16.11.1967
Neðri deild: 19. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í C-deild Alþingistíðinda. (2314)

7. mál, efnahagsaðgerðir

Vilhjálmur Hjálmarsson [frh.]:

Herra forseti: Ég mun þá halda áfram máli mínu, þar sem ég varð frá að hverfa í gær, og vil þá víkja nokkrum orðum að II. kafla efnahagsmálafrv., en sá kafli fjallar um verðstöðvun.

Saga þess máls er orðin með nokkuð sérkennilegum hætti. Þessi kafli er lítið eða ekkert breyttur frá þeim lögum, sem sett voru á s.l. vetri um verðstöðvun og voru þá í túlkun hæstv. ríkisstj. og talsmanna hennar ákaflega þýðingarmikil löggjöf, sem valda mundi tímamótum í efnahagsmálunum, því að með henni átti sem sé að stöðva verðþensluna. Þá var bent á það af hálfu stjórnarandstöðunnar, að um flest, ef ekki öll þau atriði, sem um ræddi í þeirri löggjöf, væri að finna ákvæði í heimildarformi í eldri lögum og því væri hér í raun og veru ekki um neitt nýmæli að ræða. Þessu var harðlega mótmælt og því haldið fram eftir sem áður af hálfu stjórnarliðsins, að hér væri um að ræða hina merkustu tímamótalöggjöf.

Það urðu samt ýmsar hækkanir á því tímabili, sem þessi merku lög stóðu, — þau eru nú úr gildi fallin, — en þeim var flestum mætt með því að greiða þær niður úr ríkissjóði, eins og kunnugt er. Hækkanir á verðlagi landbúnaðarvara voru greiddar niður. Svo voru einnig greiddar niður aðrar hækkanir, sem gátu komið inn í vísitölu, eins og hækkanir á rafmagni t.d. hér í Reykjavík. Þeim var mætt með því að greiða niður verð á landbúnaðarvörum, og þannig var framkvæmdin öll með nokkuð sérstökum hætti. En auk þess sem var greitt niður hygg ég, að á þessu tímabili hafi orðið töluverðar hækkanir á verði ýmissa vara, þó að það kæmi ekki inn í vísitölu. Ég hygg, að þær hafi kannske ekki verið stórvægilegar á hverjum stað, en samt sem áður verulegar, þegar allt kom til alls. Og þetta var hægt m.a. vegna þess, að verðlagseftirlit hefur ekki verið hér á síðari árum nema mjög takmarkað.

Svo gerðist það, meðan þessi löggjöf, sem sett var í fyrra, gilti enn, að mjög miklar hækkanir urðu á afurðaverði eftir mánaðamótin september —október, en þær urðu þó ekki fyrr en búið var að reikna út vísitöluna fyrir þann mánuð. En þær áttu sér þó stað eigi að síður, meðan verðstöðvunarlögin voru í gildi! Nú féllu þau úr gildi sínu á tilteknum degi, eins og kunnugt er, en þá var einfaldlega gefin út tilkynning frá stjórnarvöldum um það, að verðstöðvunin héldi áfram, eins og ekkert væri um að vera, þó að lögin væru úr gildi fallin í M. ö. o.: nú sannaðist það, sem sagt hafði verið við meðferð málsins á síðasta þingi, að þessi lagasetning þá var hreinn loddaraleikur og sjónarspil, settur á svið fyrir kosningarnar til þess að villa um fyrir mönnum.

Og nú er ætlazt til þess enn á ný að samþykkja þessi sömu ákvæði líkt og þau liggja fyrir í II. kafla frv.

Nú eru menn út af fyrir sig sammála um það, að æskilegt sé að stöðva verðþensluna og allt það. Eigi að síður eru í þessum II. kafla frv. ákvæði í 10. gr., sem eru að margra dómi mjög hæpin, þar sem eru ákvæðin um að takmarka miklu meira en áður hefur verið í lögum heimildir sveitarfélaganna til þess að leggja á og innheimta tekjur. Engin sveitarstjórn hefur að vísu haft ótakmarkaðan rétt til þess að hækka álögur í sínu umdæmi. En það, sem hér er um að ræða, gengur miklu lengra, og þó að það kunni að vera ástæða til að setja slík ákvæði um stuttan og afmarkaðan tíma, er það áreiðanlega mjög hæpið, að það standist að fara nú að framlengja þessi ströngu ákvæði enn um óákveðinn tíma. Það er áreiðanlega mjög hæpið. Ég hygg, að þær sveitarstjórnir séu fáar, sem ekki reyna til hins ýtrasta — og þá ekki síður þegar þyngra er fyrir fæti og þrengra um hjá gjaldendum — að stilla álögum sínum í hóf. Og yfirleitt verður maður að álíta, að sveitarstjórnirnar hafi betri aðstöðu til þess að meta það, hvað raunverulega þarf á hinum ýmsu stöðum til þess að halda í horfinu, heldur en ríkisstj. eða þær stofnanir hennar, sem hún mundi vafalaust þá fela athugun þessara mála í hverju tilfelli.

Í III. kafla frv. er svo rætt um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins, og sá kafli á það sameiginlegt með II. kaflanum, að þar er eingöngu um að ræða ákvæði, sem áður höfðu verið tekin í lög. Þessi kafli er sem sagt framlenging á þeim ráðstöfunum, sem gerðar voru snemma á þessu ári sjávarútveginum eða vissum greinum hans til aðstoðar. Það, að þá þurfti að gera slíkar ráðstafanir, sem felast í þessum kafla, er ákaflega glöggur dómur um það, hversu til tókst um efndir á þeim loforðum, sem sett voru fram í byrjun þess stjórnarsamstarfs, sem hér hefur staðið lengi, loforðunum um það að koma atvinnuvegunum á hreint. Það vita allir hv. alþm., að það er full þörf á þeim ráðstöfunum áfram, sem hér er fjallað um í III, kafla frv. Og einnig er vitað, að það þarf að gera meira. En því er bara ekki sinnt á þessu stigi málanna, það bíður.

Það væri í sjálfu sér ástæðu til að ræða nokkuð um einstök atriði í þessum kafla. Ég skal fara mjög stutt út í það. Í fyrstu gr. kaflans, þ. e. 11. gr. frv., segir:

„Á árinu 1968 er ríkisstj. heimilt að greiða allt að 100 millj. kr. sem verðbætur til viðbótar við það lágmarksverð á ferskfiski, öðrum en síld og loðnu, sem verðlagsráð sjávarútvegsins og yfirnefnd þess ákveða.“

Þarna er aðeins frávik frá því, sem áður var, en þá var þessi greiðsla ákveðin 8% og ekkert hámarksákvæði. Talsmenn stjórnarinnar í fjhn. þessarar hv. d. hafa skýrt þetta svo, að hér sé ekki um raunverulega efnisbreytingu að ræða, heldur aðeins formsbreytingu, en ég veit ekki, hvað skal um það segja. „Allt að 100 millj. kr.“ er orðalagið, og maður skyldi því halda, að það væri það, sem ætti að gilda, en ekki prósentreglan, eins og áður var. Undir meðferð málsins hafa einnig borizt erindi frá einum aðila, sem þessar ráðstafanir snerta, þ. e. skreiðarframleiðendum. Þeir eru uggandi út af því, að þær 10 millj., sem ætlaðar voru til verðuppbóta á útfluttri skreið og öðrum afurðum, eins og það er orðað, á árinu 1967, hafa þegar að miklum meiri hluta verið notaðar til að verðbæta aðrar afurðir samkv. gr., þ.e.a.s. saltfisk. Hins vegar liggur meginþorri skreiðarinnar enn óseldur, og það kynni því að fara svo, að ef skreiðin selst annaðhvort nú eða á næsta ári, þá væru ekki tiltækar til verðbóta á tveggja ára framleiðslu á skreið meira en ca. 12 millj. kr., ef réttar eru þær tölur, sem eru sagðar um þessa hluti.

Það er ýmislegt fleira í sambandi við þennan kafla, sem í ljós kemur við meðferð málsins, að er fremur lauslega frá gengið, auk þess sem þar er ritað, eins og ég sagði áðan, að fram undan eru óhjákvæmilegar og stórfelldar aðgerðir vegna sjávarútvegsins umfram það, sem um er fjallað í III. kafla þessa frv.

IV. kafli frv. fjallar svo um farmiðagjaldið. Hér er gerð tilraun til að skattleggja eyðsluna í utanlandsferðum. En þessi tilraun er að minni hyggju á margan hátt óhönduleg. Skatturinn leggst alveg jafnt á þá, sem fara af landi burt af litlum efnum að afla sér fróðleiks og fara oft styttri og ódýrari ferðir, og hina, sem fara langt, kosta miklu til, verzla í leiðinni oft fyrir háar fjárhæðir. Þetta er vitanlega óeðlilegt. Gjaldeyriseyðsluna á þessum sviðum þarf auðvitað að athuga. En ef vel ætti að vera, þyrfti að taka það mál allt öðrum tökum en hér er gert og fara miklu nánar ofan í þessa hluti.

