17.01.1968
Neðri deild: 50. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í C-deild Alþingistíðinda. (2324)

91. mál, tollheimta og tolleftirlit

Fjmrh. (Magnús Jónsson) :

Herra forseti. Núgildandi l. um tollheimtu og tolleftirlit eru frá árinu 1956. Í aths. við það frv., er það var lagt fyrir Alþingi 1955, sagði m.a.: „Auk ýmissa minni háttar breytinga og viðauka við eldri fyrirmæli liggja aðalnýmæli þessa frv. í 19. gr. þess, sem hefur að geyma nýjan kafla um skipaafgreiðslur, meðferð ótollafgreidds varnings o. fl., sem fram að þessu hefur skort ákveðin lagafyrirmæli um. Aðstaða hér á landi er með þeim hætti, að ekki er hægt að sækja fyrirmyndir til nágrannalanda um þessi atriði nema að litlu leyti. Eru þessi ákvæði því frumsmíð, sem búast má við, að þurfi endurskoðunar við, þegar reynsla er fengin um framkvæmd þeirra: Ég nefni þetta sérstaklega hér, vegna þess að einmitt ákvæðin í frv. því, sem hér er lagt fram, sem er frv. til nýrrar heildarlöggjafar um tollheimtu og tolleftirlit, fela í sér víðtæka endurskoðun á einmitt þessum ákvæðum.

Í frv. er að finna ýmis nýmæli frá gildandi l. um bæði flutning, meðferð og geymslu ótollafgreiddrar vöru, byggð á þeirri reynslu, sem fengin hefur verið, síðan núgildandi l. um tollheimtu og tolleftirlit voru sett. Jafnframt er að finna ýmis önnur atriði í þessu frv., en eins og segir í grg. þess, var aðaltilgangurinn með endurskoðun laganna, auk þess sem gert var ráð fyrir að þyrfti að breyta þeim ákvæðum, sem ég gat um, sá, að reyna að leita eftir öllum tiltækum úrræðum til þess að sporna gegn ólöglegum innflutningi vara til landsins eða innflutningi, sem ekki kæmi til tollmeðferðar. Í þessu skyni eru sett ýmis ákvæði til tryggingar og öryggis í sambandi við tollafgreiðslu vara, og jafnframt eru þyngdar verulega refsingar við tolllagabrotum.

Um undirbúning málsins er það að segja, að á árinu 1962 skipaði þáverandi fjmrh. 4 manna n. til þess að framkvæma heildarendurskoðun á þessum l. Eftir að þessi n. lauk störfum í nóv. 1963, eftir að ég tók við embætti fjmrh., lét ég taka þetta frv. til sérstakrar athugunar og endurskoðunar, þar sem ljóst þótti, að gera þyrfti ýmsar breytingar frá þeim till., sem n. hafði upphaflega lagt til, og var þá, undir forustu þáverandi ráðuneytisstjóra í fjmrn., nokkrum mönnum, sem sérstaklega eru sérfróðir í tollamálum, falið að endurskoða frv. Síðan hefur nokkur dráttur orðið á flutningi þess vegna þess, að það hafa komið fram ýmis ný atriði, sem ástæða þótti til að endurskoða nánar, auk þess sem ráðuneytisstjóraskipti hafa orðið í fjmrn., og þótti æskilegt að fá skoðanir þeirra manna, sem með þau mál hafa farið síðan um einstök atriði málsins, því að hér er um mjög mikilvægt og umfangsmikið framkvæmdaatriði að ræða, sem fellur undir ráðuneytið að fara með. Ég tel, að frv. hafi hlotið mjög rækilegan undirbúning, og eigi að hafa verið skoðaðar allar hliðar þess mjög nákvæmlega, þó að auðvitað sé aldrei hægt að girða fyrir það, að það kunni að vera einhver atriði, sem mönnum þyki betur fara, og er ég að sjálfsögðu reiðubúinn til að taka til greina allar ábendingar í þá átt.

