ef verð á einhverjum tíma nú getur samsvarað verði á útflutningsvörum fyrir svo og svo mörgum árum, og taka ekkert tillit til þeirra breytinga, sem orðið hafa hér innanlands á sama tíma, og einnig þess tilkostnaðar í einu og öllu með miklu dýrari og kostnaðarsamari tæki til þess að afla þeirra verðmæta, sem dregin eru í þjóðarbúið. Það verður að teljast eðlilegt, að krafa sé gerð til þess, að stjórnarandstæðingar geri grein fyrir úrræðum sínum, þegar mál eins og þessi eru rædd, og hvað þeir mundu vilja gera, því að væntanlega er ekki hægt að gera ráð fyrir því, að úr rætist á erlendum mörkuðum fyrir það eitt, að framsóknarmenn og Alþb.-menn tækju hér við stjórnartaumunum. En allt það, sem við höfum heyrt í því sambandi, hver væru úrræði stjórnarandstöðunnar, er þokukennt og þó hvergi nokkurs staðar nálægt því eins þokukennt og í margendurteknum yfirlýsingum og ræðum hv. 1. þm. Austf. Mér er ómögulegt að verjast því, að í raun og veru er ekki hægt að kalla það annað en það, sem á vondri íslenzku er kallað snakk, það sem við höfum heyrt frá þessum gamalreynda þm. um það, til hvaða úrræða hann vildi grípa eða hans flokkur.

Þegar hæstv. forsrh. gerði grein fyrir hinum nýja málefnasamningi stjórnarflokkanna, hélt hv. 1. þm. Austf. tölu á eftir eða ræðu, og hún birtist í Tímanum daginn eftir og með 6 dálka fyrirsögn um það, að það yrði að endurreisa atvinnuvegina frá grunni. Það er mikið átak að endurreisa atvinnuvegina frá grunni. En ef maður fer í gegnum þessa ræðu, er aldeilis ómögulegt að átta sig á nokkrum sköpuðum hlut, sem máli skiptir í sambandi við það, hvernig þessi hv. þm. ætlar sér að beita nýjum úrræðum eða sá flokkur, sem hann veitir forustu. Ég tek hér nokkrar setningar upp úr þessari ræðu, og það er öll ræðan í raun og veru, allt efni ræðunnar, og það, sem ég segi núna, er allt saman tilfært eins og þar stendur. Hv. þm. segir:

„Við teljum, að ríkisstj. fylgi í grundvallaratriðum rangri stefnu, álítum þessa ríkisstj. þar að auki allt of veika, teljum hana alls ekki njóta trausts, viðhorfið til ríkisstj. alveg tvímælalaust hafa breytzt verulega frá því um kosningar og endurskoða þurfi þjóðarbúskapinn frá rótum.“ Það er gott að endurskoða þjóðarbúskapinn frá rótum, en hvernig? Að því er ekki vikið með einu einasta orði. „Meginkjarni nýrrar stefnu verður að vera endurreisn íslenzkra atvinnuvega.“ Með hvaða hætti? Það er ekki verið að víkja að því. „Endurskoða verður hverja starfsgrein, leggja áherzlu á nýjungar og stuðning við íslenzkt framtak.“ Það er kannske fallegt, en þessi hv. þm. hefur nú ekki haft orð á sér fyrir að vera mjög nýjungagjarn. „Að heildarendurskoðun allra meginþátta þjóðarbúsins sé lífsnauðsyn“ o.s.frv.

Þetta er ræðan, þetta er stefnuyfirlýsing formanns Framsfl. hér í þingsölunum um það, hvernig þeir ætli að ráða fram úr þeim erfiðleikum, sem þjóðin stendur augliti til auglitis við. Það þýðir mikið að traktera þm. á slíku góðgæti. Og ég gæti náttúrlega alveg eins leyft mér að segja, að ég held bara, að það hljóti að vera svo, að þjóðin hafi miklu minna traust á þessum hv. þm. nú en fyrir kosningar, alveg með sama rétti og hann fullyrðir, að hún hafi minna traust á ríkisstj. nú en fyrir kosningar. Og ég held, að það sé miklu sennilegra, að þessum málum sé þannig komið. (Gripið fram í: Eigum við að prófa?) Ja, hv. þm. gæti gert till. um það, ef hann óskar. Ég fyrir mitt leyti er alveg óhræddur við það að ganga til kosninga núna miðað við þau úrslit, sem voru í síðustu kosningum. En það er bara gagnslaust fyrir formann þingflokks að vera með svona gaspur eins og þetta og telja sig hafa aðstöðu eða möguleika til þess að fullyrða eitthvað um það, að aðrir hafi minna fylgi heldur en þeir höfðu á þessu og þessu tímabili og þess vegna eigi menn að segja af sér, ríkisstj., eins og hann segir. Ég held, að þessi hv. þm. hafi alveg nóg að gera að gæta síns eigin fylgis.

Svo hefur þessi hv. þm. reynt að sýna nokkra tilburði til þess að færa þeim orðum sínum stað, að fylgt sé rangri stjórnarstefnu, og kom það einkum fram í ræðunni í gær. Hann nefndi ýmis atriði, sem snúa að iðnaðinum sérstaklega og mér þykir þá ekki ástæðulaust að víkja að. Hann tók nokkur dæmi sem sýnishorn þess, hvernig ástandið væri á þjóðarbúinu og hversu illa væri stjórnað og hversu miklu meiri tilþrifa væri þörf. Hann fór t.d. að tala um iðnfyrirtæki eins og Bílasmiðjuna og vitnaði í einhver blaðaskrif annarra manna, því að ég efast um, að hann viti nokkuð, hvar Bílasmiðjan er niður komin eða hvers konar atvinnustarfsemi hún rekur, um það, að það væri hroðalega farið með þetta iðnfyrirtæki og öll þau lán, sem þetta stóra iðnfyrirtæki hefði fengið í bönkum landsins, væru um 2½ millj. kr. Auðvitað er þetta allt saman fjarri sanni. Og ef hv. þm. hefði nokkuð viljað við hafa að kynna sér það, hefði hann auðvitað getað fundið það út, en ekki gleypa svona staðhæfingar, hvort sem þær eru í blöðum eða tímaritum. En sannleikurinn er sá, að Bílasmiðjan, sem heitir nú Sameinaða bílasmiðjan, er eitt af myndarlegustu og verklegustu iðnfyrirtækjum hér í bænum. Hún hefur nýlega reist eitt glæsilegasta iðnaðarstórhýsi hér fyrir innan Elliðaárnar, og ég gæti sýnt þessum hv. þm. það eða bent honum á, hvar það væri, svo að hann gæti farið og skoðað þetta eymdarfyrirtæki, sem hefur ekki fengið nema 2 millj. kr. að láni. En Sameinaða bílasmiðjan hefur í sínum atvinnurekstri sameinað nokkra aðila, sem unnu aðallega að yfirbyggingu bifreiða, og það vill nú svo til, að ég held, að það séu fá fyrirtæki, sem ég hef einmitt haft meiri og beinni afskipti af heldur en einmitt á þessu sumri, að þessi Sameinaða bílasmiðja fengi aðstöðu til þess að byggja yfir hina fjölmörgu strætisvagna og langferðabíla sem endurnýjast þurfa hér á landi vegna breytingarinnar yfir í hægri akstur. Þetta var boðið út, þessi verk, á erlendum markaði, og þá bárust fjöldamörg tilboð frá mörgum löndum, bæði um bílana í heild eða bílagrindur og yfirbyggingar, og Sameinaða bílasmiðjan tók þátt í þessari samkeppni og það kom í ljós á sínum tíma, að um verð og gæði var hún algerlega talin samkeppnisfær við erlenda aðila. Hún stóð nú ekki hallari fæti en það varðandi bifreiðayfirbyggingar. Hins vegar var gífurlega mikið fjármagn, sem til þess þurfti á skömmum tíma, og öll erlendu fyrirtækin buðu fram lánsfé til 5 eða 7 ára, og ef Sameinaða bílasmiðjan átti að geta tekið þetta að sér, þurfti hún að geta fengið aðgang að 60 millj. kr. láni nú á nokkurra mánaða tímabili, á þessu ári og næsta ári, 60 millj. kr., til þess að þessu leyti að geta boðið þeim aðilum, sem endurnýjuðu bílana, strætisvagna og langferðabíla, sömu lánskjör og bifreiðainnflytjendur gætu fengið á erlendum markaði.

