16.11.1967
Neðri deild: 19. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í C-deild Alþingistíðinda. (2317)
7. mál, efnahagsaðgerðir
Magnús Kjartansson:
Herra forseti. Þegar þetta mál var hér til umr. í síðasta mánuði, vakti ég athygli á því, að það væri ekki aðeins fjárhagslegs eðlis, í því væru ekki aðeins fólgnar ranglátar álögur með nefskattafyrirkomulagi, sem legðust þyngst á þá þjóðfélagsþegna, sem hefðu erfiðasta afkomu fyrir. Ég benti á, að þetta frv. markaði einnig ný pólitísk þáttaskil í samskiptum ríkisstjórnarinnar við samtök launafólks. Með því væri bundinn endi á þá samvinnu stjórnarvalda og verkalýðssamtaka, sem einkennt hefur alla kjarasamninga síðan í júní 1964. Ríkisstj. hefði á nýjan leik horfið að hinum upphaflegu vinnubrögðum sinum að reyna að skammta verkafólki kaup og kjör með einhliða valdboði. Af því gæti ekkert hlotizt annað en ný og alvarleg átök í þjóðfélaginu, verkalýðssamtökin væru svo öflug, að þau létu ekki taka af sér ráðin á þennan hátt.
Þetta mat hefur nú sannazt í verki. Ráðstefna ASÍ samþykkti einróma í fyrradag að hvetja öll verkalýðsfélög til þess að búa sig undir það að taka þátt í allsherjarverkfalli, sem hefjist 1. des. En með þeirri ákvörðun birtist þetta vandamál okkur í nýju ljósi. Nú er ekki lengur um það að ræða, að alþm. samþ. með naumum meiri hl. að halda fast við þær stórfelldu hækkanir á mjólk, kjöti og kartöflum, sem þegar eru komnar til framkvæmda, að þm. ákveði alla hina nefskattana, sem í frv. felast, og að klipið sé utan að vísitölunni á ósæmilegasta hátt. Þeir þm., sem samþ. þetta frv., eru sjálfir að ákveða, að um næstu mánaðamót hefjist hér stórfelld og afdrifarík verkfallsátök með öllu því tjóni, sem slík átök hafa í för með sér, og öllum þeim pólitísku afleiðingum, sem af því munu hljótast. Það er orðinn margfalt meiri ábyrgðarhluti að samþ. þetta frv. nú, en þegar það var lagt fram í öndverðu, og það er frumskylda hverrar ríkisstjórnar að leggja raunsætt mat á ákvarðanir sínar og gera sér grein fyrir afleiðingum þeirra.
Af þessum ástæðum hlustaði ég gaumgæfilega á ræðu hæstv. forsrh. á fundinum í gær. Þess mátti vænta, að í henni mundi felast mat ríkisstjórnarinnar á hinum nýju viðhorfum, vísbending um það, hvernig hún myndi bregðast við. En ég varð fyrir vonbrigðum. Ég gat ekki heyrt, að hæstv. ráðh. hefði gert sér ljóst, að nú er um að ræða ný og breytt viðhorf. Hæstv. ráðh. var að vísu venju fremur sléttmáli, nema helzt þegar hann minntist á Framsóknarmenn og Rússa, og virtist hann þó telja Framsóknarmenn sýnu lakari. En ég gat ekki fundið neina hugarfarsbreytingu undir mildu orðavali. Hann kvaðst halda fast við það sjónarmið, að frv. yrði samþ. í þeirri mynd, sem það hefur nú fengið. Hann taldi óhjákvæmilegt að skerða kjör alls verkafólks, hann sagðist staðráðinn í því að stýfa vísitölugreiðslurnar. Þrátt fyrir allt tal hæstv. ráðh. um það, að hann vildi halda áfram að íhuga gaumgæfilega allar þær till., sem fulltrúar launamanna hafa lagt fyrir ríkisstjórnina, hafnaði hann þeim lið fyrir lið. Ræða hæstv. ráðh. var í rauninni yfirlýsing um það eitt, að hann skorti enn sem komið er raunsæi til þess að gera sér grein fyrir hinum nýju viðhorfum. Þess vegna þótti mér ræða hæstv. ráðh. mikil tíðindi og alvarleg tíðindi.
