14.11.1967
Neðri deild: 17. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í C-deild Alþingistíðinda. (2296)
7. mál, efnahagsaðgerðir
Frsm. meiri hl. (Matthías Á. Mathiesen) :
Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur haft til meðferðar frv. til l. um efnahagsaðgerðir á þskj. 57 og eins og fram kemur, hefur n. ekki orðið sammála um afgreiðslu frv. Meiri hl. n. leggur til, að frv. á þskj. 57 verði samþ., en minni hl. leggur til, að frv. verði fellt.
Fjhn. hefur haft málið til meðferðar nú um nokkurn tíma, og til n. komu til viðræðna þeir aðilar, sem fjallað höfðu um samningu frv., til þess að ræða við n. og skýra einstök atriði, sem nm. höfðu fsp. um. En þeir voru þeir Klemenz Tryggvason hagstofustjóri, Davíð Ólafsson bankastjóri og Jónas H. Haralz forstjóri Efnahagsstofnunarinnar. Eftir að nál. höfðu verið gefin út, bárust erindi til n., annars vegar frá Samlagi skreiðarframleiðenda og hins vegar frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, sem n. mun athuga á milli 2. og 3. umr., þar sem þessi erindi höfðu ekki borizt fyrir afgreiðslu málsins.
Efni þess frv., sem hér er til 2. umr., er skipt í fimm kafla. I. kafli frv. fjallar um nýjan vísitölugrundvöll, og fyrir nokkru var útbýtt á Alþingi fréttatilkynningu frá kauplagsnefnd og hagstofunni um nýja vísitölu framfærslukostnaðar. Í þessari fréttatilkynningu er gerð grein fyrir því, sem á var talið vanta í sambandi við grg. með frv., og ég sé ekki ástæðu til þess að rekja þær breytingar, sem hér er gert ráð fyrir að eigi sér stað, en það er gert ráð fyrir í frv., að á næsta ári, 1. marz 1968, taki gildi ný vísitala, sem yrði með grunntölunni 100, og gert er ráð fyrir því í þessu frv., að sú hækkun, sem orðið hefði vegna hækkunar landbúnaðarvöruverðs og annarra ráðstafana í þessu frv. og í fjárl., hækkun á vísitölunni, sem því næmi, félli niður. Í II. kafla frv. er gert ráð fyrir áframhaldandi verðstöðvun á næsta ári. III. kaflinn fjallar hins vegar um atriði, sem Alþ. hefur áður fjallað um, þ.e.a.s. ráðstafanir vegna sjávarútvegsins, og hér teknar inn þær greinar, og þær fjárhæðir, sem hér um ræðir, eru svo einnig inni í fjárlagafrv. Í IV. kafla frv. er gert ráð fyrir því, að lögfest verði heimild til þess að leggja á 3000 kr. farmiðagjald fyrir þá, sem ferðast til útlanda. Og í V. kafla frv. er gert ráð fyrir breyttri skipan á ýmissi skattheimtu, þ. e. a. s. margföldun fasteignamats til eignarskatts, breytingu á lágmarksskattgjaldseign úr 100 þús. í 200 þús. og að felld verði niður undanþága frá söluskatti af pósti og símaþjónustu.
Fjhn. gat ekki orðið sammála um afgreiðslu þessa máls, eins og ég gat um áðan. Meiri hl. n. flytur hins vegar brtt. við frv. á þskj. 58 og leggur til í sínu nál., að frv. verði samþ. með þeim breytingum, sem þar eru lagðar til.
Við 1. umr. þessa máls gat forsrh. þess í sinni ræðu, að ekki hefði verið mögulegt að hefja viðræður við launþegasamtökin um efni þessa frv., og gat þess, að ríkisstj. væri reiðubúin til þess að hlusta á till. og ræða við þá aðila, ef þess yrði óskað. Sú ósk kom fram, og viðræður áttu sér stað við nefnd skipaða af Alþýðusambandi Íslands og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Eins og hv. þdm. er kunnugt, leiddi ekki til samkomulags af þeim viðræðum, en ríkisstj. fór þess á leit við fjhn., að n. flytti brtt. við frv., sem væru byggðar á því tilboði, sem ríkisstj. gaf þessari n. um breytingar á frv.
1. brtt. er þess efnis, að á eftir 5. gr. komi ný gr., sem yrði þá 6. gr. og greinanúmer breyttust samkv. því, og gr. hljóðaði þannig.