Ríkisstj. skrifaði Sameinuðu bílasmiðjunni nokkru áður en tilboðin voru opnuð bréf, sem Sameinaða bílasmiðjan lagði fram við opnun tilboðanna, þar sem það var tekið fram, að það mundi ekki ráða úrslitum um tilboðin og bæri ekki að taka tillit til þeirra lánstilboða, sem boðin væru á erlendum markaði. En þetta þýddi, að ríkisstj. tók á sig þá skuldbindingu að afla Sameinuðu bílasmiðjunni þess mikla fjármagns, sem til þess þurfti, og hefur ríkisstj. átt gífurlega mikinn þátt í að gera það. Að miklu leyti hefur hún sjálf beitt sér fyrir því, að Seðlabankinn og viðskiptabankar hafa heitið aðstoð sinni í þessu sambandi. Að öðru leyti hefur verið heimilað að taka vissan hluta í erlendum lánum, veita vissa fresti á opinberum gjöldum, aðflutningsgjöldum í sambandi við það, hversu þetta ber brátt að og kemur fljótt til landsins, en mundi koma hægar í ríkissjóð með eðlilegum innflutningi. En þetta hefur ekki allt saman verið fyrirhafnarlaust, en það er einmitt eitt af þeim fyrirtækjum, sem ríkisstj. ásamt mörgum öðrum hefur lagt sig í líma við að styrkja í sinni uppbyggingu. Og svo kemur þessi hv. þm., af því að hann virðist lítið vita, hvað er að gerast hér í bænum í iðnaði sem öðru, og ætlar að nota það sem grýlu á ríkisstj., að það sýni, hversu aumlega sé stjórnað, t.d. hvernig búið hafi verið að fyrirtæki eins og Bílasmiðjunni, sem nú heitir Sameinaða bílasmiðjan og er sameinað fyrirtæki nokkurra fyrirtækja á þessu sviði.

Alveg sama varð uppi á teningnum. Næsta dæmi, sem hv. 1. þm. Austf. tók, var stálskipasmiðjurnar, og það var eitt lítið dæmi, eins og hann orðaði það, hve illa væri búið að atvinnugreinunum, hvernig farið hefði verið að við stálskipasmiðjurnar. En svona er þetta yfirleitt alls staðar, sagði þessi hv. þm. Stálskipasmíði var nú, held ég, engin í þessu landi, meðan þessi hv. þm. var og hét og hafði nokkur völd í landinu. En hins vegar er það svo, að það hefur einmitt fyrir tilstuðlan ríkisstj. verið veitt veruleg aðstoð beint og óbeint til þess að koma upp þessari iðngrein hér á Íslandi á nokkrum undanförnum árum. Það hafði verið byggt einstaka stálskip, en nú er hér að rísa atvinnugrein, sem lofar góðu og hefur þegar sýnt, að hún hefur hæfni og möguleika til þess að keppa við það, sem við höfum áður keypt af fiskiskipum á erlendum markaði, og þó að annað væri talið en fiskiskip. En það var 1964, þá áttum við samráð um það, sjútvmrh. og ég sem iðnmrh., að tekin var upp áætlunargerð af Efnahagsstofnuninni og í samráði við stálskipasmiðjurnar og þá dráttarbrautirnar reyndar um leið, hvað ætla mætti, að þörf væri fyrir mikla uppbyggingu á þessu sviði á næstu árum, miðað við það, að við kepptum að því, Íslendingar, að verða sjálfum okkur nógir í byggingu fiskiskipa fyrst og fremst í fyrsta áfanga. Þessari áætlunargerð hefur svo verið fylgt og ríkisstj. á hverju ári síðan aflað fjár á framkvæmdaáætlun, sem gengið hefur til dráttarbrautanna og stálskipasmiðjanna til þess að byggja sig upp. Mér er ósköp vel kunnugt um það, að oft og tíðum hefur verið erfitt fyrir þessa aðila og fjármagnið hefur kannske ekki verið nægjanlega mikið, en hins vegar hefur á hverju ári verið aflað til þess eins og áætlanirnar sögðu til um, en þær hafa hins vegar farið úr skorðum. En engu að síður er það svo, að hér hafa risið upp myndarlegar skipasmíðastöðvar hjá Stálvík hf. í Arnarvogi og á Akranesi, á Ísafirði og á Akureyri. Og í þessum nýju skipasmíðastöðvum voru í smíðum, held ég, um s.l. áramót 6 skip, og þá var áætlað, að afkastageta þeirra mundi vera, ef það væri um að ræða 200–400 tonna báta, 6–7 báta eða slík fiskiskip á ári, sem mundi vera áreiðanlega um það bil helmingurinn af þeirri endurnýjunarþörf, sem við þurfum alltaf að huga að í þessu sambandi. En allar skipasmíðastöðvarnar hafa gríðarlega mikla stækkunarmöguleika, og það er stutt í land, ef vel árar og sama stjórnarstefna heldur áfram og verið hefur að undanförnu og sérstaklega í sambandi við uppbyggingu þessara atvinnugreina, að þær geti algerlega fullnægt okkar eigin þörf til að byggja upp og til þess að endurnýja okkar skipastól.

En það er svo með skipasmíðastöðvarnar, eins og aðra og allan almenning í þessu landi, að þær fara ekki varhluta af því, þegar útvegurinn verður fyrir öðru eins áfalli og nú er og þegar slíkt verðfall á sér stað á erlendum mörkuðum á afurðum sjávarútvegsins. Það verkar til þess, að það er engin eftirspurn í bili eftir byggingu nýrra skipa, og þá láta menn bíða þörfina á endurnýjun svo lengi sem þeir treystast til. Það er ekki nein eftirspurn eftir neinum nýjum skipum erlendis frá, og það var svo í sumar, að þá var ekki heldur seinni part sumarsins eftirspurn eftir smíðum skipa í hinum innlendu skipasmíðastöðvum. Stjórn Landssambands skipasmíðastöðva átti þá tal við mig sem iðnmrh. um þessi vandkvæði, og við ræddum þau í ríkisstj., og sjútvmrh. og ég tókum upp málið við fiskveiðasjóð, hvað hægt yrði að gera til þess að tryggja verkefni í bili þrátt fyrir erfiðleika í þessari nýju atvinnugrein, svo að hún yrði ekki fyrir þeim skakkaföllum að hafa ekki viðfangsefni í nokkra mánuði eða eitt ár, sem svo ung atvinnugrein mundi ekki þola. Að þessu hefur verið unnið síðan í júlímánuði í sumar, og það eru horfur á því, að það séu fyrir hendi verkefni fyrir skipasmíðastöðvarnar, en þó ekki, eins og sakir standa nú, nema til komi frekari aðstoð af hálfu opinberra aðila en hefur verið fram að þessu. En eins og kunnugt er, hefur fiskveiðasjóður lánað 75% út á innlenda skipasmíði, 67% hins vegar út á erlend skip, sem keypt hafa verið til landsins. En hins vegar, á sama tíma sem reynt er að efla íslenzku skipasmíðina og stuðla að því, að skipin séu smíðuð hér innanlands, verður auðvitað álagið á fiskveiðasjóð miklu meira en verið hefur. Hann er okkar öflugasti stofnlánasjóður hér á landi, en hann fer ekki heldur varhluta af því ástandi, sem er hjá útgerðinni, því að vanskilin eru gífurleg hjá fiskveiðasjóði núna og búizt við, þegar næsti afborganatími hjá fiskveiðasjóði er í nóvembermánuði, að þá verði mikil skakkaföll bæði á vaxtagreiðslum og afborgunum, og ríkisstj. hefur verið að hlutast til um það, að veittur yrði ársfrestur á afborgunargreiðslum vegna þeirra erfiðleika, sem nú steðja að þessari atvinnugrein. Það má þess vegna búast við því, að fiskveiðasjóður eigi mjög erfitt með og sé þess ekki megnugur að rísa undir hinni innlendu skipasmíði, sem reynt verður að efla af fremsta megni af hálfu ríkisstj., nema sérstakar ráðstafanir verði gerðar í bili, og þá er í raun og veru ekki um annað að ræða en að hægt verði að afla þessum sjóði lánsfjár í bili, meðan svo stendur, og það hefur verið athugað og rætt innan ríkisstj. og verður unnið að því í samráði við stjórn fiskveiðasjóðsins.

Það er svolítið einkennilegt, að það skyldi endilega þurfa að vera Sameinaða bílasmiðjan og stálskipasmíðin í landinu, sem hv. 1. þm. Austf. tók sér fyrir hendur til þess að skamma ríkisstj. fyrir, að hún hefði reynzt ódrjúg til aðstoðar við, þar sem ég fullyrði, að það sé ekki sízt fyrir góða aðstoð frá ríkisvaldinu, sem þessi nýja atvinnugrein, skipasmíðarnar, hefur orðið til hér á landi á undanförnum árum, og yfirbyggingarnar á hinum mörgu strætisvögnum og langferðabifreiðum hefðu aldrei orðið hér innanlands nema fyrir tilverknað ríkisstj.