Annars lagði hæstv. ráðh. sérstaka áherzlu á það í ræðu sinni, nú eins og fyrr, að draga upp ósanna mynd af þeim vanda, sem við okkur blasir. Í öðru orðinu hélt hann áfram að líkja vanda þjóðarinnar við neyðarástand það, sem hlauzt af upphafi heimskreppunnar miklu fyrir tæpum fjórum áratugum. Ég hef engan hug á því að draga fjöður yfir þau alvarlegu vandamál, sem hlotizt hafa af verðlækkunum og minnkandi afla í hlutfalli við tilkostnað, og það getur verið skynsamlegur búmannsháttur að mikla heldur fyrir sér vandamálin, en samlíkingar hæstv. forsrh. og annarra eru fráleitar ýkjur.
Efnahagsstofnunin hefur sem kunnugt er komizt að þeirri niðurstöðu, að vandinn í heild jafngildi því, að þjóðartekjur á mann kunni að dragast saman í ár um 4–5%. Í því sambandi skulum við minnast þess, að þjóðartekjur á mann hafa vaxið örar hér á undanförnum árum en í flestum löndum öðrum. Meðalvöxturinn hefur verið nær 6% á ári, eða svo sem 35% síðan 1961. Þrátt fyrir 4–5% samdrátt í ár verða þjóðartekjur á mann um 30% hærri en þær voru fyrir nokkrum árum og einhverjar þær hæstu, sem um getur í nokkru þjóðfélagi um þessar mundir. Það eru ósæmilegar öfgar að vitna til heimskreppunnar í því sambandi eða tala um neyðarástand og sultaról, eins og dæmi hafa verið hjá áróðursmönnum Sjálfstfl.
Hins vegar skulum við gera okkur það ljóst, að þessi meðaltalsvandi segir ekki alla söguna. Samdrátturinn bitnar fyrst og af fullum þunga á útflutningsfyrirtækjunum, og þá ber að hafa í huga, að hann lendir beint og milliliðalaust á því verkafólki, sem hjá fyrirtækjunum vinnur, sjómönnum, landverkafólki og þeim, sem vinna hjá hvers kyns þjónustufyrirtækjum, sem starfa í þágu útflutningsatvinnuveganna. Það þarf ekki að gera neinar samþykktir hér á þingi, til þess að þetta fólk taki á sig þann vanda, sem hlotizt hefur af samdrættinum. Sá vandi hvílir þegar á því af miklum þunga og birtist í stórlækkuðum tekjum, rýrari atvinnu og sums staðar alvarlegu atvinnuleysi, eins og marka má af því, að nú hafa um 100 manns skráð sig atvinnulausa á Siglufirði. Ef félagsleg sjónarmið hefðu verið í fyrirrúmi hjá hæstv. ríkisstj., hefði hún lagt fyrir Alþ. þann vanda, hvernig ætti að rétta hlut þessara atvinnufyrirtækja og þessa verkafólks. Hvernig ætti að dreifa þeim vanda, sem hlýzt af 4–5% skerðingu á þjóðartekjum á mann um allt þjóðfélagið. En ekkert slíkt felst í þeim till. ríkisstj., sem hér eru til umræðu. Þar er á engan hátt fjallað um vanda útflutningsatvinnuveganna, þar fær það verkafólk, sem býr við skarðastan hlut, þá orðsendingu eina frá Alþingi, að það skuli greiða miklu hærra verð en áður fyrir brýnustu lífsnauðsynjar og nefgjöld, sem enginn fær undan skotizt, að útgjöld meðalfjölskyldu skuli hækka um meira en 1000 kr. á mánuði, eins og hv. 9. þm. Reykv., forseti ASÍ, gerði hér grein fyrir í gær. Hér er ekki verið að ástunda raunsæja niðurjöfnun á þeim vanda, sem steðjar að þjóðfélaginu, heldur er verið að auka misréttið á alvarlegastan hátt.
Ég sagði áðan, að hæstv. forsrh. hefði miklað þann heildarvanda, sem þjóðin á nú við að glíma. En í hinu orðinu reynir hæstv. ráðh. að gera sem minnst úr afleiðingum þessa vanda. Hann heldur því fram, að frv. það, sem hér liggur fyrir, sé lausnin á vandanum og klifar á því, að ekki sé nú um mikið að deila, þegar verkalýðshreyfingin telji sér nægja að fá 4% vísitölubætur, en ríkisstj. bjóði 3% á 1½ ári. Deilumálið sé því í rauninni aðeins 1% ásamt dálítilli tímaskekkju, og hvernig detti mönnum í hug að gera slíkan mun að einhverju örlagaríku atriði?