Í V. og síðasta efniskafla frv. ræðir svo um ýmsa skattheimtu. Þar er í sumum gr. ekki um stórar upphæðir að ræða, en það er flest á eina bókina lært, þannig, að það eru nefskattar, hækkun á gjöldum, sem raunverulega má kalla nefskatta, og leggst þar af leiðandi hlutfallslega þyngra á þá, sem minna mega sín.

Um fasteignaskattinn gegnir þó væntanlega öðru máli, en einmitt ákvæðin um hann í frv. eru ákaflega hæpin á marga lund. Þar er gert ráð fyrir margföldun fasteigna til skatts í tvennu lagi. Það er sama prósenttala á öllum fasteignum öðrum en bújörðum í sveitum. Það er sama prósenttala notuð, hvort sem er í Reykjavík, þar sem fasteignir hafa a. m. k. til þessa verið seljanlegar á toppverði, sama hvort er þar eða á öðrum stöðum á landinu, þar sem líkt er ástatt, og svo annars staðar, þar sem engar fasteignir eru seljanlegar fyrir nokkurt fé, og því miður þekkist þannig ástand. Og það er raunar alveg sömu sögu að segja um sveitirnar, að það er reginmunur á verðmæti fasteigna í þeim sveitum, sem bezta hafa aðstöðu til markaðs, samgangna og búrekstrar, annars vegar og í hinum, sem eru dvínandi og þar sem engin fasteign er raunverulega seljanleg. En það er ætlað að láta alveg sömu reglu gilda á báðum stöðunum.

Í annan stað er svo þess að gæta í sambandi við þennan lið, að fasteignagjöldunum hefur verið ætlað í vaxandi mæli að vera tekjustofn sveitarfélaganna. Á þennan hátt er beinlínis skertur stórkostlega möguleiki sveitarfélaganna til þess að nýta þennan tekjustofn. Í grg., sem hefur borizt Alþ., a. m. k. fjhn. þessarar hv. d., frá stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, er fjallað um þessi mál, fasteignaskattinn, frá sjónarmiði sveitarfélaganna á mjög greinargóðan og hlutlægan hátt að mínum dómi. Ég tel, að innlag sambandsins eigi í raun og veru erindi hér inn í þessar umr., og ég vil — með leyfi hæstv. forseta — leyfa mér að lesa grg. sambandsstjórnarinnar, hún er ekki löng. Þar segir svo:

„Í tilefni af frv. því um efnahagsaðgerðir, sem lagt hefur verið fram á Alþ., vill stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga vekja athygli á eftirfarandi atriðum í frv., er snerta sveitarfélög landsins:

1) Frv. gerir ráð fyrir, að mat fasteigna til eignarskatts verði tvöfaldað frá því, sem nú er, þ. e. að það verði tólffaldað fasteignamat í stað sexföldunar nú. Stjórn sambandsins vekur athygli á því misræmi, sem þegar er orðið í þessu efni, þar sem óbreytt fasteignamat er lagt til grundvallar mörgum tekjustofnum sveitarfélaga og einungis þrefalt fasteignamat lagt til grundvallar eignaútsvarsálagningu. Telur stjórn sambandsins þessa stefnu varhugaverða og ósanngjarna gagnvart sveitarfélögunum og auk þess óhagkvæma við framkvæmd skattalaga. Síðast, en ekki sízt, telur stjórnin, að tólfföldun fasteignamatsins muni skerða mjög eða jafnvel útiloka möguleika sveitarfélaganna til meiri nýtingar fasteignaskattsins sem tekjustofns og draga úr möguleikanum á því að taka upp staðgreiðslukerfi opinberra gjalda, en í sambandi við umr. um það mál hefur verið rætt um fasteignaskattinn sem miðlunartekjustofn, en þá yrðu jafnframt að vera möguleikar á því að hækka hann í sumum sveitarfélögum.

2) Samkv. frv. mundu lögboðin útgjöld sveitarfélaga til almannatrygginga og sjúkratrygginga hækka, en jafnframt yrðu tekjustofnar sveitarfélaganna samkv. lögum bundnir, þannig að viðbótartekjur fengjust ekki á næsta ári til að mæta hinum auknu útgjöldum, og vitað er, að í mörgum sveitarfélögum muni útsvars- og aðstöðugjaldatekjur á næsta ári verða lægri en á þessu ári vegna minnkandi tekna margra. Er því séð fram á mikla erfiðleika í mörgum sveitarfélögum, ef frv. verður að lögum, og vandséð á þessu stigi málsins, hvernig bót verður á því ráðin. Ákvæði frv. virðast miða að því, að ríkissjóður verði greiðsluhallalaus á næsta ári, en stefna í öfuga átt hvað sveitarsjóðina snertir. Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga leyfir sér að vænta þess, að Alþ. taki framangreind atriði til gaumgæfilegrar athugunar í sambandi við meðferð efnahagsaðgerðafrv.“

Ég get ekki betur séð en þessar ábendingar séu allrar athygli verðar.

Ég hef nú farið nokkrum orðum um meginefni frv. En hvaða vanda leysir það svo, ef að lögum verður? Hvaða vanda leysir það ásamt þeim aðgerðum, sem því fylgdu, þ. e. niðurfellingu niðurgreiðslnanna? Kannske leysir það vanda atvinnuveganna, sjávarútvegsins, t.d. togaranna, landbúnaðarins, iðnaðarins. Ég held satt að segja, að það geri það ekki og komi í raun og veru ekki nálægt því, ekki neitt umfram það, sem áður var búið að gera á þeim vettvangi, og að í því sé ekkert nýtt varðandi atvinnuvegina, aðeins tekjuöflun fyrir ríkissjóðinn. Þó kemur það hér mjög fram í ræðum hæstv. ráðh., að atvinnuvegirnir séu illa staddir og það er eins og haft að rökum einmitt fyrir þessu frv. að þannig sé komið fyrir atvinnuvegunum. En frv. leysir bara í engu þeirra vanda, eins og ég sagði áðan, umfram það, sem áður hafði verið gert.

Kannske er vandinn minni en margir halda. Kannske leysist hann af sjálfu sér að einhverju leyti. Ég tók eftir því, að hv. frsm. meiri hl. fjhn. lauk framsögu sinni eitthvað á þá leið, þegar hann hafði talað um erfiðleika atvinnuveganna, að þetta væri tímabundið ástand, sagði hv. fram., það er aflabresturinn, sem veldur því, það er verðfallið, og við væntum batnandi aflabragða og hagstæðara verðlags með hækkandi sól. Kannske þetta sé svona einfalt, að ekki þurfi annað en bíða og sjá hvað setur. En ég hygg nú, að það þurfi meira en hækkandi sól og allt það til þess að leiðrétta efnahagsöngþveitið á Íslandi, eins og það er í dag, og ég vil leyfa mér að rökstyðja þá skoðun með nokkrum dæmum og þ. á m. nokkrum tilvitnunum í forvígismenn atvinnuveganna, þeirra umsagnir.

Þá er eðlilegt, að fyrst sé vikið að sjávarútveginum. Hann er burðarás útflutningsframleiðslunnar. Allur þorri útflutnings okkar er sjávarafurðir. Á síðasta árabili hefur togaraútgerðin dregizt þannig saman, að það munu hafa verið seldir eða lagt um 2/3 togaraflotans, og eins og er í dag, virðist næsta lítill rekstrargrundvöllur fyrir þá, sem eftir eru. Síldveiðiskipin okkar mörg hafa á undanförnum árum og aldrei fremur en í fyrrasumar flutt gífurlega mikinn afla að landi. Og það hafa komið metaflaár hvert á eftir öðru. Ef allt hefði verið með felldu í efnahagsmálum þjóðarinnar yfirleitt, hefði vitanlega þessi útgerð, útgerð beztu síldveiðiskipa, átt að skila ofsalegum gróða. En mér er mjög til efs, að það hafi verið. Auðvitað hafa þau samt staðizt fram undir þetta, en þá ekki heldur nema þau beztu. Nú er svo komið, að einnig útgerð síldveiðiskipanna á í miklum erfiðleikum. Og þó væri það auðvitað fjarstæða að tala um aflabrest á síldveiðum á þessu ári, þó að afli sé minni en hann hefur verið á undanförnum metárum og dýrara verði keyptur. Alveg sömu sögu er að segja um útgerð hinna smærri báta, a. m. k. mjög víða. Um þetta ástand þarf ekki að hafa mörg orð. Um það er fjallað alveg fullum fetum og berum orðum í ályktun frá Landssambandi ísl. útvegsmanna. Þar segir m.a., að „brostinn er rekstrargrundvöllur bæði útgerðar og fiskiðnaðar.“ Þetta er í grg. aukafundarins frá 30. okt. Og þar er það talið óhjákvæmilegt, að gerðar séu nauðsynlegar ráðstafanir til að skapa öruggan grundvöll fyrir rekstri sjávarútvegsins til að koma í veg fyrir varanlegan samdrátt eða jafnvel stöðvun hans“. Í þessu áliti er einnig skorað á ríkisstj., eins og þar segir orðrétt, „að skipa nú þegar nefnd manna til þess að starfa með fulltrúum tilnefndum af stjórn L. Í. Ú. að því að gera till. um, hvernig ráða megi fram úr hinum miklu bráðaðkallandi vandamálum sjávarútvegsins“. Þetta segja sjálfir forvígismenn samtaka sjávarútvegsins og eru alveg ómyrkir í máli, og þetta kom raunar greinilega fram, þegar hæstv. forsrh. mælti fyrir þessu frv. Hann fór í raun og veru ekki dult með það, að vænta mætti nýrra aðgerða um áramótin, þó að hann vildi ekki fullyrða um það. En það held ég, að honum hefði verið alveg óhætt að gera, að slá því föstu, að þess mundi þá þurfa.