Ég vil hins vegar taka það fram nú, eins og ég hef oft endranær gert, að þeir menn, sem hafa forustuna í uppbyggingu stálskipasmíðanna hér á landi, hafa sýnt alveg óhemju dugnað og áræði og bjartsýni. Og þetta eru harðduglegir menn á öllum þessum skipasmíðastöðvum, sem hafa haft forgöngu um uppbyggingu þeirra, svo að þeir skera sig áreiðanlega úr, þó að margir atorkusamir og duglegir framkvæmdamenn hafi fyrr og síðar verið hér á landi og séu enn.

Ég veit ekki, hvort hv. 1. þm. Austf. var nokkuð heppnari, þegar hann tók þriðja dæmið, sem snerti iðnaðinn, til þess að sýna óstjórnina hér á landi, en hann tók sér, fyrir hendur að lesa hér í Iðnaðarmálum, 1. og 2. hefti þessa árgangs, um stöðlun, sem svo er kölluð. En samkv. lögum er Iðnaðarmálastofnun Íslands ætlað forustuhlutverk hér á landi í stöðlunarmálum. Þessi stöðlunarmál eru þess eðlis, að það má segja, að þau tilheyri hagræðingarsviðinu, að með því að „standardisera“, sem kallað er á erlendu máli, eða staðla, eins og það hefur verið íslenzkað, sé hægt að spara mikinn tilkostnað við ýmiss konar framkvæmdir. Svo fór hv. 1. þm. Austf. að lesa úr þessu tímariti og segir í því sambandi, með leyfi hæstv. forseta, að það sé nú ekki langt, sem hann ætli að lesa, en þetta, sem hér stendur, og þá kemur orðrétt: „segir mikla sögu um það, hvernig stjórnin er á okkar atvinnumálum og okkar þjóðarbúi“. Ef við förum svo að lesa þetta, getum við náttúrlega lesið upp aftur það, sem hann las um stöðlunina. Það er efnislega, að það hafi gengið seint hjá Iðnaðarmálastofnuninni að heita áhrifum sínum til þess, að menn tækju sér fyrir hendur að staðla eða „standardisera“ framkvæmdir. En sannleikurinn er sá, að Iðnaðarmálastofnun Íslands hefur haft heimild til þess að ráða verkfræðing eða verkfræðinga til þess að vinna að þessum málum af hálfu ríkisstj., en hún hefur ekki getað aflað sér þeirrar sérfræðiþekkingar, sem hún hefur þurft í þessu sambandi. En það er, eins og hv. þm. las upp sjálfur, samkv. lögum Iðnaðarmálastofnun Íslands, sem er ætlað forustuhlutverk hér á landi í stöðlunarmálum. Í þessari grein stendur t.d., sem er nokkuð upplýsandi af sérstökum ástæðum fyrir hv. þm., með leyfi hæstv. forseta:

„Fyrstu íslenzku staðlarnir vora gefnir út í árslok 1963, og fjalla þeir um stærðir pappírs og umslaga. Á þessu ári verða svo gefnir út staðlar um leiðréttingu prófarka og frágang handrita.“

Og svo er talað um útboð verka, og það er verið að ganga frá merkilegu frv. að stöðlum um útboð verka, sem stofnunin hefur beitt sér fyrir og á að geta komið til framkvæmda nú, áður en þessu ári lýkur. Það getur verið mjög æskilegt auðvitað að staðla stærðir pappírs og umslaga og koma á stöðlun í leiðréttingu prófarka og frágangi handrita. En ef það hefur dregizt, segir hv. 1. þm. Austf., að það segi mikla sögu um það, hvernig stjórnin er á okkar atvinnumálum og okkar þjóðarbúi. Þetta eru nú dæmin, prófarkir og umslög, sem ekki hafa verið stöðluð. Ef Iðnaðarmálastofnun Íslands hefur ekki sýnt nógu mikinn dugnað í þessu sambandi, þá er því bara skellt á ríkisstj. og það er notað sem eitt af höfuðdæmunum um það, hversu rekstur þjóðarbúskaparins hafi farið illa úr höndum á undanförnum árum.

Hv. þm. og fleiri þm. stjórnarandstöðunnar hafa fyrr og síðar talað um stefnuna í lánsfjármálum, og það hefur enginn verið ólatari til þess en hv. 1. þm. Austf., að það hafi allt verið eyðilagt fyrir atvinnuvegunum hér á landi vegna hinnar miklu frystingar sparifjár. Áður hafi allt sparifé verið í umferð. Nú sé þetta bara lokað niðri í frystihólfum í Seðlabankanum. Ég held, að hann sé farinn að trúa þessu sjálfur, að það liggi bara einhver stórkostlegur seðlabunki hérna úti í Austurstræti í kjallara Seðlabankans og þurfi ekki annað en brjótast inn og hleypa þessum seðlum út, þá fari allt í ganginn aftur.

Sannleikurinn er sá í þessu sambandi, og vil ég þar nefna mjög einfalt dæmi, svo að menn átti sig betur á því en oft hefur áður verið, að útlánaaukning banka og sparisjóða síðan í árslok 1959, þegar viðreisnartímabilið hófst, og til síðustu áramóta nemur samtals þessi ár á viðreisnartímabilinu 5700 millj. kr., útlánaaukningin. En það er 380 millj. kr. meira en sparifjáraukningin á sama tíma. Hv. 1. þm. Austf. sagði: Áður var allt spariféð í umferð, og þá var allt í lagi, en af því að ríkisstj. hefur fryst spariféð, gengur þetta nú ekki betur en núna. — Hins vegar hafa bankarnir á þessum sömu árum lánað meira en nemur sparifjáraukningunni. Þetta hafa þeir getað gert, m.a. vegna þess, að á þessum tíma mun aukning veltiinnlána hafa numið nálægt 1000 millj. kr., sem eru allt annað en spariinnlánin og geta svifað til eða frá og viðskiptabankarnir hafa eðlilega ekki sama vald yfir og sparifénu. En það hafa þeir einnig getað gert með því, að þeir hafa sumir hverjir aukið skuldir sínar við Seðlabankann og nokkrir bankanna aukið skuldir sínar við útlönd. En þetta segi ég til þess, að menn geri sér grein fyrir því, að enda þótt það hafi verið reynt að hafa hemil, — og það höfum við ekki dregið neina dul á, — hemil á útlánaaukningunni, hefur útlánaaukningin verið svona gífurlega mikil, að hún er umfram sparifjáraukninguna í heild á þessu tímabili sem nemur nærri 400 millj. kr. Ég veit ekki, hversu heilbrigt hefði verið að sleppa lausari taumnum að þessu leyti heldur en er, því að menn verða að gera sér grein fyrir því, að það eru fjöldamargar framkvæmdir hér á landi, sem verða fyrst og fremst að grundvallast á sparifjáraukningunni í landinu. Það eru margar framkvæmdir, sem hægt er að byggja upp á heilbrigðan hátt með því að fá til þess erlent lánsfé og hefur verið gert, og sérstaklega þær framkvæmdir, sem annaðhvort skapa nýjan gjaldeyri eða spara gjaldeyri, en á ýmsum öðrum sviðum þykir frá efnahagslegu og fjárhagslegu sjónarmiði ekki óhætt að taka erlent lán til margs konar framkvæmda og þau verði fyrst og fremst að takmarkast eða þá að aukast eftir því, hvernig fer um sparifjáraukninguna í landinu.

Um lánsfjármál iðnaðarins hefur oft og tíðum verið talað hér og ekki sízt í þessum umr., og það er sagt, að iðnaðurinn hafi verið hnepptur í einhverja lánsfjárkreppu og þess vegna hafi hann dregizt svo mikið saman. Það hefur aldrei verið hægt að sýna fram á þennan samdrátt í iðnaðinum hér í þingsölunum, svo að nokkurt mark væri á takandi, og hagskýrslur sýna það 1966 í nóvembermánuði, að það hefur verið stöðugur vöxtur í heild í iðnaðinum eins og öðrum atvinnugreinum allt frá 1960, en mismunandi mikill og hægari síðari árin, eins og kunnugt er, — samdráttur á einstökum greinum, en nýjar iðngreinar hafa komið upp og mikill vöxtur á sumum sviðum iðnaðarins. Og menn þurfa ekki annað en keyra hér inn Hringbrautina eða Miklubrautina og sjá hina miklu Iðngarða. Það hefur aldrei nokkurn tíma fyrr eða síðar verið önnur eins gróska í uppbyggingu iðnaðarbygginga, eins og gefur að líta á þessum stað og annars staðar í bænum reyndar, einnig fyrir innan Elliðaár, því að uppbyggingin er það mikil, að hún hefur ekki lengur pláss í bænum hérna megin við Elliðaárbrýrnar, heldur er farið upp fyrir, og þar er Sameinaða bílasmiðjan, sem hv. 1. þm. Austf. ætti að huga að næst, þegar hann fer í skíðaferð, því að hann mun þá líklega aka fram hjá henni. Þetta er stór og mikil iðnaðarbygging ásamt mörgum öðrum iðnaðarbyggingum nýjum, sem þar hafa upp risið.