Eins og ég gat um áðan, hefur margt, sem varðar tollamál, breytzt, síðan núgildandi tollalög voru sett. Þar má nefna t.d., að vöruflutningar með flugvélum hafa farið stórvaxandi, og er þetta frv. samið með tilliti til þess, sem sjá má af því, að yfirleitt gilda sömu ákvæði um skip og flugvélar, hvað tollgæzlu og tolleftirlit snertir, og eru þessi farartæki í frv. einu nafni nefnd för. Auk þess má geta um, að ýmis l., sem varða tollamál, hafa verið samþykkt eftir gildistöku núgildandi tollheimtulaga, svo sem l. um tollskrá, sem var gerð mjög rækileg endurskoðun á 1963. Þá hafa einnig verið höfð til hliðsjónar við samningu frv. l. um tollvörugeymslur.

Í aths. við frv. um tollheimtu og tolleftirlit, sem flutt var á Alþingi 1955, og núgildandi tollheimtulög eru byggð á, kemur greinilega fram að stefna átti að því, að tollgæzlan sjálf kæmi upp geymslum fyrir ótollafgreiddar vörur, enda var sá háttur hafður á í nágrannalöndunum. Nú hefur þetta breytzt þannig, bæði í Noregi og Danmörku, að talið er heppilegt, að farmflytjendur sjái sér sjálfir fyrir geymslustöðum á ótollafgreiddum vörum. Er sýnilegt, að þetta mun yfirleitt verða svo hér á landi einnig í náinni framtíð. Eru því í frv. ýmis ákvæði, er snerta vörugeymslur, meðferð og flutning ótollafgreiddrar vöru, afgreiðslu hennar o. fl. Má þar til nefna, að vörugeymslur þurfa nú að fá viðurkenningu hjá tollyfirvöldum, að ekki má flytja vöru af viðurkenndum eða leyfðum geymslustað nema með samþykki tollstjóra, svo og að ákveða má í reglugerð, að varan skuli tollafgreidd innan ákveðins frests. Er síðast nefnda ákvæðinu m.a. ætlað að leysa að nokkru þau vandræði, sem stafa af þrengslum í vörugeymslum farmflytjenda. Til þess að reka enn betur á eftir innflytjendum vöru til að tollafgreiða hana sem fyrst er einnig heimilað að veita megi innflytjanda frest á greiðslu aðflutningsgjalda á vörum, eða sumum tegundum vöru, gegn því að þeir tollafgreiði hana og flytji hana innan ákveðins frests úr vörugeymslunni. Ekki hefur verið komizt hjá að leggja nokkrar byrðar á farmflytjanda og innflytjanda vöru. Er það meginreglan í frv. hvað kostnað á tollgæzlu og tolleftirliti snertir, að sjálf varnargæzlan, þ. e. ráðstafanir til að koma í veg fyrir ólöglegan innflutning svo og dagleg, almenn afgreiðsla eins og t.d. almenn löggæzla, sé greidd af ríkissjóði. Hins vegar er kostnaður af vörumeðferðinni lagður að nokkru leyti á farmflytjanda eða vörueiganda. Má þar nefna ákvæði 37. gr. frv., en þar er geymsluhöfum gert að skyldu að greiða kostnað af eftirliti í vörugeymslu þeirra o. fl. Að sjálfsögðu má heimta greiðslu fyrir störf tollgæzlunnar, þegar svo stendur á, að veittar eru undantekningar frá almennum reglum laganna um geymslustað vöru, leyfð afgreiðsla utan venjulegs afgreiðslutíma, eða eftirlit með vöru eða flutningi hennar er venju fremur kostnaðarsamt. Sama er auðvitað að segja um störf tollgæzlunnar, sem unnin eru beint fyrir vörueiganda utan venjulegs vinnustaðar, svo sem skoðun á vörum vegna vöntunar eða skemmda, ef svo stendur á, að leyft er að skoða hana, eftir að hún er heimflutt.