„Ríkisstj. er heimilt að ákveða, að kaupgreiðsluvísitala, eins og hún hefur verið reiknuð samkv. 5. gr., skuli hækka um 1 stig í hvert skipti hinn 1. maí og 1. nóvember 1968 og hinn 1. maí 1969.
Á árinu 1968 skuli lögboðnar bætur lífeyristrygginga samkv. l. nr. 40 30. apríl 1963, um almannatryggingar, og síðari breytingum á þeim l. hækka um 5%. Hækkun fjölskyldubóta skal þó bundin við bætur vegna barna umfram eitt í hverri fjölskyldu.
Hækkun samkv. 2. mgr. þessarar gr. skal greidd að fullu úr ríkissjóði.
Eigi skal greiða tekjuskatt né útsvar af hækkun fjölskyldubóta samkv. 2. mgr. þessarar gr.“
Þessi brtt. er í samræmi við það tilboð, sem fram kom af hálfu ríkisstj. í viðræðum við nefnd ASÍ og BSRB.
Þá er 2. brtt. 1. málsl. 15. gr., sem þá verður 1. gr., orðist svo:
„Sjóður sá, sem um ræðir í 15. gr., greiðir verðbætur á frystar fiskafurðir, framleiddar á árinu 1967 og 1968, aðrar en síldar- og loðnuafurðir, svo og á frystar rækjur, framleiddar á tímabilinu október-desember 1967 og á árinu 1968.“
Það hefur orðið mikið verðfall á frystum rækjum á þessu ári miðað við verðlag, sem var á árinu 1966. Það mun láta nærri, að það verð, sem nú er unnt að fá fyrir frystar rækjur, sé 1/3 til ¼ lægra eftir því, hvort um væri að ræða óskelflettar eða skelflettar rækjur. Þegar vandræði stöfuðu af þessum hlutum á Vestfjörðum fyrir nokkru, var gert samkomulag um, að þessi atriði, sem hér um ræðir, yrðu tekin inn í verðjöfnunarsjóðinn, og er þessi till. flutt samkv. því.
3. brtt. er við 19. gr., sem þá er orðin 20. gr., og hún er umorðuð. Lagt er til, að hún hljóði þannig:
„Hver sá einstaklingur, sem fer frá Íslandi til annarra landa, skal greiða gjald til ríkissjóðs, sem nefnist farmiðagjald, samkv. ákvæðum 21.–25. gr.
Undanþegnar gjaldskyldu eru lögskráðar áhafnir skipa og loftfara svo og börn undir 7 ára aldri. Enn fremur erlendir ferðamenn og útlendingar við atvinnustörf á Íslandi. Þó eru hinir síðarnefndu því aðeins undanþegnir gjaldskyldu, að dvalartími þeirra sé skemmri en eitt ár.“
Meginbreytingin við 19. gr., sem hér er lagt til að verði, er, að þeir aðilar, sem hingað koma í atvinnuleit, verði ekki skyldir til farmiðagjaldsins, nema þeir dveljist hér lengri tíma en eitt ár, þ.e.a.s. ef hingað kæmu sjómenn á vertíð, sem dveldust hér aðeins í 3–4 mánuði, þá er ekki gert ráð fyrir því, að þeir greiði nefnt farmiðagjald.
Síðan er við 31. gr. eðlileg breyting, að í stað 1. nóvember er lagt til, að heimild til að leggja á farmiðagjald miðist við 1. janúar 1968.
Efnahagsmál eru það viðfangsefni, sem öll stjórnvöld og þeir, sem stunda rekstur, hafa ævinlega að glíma við. Það skiptir ekki máli, hvort vel árar eða á móti blæs. Þegar vel árar, er viðfangsefnið, hvernig þjóðfélagsþegnarnir bezt fá notið þess ábata, sem fyrir hendi er, hversu mikið eigi að fara til skiptanna og þá hvernig skipta eigi, og svo hitt, hversu miklu skal óskipt og lagt til hliðar til þess að mæta áföllum. Þegar illa árar, er viðfangsefnið, hvernig bregðast eigi við vandanum og komast yfir þau tímabil á sem léttvægastan hátt. Auðvitað væri æskilegast, að varasjóðir væru ævinlega svo gildir, að aldrei þyrfti að þrengja að. Slíku er ekki að fagna og ekki að búast við því, að sú uppfinning eigi sér stað, sem leysa mundi efnahagsmál einstaklinga eða heilla þjóða fyrir alla framtíð.