Iðnlánasjóður, sem er stofnlánasjóður iðnaðarins, hefur tekið stökkbreytingum í tíð viðreisnarstjórnarinnar. Það er ekki þar fyrir, að iðnaðurinn þess vegna telji sig ekki þurfa meira lánsfé. En það er alveg eins og á öllum öðrum sviðum í atvinnurekstri okkar fátæka lands, þar sem lítið kapítal er og hefur verið, að enda þótt reynt sé úr að bæta og þó að úr rætist á vissum tímabilum, er eftirspurnin og hefur verið allóseðjandi á þessu sviði, og mér er alveg ljóst, að það verður að halda áfram að vinna að aukningu lánsfjár til iðnaðaruppbyggingar hér á landi, eins og unnið hefur verið á undanförnum árum, eftir því sem aðstaða okkar leyfir. Iðnlánasjóður, eða þessi stofnlánasjóður, hefur tekið þeim stökkbreytingum, að það eru sett um hann lög 1963, og það eru held ég fá lög, sem hafa tekið eins miklum og mörgum breytingum á fárra ára bili og einmitt iðnlánasjóðslögin, og allar breytingarnar miða við það að efla iðnlánasjóðinn. 1963 má segja, að séu ný grundvallarlög sett um iðalánasjóðinn, þar sem hann er stórkostlega efldur. Svo eru breytingar aftur gerðar 1965 og 1966. Þá eru almennar lántökuheimildir hækkaðar úr 100 millj. í 150 millj., þá er stofnuð hagræðingarlánadeild í iðnlánasjóði með 150 millj. kr. lánsheimild, og þá er ákveðið, að árlegt framlag úr ríkissjóði skuli vera 10 millj. í staðinn fyrir 2 millj. kr. Enn er iðnlánasjóðslögunum breytt 1966. Þá eru almennar lánsheimildir hækkaðar upp í 300 millj. kr. Og það er alls ekki svo, að þessar lánsheimildir hafi ekki verið notaðar, því að ríkisstj. hefur á hverju einasta ári hlutazt til um, að í gegnum framkvæmdaáætlunina fengi iðnlánasjóður sérstakt aukið lánsfé til þess að endurlána í vaxandi iðnað hér á landi, og nemur það stórum upphæðum nú orðið. Þá er ákveðið einnig 1966, að ef hagræðingarlánadeildin bjóði út lán, skuli skuldabréfin vera skattfrjáls. Svo er enn breytt iðnlánasjóðslögunum 1967, og þá er stofnuð ný deild. Hagræðingarlánadeildin var stofnuð 1966, veiðarfæradeildin stofnuð 1967, hún er stofnuð með 11 millj. kr. stofnfé og tekjum af innflutningsgjaldi af veiðarfærum, og hún hefur lánsfjárheimild allt að 10 millj. kr. Nokkuð af þessari lánsfjárheimild hefur þegar verið notað til þess að girða fyrir það, að eina veiðarfæragerðin hér á landi þyrfti að leggja upp laupana, sem enn hefur staðið af sér það, sem allar aðrar veiðarfæragerðir fyrr og síðar hafa ekki getað staðið af sér hér á landi, því að þær hafa allar gefizt upp. En ríkisstj. hefur sett sér og hún vill vinna að því með festu að reyna að styrkja þennan veiðarfæraiðnað, sem er hér í landinu, og efla hann í framtíðinni, svo að við Íslendingar bæði séum menn til þess að búa til okkar eigin skip og búa til okkar eigin veiðarfæri.

Lánveitingar iðnlánasjóðs höfðu um s.l. áramót á undanförnum 4 árum aukizt um 710%. Iðnaðarbankinn hefur stóreflzt á undanförnum árum. Hann er sá banki, sem hefur safnað mestu sparifé á síðustu árum af öllum bönkunum hér á landi, og bendir ekki til vantrúar á iðnaðinum eða að iðnaðurinn sé algerlega peningalaus eða þeir, sem við iðnað hafa unnið á undanförnum árum, því að sennilega fær hann mest sitt fé frá iðnaðarfólki eða því fólki, sem tengt er við iðnaðinn. Iðnlánasjóður gat veitt í lán 1958–1962, á því 5 ára tímabili, 30 millj. kr., en á síðasta 5 ára tímabili og þegar þetta ár er talið með, ráðstöfunarfé hans á þessu ári, nemur sú sama upphæð 320 millj. kr. Ég hef hérna fyrir framan mig tölur, sem sýna, að ráðstöfunarfé iðnlánasjóðs var nokkrar millj. kr., að meðaltali 2.2 millj. kr., á árunum 1956–1959, fyrir viðreisn, 2.2 millj. kr., en ráðstöfunarfé iðnlánasjóðs mun nema um 130 millj. kr. á þessu ári, möguleikar hans til útlána. Og þar er talið bæði eigið fé og svo 34 millj. kr. lánsfé, sem ríkisstj. hefur beitt sér fyrir að afla þessum sjóði til endurlána í íslenzkan iðnað.

Lausaskuldum iðnaðarins hefur verið breytt í föst og hagkvæmari lán á undanförnum árum, sem nema mun núna nærri 40 millj. kr. Endurkaup hafa hafizt á afurða- og framleiðsluvíxlum iðnaðarins, ekki í eins stórum stíl og margur mundi vilja, en m.a. af ýmsum ástæðum, þótt ekki væri nema formsástæðum, hefur það verið erfiðara en menn héldu, og það er skoðun mín, að það þurfi að skapa annað lánsform en endurkaupaformið, því að iðnaðurinn hafi, ef hann á að halda til jafns við aðrar atvinnugreinar, meiri þörf fyrir aukin rekstrarlán nú í bili heldur en flestar aðrar atvinnugreinar okkar.

Þó að þessu sé þannig komið, og ég skal ekki þreyta hv. þm. á lengri lestri um þetta, er sífellt verið að tala um hrun á þessu sviði. Það er tilviljun, ef sagt er frá nýjum iðngreinum í blöðum stjórnarandstæðinga, nýjum iðnfyrirtækjum, sem risið hafa upp, en það vantar ekki myndasmiðina, ef eitthvað bjátar á hjá einhverju fyrirtækjanna. En þetta sýnir bara innri mennina.

Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um iðnaðinn, en á fleiri sviðum á að umskapa þjóðfélagið, og þótti mér einna fróðlegast, þegar ég las í stefnuyfirlýsingu — skulum við segja — formanns Framsfl. á þinginu hér, eftir að nýjum málefnasamningi ríkisstj. var lýst, að Framsfl. ætlaði að beita sér fyrir heildarendurskoðun í heilbrigðismálum landsins. Sjálfur var hv. 1. þm. Austf. heilbrmrh., og mér er ekki kunnugt um nein afrek á því sviði í ráðherratíð hans, en hann gæti nú kannske upplýst okkur um það betur. Og þegar ég var að reyna að kynna mér og athuga, hvað hefði verið gert á sviði heilbrigðismála í tíð þeirrar ríkisstj., sem hann síðast sat í, vinstri stjórnarinnar, um 2½ árs skeið, er ekki hægt að finna þar nokkurn skapaðan hlut, a. m. k. ekki á sviði löggjafarinnar. Ég held bara, að það séu ekki ein einustu lög, sem gefin hafa verið út á sviði heilbrigðismála, sem ættu að stuðla að einhverri eflingu þeirra mála. Ég fann það ekki. En það er nokkuð öðruvísi um að litast á þessu sviði, þó að margt þurfi enn að vinna í þeim efnum, á tímabili viðreisnarstjórnarinnar. Það hafa verið sett ný sjúkrahúsalög, það hafa verið sett ný læknaskipunarlög, og það er unnið að endurskoðun, það er ekki heildarendurskoðun, því að ég veit ekki, hvað menn meina með þessari heildarendurskoðun, en það geta kannske þeir sjálfir skýrt, sem þetta orð nota, — en það er þegar byrjað að vinna að endurskoðun á yfirstjórn heilbrigðismála, eins og lýst var yfir í stjórnarsamningnum, og hef ég skipað 4 menn til þess að vinna að þeim málum í nánum tengslum við landlækni og ráðh. Þessi mál hafa verið töluvert undirbúin í dómsmrn., sem fer með heilbrigðismálin nú, og á næstunni verður unnið að þeim í samræmi við þá stjórnaryfirlýsingu, sem gefin hefur verið. Það er unnið kappsamlega að því að skipuleggja heilbrigðisstofnanir og gera framtíðaráætlanir í sambandi við Landsspítalann, stækkun landsspítalalóðarinnar og tengsl Landsspítalans við læknadeild háskólans. Á s.l. vori voru fengnir erlendir aðilar til aðstoðar, og þeir komu bæði hingað til lands og íslenzkir sérfræðingar á þessu sviði fóru til viðræðna og samráðs við þá erlendis. En þegar þessi áætlun liggur fyrir, sem unnin verður og þarf að vinnast í samráði við Reykjavíkurborg, má ætla, — og ég vona, að það verði fljótlega, að henni verði lokið, — að fyrir liggi framtíðarskipulag um það, hvernig Landsspítalinn og heilbrigðisstofnanir og kennslustofnanir í sambandi við hann eigi að byggjast upp í framtíðinni. Og þá mun þar gefa að líta áætlunargerð til 20–30 ára fram í tímann, þar sem margar af helztu heilbrigðisstofnunum landsins verða, bæði hluti af nýrri geðdeild og einnig kvensjúkdómadeild við stækkun fæðingastofnunarinnar og rannsóknastofnanir og margs konar stækkanir á þeim deildum, sem fyrir eru á Landsspítalanum, og skal ég ekki fara lengra út í þá sálma nú, en þannig er unnið að þessum málum.