Þetta, sem hér hefur verið sagt um útgerðina, á ekki síður við um ýmsar megingreinar fiskiðnaðarins. Það nægir í því sambandi og til fullrar staðfestingar á því að vitna til aukafundar Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, sem var haldinn 23. okt. s.l. Þar voru ekki aðeins samþykktar skorinorðar ályktanir um stórfelld efnahagsvandræði frystiiðnaðarins, heldur var þar einnig samþykkt til áherzlu með yfirgnæfandi meiri hluta atkv. eða 31 atkv. gegn 6, en 3 höfðu setið hjá, að heimila stjórn Sölumiðstöðvarinnar að stöðva rekstur frystihúsanna innan samtakanna frá n. k. áramótum, og segir ályktun, að með tilliti til hins alvarlega rekstrarástands frystihúsanna heimili aukafundurinn stjórninni, að ákveða kaupstöðvun á fiski til vinnslu hjá hraðfrystihúsum innan samtakanna frá 1. jan. 1968, hafi ekki verið tryggður viðunandi rekstrargrundvöllur fyrir þann tíma.“ Þetta er um frystiiðnaðinn og þarf ekki nánari skýringar. Og það er ekkert betra uppi á teningnum, ef litið er á ástandið hjá ýmsum öðrum greinum í fiskiðnaðinum, hjá síldarverksmiðjunum og mörgum fleirum. Það hefur vissulega orðið verðfall á bræðsluafurðum, og það er enginn, sem hefur áhuga á því að draga fjöður yfir það, það hefur orðið verðfall, en það er þá ekki síður innlenda verðþenslan, sem orðið hefur á undangengnu árabili, verðþenslustefnan, sem er undirrótin að erfiðleikum þessarar útflutningsframleiðslu eins og annarra atvinnuvega.

Hver er svo staða íslenzks landbúnaðar í dag? Þar er sömu raunasöguna að segja, að verðbólguþróunin hefur þar komið mjög við sögu og eftirminnilega, þrátt fyrir það að landbúnaðarframleiðslan sé ekki flutt út í svo ríkum mæli sem sjávarvörurnar. Landbúnaðurinn hefur þó þurft að flytja út nokkurn hluta af sinni framleiðslu. Og bara á nokkrum árum af þeim tíma, sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur setið að völdum, hefur þróunin orðið sú varðandi útflutning landbúnaðarvara, að með þeim vörum, sem gáfu bezta raun í útflutningi fyrir nokkrum árum, þurfti að borga um 25% útflutningsbætur, til þess að fengist fyrir þær sama verð og á innanlandsmarkaði, þá er nú hlutfallinu allt að því snúið við. Slík hefur verðbólguþróunin orðið, því að á þessum vöruflokkum hefur ekki orðið stórfelld verðlækkun utanlands á þessu tímabili. Heildarniðurstaðan hefur orðið sú æ ofan í æ, að það hefur vantað nokkuð á og stundum mikið, að bændur bæru úr býtum þær tekjur, sem þeim voru ætlaðar í verðlagsgrundvelli hverju sinni. Þar keyrir þó fyrst um þverbak árið 1966, á s.l. ári, því að samkvæmt tekjuúrtaki hagstofunnar fyrir árið 1966 eru eigintekjur bændanna af búrekstri komnar niður í það að vera rétt um 100 þús. kr., í stað þess, að í verðlagsgrundvelli s.l. verðlagsár var svo til ætlazt, að þær yrðu hartnær 200 þús. kr. Nú getur í þessum útreikningum eins og öðrum ævinlega skakkað nokkru og það getur gætt nokkurs misræmis á milli ára, en í höfuðdráttum er óhætt að taka slíkar tölur, unnar af Hagstofu Íslands, alvarlega. Og þær sýna glögglega, hvað orðið hefur í þessu sambandi. Það eru því miður engar horfur á því, að afkoma bænda verði góð á þessu ári. Þvert á móti má búast við því vegna mikils tilkostnaðar á hörðu vori, að enn komi til stórfelldrar tekjuskerðingar hjá bændum. Það er líka sýnilegt, þó að ekki sé endanlega búið að ganga frá þeim málum, að það vantar svo að skiptir tugum milljóna á það, að útflutningsbætur nægi til þess að bæta upp útflutning landbúnaðarvara á s.l. ári að fullu til jafns við innlenda verðið, til jafns við það verð, sem ákveðið var í grundvelli. Það vantaði einnig nokkuð á, að bændur fengju grundvallarverð árið þar á undan, m.a. vegna þeirra lækkana, sem þá voru gerðar á smjöri til þess að örva sölu þess af óhjákvæmilegri nauðsyn. Það fékkst bætt þá að mjög verulegu leyti, ég vil segja að mestu leyti. Það er hins vegar alveg ósýnt um það í dag, hvernig fer með s.l. verðlagsár, og horfurnar um, að útflutningsbætur hrökkvi á næsta ári, eru síður en svo góðar. Nú þegar er vitað, að slátrun í haust var töluvert miklu meiri en hún hefur verið áður. Og þær tölur sem nú þegar liggja fyrir, frá því að nýtt verðlagsár hófst 1. sept., um mjólkurframleiðsluna sýna það, að hún er verulega vaxandi. Hvort tveggja bendir til aukins útflutnings.

Það er fleira en þetta, sem sýnir, að þungt er fyrir fæti hjá íslenzkum bændum í dag. Ég hef ekki í höndum tölur um lausaskuldasöfnunina. En svo mikillar vitneskju hafa bændasamtökin getað aflað sér um þau mál, að mér er óhætt að fullyrða, að hún er mjög mikil, og það má því segja, að það hafi kannske aldrei síðan framleiðsluráðslögin komu til framkvæmda verið dekkra í álinn og litið verr út með það en nú, að bændur bæru úr býtum tekjur til jafns við aðrar vinnandi stéttir, eins og það er orðað í þeim lögum, m.ö.o.: að bændur nytu þeirra kjara, sem bein lagaákvæði mæla fyrir um, að þeir skuli njóta.

Kannske er betur ástatt í íslenzkum iðnaði heldur en í þessum tveimur gömlu og grónu atvinnuvegum, kannske stendur hann eitthvað betur að vígi? Ég hygg, að það sé þó þvert á móti. Það er öllum kunnugt um háværar kvartanir iðnaðarins á iðnþingi í haust. Verðþenslan hefur einnig orðið iðnaðinum íslenzka þung í skauti. Stjórn Félags íslenzkra iðnrekenda hefur í haust efnt til fundar með ýmsum greinum verksmiðjuiðnaðarins innan samtakanna til þess að kanna ástand og horfur. Og í fréttatilkynningum er síðan hiklaust talað um samdrátt og rekstrarerfiðleika og uppsagnir fólks í stærri og smærri stíl og uggvænlegar horfur fram undan og ekki dregin nein dul á það, að þessir aðilar óttast mjög um frekari samdrátt og fækkun starfsfólks. Nýlega hefur bæjarstjórn Akureyrar tekið í sama strenginn varðandi verksmiðjurnar á Akureyri, en sá iðnaður hefur, eins og kunnugt er, alveg úrslitaþýðingu fyrir atvinnulífið þar í bæ. Það má því segja, að hvert mannsbarn í landinu hafi vandræði iðnaðarins fyrir augunum og hver einasti þjóðfélagsþegn þekki af eigin raun fleiri eða færri einstök dæmi um samdrátt þann, sem þegar er orðinn eða fyrirsjáanlegur er hjá einhverju eða einhverjum einstökum iðnaðarfyrirtækjum.

Það mun ekki heldur fara á milli mála, að t.d. skipafélögin standi nú höllum fæti. Fragtir milli landa munu í stórum dráttum hafa verið miðaðar við heimsmarkaðsverð. Það stóð frekar lágt, þegar verðstöðvunin var sett á, og þau munu ekki hafa fengið leyfi til að hækka í samræmi við þær hækkanir, sem síðar hafa orðið á heimsmarkaði í þessari þjónustugrein, en þær munu hafa orðið nokkrar. Einnig þar, hjá þeim þýðingarmikla atvinnurekstri, siglingunum, er nú í dag vá fyrir dyrum.