En þetta dæmi hæstv. ráðh. er ekki í neinu samræmi við veruleikann, það leysir engan vanda nema bókhaldsvanda ríkissjóðs. Með þessu dæmi er hæstv. ráðh. að reyna að beina athygli manna frá sjálfri þjóðmálabaráttunni, frá sjálfum stefnuágreiningnum um stjórn þjóðfélagsins og gera viðfangsefnið eingöngu að tæknilegu atriði, hvernig á að hnika til tekjum og gjöldum í einstökum atriðum. En lausnin á því dæmi er ekki lykill að nokkru vandamáli til frambúðar, ekki einu sinni vanda ríkissjóðs. Hæstv. ráðh. hefur síðustu vikuna spurt fulltrúa launafólks, hvernig eigi að leysa þetta dæmi. Og þeir hafa komið með sína lausn, sem stenzt í öllum atriðum, þótt hæstv. ríkisstj. vilji ekki á hana fallast. En ég vil leggja áherzlu á það, að enda þótt þessi lausn alþýðusamtakanna standist vissulega, mundi hún ekki heldur leysa neinn vanda til frambúðar, vegna þess að dæmið sjálft er rangt. Það er tilbúningur úr stjórnarráðinu, en ekki í samræmi við hin raunverulegu vandamál þjóðfélagsins. Það viðfangsefni, sem úr sker, er sjálf heildarstefnan í landsmálum, og verði henni ekki breytt, mun enginn vandi leysast nema skamman tíma.
Hæstv. ráðh. talaði í ræðu sinni um þjóðina og reyndi að draga upp mynd af því, að hann væri hér að reyna af algeru hlutleysi að leysa vanda þjóðarinnar. En hæstv. ráðh. er ekki fulltrúi neinnar þjóðar í forsætisráðherrastóli, hann er fulltrúi tiltekinna þjóðfélagsafla, hann er málssvari tiltekinna þjóðfélagskenninga, og athafnir hans hafa þær forsendur. Ég efast ekki um, að hæstv. ráðh. telji sig vera að vinna þjóðinni gagn með því að berjast fyrir kenningum sínum og reyna að efla vissar stéttir í þjóðfélaginu,en engu að síður eru það þessar kenningar og þessir þjóðfélagshópar, sem móta athafnir hans, en ekki nein almenn og óskilgreind þjóðarumhyggja. Við skulum ekki gleyma því, að þessi ríkisstjórn var mynduð í alveg ákveðnum tilgangi. Hún setti sér það mark að koma hér á nútímalegu auðvaldsþjóðfélagi, þar sem lögmál markaðsins ættu að skera úr um þjóðfélagsþróunina, þar sem gróðahvötin átti að vera hreyfiaflið, og hæstv. ríkisstj. heldur enn fast við þessa stefnu. Efnahagsaðgerðir hennar eru ekki miðaðar við neinn óskilgreindan þjóðarhag, heldur það keppikefli, að hin svokallaða viðreisnarstefna fái haldið velli á Íslandi, þess vegna eru þyngstu byrðarnar lagðar á alþýðu manna í von um, að hin þunga yfirbygging viðreisnarinnar fái staðizt.
Þessi fastheldni hæstv. ríkisstj. við stefnu sína er þeim mun alvarlegri sem reynslan sjálf hefur þegar sannað, að hún fær ekki staðizt við íslenzkar aðstæður. Hugmyndirnar um markaðsþjóðfélagið, sem einkenna um þessar mundir þjóðfélögin umhverfis okkur, eiga alls ekki við á Íslandi. Markaðurinn hér er af eðlilegum ástæðum ákaflega smávaxinn og þröngur, og framboð og eftirspurn á þeim markaði ýtir á engan hátt undir þau atvinnufyrirtæki, sem okkur eru mikilvægust, sjávarútveg og fiskiðnað, því að framleiðsluvörur þeirra fyrirtækja fara á allt annan markað en þann íslenzka. Kenningin um hin frjálsu markaðslögmál hefur ekki orðið til þess að efla útflutningsatvinnuvegi okkar, heldur hefur hún grafið undan þeim, vegna þess að þeir aðilar, sem nutu frelsisins hér innanlands, hagnýttu það að sjálfsögðu til að soga til sín fjármagn frá útflutningsatvinnuvegunum, ekki sízt með verðbólguþróuninni. Viðreisnin hefur jafnt og þétt grafið undan þeim meginstoðum þjóðfélagsins, sem hver íslenzk ríkisstjórn verður að vernda.