Hér er nú starfandi á vegum Reykjavíkurborgar og ríkisins sænskur læknir í heilbrigðismálum almennt og verður hér um tveggja mánaða skeið, en þau mál hafa verið þannig vaxin hjá okkur, að ungir íslenzkir læknar hafa ekki lagt neitt fyrir sig að kynna sér eða stúdera, ef svo má segja, almenna heilbrigðisfræði, og prófessorinn í almennum heilbrigðisfræðum við Háskóla Íslands, það er svo ástatt, ef hans nyti ekki við, þá held ég, að það sé ekki neinn íslenzkur maður til að taka að sér þá kennslu, eins og nú standa sakir. Þetta einmitt felur líka í sér ýmiss konar heilbrigðiseftirlit, eins og sóttvarnir, ef koma upp smitandi sjúkdómar, og annað slíkt. Að þessu er unnið, og við eigum von á því á næstunni, að hingað komi 2 sænskir sérfræðingar, annar rekstrarfræðingur og hinn læknir, til þess að gera áætlun um yfirstjórn heilbrigðismálanna, um endurskoðun á rekstrarfyrirkomulagi Landsspítalans, og þá er hugsað, að það geti orðið fyrirmynd að bættu rekstrarfyrirkomulagi í öðrum sjúkrahúsum landsins, en það hefur verið unnið að því að undanförnu og er stefnt að því að bæta og koma á hagræðingu í rekstri sjúkrahúsanna. Það eru gífurlegir fjármunir, sem í þetta fara, og skiptir miklu máli að hagnýta sem bezt þessa miklu fjármuni, en við höfum því miður ekki haft af miklu að státa í því efni og fáa sérfræðinga á þessu sviði. Þess vegna höfum við talið okkur nauðsynlegt að leita aðstoðar erlendis frá. Og að öðru leyti höfum við haft í huga að reyna að mennta upp sérfræðinga á þessu sviði fyrir íslenzkar heilbrigðisstofnanir, sem mikil þörf er á. Það er langt komið samningu frv. um almennt heilbrigðiseftirlit í landinu, og geri ég ráð fyrir að geta lagt það bráðlega fyrir Alþingi, en það felur í sér mjög mikla endurskipulagningu á sviði þeirra mála í sambandi við heilbrigðisnefndir og starfsemi þeirra og almennt heilbrigðiseftirlit, samræmt heilbrigðiseftirlit um gjörvallt landið. Það er verið að ganga frá í rn. reglugerð um læknamiðstöðvar, hvernig þær skuli byggja upp og reka, en í nýju læknaskipunarlögunum er heimild til þess að setja upp læknamiðstöðvar í dreifbýlinu og annars staðar, og það virðist svo sem þetta falli vel í geð hinum yngri læknum og ætti ef til vill að geta stuðlað að því að bæta aðstöðuna til þess að fá lækna til þess að sinna hinni almennu heilbrigðisþjónustu, bæði úti á landi og einnig hér í Reykjavík. Og sannleikurinn er sá, að það er einnig í endurskoðun hin almenna læknaþjónusta utan sjúkrahúsa, sem nú þykir mjög ábótavant í Reykjavík, ekki síður en annars staðar á landinu. Það er auðvitað ýmislegt fleira, sem mætti til nefna, ég skal ekki gera það nú á þessum vettvangi, en þarna eru mörg járn í eldinum í sambandi við framþróun og eflingu á sviði heilbrigðismála. Til þeirra hefur verið varið miklu meiri fjármunum en nokkru sinni áður, og ég er þakklátur fjárveitingavaldinu og Alþingi fyrir það, hvað vel það hefur tekið í tillögur ríkisstj. að þessu leyti á undanförnum árum, en það er mörgum sinnum meira en hefur nokkru sinni verið á undanförnum árum, ef við tökum einhver önnur tímabil og vildum reyna að bera þau saman við það, sem nú er.

Allt það, sem ég hef sagt núna, er ekki í mínum huga til þess að draga nokkurn skapaðan hlut úr hinni miklu þörf á miklum átökum á sviði heilbrigðismálanna. Það er svo, að til þess að halda þessum málum í ákjósanlegu horfi og koma þeim í ákjósanlegra horf en er, þá þarf gífurlega mikla fjármuni og sennilega miklu meiri fjármuni en þm. almennt hafa gert sér grein fyrir, að til þessara hluta þurfi. En hinu get ég ekki kvartað undan, að þingið hefur ekki veigrað sér við að veita auknar fjárveitingar til heilbrigðismálanna á undanförnum árum og með þeim árangri, að okkur hefur auðvitað síðari árin skilað í þessum efnum meira áleiðis en áður og ella mundi verið hafa.

Þá hefur einnig verið talað um það af hv. stjórnarandstæðingum, að það þurfi að breyta fyrirkomulagi fjárfestingarinnar, og hv. 1. þm. Austf. vék að því í ræðu sinni og sagði, að það mætti ekki seinna vera að leggja til hliðar eitthvað af gjaldeyrisvarasjóðnum, til þess að hægt væri að kaupa fyrir hann vélar og tæki og annað slíkt til framleiðsluaukningar í landinu. Ritari Framsfl. sagði einhvern tíma í vetur, að það ætti að eyða honum öllum í einu til þessara kaupa. En nú á að leggja til hliðar eitthvað í þessu sambandi. Það er ekki nema góðra gjalda vert að leggja til hliðar af gjaldeyrisvarasjóðnum til þess að kaupa nytsamleg tæki til framleiðsluaukningar í landinu. En þegar menn segja þetta, þá verða menn að gera sér grein fyrir, hvað hefur verið að ske á þessum sviðum á undanförnum árum. Það hefur verið nýsköpun á þessu sviði, ekki í eitt skipti, eins og átti sér stað að lokinni síðustu heimsstyrjöld, þegar við Íslendingar höfðum safnað gjaldeyrisvarasjóði og ákváðum að verja þá 300 millj. kr. til nýsköpunar, heldur hefur verið hér nýsköpun á þessu sviði frá ári til árs og ár eftir ár á viðreisnartímabilinu.

Fjármunamyndun í vélum og tækjum á tímabilinu 1962–1965 er um 50% meiri en á fjögurra ára tímabilinu 1956–1959, miðað við sambærilegt verðlag bæði tímabilin. Fjármunamyndun í vélum og tækjum í landbúnaði er á þessu tímabili um 100% hærri á seinni tímabilinu, viðreisnartímabilinu, heldur en áður en viðreisnin tók við, í fiskiskipum 55% hærri, í iðnaðarvélum 38% hærri og í flokknum ýmsar vélar og tæki og þ. á m. vinnuvélar 62% hærri. Fjármunamyndunin eða nýsköpunin, sem við getum líka kallað svo, frá ári til árs í fiskiskipum, vélum og tækjum, í landbúnaði og iðnaði, flutningaskipum, flugvélum, bifreiðum, til atvinnurekstrar, rafvirkjunar og rafveitna, hefur aldrei verið meiri en á síðasta tímabili. Og ef við tökum árin 1964, 1965 og 1966 og miðum við verðlag ársins 1965 til þess að fá eðlilegan samanburð í verðlaginu, þá verður að færa niður verðlagið frá 1966 eða krónutöluna og upp frá 1964. Þá er fjármunamyndunin á þessum sviðum, sem ég nefndi, eða nýsköpunin árið 1964 1994 millj. kr., árið 1965 er hún 1660 millj. kr., og árið 1966 er hún 2001 millj. kr. En það er með sambærilegu verði meira en bæði árin til samans, árin 1957 og 1958, þegar vinstri stjórnin var hér við völd. Við höfum sem sagt á viðreisnartímabilinu einkennilegar tölur, því að við höfum þarna þrisvar sinnum 2000 millj. um það bil, þetta eru tæpar 2000 millj. öll þessi ár. Við eignuðumst gjaldeyrisvarasjóð, sem nam 2000 millj. kr. Við byggðum upp á fáum árum fiskiskipastól fyrir 2000 millj. kr. Og við keyptum vélar og tæki til framleiðsluaukningar í iðnaði, landbúnaði, sjávarútvegi og samgöngum fyrir um 2000 millj. kr. Það getur vel verið, að hv. 1. þm. Austf. finnist þurfa að endurskoða þetta allt frá rótum, en það verður tæplega endurskoðað til þess að auka það mikið frá því, sem verið hefur á undanförnum árum, því að það hefur sannarlega aldrei verið önnur eins gróska í uppbyggingu og fjármálamyndun á þessu sviði, og það er m.a. af þessum ástæðum og öðrum, sem við, eins og ég sagði í upphafi ræðu minnar, stöndum miklu betur að vígi núna en nokkru sinni áður til þess að mæta aðsteðjandi erfiðleikum.