Þannig er þetta, að hvarvetna og hvert sem litið er blasa við erfiðleikar atvinnuveganna, og hvert mannsbarn veit, að velgengni framleiðslunnar er um leið efnahagsleg velgengni þegnanna. En það frv., sem hér liggur fyrir og þegar hefur verið rætt allmikið um bæði við 1. umr. og 2., fjallar ekki um það að ráða bót á þessu ástandi — á þessum vandræðum, — umfram það, sem áður var búið að ákveða með lögum. Það má bíða eitthvað enn um sinn að dómi hæstv. ríkisstj. Þetta frv. fjallar aðeins um að fylla í skörð fjárlaganna og á þennan mjög svo óviðfelldna hátt, sem ég hef áður vikið að í mínu máli og enn rækilegar hefur verið lýst af öðrum hv. dm. við þessar umr. Og það er satt að segja hart, að ekki skuli hafa verið, áður en gripið er til þess ráðs að íþyngja þeim, sem minnsta möguleikana hafa til að bera byrðarnar á þann hátt, sem ætlazt er til með þessu frv., og gert var með ráðstöfunum, sem því fylgdu, — það er satt að segja hart, að ekki skuli áður hafa verið sýnd veruleg viðleitni til þess að draga úr útgjöldum á einhverju sviði. En það er eins með það og með beinar ráðstafanir vegna atvinnuveganna, að það liggur ekkert á að dómi hæstv. ríkisstj., það má slá því á frest. Kannske er það þá líka svona, að þrátt fyrir hið erfiða ástand þurfi ekki aðgerðir í löggjöf eða stjórnarfarslegar vegna atvinnuveganna? Kannske er það rétt, sem kom fram í niðurlagi ræðu frsm. meiri hl. fjhn., verðfall og aflatregða og það batni,með hækkandi sól?

„Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga

og sæta, langa sumardaga,“

segir Laxness. En stjórnarandstaðan segir, að þetta eigi ekki að bíða, aðgerðir vegna atvinnuveganna eigi ekki að bíða, þær þoli ekki bið og það nægi ekki sól og vor til þess að bæta ástandið. Það skiptir auðvitað miklu máli, hvorir hafa rétt fyrir sér, hvort það er rétt, sem ríkisstj. heldur ævinlega fram, að ekkert sé eða hafi verið við stjórnarstefnuna að athuga frá fyrstu tíð og fram til þessa dags. Ég tel rétt að fara nokkrum orðum um það og leiða að því einstök dæmi, hvernig þessi stefna, stefna hæstv. ríkisstj., hefur reynzt atvinnuvegunum og hvernig að þeim hefur verið búið í ýmsum greinum.

Annars er það nú mála sannast, að mörgum þykir stefna ríkisstj. á ýmsan hátt mótsagnakennd. Menn eru ekki búnir að gleyma fyrirheitunum og yfirlýsingunum, sem þessi þingmeirihluti birti, þegar hann kom til valda, og meira að segja eiga margir enn þá geymda ágæta bók, sem þá var send öllum landsmönnum og kölluð „Viðreisn“, og geta þess vegna hvenær sem er rifjað upp fyrir sér og glöggvað sig á því, hvernig stefnan var boðuð og hvað þá átti að gera. Og áður en ég vík að einstökum dæmum um afstöðuna til atvinnuveganna sérstaklega, vil ég aðeins minna á örfá þessi atriði.

Þessi ágæta bók hefst með þessum fleygu orðum, með leyfi hæstv. forseta: „Í stefnuyfirlýsingu þeirri sem ríkisstj. birti, þegar hún tók við völdum í nóv. s.l., taldi hún það höfuðverkefni sitt að koma atvinnulífi þjóðarinnar á traustan og heilbrigðan grundvöll,“ — traustan og heilbrigðan grundvöll, — og nú standa atvinnuvegirnir eins og hér hefur verið lýst af mér og öðrum, og það liggur ekkert á! Nú er þetta ekki lengur meginverkefnið, að því er manni skilst, heldur eitthvað annað. Í þessari bók segir einnig og feitletrað, að afnema skuli bótakerfið. Það er fróðlegt að bera þessi fyrirheit saman við t.d. það, sem við höfum fyrir okkur í sumum köflum þess frv., sem hér er til umræðu. Enn fremur segir í þessari bók, að tekjuskattur skuli felldur niður, það er ein fyrirsögnin. Kannske að það sé enn þá í þessu a. m. k. óbreytt afstaðan hjá hæstv. ríkisstj.? Hvað ætli sjómenn segi um þetta, þeir sem á s.l. ári öfluðu geysimikilla tekna, auðvitað við mikla áhættu og mjög mikið erfiði, eins og venja er í þeim atvinnuvegi, og færðu á land mikinn forða, — hvað ætli þeir segi um þetta atriði núna, þegar þeir eru að greiða upp í skattana sína frá því ári? Ætli þeim finnist tekjuskatturinn vera afnuminn alveg, eins og þó stóð í bókinni? Og svo segir þarna enn: „Það er skoðun ríkisstj., að það eigi að vera verkefni samtaka launþega og atvinnurekenda að semja um kaup og kjör.“ Þar átti ekki að hafa stjórnarafskipti, eins og gert var í tíð fyrri stjórnar, það átti ekki að hafa neitt samráð um þetta, heldur áttu þessir aðilar að semja sjálfir. Það er svo ekki nóg með það, að ríkisstj. og talamenn hennar hafi þrásinnis snúizt gegn sínum eigin yfirlýsingum og gengið alveg þvert á yfirlýsta stefnu, heldur hafa í sumum greinum verið farnar margar veltur, eins og t.d. varðandi vísitölu á kaup, eins og ég kom að í fyrri hluta ræðu minnar í gær. Skal ég ekki fara um það fleiri orðum, en eins og ég sagði áðan tel ég það skylt, þegar málum er komið eins og þeim er komið í dag, að atvinnuvegirnir eru á heljarþröm að dómi forsvarsmanna og segja má, að

„það hriktir í bjálkum

og hríðar um gættir“

þjóðfélagsbyggingarinnar, þá er það í raun og veru skylt að kryfja það til mergjar, hvernig stjórnarstefnan hefur reynzt íslenzkum atvinnurekstri í 8 ár, hvort þar er allt með felldu og hvort það eru aðeins erlendar verðsveiflur og minnkandi sjávarafli, sem valda því, að í slíka sjálfheldu er komið sem nú er ljóst orðið, eftir langvarandi góðæri í útflutningsframleiðslu landamanna. Það er skylt að taka það til meðferðar alveg sérstaklega og hvort það er eitthvað fleira, sem þarna kemur til.

Eins og ég hef áður vikið að, var fyrsta fyrirheitið: „atvinnuvegirnir á traustan grundvöll“, og svo „að hefta vöxt verðbólgunnar“. Það hefur margsinnis verið sýnt fram á það hér við þessar umr. og áður, bæði innan þingsala og utan, að verðbólguvöxturinn hefur aldrei verið örari en í tíð núv. hæstv. ríkisstj. Þetta segir auðvitað eina sögu varðandi atvinnuvegina, bæði þá, er framleiða vörur til sölu úr landi, og eins þá, sem selja innanlands og nú hin síðari ár í harðri samkeppni við stórframleiðslu gróinna iðnaðarþjóða við tiltölulega litla vernd af tollalöggjöf og mjög takmarkaðan stuðning á margan annan hátt.

Um þetta mætti leiða mörg vitni og engu síður úr röðum stjórnarliða fyrr og síðar. Það er fyrst og fremst verðbólgustefna ríkisstj. og hinn skefjalausi innflutningur ásamt óverjandi skipulagsleysi í fjárfestingarmálum, sem í heild hefur orðið atvinnuvegunum að fótakefli. En það kemur auðvitað margt fleira til, og ég hef sjálfur haft fyrir augum á því svæði, sem ég er kunnugastur, talandi dæmi um ákaflega takmarkaðan skilning valdhafa á raungildi og þjóðfélagslegri þýðingu sumra hinna allra mikilvægustu atvinnugreina, og ég vil leyfa mér hér að bregða upp nokkurri mynd af þessu og þó aðeins stuttlega.

Á valdatíma núverandi stjórnarflokka gerist það, að allur þungi síldveiða við Ísland færist austur fyrir land og allur meginþungi síldarsöltunar og annarrar síldarvinnslu færist um leið til Austfjarðahafna. Á þessu sama tímabili margfaldast einnig síldaraflinn. Það hlaut því að vera gífurlegt átak og stórfelld uppbygging í síldariðnaði og margs konar þjónustustarfsemi, sem þurfti til þess, að það mætti takast að hagnýta öll þau feikilegu verðmæti, er að landi hafa borizt á þessu árabili á nýjum stöðum.