En árangur viðreisnarinnar hefur ekki orðið betri, þótt aðeins sé litið á þá aðila, sem hafa fengið að leika lausum halda á innlendum markaði. Íslenzkt þjóðfélag er ekki aðeins sérstakt að því leyti, að útflutningsverzlun okkar er ákaflega mikil, innanlandsmarkaðurinn er einnig svo smár, að það er fásinna að reyna að beita hér félaga. Allur þjóðarbúskapur Íslendinga jafngildir einu meðalfyrirtæki hjá stórþjóðunum, og eigi hin sundurvirku gróðaöfl að fá að hluta þjóðarbúskap okkar niður, verður hver eining svo smá, að ekki er hægt að koma við neinni hagræðingu eða framleiðni. Kastir gróðaskipulagsins fá alls ekki notið sín á Íslandi, við þekkjum aðeins gallana.
Hæstv. forsrh. tók í gær dæmi af neyzluvöruverzluninni og kvað það staðreynd, að ekki væri hægt að lækka álagningu á vörum, enda þótt þær hafi tvöfaldazt í verði að jafnaði á síðustu 6 árum, vegna þess að jafnt kaupmenn og kaupfélög kvörtuðu undan bágri afkomu. Ekki skal ég vefengja, að þær kvartanir hafi við rök að styðjast, en engu að síður er það staðreynd, að verzlunarkostnaður hér er miklum mun hærri en í nálægum löndum. Ástæðan er sú, að það er búið að ganga frá kerfi, sem er alltof kostnaðarsamt fyrir þjóðarheildina, þar er um að ræða yfirfjárfestingu og alltof mikla notkun á vinnuafli, og þess vegna þarf mun meiri fjármuni til þess að rísa undir kerfinu en nauðsynlegt væri, ef verzlunarskipulagið væri einfaldara og hagkvæmara.
Þegar svo er komið, að hver verzlun í Reykjavík annast aðeins þjónustu við nokkra tugi fjölskyldna að jafnaði, gefur auga leið, að hver fjölskylda verður að greiða býsna háar upphæðir fyrir þjónustuna. Og sama vandamálið blasir við á öllum sviðum. Við höldum hér uppi þreföldu dreifingarkerfi á olíum og bensíni, þrír tankar standa hlið við hlið út um allar jarðir, bílarnir elta hver annan út um holt og grundir, og samt er nákvæmlega sama varan í öllum tönkunum og öllum bílunum, keypt af ríkisstjórn Íslands og afhent þessum þríhöfðaða olíuþursi, ekki fyrst og fremst til gróðasöfnunar, heldur til stórfelldrar þjóðfélagslegrar sóunar.
Í gær skýrði framkvstj. Kassagerðar Reykjavíkur frá því í viðtali við Þjóðviljann, að hann hefði nú neyðzt til að segja upp verkafólki, vegna þess að annað fyrirtæki væri tekið til starfa á hinum þrönga íslenzka markaði. Markaðurinn nægði til að starfrækja eitt myndarlegt fyrirtæki á þessu sviði, en um leið og þau voru orðin tvö byrja örðugleikarnir, og þjóðin verður að leggja fram meira fé til þess að rísa undir kostnaðarsamara og óhagkvæmara kerfi.
Svo að enn eitt dæmi sé tekið, eru risin upp hér á landi svo mörg tryggingarfélög, að það þarf sérfræðinga til að koma tölu á þau. Þau búta hinn þrönga markað okkar niður í æ smærri einingar, þar til enginn skynsamlegur rekstrargrundvöllur er til lengur. En kostnaðinn af þessu útblásna og margtengda skriffinnskukerfi verða viðskiptavinirnir að borga. Ég gæti haldið áfram afar lengi að telja þess konar dæmi. Reynslan hefur á öllum sviðum orðið sú sama, jafnt í smáu sem stóru. Hafi einhver aðili reynt að safna gróða á einhverju verkefni, hefur verið stofnað nýtt fyrirtæki á sama sviði og síðan æ fleiri og þau grafið hvert undan öðru, þar til ekki voru lengur tök á neinum skynsamlegum eða hagkvæmum framkvæmdum. Kenning frumskógarins um úrval hins hæfasta, sem er kjarninn í kerfi auðvaldsþjóðfélagsins, hefur ekki einu sinni komið til framkvæmda á Íslandi. Aðstæðurnar eru svo þröngar, að allir verða að lokum jafn óhæfir.