Ég er hæstv. fjmrh. alveg sammála, eins og hann sagði í gær, að okkar ráðstafanir verða hvorki betri né verri fyrir það, hvort öðrum hefur tekizt betur eða verr við að leysa vandkvæði þjóðfélagsins, þegar þeir áttu að ráða. Það er alveg rétt. En það er hins vegar afskaplega freistandi, ég neita því ekki, að minna kempurnar, sem nú standa hér með gorgeir og segja þjóðinni, að það þurfi að fela þeim forsjá ríkisbúskaparins, til þess að vel fari, að minna þá á, hvernig þeim tókst til, þegar þeir höfðu töglin og hagldirnar og höfðu völdin í þjóðfélaginu. Þar er nú ákaflega auðvelt að fara fljótt yfir sögu og gefa þó nokkuð skýra mynd. Það var nefnilega í ágústmánuði, eftir að vinstri stjórnin tók við völdum, að þá voru gefin út bráðabirgðalög um festingu verðlags og kaupgjalds, — þá var ekkert verið að hafa fyrir því að bíða eftir, að þing kæmi saman, til þess að leggja það fyrir, — og með þeim forsendum, að þetta verði að gera í skyndi, meðan athugun fer fram á varanlegri lausn efnahagsvandamálanna. Ég gæti vel trúað því, að ýmsir hafi sætt sig við þetta, hugsað sem svo: þetta er andskoti dugleg stjórn og röggsöm, sem setzt hefur á laggirnar. Hún ætlar að koma með varanlega lausn á efnahagsvandamálunum, og við skulum láta það gott heita, þó að hún festi bæði kaupgjaldið og verðlagið, ekki bara verðlagið, eins og við höfum verið að gera, heldur kaupgjaldið líka. — Að vísu hafði forseti Alþýðusambandsins, hv. 9. þm. Reykv. (HV), sagt fyrir kosningarnar eftirfarandi, með leyfi hæstv. forseta: „Alþýðusambandið aðvarar af fyllstu alvöru. Kjósið umfram allt ekki yfir ykkur gengislækkun og kaupbindingu.“ Það var nú ekki í næsta mánuði, sem hún skall á, nei, tveim mánuðum seinna. „Kjósið ekki yfir ykkur kauplækkun og lífskjaraskerðingu.“ Það var skammt í hana. „Það er bjargföst skoðun núverandi stjórnar Alþýðusambands Íslands, að nú riði verkalýðshreyfingunni lífið á að eignast svo sterkan þingflokk á Alþingi, skuldbundinn af stefnuskrá Alþýðusambandsins, að gengislækkun, lögbindingu kaups og vísitöluskerðingu eða nýju skattaflóði verði ekki með neinu móti komið fram á Alþingi.“ Það varð til sterkur flokkur, Alþb., á þingi, og það sem meira var, það skapaðist meiri hluti á Alþingi, sem þessir aðilar, sem nú eru að gagnrýna okkur, áttu sæti í, þar sem þeir fóru með ríkisstjórn og áttu sæti í henni. En allt þetta kusu þeir yfir sig sjálfir þann stutta tíma, sem þeir voru við völd. Þeir framkvæmdu ekki gengislækkun hreinskilnislega gagnvart fólkinu. Nei, nei, það voru bara lagðir ýmsir pinklar ofan á gjaldeyrinn eftir því, til hvers átti að nota hann, þá átti að borga aukalega skatta, og það vissi í raun og veru enginn, hvað mörg voru gengi á íslenzkri krónu. En allt voru þetta álögur á fólkið og ekkert nema gengislækkun, og þess vegna var gengisbreytingin hjá viðreisnarstjórninni, þegar hún tók við, í raun og veru að mestu leyti bara rétt skráning á genginu, eins og það þá var orðið, eftir þá skrumskælingu, sem átt hafði sér stað á undanförnum árum.

Fyrir kosningarnar hafði sami hv. þm. sagt, með leyfi hæstv. forseta: „Við teljum það glapræði, að nokkur meðlimur í verkalýðshreyfingunni kjósi frambjóðanda nokkurs þess flokks, sem ekki megi fulltreysta til andstöðu við þessi óþurftarmál verkalýðsins.“ En þau áttu nú öll eftir að líta dagsins ljós.

En menn eru að fárast hér yfir því, að við leggjum til, að vísitöluhækkun komi ekki til að hafa áhrif á verðlagsuppbætur á laun og þar með valda fólkinu kjaraskerðingu. Þetta hefur verið sagt hreinskilnislega, við höfum ekki verið með þennan loddaraleik eins og ég var að vitna hér til áðan. Við höfum sagt það hreinskilnislega, og það þykir mikið glapræði af okkur. En þegar þetta frv. kom fyrir Alþingi á sínum tíma, 1956, um festingu verðlags og kaupgjalds, þá sagði hv. 9. þm. Reykv. og núverandi forseti Alþýðusambandsins: „Ég sé nú, að allir keppast um að viðurkenna, að verðlags- og kaupgjaldsstöðvunin hefur verið fyllilega tímabær, eins og ástandið var. Og nú sé ég, að því er lýst yfir mjög áberandi, að allir vilji mikið á sig leggja, til þess að takast megi að framkvæma algera verðlags- og kaupgjaldsstöðvun. Og ég fagna því.“

Ég held, að hann ætti nú að fara að lesa þessi gömlu vers sín, og okkur gæti þá kannske bætzt eitt atkvæði, þegar þetta frv., sem hér liggur fyrir, kemur til atkvæða.

Ég hef auðvitað enga löngun til þess að vera að ýfa upp gömul sár í þessu sambandi, en eins og ég sagði áðan, þá er varla hægt að lá manni, þó að hann freistist til þess að láta það koma fram og minna þá fólk á, svo að það geti séð það, hvernig þessir hv. stjórnarandstæðingar töluðu og hegðuðu sér í svipuðum málum og hér liggja fyrir, þegar þeir sjálfir báru ábyrgðina.

Eftir festingu verðlagsins og kaupgjaldsins í ágústmánuði með brbl. kom þingið saman, og þá kom hv. 1. þm. Austf. með sín fyrstu fjárlög í þeirri stjórn. Fjárlagaræðan gekk mest út á það að skamma fyrrv. fjmrh., hvað hann hefði verið búinn að koma öllu í mikið öngþveiti hér og fjármálastjórnin hefði farið illa úr hendi, en þessi fyrrv. fjmrh. var sami maðurinn, Eysteinn Jónsson. Látum það gott heita. En þá lagði hann fjárlagafrv. fyrir með stórkostlegum greiðsluhalla, sem við vildum ekki láta henda okkur og töldum, að það væri skylda ríkisstj. að ganga frá fjárlagafrv. þannig, að það væri ekki á því greiðsluhalli, en hann lagði sitt fyrsta frv. fyrir með stórkostlegum greiðsluhalla og sagði um það svo, með leyfi hæstv. forseta: „Varð því að semja frv. til fjárlaga, áður en ákvarðanir hafa verið teknar um heildarráðstafanir í efnahags- og framleiðslumálum.“ Nei, varð honum þetta á, blessuðum, að leggja fram frv., áður en heildarráðstafanir í efnahags- og framleiðslumálum væru gerðar? Enn fyrirgáfu menn víst þessari ríkisstj. að því leyti, að þetta væri nú allt að koma, því að varanlegu úrræðin væru á næstu grösum. En það beið nú, leið og beið. Það komu að vísu efnahagsráðstafanir í desembermánuði 1956, sem hespað var í gegnum þingið á nokkrum sólarhringum. Það var fjáröflun til útflutningssjóðs, og þá var breytt útflutningsbótakerfinu og lagðar á nýjar álögur vegna bæði útflutningssjóðs og ríkissjóðs. Það var talið, að þessar álögur mundu nema a. m. k. — og það er áreiðanlega varlega reiknað — 130 millj. kr. vegna útflutningssjóðs í viðbót við gamla bátagjaldeyriskerfið og rúmum 100 millj. kr. vegna ríkissjóðs, eða samtals um 230 millj. kr. Þetta voru fyrstu pinklarnir, sem voru lagðir á þjóðina, þessar 230 millj. kr. En hvað mundu þær vera í dag? Í tíð vinstri stjórnarinnar, þegar núv. stjórnarandstæðingar stýrðu fjármálum, fyrst og fremst hv. 1. þm. Austf., samanborið við þjóðarframleiðsluna árið 1956, sem nam 5128 millj. kr., þá mundi þessi upphæð samsvara um 1100 millj. kr. Menn fjargviðrast að vísu nú og fárast yfir álögum, sem við teljum og ekki hefur verið vefengt að nemi um 750 millj. kr. En jólagjöfin sæla, ef hún á að berast saman við þetta, miðað við þjóðartekjurnar þá og nú, þá mundi hún hafa numið 1100 millj. kr. Þá var búið að gera tvennt með brbl., að festa kaupgjald og verðlag og þá voru felld niður sex vísitölustig, sem launþegarnir voru búnir að vinna sér rétt til. Og þessi niðurfelling var varanleg. Hún svaraði til rúmlega 3% kjaraskerðingar, hreinnar og beinnar kjaraskerðingar, og þá var ekkert farið í grafgötur með það.