Uppbygging síldariðnaðarins á Austurlandi hófst nokkru áður en núverandi stjórnarflokkar komu til valda, ekki í stórum stíl, en uppbyggingin var þó hafin þá. En þessum byrjunaraðgerðum eystra var mætt af fullkomnu tómlæti og jafnvel beinum fjandskap hjá talsmönnum Sjálfstfl. og þeir beinlínis tóku fyrir uppbyggingu síldarverksmiðjanna fyrstu í Neskaupstað og á Vopnafirði, — tóku hana fyrir sérstaklega, og það var talað um pólitíska fjárfestingu í blöðum þeirra. Og stuðningur við þessar aðgerðir var talinn bera merki um sérstaka spillingu í efnahagsmálum. Þannig var skilningurinn þá. Allt þetta tal er mönnum enn þá í fersku minni austur frá, og það er geymt á sínum stað í blöðum þessara herra frá þessum árum, það er ekki annað en fletta upp á því, ef þeir vilja sannfærast um, hvort rétt er með farið. Og hefðu þá verið orðin stjórnarskipti, hefði þá ekki notið við stuðnings vinstri stjórnarinnar, sem fór með völd á þessum árum, hefðu menn sjálfsagt verið en þá vanbúnari að vinna gull úr síldinni, þegar hún lagðist af fullum þunga að austanverðu landinu, heldur en þeir þó voru. En þetta tal féll auðvitað niður og hefur ekki verið uppi haft á þeim vígstöðvum, síðan síldargengd við Austurland tók að vaxa að verulegum mun. En þótt það félli niður, var vissulega þungt fyrir fæti við áframhaldandi uppbyggingu eystra, og því fór fjarri, að valdhafarnir sýndu eðlilegan skilning þeim þýðingarmiklu athöfnum, sem þar fóru fram, því að þarna þurfti í raun og veru að gera fjölmargt í senn og á sem allra skemmstum tíma. Það þurfti að byggja síldarverksmiðjur víðs vegar og sömuleiðis söltunarstöðvar. Það þurfti að efla og sums staðar að reisa frá grunni netaverkstæði og mörg önnur þjónustufyrirtæki vegna síldveiðanna, beinlínis eða óbeinlínis, og það þurfti að gera hafnarmannvirki mörg og mikil, því að þótt Austfirðingar bjóði upp á góðar hafnir og góð hafnarskilyrði, geta þó ekki skipin lagzt þar að berum og bryggjulausum marbakka. Og þau hafnarmannvirki, er fyrir voru og höfðu áður gegnt miklu minna hlutverki, þó að þau auðvitað hefðu þá eins og síðar það tvíþætta hlutverk, að þar fór fram út- og uppskipun á vörunum og svo löndun aflans, urðu nú alveg ófullnægjandi. Og enn hefði auðvitað þurft að greiða stórkostlega fyrir samgöngum á sjó og á landi og í lofti vegna þessarar stórfelldu þjóðlífsbreytingar, sem þarna átti sér í raun og veru stað.

En hvernig brugðust íslenzk stjórnarvöld við þessum mikla vanda og þessum stórfelldu verkefnum, þar sem svona mikil verðmæti voru í húfi fyrir þjóðarbúið, eins og allir vita að var og margrómað er í blöðum og útvarpi, — hvernig brugðust þau við? Ég veit, að ég þarf ekki að árétta það hér, að það, sem þarna var um að tefla, voru ekki nein sérmál Austfirðinga. Ef svo hefði verið, hefði ég ekki farið að draga þessi mál hér inn í þessar umr. Þetta voru hlutir, sem höfðu stórkostlega þýðingu fyrir þjóðarbúið í heild. En hver voru viðbrögð stjórnarvaldanna við þessum stórkastlegu verkefnum? Það er í raun og veru ein sorgarsaga frá upphafi til enda. Það var yfirleitt ekki auðvelt að fá stofnlán til síldarverksmiðja á Austurlandi allan tímann. Það var ekki heldur auðvelt að fá leyfi til að fara af stað með þær framkvæmdir á hinum ýmsu stöðum, heldur var þvert á móti þungur róður um þá hluti — þungur róður. Uppbyggingin varð svo ör á Austurlandi í þessum iðnaði sem raun ber vitni fyrst og fremst vegna þess, að aflinn var mikill, verðlagið hagstætt löngum, verksmiðjurnar möluðu gull fyrir sjálfa sig og þjóðarbúið og stjórnendur þeirra drógu út úr rekstrinum til uppbyggingarinnar á hverjum tíma miklu stærri fjárhæðir en eðlilegt var, og raunverulega hægt, því að einnig rekstrarlán til síldariðnaðarins hafa mjög verið numin við nögl. Og þau búa að þessu og búa nú við margs konar erfiðleika fyrir það, að þau hafa orðið að festa óeðlilega mikið fé í stofnkostnaði og ekki getað tryggt reksturinn á þann hátt, sem hvert vel rekið fyrirtæki þarf að gera. Það hefur heyrzt og ekki sjaldan, að mönnum hafi verið nær að fara hægar í þessum efnum. En ég held, að slíkt tal falli um sjálft sig, ef litið er á tölurnar um þau verðmæti, sem þessi fyrirtæki eru búin að bjarga á undangengnum árum. Þá var ekki betri fyrirgreiðsla vegna söltunarstöðvanna, þvert á móti. Það eru nú nokkur ár síðan raunverulega var skrúfað fyrir öll stofnlán til þeirra, það er þó sá atvinnurekstur, sem nú um þessar mundir skilar kannske hvað beztum árangri.

Það var í sumar gerð út sendinefnd af Austurlandi til þess að ræða við valdamenn hér syðra um þessi mál, ræða við hæstv. ráðh., bankastjóra og aðra ráðamenn í peningamálum. Og málin voru lögð fyrir og borin fram ýmis rök, lagðar fram ýmsar skýrslur, og það var farið fram á það, að það yrði á einhvern hátt reynt að greiða úr fyrir þessum atvinnurekstri, m.a. í formi aukinna atofnlána. — Það er enginn vafi á því, að nógar eignir voru til að veðsetja, — eða þá í formi byrjunarrekstrarlána, því að í ár fengu þessi fyrirtæki, bræðslurnar og söltunarstöðvarnar, í raun og veru engin byrjunarrekstrarlán. Þetta var rætt hér töluvert ýtarlega, en árangurinn af þeim viðræðum varð næsta lítill, en þó urðu þær ekki alveg erindisleysa.

Það verður ekki betra upp á teningnum, nema síður sé, ef litið er til þess aðbúnaðar, sem þjónustufyrirtækin hafa notið hjá ríkisvaldinu og hjá peningavaldinu í þjóðfélaginu, eins og t.d. netagerðirnar. Það eru einmitt netagerðirnar og þörfin þar, sem gefur nokkuð glögga mynd af því, hvað þarna var um að vera og hversu stórkostleg átök þurfti að gera í skyndi. Þróunin í síldarnótunum hefur orðið mjög ör, og þarna gerist í raun og veru margt í senn. Næturnar stækka um helming og raunar miklu meira, fjölmörg skip eru hin síðari árin með tvær nætur í takinu. Nær allur flotinn sækir á Austfjarðamiðin, eins og ég hef þegar minnt á, og þurfa að fá þar þjónustu, og síldveiðarnar færðust fram á haustið og jafnvel veturinn, fram á þann tíma, þegar ómögulegt var að vinna nótavinnuna úti á bryggjum undir berum himni, eins og áður var þó hægt að verulegu leyti, meðan fyrst og fremst var um sumarsíldveiði að ræða. Þegar þetta er haft í huga, er ljóst, að það var óhugsandi að komast hjá stórkostlegri fjárfestingu, ef ekki átti að reka í strand, ef mögulegt átti að vera að sinna þessari þýðingarmiklu þjónustu fyrir flotann. Það hefði áreiðanlega ekki verið neitt óeðlilegt og engin goðgá, þó að ríkisvaldið hefði veitt öflugan stuðning til þess, að þjónustan við síldveiðiflotann fyrir austan yrði sem bezt og fullkomnust, og beinlínis útvegað fjármagn til eðlilegra stofnlána og stuðlað að því, að fyrirtækin fengju nægjanlegt rekstrarfé, en neyslan varð bara allt önnur, eins og ég hef þegar vikið að.