Festa og stöðugleiki í stjórn er tvímælalaust ein af undirstöðum jafnvægis í efnahagslífi einnar þjóðar. S. l. 8 ár hefur sama stjórnarstefna ríkt í landi voru, en svo langt og samfellt stjórnarsamstarf hefur ekki átt sér stað fyrr. Um mjög góðan árangur þeirrar efnahagsstefnu, sem fylgt hefur verið, verður ekki deilt. Þegar hins vegar slíkar aðstæður skapast sem nú eru, stendur ekki yfirleitt á því, að hv. stjórnarandstæðingar láti í sér heyra, og við slík tækifæri vill oft þannig verða, að reynt er að láta þá hluti, sem liðnir eru, gleymast undir kringumstæðunum, þannig að ákvarðanir séu teknar án fyrirbyggju og samhengislaust við það, sem áður hefur skeð. Ár eftir ár höfum við hlustað á hv. stjórnarandstæðinga halda því fram, að allt sé að sigla í strand. En þeir þurfa að vera í atkvæðasmölun hjá öllum stéttum þjóðfélagsins. Þess vegna vantar æðioft mikið á, að nokkurt samræmi sé í fullyrðingum þeirra, og sé þeim fylgt eftir og fullyrðingarnar látnar svara hver annarri, sjáum við bezt, hvílíkan leik hér er verið að leika.
Við höfum heyrt það hér í sölum Alþ., að launþegar hafi ekki fengið það, sem þeim hafi borið. Og það er verið að sliga atvinnuvegina. Það er stórkostlegur samdráttur í framkvæmdum á vegum hins opinbera. Það eru allt of þungar álögur ríkissjóðs á hendur borgurunum. Það er engin fyrirhyggja til að mæta erfiðu árferði. Það er stórhættulegt að safna gjaldeyrisforða. Þegar mikill afli berst á land, er þar ekki um að ræða rétta stjórnarstefnu, sem stuðlað hefur að því, að slíkt væri hægt, nei, en þegar aflabrestur er og verðfall á erlendum mörkuðum, er valdhöfunum kennt um. Þá eru það auðvitað þeirra verk, sem valda þeim hlutum.
Það er ekki úr vegi að athuga örlítið þær aðstæður, sem nú eru, svo og hvernig hlutirnir voru 1960, þegar núverandi stjórnarsamstarf var myndað. Hefur þjóðarframleiðslan staðið í stað þennan tíma eða hefur hún bara aukizt eins og hún jókst á mann 5 árin þar á undan? Á þessu árabili hefur hún aukizt um 5.7%, en 5 árin þar áður aðeins um 1%. Fá launþegar minna í sinn hlut í dag eða hafa fengið á undanförnum árum heldur en áður? Þjóðarframleiðslan, eins og ég sagði áðan, var að meðaltali 5.7%, en launþegar hafa fengið í sinn hlut 5,9% í minnsta lagi og í mesta lagi eftir útreikningsaðferðum 7.6%, eða að meðaltali 6.8% meiri ráðstöfunartekjur en áður. Hefur kaupmáttur tímakaupsins aukizt eða minnkað? Hann hefur aukizt frá því 1960 um 28%. Hefur fiskaflinn aukizt eða minnkað? Hann er 514 þús. tonn 1960, rúm 1200 þús. tonn 1966. Hefur heildarútflutningsverðmætið minnkað? Það er 3000 millj. 1961, 6050 millj. 1966 og hefur hækkað um 14% að meðaltali frá árinu 1960. Gjaldeyrisvarasjóðurinn er 1. jan. 1961 126 millj., en um síðustu áramót um 1900 millj. Og hvernig er svo viðskiptajöfnuðurinn, sem aldrei hafði verið hagstæður frá stríðslokum og fram til þess tíma, að núv. stjórnarstefna tók við? Strax á árinu 1961 er viðskiptajöfnuður þjóðarbúsins hagstæður, hann er hagstæður 1962, hann er hins vegar með halla 1963 og 1964, en hagstæður aftur 1965. Sé hins vegar verðmæti útflutningsvörunnar, sem í landinu er, tekið í staðinn fyrir útflutningsframleiðsluna, kemur í ljós, að vöruskiptajöfnuðurinn er hagstæður öll árin að undanskildu árinu 1963.