Þetta var gert í ágúst, og í desember var þessum 1100 millj. kr. bætt ofan á landsfólkið, en eins og ég sagði, menn bjuggust við varanlegu úrræðunum og þá mundi aftur batna. En svo leið árið 1957, þinginu lauk og engin varanleg úrræði komu. Svo kom hv. 1. þm. Austf., þáv. fjmrh., með fjárlagafrv. fyrir 1958 á haustþingi 1957. Það er ekki margt merkilegt við það frv. nema yfirlýsing, sem fylgdi því í grg., en hún gleymist ekki fljótlega, en þar stendur, með leyfi hæstv. forseta, að ríkisstj. telur sér engan veginn fært að ákveða það, án þess að náist samstarf við þingflokka þá, sem hana styðja, hvernig leysa skuli þann vanda, sem við blasir í efnahagsmálum landsins, þ. á m. hvernig mæta skuli þeim mikla halla, sem fram kemur á fjárlagafrv. Enn er fjárlagafrv. lagt fram með stórum halla. Ríkisstj. hefur ekkert tækifæri haft til þess að ráðgast við flokka sína á Alþingi um fjárlagafrv. né viðhorfið í efnahagsmálunum, eins og það er nú eftir reynsluna á þessu ári, — ekkert tækifæri haft til þess að ráðgast við sína flokka, og þá var ríkisstj. búin að sitja í 15 mánuði. Ætli þessar kempur væru líklegri til að leysa þann vanda, sem nú er, heldur en þann, sem þeir sjálfir ætluðu að glíma við 1956, 1957 og 1958 og fórst svona höndulega við? En því má ekki gleyma, að tilraun til varanlegrar úrlausnar kom í maímánuði 1958 og var þá kölluð bjargráð. Með því að glugga í skýrslur stjórnarinnar sjálfrar og grg. fyrir þeim efnahagsráðstöfunum, sem þá voru gerðar, og miða við það, sem þeir sjálfir sögðu, þá var falið, að lagðar væru á þjóðina 430 millj. kr. byrðar. Um þetta voru að vísu mjög miklar deilur og sjálfstæðismenn héldu því fram á þingi, að álögurnar væru miklu meiri, jafnvel 800 millj. kr. En ég ætla ekki að fara að rifja þá deilu upp og lítil von til þess, að úr henni rakni núna, svo að ég tek bara lægstu töluna, þessar 430 millj. kr., og dreg svo frá henni vissar upphæðir, nauðsynlega tekjuaukningu vegna 5% launahækkunar hjá útflutningssjóði og ríkissjóði, þannig að byrðarnar verða þá, eins og þær lægst verða taldar, 344.3 millj. kr., en eins og ég sagði, töldum við sjálfstæðismenn á þingi þá, að þær væru miklu hærri, raunverulega miklu hærri. En það er þessi upphæð, sem ríkisstj. sjálf, þáv. ríkisstj. taldi að um væri að ræða. Þjóðarframleiðslan 1958 er talin hafa verið 6388 millj. kr. á verðlagi þess árs. Álögurnar 1958 voru því 5.4% af þjóðarframleiðslunni, og samsvarandi tala 1967 mundi vera 1280 millj. kr. M. ö. o.: fyrst jólagjöfin í desember 1956 1100 millj. kr. og 1300 millj. kr. álögur í maí 1958. Og þá erum við komnir upp í 2400 millj. kr. og reiknað þó lágt og miklu lægra en margur annar mundi vilja gera.

Þetta minni ég aðeins á til þess að bera saman, hvað þykir boðlegt af hv. stjórnarandstæðingum, sem gagnrýna okkur nú, þegar þeir sjálfir eiga að bera ábyrgð á stjórnarráðstöfunum. En það fylgdi böggull skammrifi. Forsætisráðherrann þáverandi, Hermann Jónasson, gerði hreinskilnislega grein fyrir því, að þetta mundi ekki duga og það þyrfti annað og meira að koma til, ef allt ætti ekki að kollvarpast hjá ríkisstj. En þetta annað og meira kom aldrei til, og þess vegna lýsti forsrh. hér yfir, á þessum stað, 5. des. 1958, að það væri ekki samstaða um nein úrræði í efnahagsmálum innan ríkisstj. og hún hefði beðizt lausnar, eða hann hefði beðizt lausnar fyrir sig og rn. sitt.

Þetta er náttúrlega ekki mjög skemmtileg saga, og það er leiðinlegt að vera að tefja tíma þingsins á að rifja þetta upp. En ég endurtek það, sem ég sagði: Enda þótt það geri hvorki betri né verri okkar tillögur nú, þá er nokkurs virði a. m. k., að almenningur geri sér grein fyrir því, hvaða ferill liggur að þessu leyti eftir þá menn, sem nú gagnrýna stjórnina svo hlífðarlaust sem þeir gera.

Og þá er eitt, sem hefur verið sagt, sem ég vil að lokum minnast á, að ríkisstj. eigi alla sökina, því að hennar stefna hafi verið verðbólgustefna og aldrei hafi óðaverðbólgan verið meiri í þjóðfélaginu en í tíð viðreisnarstjórnarinnar. Við skulum fyrst athuga fyrra atriðið, hvort það hefur verið hennar stefna að auka verðbólguna í landinu.

Núverandi ríkisstj. og ríkisstj. frá 1959, viðreisnarstjórnin, sem má telja sömu ríkisstjórnir, þó að breytingar hafi orðið á mönnum, gerðu ítrekaðar tilraunir til þess, margítrekaðar tilraunir til þess að halda niðri verðlaginu, eins og kunnugt er. Og þegar verðbólguvöxturinn varð meiri en góðu hófi gegndi 1963, þá greip stjórnin til þess, sem hún taldi örþrifaráð. Þá hafði kjaradómur fallið og opinberir starfsmenn höfðu fengið verulega leiðréttingu á sínum launum til hækkunar, og töldu allir, að sanngjarnt væri, að laun þeirra hækkuðu. Allir töldu sanngjarnt, að þeir fengju þessar launahækkanir, áður en kjaradómurinn féll, til samræmis og lagfæringar við það, sem verið hafði hjá öðrum stéttum, því að opinberir starfsmenn hefðu dregizt langt aftur úr og sýnt mikið langlundargeð. En dómurinn var ekki fyrr fallinn en allir sögðu: Nú viljum við fá sams konar hækkun, — sömu menn sem áður höfðu viðurkennt, að það væri rétt, að embættismennirnir fengju lagfæringu, og þeir ættu hana skilið vegna þess, hvað þeir væru orðnir langt aftur úr. Þá reis þessi gífurlega kauphækkunaralda í landinu og verðhækkunaralda um leið, eins og venjulega hefur verið hjá okkur, og ég skal ekki fara út í þá sálma, við hvern er að sakast, en kaupgjaldið hækkaði á árunum 1963–1966 að meðaltali, almennt kaupgjald í landinu, yfir 30%, einhvers staðar milli 30% og 40%. Og þetta er svo ótrúleg almenn kauphækkun, að það má furðu gegna, að þjóðarbúskapurinn skyldi hafa staðið það af sér. Það þykir mikið og komið að hættumerkinu hjá nágrannaþjóðum okkar í Vestur-Evrópu a. m. k., þegar almennar kauphækkanir fara yfir 3% á ári, og það er einmitt leiðin til að koma verðbólgunni upp, að hinar almennu kauphækkanir séu sem mestar, því að þá fylgir verðlagið á eftir. Við hitt er ekkert að sakast, þó að miklar kauphækkanir séu á sérstökum sviðum, sem hafa ekki sambærileg áhrif á hið almenna verðlag og þar af leiðandi ekki verðbólguaukandi eins og slíkar almennar kauphækkanir sem hér var um að ræða. Þá greip, eins og ég sagði, ríkisstj. til neyðarúrræða og vildi binda kaupgjald og verðlag til áramóta, þegar þingið kom saman í októbermánuði, — til áramóta, á meðan væri verið að athuga frekari úrræði á þessu sviði. Það var ekki að tala um að binda kaupgjald og verðlag til áramóta, veita nokkurn frest á því, og um þetta hófust miklar deilur hér á Alþingi, og það var svo síðasta verk forsrh. Ólafs Thors hér á þingi að láta ekki til skarar skríða, en ganga inn á það, að ekki yrði afgreitt endanlega við síðustu umr. í seinni d., þetta frv., í trausti þess, að frjálsir samningar næðust við fulltrúa launþeganna eða launþegasamtökin í landinu. Það urðu sættir í málinu í desembermánuði, samkomulag á milli vinnuveitenda og launþegasamtakanna, en þær sættir voru langt fyrir ofan það, sem ríkisstj. taldi þá og hafði aðvarað bæði samtökin um, vinnuveitendasamtök og launþegasamtök, að fært væri, eins og á stóð, og þetta mundi leiða af sér gagnráðstafanir, eins og það gerði, því að fyrsta verk ríkisstj. 1964, eftir áramótin, sem hún var neydd til, var að leggja á söluskattinn, og það má með sanni segja, að fulltrúum bæði vinnuveitenda og launþega hafi verið þetta svo ljóst, að þeir hafi í raun og veru með sínum samningum í desembermánuði, fyrir áramótin, ákveðið hækkun söluskattsins. Það fólst efnislega í þeim samningum, sem þá voru gerðir.