En þetta, sem þarna var að gerast, gerist einmitt á sama tíma og milliliðastarfsemi ýmiss konar, sem vissulega gefur margfalt minni tekjur í þjóðarbúið, þó að hún kunni að vera arðgæf fyrir einstaklingana, sem hafa stundað hana, á sama tíma hefur þessi starfsemi, að því er virðist, haft greiðan aðgang að fjármagni, og þarf ekki að rekja það nánar hér í hv. d. Slík og þvílík stjórn peningamála — eða öllu heldur stjórnleysi — getur aldrei leitt til góðs, og hún fær auðvitað alls ekki staðizt, þegar til lengdar lætur. Það skýrir svo enn þá þá mynd, sem hér hefur verið brugðið upp af viðhorfi stjórnarvalda til mjög mikilvægs þáttar í gjaldeyrisöflun þjóðarinnar, hvernig þau hafa búið að ýmsum veigamestu þáttum hinna almennu þjónustumála á Austurlandi á þessum missirum, þ. e. samgöngumálunum, en þar er vissulega flest á eina bókina lært. Nýbyggingu veganna hefur miðað hægt. Þótt á þessum árum hafi verið tekin lán til ýmissa vegaframkvæmda og auðvitað nauðsynlegra annars staðar á landinu, þá sáu stjórnarvöldin enga ástæðu til þess að taka lán til að greiða fyrir samgöngumálum á Austurlandi. Þannig fór svo að segja ekki ein einasta króna af því lánsfé, sem varið hefur verið til vegamála á síðustu árum, og ég árétta það enn, sem ég sagði áðan, að hér var mikið í húfi, ekki eingöngu fyrir þennan landshluta, heldur fyrir þjóðina alla vegna þeirrar gífurlegu verðmætasköpunar, sem þarna átti sér stað. Viðhald veganna hefur verið ákaflega bágborið á þessum slóðum. Mér er t. d. kunnugt um það, að á miðju sumri í sumar var nálega til þurrðar gengið, svo til alveg til þurrðar gengið það viðhaldsfé, sem átti að endast til ársins. Síðan hefur verið haldið fast í og nálega engin leyfi veitt til að gera nauðsynlegustu viðhaldsframkvæmdir, nema það hefur verið leyft að moka snjó af vegum nú í haust, sem auðvitað var með öllu óhjákvæmilegt, eins og á stóð.

Það er ekki betra um að litast varðandi strandsiglingarnar á þessar slóðir. Enginn landshluti á líklega meira í húfi, að strandferðaþjónustan sé góð, heldur en Austfirðingarnir. Og í þeim málum gerist það, að áður en farið er að undirbúa kaup á nýjum og hagkvæmari strandferðaskipum en þau eru, sem nú hafa verið í notkun og orðin gömul og óheppileg, þá eru skipin seld og með þeim afleiðingum, sem Austfirðingar þekkja bezt, en öllum mega þó vera ljósar. Og það er enn sláandi dæmi um algert sinnuleysi stjórnarvalda varðandi samgöngur á Austurlandi, hvernig búið hefur verið að Egilsstaðaflugvelli. Það eru engin einsdæmi, að þar lendi stærstu vélar Flugfélagsins, í innanlandsflugi, fullar af farþegum, með nálega 100 farþega. En þarna hefur aðbúnaðurinn verið slíkur, að það er búið að vera að dútla við það í 5–6 ár a. m. k. að koma þarna upp skýli fyrir afgreiðsluna, og á þeim tíma, sem uppgripin eru slík og ég var að lýsa og verðmætasköpunin, eins og hún hefur verið.

Maður er stundum að spyrja sjálfan sig og aðra, hvers vegna þetta hafi verið svona, hvort stjórnina hafi raunverulega skort getu til þess að gera átak í þessum málum. Ég held, að það hafi ekki verið, og ég held, að hana hafi raunverulega ekki heldur skort vilja til þess. En ég held, að það leyni sér ekki, að hana hafi skort skilning á viðfangsefninu. Það er a. m. k. svo mikið víst, að þegar þurfti að byggja veg fyrir kísilvinnsluna við Mývatn, þá voru til peningar. Ég felli engan áfellisdóm yfir þeirri framkvæmd, og þar hefur væntanlega verið reist myndarleg verksmiðja, sem á eftir að verða gagnleg fyrir okkar þjóðfélag og skapa verðmæti. En það breytir ekki því, að það þurfti einnig annars staðar að gera góða hluti. Og hér sást, hvað hægt er að gera, þegar skilningurinn er fyrir hendi.

Afstaða stjórnarvaldanna til þeirrar atvinnuuppbyggingar í síldariðnaði og skyldum greinum á Austurlandi, sem hin mikla síldveiði þar úti fyrir gerði að knýjandi nauðsyn fyrir þjóðarbúið, er sannarlega ekkert einstök, þó að ég minni á hana hér sem sláandi dæmi. Íslenzkur atvinnurekstur í heild hefur ekki verið hátt skrifaður nú um sinn í þeim herbúðum.

Ég gæti nefnt dæmi um iðnað óskyldan þessum, hversu þrengt er að allri uppbyggingu, eins og nú er komið málum. Mér er kunnugt um iðnfyrirtæki í vaxandi þorpi, ört vaxandi þorpi, sem ekki hefur enn komið því við að byggja yfir starfsemi sína. Þetta fyrirtæki er byggt upp af nokkuð mörgum mönnum, sem sjálfir eru í greininni og vinna störfin. Það hefur haft hug á því að koma sér upp byggingu yfir starfsemi sína. Mér er kunnugt um það, að í allt sumar hafa forsvarsmenn þessa fyrirtækis verið á höttunum eftir stofnláni til þessara framkvæmda, sem eru allt í senn stórkostleg nauðsyn fyrir þetta þorp til tryggingar atvinnu, bein nauðsyn fyrir byggðarlögin í kring, því að víða þar vantar þá þjónustu, sem þarna átti að veita, og auðvitað stórkostleg nauðsyn fyrir þetta unga fyrirtæki, sem er uppbyggt á þann hátt, sem ég gat um og verður að teljast mjög æskilegur. En þessar umleitanir hafa að langmestu leyti orðið árangurslausar allt til þessa.

Það virðist nú vera orðið alveg úrelt gamla orðtakið um að efla íslenzkan iðnað og allt að því bannorð hjá stjórnarvöldum. Ungur iðnaður Íslendinga er enn í mótun og á bernskuskeiði, þrátt fyrir nokkurra áratuga tilvist að vísu, ef borið er saman við langþróaðan iðnað nágrannalandanna. Og það segir vissulega sína sögu, hvaða skilning ríkisstj. hefur sýnt á þessum viðhorfum. Og erfiðleikar íslenzks iðnaðar undir stjórn þessarar hæstv. ríkisstj. voru sannarlega til komnir áður en fór að gæta verðfalls á íslenzkum útflutningsvörum og áður en síldin lagði lykkju á leið sína norðaustur fyrir Svalbarða.

Eins og ég vék að fyrr í ræðu minni, hefur íslenzkur landbúnaður vissulega og eigi síður en aðrar atvinnugreinar hlotið sínar búsifjar af verðbólgustefnu hæstv. ríkisstj. En það er einnig á þessum árum svo ótal margt annað í stjórnarstefnunni varðandi landbúnaðinn, sem hefur verið honum óhagstætt. Það mætti minna á ýmis einstök atriði í því sambandi, en ég skal aðeins fara stutt út í þá sálma. Það mætti minna á það, að það kostaði á sínum tíma langa baráttu hjá samtökum bænda að fá greiðslur vegna ræktunarinnar í landinu færðar til samræmis við hækkandi verðlag. Það kostaði langa baráttu. Í lánamálum landbúnaðarins hefur á undangengnu langvarandi góðæristímabili í útflutningsframleiðslunni og við sívaxandi þjóðartekjur vissulega á margan hátt miðað skammt og stundum horft aftur á bak. Ég minni á lánaskattinn, sem er lagður persónulega á bændurna gagnstætt því, sem gert er um gjöld til stofnlána annarra atvinnugreina. Ég minni á lánstímann, lánstíma stofnlánanna. Það var eitt fyrsta viðbragð núv. ríkisstj. að stytta hann úr 20 árum í 15. Það var hörfað frá því, og hann var lengdur aftur upp í 20 ár. Það er í sjálfu sér allt of stuttur lánstími í Stofnlánadeild landbúnaðarins, því að öllum, sem til þekkja, er það ljóst, að þróun í landbúnaði er og hlýtur alltaf að verða hæg, og það tekur sinn tíma að byggja hann upp svo sem þarf, til þess að arður fáist. Það hefur ekki heldur tekizt, þrátt fyrir alla velgengnina og vaxandi þjóðartekjur, að hækka hundraðshluta þessara lána. Og vextirnir, okurvextirnir, sem verið hafa þennan tíma og auðvitað komið hart við allan atvinnurekstur, koma ekki sízt hart við landbúnaðinn, sem eins og ég sagði áðan, er þannig í eðli sínu, að þróun hans er hæg, og hann getur ekki gefið uppgripagróða. Af þessu leiðir auðvitað það, að rekstur þessa atvinnuvegar verður óhagstæðari og hann verður dýrari heldur en ella. Það hefur vissulega margt verið gert í landbúnaðinum, og á stórum svæðum hefur oft á þessu tímabili verið gott árferði. Bændastéttin hefur lagt hart að sér í framfarabarátunni, þegar á heildina er litið, og árangurinn komið í ljós í lengst af vaxandi framleiðslu, þrátt fyrir það að vinnandi höndum í sveitum fækki ár frá ári. En sá árangur hefði áreiðanlega orðið miklum mun meiri, ef bændastéttin hefði notið eðlilegrar fyrirgreiðslu í lánamálum sínum á undangengnu góðæristímabili.