Ég skal þá fara örfáum orðum um helztu atriði frv. og einkum þau, þar sem um nýmæli er að ræða.

Það hefur verið mikið um það rætt, að æskilegt væri og nauðsynlegt að sameina tollgæzlu og löggæzlu, þar sem því yrði við komið, og í l. um löggæzlumenn hefur verið sett heimild um þetta hvað lögreglumenn snertir. Hér er í þessum l. lagt til að taka upp sama ákvæði varðandi tollgæzlumenn, þannig, að þá á að vera tiltölulega auðvelt að sameina þetta á þeim stöðum, þar sem hægt er að koma því við. Þetta er hins vegar þeim takmörkunum háð, að ekki var talið mögulegt, þegar umr. voru um þetta varðandi löggæzlumennina, að leggja þetta á þá menn, sem ráðnir höfðu verið fyrir gildistíma þeirra laga, og er einnig það sama sjónarmið tekið til greina hér. Það varð af því óánægja mikil og mótmæli, þegar stóð til að sameina þetta á einstökum stöðum, vegna þess að viðkomandi starfsmenn töldu, að þeir hefðu ekki verið ráðnir með slíkum skilmálum. En þessu hefur þegar verið komið .á á ýmsum stöðum á landinu og mikil nauðsyn að það verði útfært, eftir því sem tök eru á, til þess að spara kostnað bæði við tollgæzluna og löggæzluna.

Þá er með þessu frv. lagt til að lögfesta ástand, sem í rauninni hefur skapazt, án þess að væri gert ráð fyrir því í l., en það hefur verið ákveðið með reglugerð, en það er, að tollstjórinn í Reykjavík fari formlega með yfirumsjón tollgæzlunnar um land allt, þótt sýslumenn og bæjarfógetar verði að sjálfsögðu áfram tollstjórar á sinum stað. En þetta hefur verið framkvæmt þannig að undanförnu, að sérstakur tollgæzlustjóri hefur verið skipaður við embætti tollstjóra, og hefur honum verið falið umboð til þess að hafa yfirumsjón með tollgæzlunni um allt land. Þetta hefur gefið mjög góða raun og þykir því sjálfsagt að lögfesta þessa skipan mála.

Í frv. er lagt til, að komið verði upp tollskóla í sambandi við embætti tollstjórans í Reykjavík. Það er mikil nauðsyn að mennta betur ýmsa þá, sem leggja það fyrir sig að gegna tollgæzlustörfum. Þetta eru töluvert flókin og vandasöm störf. Það er enda komið svo, að í kjaradómi er gert ráð fyrir því, að slíkur skóli sé til og laun tollgæzlumanna við það miðuð. Þetta hefur verið gert víða erlendis og reynist vel, og þykir sjálfsagt að leggja til, með hliðsjón af öllum forsendum málsins, að það verði gert hér. En tvö námskeið hafa þegar verið haldin fyrir tollstarfsmenn og samið hefur verið uppkast að starfsreglum fyrir skólann, en þær þó ekki endanlega staðfestar ennþá, þar sem þótti nauðsynlegt að fá þá lagaheimild, sem hér er beðið um.