1964 átti ríkisstj. gott samstarf við launþegasamtökin og atvinnurekendasamtökin um júnísamkomulagið svokallaða, sem hafði þann megintilgang að draga úr verðbólgunni, og svipaður samningur var gerður 1965, þó að hann væri ekki eins gagngerður og júnísamkomulagið að þessu leyti, sem gert hafði verið 1964. Ríkisstj. átti engan hlut að samningum, sem gerðir voru 1966, kaupgjaldssamningum og hækkunum á kaupi, en 1966 fær ríkisstj. lögfest verðstöðvunarfrv. til þess að draga úr verðbólgu í landinu.

Ég minni aðeins á þessi atriði til að sýna fram á það, að æ ofan í æ hefur ríkisstj. á þessu tímabili, frá 1959, miðað ráðstafanir sínar við það að draga úr verðbólgunni. Hitt höfum við aldrei dregið neina fjöður yfir og viðurkennum, að okkur hefur ekki tekizt að ná þeim árangri, sem við hefðum óskað. En öllum ráðstöfunum, sem ríkisstj. hefur borið fram og mörgum óvinsælum til þess að hefta verðbólguna, hafa andstæðingar okkar, stjórnarandstæðingar, alltaf verið á móti. Þeir hafa viljað hækka vexti og auka enn þá meira útlán og margt fleira þar fram eftir götunum, sem allt hefði eðli málsins samkvæmt leitt til bullandi verðbólgu fram yfir það, sem verið hefur á undanförnum árum.

En hver er svo þessi óðaverðbólga, sem aldrei hefur verið meiri en í tíð núv. ríkisstj.? Ef við lítum yfir farinn veg, þá sjáum við eftirfarandi til vitnis um það, að á tímabilinu frá 1. jan. 1964 og fram í maímánuð, eftir að áhrifin af hinum miklu kaupgjaldshækkunum á árinu 1963, sem ég vék að áðan, komu fram, þá verður mesta verðbólguaukning, sem hér hefur átt sér stað í tíð viðreisnarstjórnarinnar, — mesta verðbólguaukning, og á ársgrundvelli mundi sú verðbólguaukning hafa numið 29.8%. Það var þess vegna alveg voðinn vís. Og þegar menn hafa þetta í huga, þá sjá menn betur, hversu þýðingarmikið júnísamkomulagið sama ár var, sem byggðist á því að veita að vísu verðlagsuppbót, en í þeirri veru að grunnkaupshækkanir ættu sér ekki stað. En í tíð þeirrar stjórnar, sem ég talaði um áðan, vinstri stjórnarinnar, þá getum við tekið það tímabil hennar, sem verðbólguaukningin er mest, þ. e. frá júní 1958 og til nóv. 1958, þá er hún 35.5% á ársgrundvelli, svo að við komumst ekki með tærnar þar, sem fyrirrennarar okkar höfðu hælana, að þessu leyti, þó að þeir tali um þá mestu óðaverðbólgu, sem nokkru sinni hafi verið, í tíð núv. ríkisstj. Frá því í maímánuði, — og það er rétt, að menn hafi það í huga, að það hefur gengið skaplegar að halda niðri verðbólgunni á því tímabili, — frá því í maímánuði 1964 og þangað til nú 1. okt., þ. e. meginhlutann af árinu 1964, 1965, 1966 og það sem af er þessu ári, þá er hækkunin á ári á ársgrundvelli á verðbólgunni 6.5% Ég held, að hún hafi ekki í annan tíma á jafnlöngu tímabili verið minni frá því 1950. Þetta hef ég líka leitt fram í dagsljósið, til þess að það komi fram, hvað raunverulegt er í þessu, en sé ekki hlustað sí og æ á stagi um einhverja ægilega óðaverðbólgu, sem aldrei hafi átt sinn líka hér á landi. Svo þegar farið er að kryfja þetta til mergjar, þá eru þetta bara staðlausir stafir, sem stangast á við allan raunveruleika í þessu máli.

Herra forseti. Ég tel eflaust, að þær umræður, sem fram hafa farið um þetta mál, hafi orðið til þess að upplýsa marga þætti þessa máls og ýmissa annarra mála. Og tillögur ríkisstj. í þessu frv. eru ekki æskilegar, það vita menn, þegar þarf að gera tillögur, sem valda öllum almenningi kjaraskerðingu, og þær koma vissulega illa við marga. En hjá því verður ekki komizt, eins og nú horfir, því miður, að okkar dómi. Ríkisstj. hefur, eins og hv. þm. er kunnugt, tjáð sig reiðubúna til viðræðna við stjórnarandstöðuna, bæði innan þings og utan, eins og það var orðað, ef það mætti leiða til lagfæringa í þessum málum og hagræða eitthvað þeim tillögum, sem hér er um að ræða. En meginefni málsins er, að við víkjum ekki frá því að afgreiða hallalaus fjárlög á þinginu með einu eða öðru móti. Ef menn vilja, að eitthvað af þeirri tekjuöflun falli niður, sem gert hefur verið ráð fyrir, þá mega menn ekki búast við, að hægt sé að fallast á það, öðruvísi en að samkomulag verði þá um aðrar leiðir til tekjuöflunar. Kannske finnst mönnum þetta annarlegt, að ríkisstj. leggi fram tillögu og segi svo: Hvað hafið þið til málanna að leggja? Eigum við að athuga, hvort við getum eitthvað komið þessu betur fyrir? En þetta er auðskiljanlegt, vegna þess að ríkisstj. hafði þá skoðun, að hún yrði sjálf að gera sínar tillögur og mæta óvinsældum og aðkasti, sem af því kynni að leiða; það væri hennar skylda, og í því hefur hún engu leynt og enga blekkt. Þegar þær tillögur liggja fyrir, þá er hún hins vegar reiðubúin til þess að hlýða á tillögur til úrbóta á því sviði, og ef það mætti lagfærast í samkomulagi við stjórnarandstöðuna, mundi okkur þykja mjög vænt um það, og þá mundu stjórnarandstæðingar hljóta af því verðugt lof.

Ég skal svo ljúka máli mínu með því að segja, að þessar ráðstafanir, eins og ég hef margtekið fram, eru vissulega ekki æskilegar fyrir almenning. En eins og ástandið er, komumst við ekki hjá því að horfast í augu við hið alvarlega ástand. Við eigum að leyfa okkur að vona, að úr rætist, að verðbreytingar verði til bóta á hinum erlendu mörkuðum, áður en langt um líður, og við ættum einnig að geta gert okkur vonir um betra árferði, bæði til lands og sjávar, og þá er aðstaða okkar Íslendinga þannig, að við þurfum engu að kvíða. Og mín skoðun er sú, að við hefðum kannske, þegar öllu er á botninn hvolft, aðeins haft gott af því að glíma við nokkra örðugleika til þess að festa okkur betur á svellinu í þeirri framtíðarsókn, sem við munum halda áfram til aukinna hagsbóta fyrir allan almenning í þessu landi.