Það vita allir, að samvinnufélögin íslenzku eru nátengd bændastéttinni, og það var bændastéttin, sem hóf merkið í þeirri starfsemi á sínum tíma. Og ég vil leyfa mér í framhaldi af þeim ummælum, sem ég lét hér falla um landbúnaðinn, að víkja örfáum orðum að ummælum hæstv. forsrh. hér í hv. d. í gær. Hann fór að tala um verzlunarhallir kaupfélaganna. Það er satt, að sum kaupfélög hafa byggt myndarlega yfir rekstur sinn. Önnur eiga það eftir, því miður. En mér er hvergi kunnugt um það, að það húsnæði, sem hér um ræðir og hæstv. forsrh. kallar verzlunarhallir, sé ekki nýtt til hins ýtrasta. Mjög víða, víðs vegar í kringum landið, eru kaupfélögin eitt meginþjónustufyrirtæki í verzlun og meðferð afurða. Allar eignir þeirra eru óumdeilanlega eignir fólksins sjálfs í byggðarlögunum. Það er fólkið, sem hefur byggt upp kaupfélögin, og þær eignir þeirra verða ekki frá því teknar. Þar er sá reginmunur á, að ef hagnaður verður í einkaverzlun, getur einstaklingurinn, eigandinn, flutt hann burt, og af því hafa mörg byggðarlög landsins fengið að súpa seyðið. En þegar fyrirtækin eru byggð upp á félagslegan hátt, verður hann ekki fluttur burt, heldur gengur annað hvort til félagsmannanna aftur sem arður, eða verður kyrr á stöðunum í eignum fyrirtækjanna. Hæstv. forsrh. talaði um versnandi afkomu Sambands ísl. samvinnufélaga, sem hann taldi stafa af því, að samtökin hefðu verið svipt sérréttindum. Þetta tal er alveg út í hött, og ég leyfi mér að vísa því algerlega á bug. Hitt mun mála sannast að þessi stærsti aðili í verzlun á Íslandi hafi aldrei notið rétts hlutar í rekstrarlánum og í ýmissi fyrirgreiðslu til jafns við önnur verzlunarfyrirtæki, sem minna hafa umleikis og færri aðilar standa á bak við og fyrst og fremst færri aðilar njóta gróðans af. Það mun mála sannast.

Ég gat ekki heyrt það a. m. k., að það væri nein sérstök hryggð í tóninum hjá hæstv. forsrh., þegar hann minntist á erfiðleika Sambands ísl. samvinnufélaga. Ég gat ekki heyrt það. En það má rétt minna á það, að auk verzlunarrekstursins, hins almenna verzlunarreksturs, hefur þessi félagsskapur annazt vinnslu og sölumeðferð á afurðum landbúnaðarins að langmestu leyti og með þeim árangri, að vinnslu-, dreifingar- og sölukostnaður á íslenzkum landbúnaðarvörum er lægri heldur en víðast hvar annars staðar. Og það er einnig rétt að minna á það, að í fjölmörgum byggðarlögum hafa einmitt samvinnufélögin verið traustasti hornsteinn atvinnulífsins og brjóstvörn fólksins á erfiðum tímum, já einkum, þegar að hefur kreppt. Og það er auðvelt að styðja þá staðhæfingu með mörgum dæmum, þó að það verði ekki gert hér. Það er augljós þjóðarhagur, að þessum almannafyrirtækjum vegni vel. Og það rennir enn stoðum undir áfellisdóminn yfir stjórnarstefnunni, að einnig þessi starfsemi skuli nú verjast í vök.

Ég vil svo leyfa mér að nefna enn eitt dæmi um undarleg viðhorf hæstv. ríkisstj. til innlends framtaks, en það er í sambandi við siglingarnar. Siglingarnar voru öldum saman í erlendum höndum. Það, að Íslendingar eignuðust sjálfir sín skip og væru ekki háðir erlendum aðilum um flutninga til og frá landi, var talið sjálfstæðismál á sínum tíma og ekki lítið. Og þó að ég muni það ekki, þá eru þeir margir, sem muna þá hrifningu, þá stemmningu, sem var með þjóðinni, þegar Eimskipafélag Íslands var stofnað til þess að leysa þennan vanda.

Það eru sjálfsagt einhverjir líka af eldri kynslóðinni, og auðvitað margir, sem muna það, sem við hinir höfðum aðeins lesið um, hvernig snúizt var við stofnun Eimskipafélagsins af þeim aðilum, sem þá önnuðust siglingar hér við land. Það var ekki hikað við undirboð á fröktum, og það átti að reyna að knésetja þetta íslenzka skipafélag þegar í byrjun. En íslenzkir aðilar sáu sóma sinn í því þá að bjarga þessu fyrirtæki yfir byrjunarerfiðleikana og skipta við það, þó að þeir gætu fengið vörurnar fluttar á ódýrari hátt í bili. Kannske er þetta eitthvað breytt núna, að siglingar séu ekki eins þýðingarmiklar fyrir þessa eyþjóð og þær voru þá. Ég held, að þær séu enn alveg í sínu sama og fulla gildi. Það eru smámunir, en þó finnst mér það alltaf ömurlegt að heyra dönsku talaða á stjórnpalli strandferðaskips Skipaútgerðar ríkisins, eins og verið hefur nú um missiris skeið, en það eru smámunir. Hitt var alvarlegra, þegar það gerðist á sínum tíma, að Hamrafellið var svipt olíuflutningum til Íslands á þeim tíma, þegar fraktin var lág og Rússar undirbuðu hið innlenda skipafélag. Það var alvarlegur hlutur, hvernig staðið var að þeim málum af hálfu valdhafa með þeim afleiðingum, að við urðum að láta af höndum, selja, þetta eina skip, sem annazt gat olíuflutninga til landsins. Olían er orðin stórkostlegur liður í okkar innflutningi, sem orkugjafi farartækja og iðnaðar og á heimilum og til margra hluta. Og það er engin tilviljun, að núna í farmannaverkfallinu er fyrsta neyðarkallið, sem kemur utan af landsbyggðinni, vegna þess að það vantar olíu. Það svona gefur auga leið, hvert gildi það hefði fyrir Íslendinga að ráða sjálfir yfir olíuflutningum til landsins að verulegu leyti.

Af því, sem hér hefur verið rakið, bæði af mér og mörgum öðrum stjórnarandstæðingum, er það ljóst, að stefna hæstv. ríkisstj. og viðhorf hennar gagnvart íslenzkum atvinnuvegum er alröng, ekki einasta hvað snertir viðbrögðin í verðlags- og efnahagsmálum, heldur einnig á mörgum, mörgum öðrum sviðum. Og þessi skoðun á sér vissulega einnig málsvara innan stjórnarflokkanna sjálfra. Eftir einum af kunnustu forystumönnum Alþfl. hafa nýlega verið höfð þessi ummæli: „Till. ríkisstj. virðast stefna að samdrætti í atvinnulífinu, en með því er boðið heim ægilegasta vágesti allra launþega, atvinnuleysinu. Engar till. liggja fyrir a. m. k. um þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru til að fyrirbyggja slíkar afleiðingar svo sem heildarstjórn á fjárfestingunni og markvissar ráðstafanir til verndar á gjaldeyri gegn miður þörfum innflutningi. Á erfiðleikatímum er nauðsynlegt að taka fyrir óskipulega og óhagkvæma bindingu fjár, en beina hins vegar fjármagninu til uppbyggingar atvinnufyrirtækja, sem gefa gjaldeyristekjur eða eru gjaldeyrissparandi. Ekki eru kunnar neinar till. eða aðgerðir frá hendi ríkisvaldsins til að herða skattaeftirlitið, sem er þó að flestra dómi hin mesta nauðsyn, jafnvel er skattsvikurunum léttur róðurinn með útgáfu óframtalsskyldra spariskírteina.“

Þessi rödd er ekki frá stjórnarandstæðingum, heldur úr stjórnarliðinu, og þessi rödd er ekki einstök núna um þessar mundir, ekki heldur í því liði. Daglega má heyra svona raddir, þar sem tveir eða fleiri menn hittast á biðstofum bankanna, skrifstofum fyrirtækja og á götum úti. Og hvað um samstöðuna í launþegasamtökunum? Ber hún vott um traust á stjórnarstefnunni? Nei, öðru nær. Hún er í raun og veru eitt samhljóða vantraust á stefnu eða stefnuleysi núv. hæstv. ríkisstj., og að álitsgerðum launþegasamtakanna standa menn úr öllum stjórnmálaflokkum.