Það er ekki hægt að mæla gegn því, að árið 1965 er eitt bezta ár í sögu þjóðarinnar, bæði hvað snertir aflabrögð og þróun verðlags á erlendum mörkuðum. Það er því algert öfugmæli, þegar hv. stjórnarandstæðingar í nál. sínu í sambandi við frv. þetta segja, með leyfi hæstv. forseta:
„Í tíð núv. ríkisstj. hefur á ýmsan hátt verið illa búið að atvinnurekstrinum. Hagstjórnaraðferðir hennar hafa reynzt mörgum þjóðnýtum atvinnufyrirtækjum fjötur um fót. Hér er mikil þörf breytinga og nýrrar stefnu í atvinnu- og efnahagsmálum.“
Það er engum til góðs, að vandinn sé falinn. Það er heldur engum til góðs, að um hrein öfugmæli sé að ræða, þegar skýrt er frá staðreyndum. Það er öllum ljóst, að við höfum við vandamál að glíma í dag. Það er spurningin, hvernig við leysum þann vanda, þannig að við komumst út úr honum með sem minnstum byrðum fyrir þjóðfélagsþegnana. Ríkisstj. og stuðningsflokkar hennar hafa lagt fram ýmsar till. til lausnar aðsteðjandi vandamálum hjá atvinnuvegunum fyrr á þessu ári og á því síðasta og þar áður. Og ríkisstj. og stuðningsflokkar hennar munu halda áfram að gera athuganir á stöðu atvinnuveganna, og jafnskjótt og hún telur rétt, að lagðar séu fram till. þeim til aðstoðar, verða þær að sjálfsögðu lagðar fram.
Í því frv., sem hér liggur fyrir, felst tvennt, annars vegar stuðningur við atvinnuvegina og hins vegar till. til þess, að ríkissjóður verði á árinu 1968 hallalaus, og þess vegna till. til skattheimtu í frv. Það hlýtur hverjum manni, sem á einhvern hátt vill gera sér grein fyrir eðli þjóðmálanna, að vera það ljóst, að fjárhagur ríkisins verður að vera í góðu lagi. Ef hann er það ekki, hvernig fer þá um hitt?
Ég sagði áðan, að við hefðum við mikið vandamál að stríða, og á það hefur réttilega verið bent, að það ástand sem nú hefur skapazt, er með þeim hætti, að það eru margir áratugir síðan annað eins hefur komið yfir íslenzku þjóðina. Það er þess vegna engan veginn þjóðfélagsborgurunum til góðs, að á þessum málum sé þannig haldið, að það, sem áunnizt hefur, hverfi og verði að byrja upp á nýtt. Við höfum á undanförnum árum búið við bætt lífskjör, og til þess að slíkt megi halda áfram, verður einmitt að taka á þessum vandamálum núna með þeim hætti, að ekki verði eyðilagður sá grundvöllur, sem lagður hefur verið.
Að sjálfsögðu hafa stjórnarflokkarnir engan áhuga á því að leggja þær byrðar á þjóðina, sem ástæðulaust er að gera. Hins vegar þegar þannig árar, eru stjórnarflokkarnir óhræddir að segja þjóðinni, hvernig málin standa og hvað þeir leggja til, að þjóðfélagsþegnarnir axli undir þessum kringumstæðum.
Till. þær, sem fluttar eru hér sem brtt. í samráði við ríkisstj. og samkv. hennar tilboði, eru einmitt til þess að reyna að milda hlutina, og það hefðu auðvitað allir kosið, að upp úr þeim umr. hefði komið það samkomulag, sem við hefðum getað allir saman sætt okkur við. Við skulum vona, að það ástand, sem nú varir í þessum málum, þurfi ekki að vara mjög lengi. Þetta er tímabundið, þetta er aflabrestur, þetta er verðfall á útflutningsafurðum okkar. Við skulum vona, að með hækkandi sól verði hér góð vertíð og á komandi ári verði hækkun á verðlagi á okkar útflutningsafurðum, og ef við í dag erum menn til þess að horfast í augu við vandann og leysa hann á þann skynsamlegasta hátt, sem við getum, munum við njóta í framtíðinni góðs af þeim breyttu tímum, sem við allir vonum að komi hér innan ekki mjög langs tíma.