Það er þessi meginstefna, sem nú er til óhjákvæmilegrar endurskoðunar á Íslandi, en ekki nein bókhaldsvandamál hjá ríkissjóði. Ef hæstv. forsrh. ætti til að bera þá umhyggju fyrir þjóðinni, sem hann ræddi um í gær, hefði mátt ætlast til þess, að hann tæki þessa gjaldþrotastefnu sína til óhjákvæmilegs endurmats. En það hefur hæstv. forsrh. ekki gert. Hann reynist vera svo mikill þráhyggjumaður, að hann tekur kenningakreddur sínar fram yfir allt annað. Megináhugamál hans hefur að undanförnu verið að tengja okkur við stærri efnahagsheildir, hleypa erlendum auðfélögum inn í landið, binda okkur við efnahagsbandalögin í Evrópu. Með því móti gerir hann sér vonir um, að hinn þröngi íslenzki markaður verði hluti af stórmarkaði, þá geti kenningarnar um markaðsþjóðfélag og nútíma kapítalistíska þróun komið að gagni hér á Íslandi. Hæstv. ráðh. tekur þannig þessar stjórnmálaskoðanir sínar langt fram yfir allar hugmyndir Íslendinga um sjálfstætt efnahagssamfélag. Hann er ekki að hugsa um þjóðina, heldur um pólitískar kennisetningar, og það hefur margsinnis komið fram í málflutningi hans, að hann hefur einmitt hug á að nota efnahagsörðugleikana nú til þess að knýja þjóðina til þess að sætta sig við það, að Ísland renni smátt og smátt inn í hina stærri heild. Einnig þau framtíðarmarkmið ber mönnum að hafa í huga, þegar hæstv. ráðh. reynir að halda því fram, að hér sé aðeins um eitt lítið bókhaldsdæmi að ræða.
Hæstv. ráðh. sagði hér í gær, að nóg væri af mönnum, sem vildu koma illu af stað og nota þessa örðugleika í annarlegu skyni. Ekki geri ég ráð fyrir, að hæstv. ráðh. eigi hér við siðferðilegt innræti andstæðinga sinna. Það illa og annarlega er eflaust það viðhorf, að núv. ríkisstj. eigi að fara frá völdum. En einmitt það er sú nauðsyn, sem nú er brýnust, vegna þess að það er sjálf heildarstefna ríkisstj., sem er í brennidepli, en ekki neitt útreikningsdæmi um afkomu ríkissjóðs. Sá vandi, sem við verðum að leysa, er fyrst og fremst pólitískur, og sá vandi verður ekki leystur nema núv. ríkisstj. fari frá og ný stjórnarstefna komi til öndvegis. Ég vil vara hæstv. forsrh. við því að túlka þessi ummæli mín þannig, að ég sé að hvetja til pólitískra verkfalla. Forustumenn verkalýðshreyfingarinnar hafa haldið á málum af mikilli nákvæmni í samræmi við stéttarlegt hlutverk alþýðusamtakanna, enda er einhugur þar alger án tillits til stjórnmálaágreinings. Ég tala hér sem fulltrúi stjórnmálasamtaka, sem hafa frá upphafi varað við háskalegum afleiðingum viðreisnarstefnunnar og hafa nú dóm reynslunnar að bakhjarli. Þróun síðustu vikna og mánaða hefur sannað, að meiri hl. sá, sem ríkisstj. fékk í sumar á röngum forsendum, er farinn veg allrar veraldar. Og ef ríkisstj. tekur þá pólitísku ákvörðun að efna til allsherjarátaka við verkalýðssamtökin um næstu mánaðamót, mun einangrun hennar meðal þjóðarinnar vaxa í sífellu. Vilji hæstv. forsrh. sýna í verki, að hann beri þá umhyggju fyrir þjóðinni, sem hann ræddi um í gær, getur hann sýnt það með því að gera landsmönnum dauðastríð viðreisnarstefnunnar sem léttbærast.