Ég hygg, að það sé komið á daginn svo ljóslega, að um það þurfi ekki að deila, að það er og verður aldrei stætt á því fyrir okkur Íslendinga að taka í notkun hér á landi erlendar hagfræðikenningar nokkurn veginn hráar. Aðstæður okkar eru, þrátt fyrir þá þróun, sem orðið hefur hér á þessari öld, svo gersamlega ólíkar aðstæðum nálægra þjóða, sem búa að uppbyggingu í iðnaði, í atvinnulífi í heild og í sínu efnahagskerfi, sem varað hefur ekki örfáa áratugi, eins og hér, heldur árum saman og jafnvel öldum saman.

Það er líka enginn vafi á því, að í okkar fámenna þjóðfélagi, sem ekki telur fleiri íbúa heldur en sem svarar mannfjölda í einni götu í stórborg, verðum við að gæta að því að yfirbyggja ekki þetta litla þjóðfélag meira en góðu hófi gegnir með allt of viðamiklu og dýru stjórnkerfi. Ég fer ekki um þetta atriði mörgum orðum. Öllum er ljóst, hversu landið er stórt, hversu það er strjálbýlt og hversu margt í samgöngumálum okkar og fleiri greinum er tiltölulega miklu dýrara hér en með öðrum og fjölmennari þjóðum. Þessa atriðis hefur sjálfsagt ekki verið gætt eins og skyldi um langan tíma, ekki verið höfð nægileg varúð. En allra sízt hefur þessa verið gætt og nægileg varúð viðhöfð að þessu leyti nú, á valdatíma núv. hæstv. ríkisstj.

Enn er það, sem við áreiðanlega þurfum að gjalda varhuga við, Íslendingar, og gera okkur ljóst í tíma og er sannarlega mál til komið, og það er það, að íslenzk atvinnustétt, fólkið, sem vinnur að framleiðslustörfunum og hinum nauðsynlegustu þjónustuframkvæmdum, sem þeim eru tengd, það er svo fátt, að það getur ekki staðið undir stórri og fjölmennri eyðslustétt. En við vitum það, að dæmin blasa við víðs vegar, að nú þegar höfum við orðið með þessari þjóð æði stóran hóp af slíku fólki, fólki, sem hefur tekizt að koma sér í þá aðstöðu að afla sér mikilla tekna á ýmsan hátt og notar þær síðan til óhófseyðslu. Það hljóta að vera takmörk fyrir því, hvað jafnfámenn þjóð og Íslendingar geta veitt sér fjölmenna eyðslustétt, ef væri hægt að nota það orðatiltæki í þessu efni.

Þetta, sem ég hef nefnt hérna, erlendu hagfræðikenningarnar, yfirbyggingin og óhófseyðslan, þetta eru allt atriði, sem fullkomin ástæða er til að vara núv. hæstv. ríkisstj. við. Og auðvitað fullkomin ástæða til fyrir alla þegna þjóðfélagsins að gera sér glögga grein fyrir. Það er svo annað mál, að þó að margt gangi nú úrskeiðis í okkar þjóðfélagi, fer því auðvitað fjarri, að við töpum trúnni á framtíð landsins og framtíð íslenzkra atvinnuvega. Því fer fjarri. Þessi þjóð hefur staðið af sér marga erfiðleika fyrr og síðar og hún gerir það enn. En vegna þess að stjórnarstefnan er röng, er ekki hægt að bíða og bíða þess, að „bráðum komi betri tíð með blóm í haga“. Það þarf að snúast við vandamálunum í heild og taka þau til meðferðar frá rótum. En það er ekki gert í frv. hæstv. ríkisstj. um efnahagsráðstafanir, í því frv., sem hér liggur nú fyrir til umr. Því er aðeins ætlað að leysa hluta af þörfum ríkissjóðs á leiðinlegasta máta og að staðfesta nokkrar þær aðgerðir, sem áður hafa verið ákveðnar varðandi atvinnuvegina. Það er þess vegna óhætt að stöðva þetta frv. enn um sinn. Stjórnin stöðvaði meðferð þess í um það bil mánuð, og það er óhætt að hægja á því enn, og kannske verður það gert, og þannig mundi maður kannske mega skilja ummæli hæstv. forsrh. í gær. Hann flutti þá hér alllanga ræðu. Og mér virtist það ganga eins og rauður þráður í gegnum þá ræðu hans alla, þetta, að við viljum halda samningunum áfram, við viljum ræða við hvern, sem vill við okkur tala. Við erum allir af vilja gerðir. Og ég hygg, að það fari ekki framhjá neinum, að það hefur a. m. k. að nokkru leyti núna upp á síðkastið breytzt tónninn hjá stjórnarliðinu. Til skamms tíma voru algengar í skrifum Morgunblaðsins alls konar hótanir og bein fúkyrði til þeirra, sem leyfðu sér að álíta, að nauðsyn væri á allsherjarsamstöðu um lausn vandans. Og það var stöðugt minnt á það, hverjir valdið hefðu á Íslandi í dag, hverjir hefðu þingmeirihl. Það væri betur, ef einhver alvara fylgdi og ég sæi það rétt, að tónninn sé raunverulega breyttur.

Það er víst um það, að það er hægt að finna fleiri leiðir út úr þeim hluta vandamálanna, sem frv. þetta fjallar um, heldur en þær, sem þar greinir. Ábendingar launþegasamtakanna þar að lútandi hafa áreiðanlega ekki verið skoðaðar til neinnar hlítar, eins og raunar hæstv. forsrh. játaði í ræðu sinni í gær. Hann sagði, að það væri ekki hægt að komast til botns í slíkum málum á örstuttum fundum. Og auðvitað getur margt fleira komið til greina í sambandi við afgreiðslu fjárl. heldur en þær hugmyndir, sem þar var hreyft. Þessu frv. liggur þess vegna ekkert á. Það var lagt í salt við 1. umr. Ég held það væri hæfilegt að umsalta það núna. Það mætti þá við 3. umr. blóðskera það og vaska, og þá kannske yrði það orðið boðleg markaðsvara á eftir. En hitt þolir enga bið að snúa sér að vanda atvinnuveganna og virkja og sameina þar til átaka alla nýtanlega krafta „innan þings og utan“, svo að notað sé orðalag hæstv. forsrh.

Ég mun nú stytta mál mitt, en ég vil að lokum aðeins segja þetta. Núv. stjórnarflokkar hafa setið að völdum í tvö kjörtímabil. Þeir hafa verið einráðir, og þeir hafa verið samhentir að því er virðist, og þeir hafa því getað mótað stefnu sína sjálfir. Lengst af þennan tíma hefur verið rakið góðæri í útflutningsframleiðslunni. Það hefur verið vaxandi afli lengst af og hækkandi verðlag. En stjórnarflokkarnir höfðu ekki vald á efnahagsþróuninni, og stefna þeirra gagnvart atvinnuvegunum var röng. Á öndverðu þessu ári mátti glöggt sjá, hvert stefndi, og raunar miklu fyrr. En við kosningarnar í vor var hafin ein hin mesta blekkingaherferð, sem um getur í íslenzkri stjórnmálasögu. Grunntónninn í þeirri herferð bergmálast glögglega í eftirfarandi ummælum aðalmálgagns stjórnarflokkanna, Morgunblaðinu, en þau birtust 29. apríl í vor, en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Verðfallið, sem hefur orðið á 2/3 útflutningsframleiðslu landsmanna, hefur svo sem vænta mátti, skapað margvísleg vandamál, sem ríkisstj. og Alþ. hafa brugðizt við á þann hátt, að tekizt hefur farsællega að leysa þau tímabundnu vandamál, sem af því sköpuðust“. Og enn segir þar: „Það hefur réttilega verið á það bent, að vegna þess hversu viðreisnarstjórnin hefur styrkt efnahag landsmanna og efnahagskerfið í heild, hefur tekizt að leysa hin tímabundnu vandamál, án þess að það hafi leitt til kjaraskerðingar inn á við eða haftastefnu út á við, en óhætt er að fullyrða, að fyrir aðeins einum áratug hefði slíkt verðfall valdið hinum mestu búsifjum með þjóðinni“.

Hér fer ekkert á milli mála. Fyrir kraft viðreisnarinnar eru öll vandræði leyst, þjóðarskútan er komin inn fyrir skerjagarðinn. Þetta var tónninn fyrir kosningar. Og þetta hreif. Út á þennan málflutning vann stjórnarliðið meiri hl. sinn í kosningunum í vor, út á hann. Núna, aðeins örfáum mánuðum síðar, eru margar megingreinar atvinnulífsins að komast í þrot, og efnahagsmálunum í heild virðist stefnt í algert öngþveiti. Það er áreiðanlega langt síðan íslenzkir atvinnuvegir hafa verið fjær því en núna að eiga sér heilbrigðan rekstrargrundvöll. Skipbrot stjórnarstefnunnar blasir þannig við allra augum og er á hvers manns vörum, og hæstv. ríkisstj. ber einnig að viðurkenna þessar staðreyndir og hegða sér í samræmi við það, sem orðið er.