Í 2. kafla eru almenn ákvæði um tolleftirlitið. Það er að mestu í samræmi við þær venjur, sem skapazt hafa, en lagt er til að gera þessi ákvæði á ýmsan hátt skýrari í ljósi fenginnar reynslu og gengið nokkru lengra í heimild til handa tollgæzlumönnum en nú er gert. Í niðurlagi 10. gr. er t.d. ákvæði, sem heimilar eftirlit í verzlunum og vörugeymslum þeirra. Þá heimild hafa tollgæzlumenn ekki í dag. Það hefur komið í ljós í mörgum tilfellum, að það torveldar mjög eftirlit, og hefur reyndar komið í veg fyrir, að hægt væri að framkvæma það, að tollgæzlumenn skuli ekki hafa heimild til þess að gera leit í verzlunum, þar sem grunur þykir leika á því, að vörur séu til sölu, sem ekki hafi verið greiddir tollar af. Þar er að vísu ekki eingöngu um að ræða vöru, sem er ólöglega innflutt, heldur einnig vöru, sem ekki hefur verið greitt af innlent tollvörugjald, en það er einnig mikið vandamál að koma við framkvæmd þeirra laga og vitað að í ýmsum verzlunum eru til sölu vörur, sem hafa verið framleiddar án þess að slíkt tollvörugjald væri greitt. Ný reglugjörð hefur verið undirbúin til þess að tryggja eftirlit með slíkum vörum, sem innlent tollvörugjald er greitt af og gert náð fyrir miklu nánari verðmerkingu þeirra en hingað til hefur verið, en það er ekki hægt að gera ráð fyrir, að sé hægt að hafa verulegt gagn af þeirri verðmerkingu, nema því aðeins, að tolleftirlitsmönnum sé heimiluð sú athugun og rannsókn í verzlunum, sem hér er gert ráð fyrir.

3. kafli laganna fjallar um för í utanlandsferðum, bæði flugvélar og skip. Í þeim kafla er ekki um að ræða mörg ný ákvæði, heldur er flest þeirra að finna í gildandi l. og reglugerðum, sem settar hafa verið, en sum ákvæðin eru þess eðlis — reglugerðarákvæðin, að nauðsynlegt þykir að lögfesta þau. Í 20. gr. er stjórnanda fars gert að skyldu að tilkynna tollgæzlunni með hæfilegum fyrirvara um komu farsins, og jafnframt er ýmsum opinberum aðilum gert að skyldu að veita upplýsingar um ferðir skipa og flugvéla, einnig eru starfsmenn hafna og skipaðir hafasögumenn skyldaðir til að gera tollgæzlunni aðvart, ef þeir í starfi sínu eða stöðu komast að því, að brotin hafa verið eða brjóta eigi ákvæði laga.

Í 4. kafla eru mjög ítarleg ákvæði um vörzlu og tollmeðferð vara, og miða þessi ákvæði að því annars vegar að tryggja eftirlit með flutningi ótollafgreiddrar vöru frá farartæki á geymslustað og í öðru lagi að tryggja forsvaranlega geymslu aðfluttrar vöru unz hún er tollafgreidd. Í þessum kafla eru ýmis nýmæli til þess að tryggja þetta betur en nú er. Í 36. gr. er ákveðið, að tollgæzlan geti jafnan ákveðið, að ótollafgreiddar vörur séu fluttar beint úr farartæki í húsrými, sem hún hefur ráð yfir, til rannsóknar á kostnað farmflytjanda, svo og til geymslu þar og afgreiðslu. Eigendur eða umráðamenn farartækja, sem flytja ótollafgreiddar vörur, hvort heldur er til landsins frá útlöndum eða milli tollhafna innanlands, skulu skv. núgildandi l. hafa til umráða eða eiga aðgang að nægum geymslu- eða afgreiðslustöðum fyrir slíkar vörur, þar sem þeim er haldið aðgreindum frá öðrum varningi. Séu vörurnar fluttar í lokuðum umbúðum eða þurfi af öðrum ástæðum sérstaks eftirlits eða rannsóknar við, skulu þær fluttar beint úr flutningstækjum í sérstök vörugeymsluhús, sem fjmrn. hefur viðurkennt til þeirra nota í samráði við viðkomandi tollstjóra. Um þetta efni eru ákvæði í 37. gr. frv., og eru þau að ýmsu leyti fyllri en núgildandi fyrirmæli. Skulu allir geymslu- og afgreiðslustaðir vera viðurkenndir af viðkomandi tollstjóra og tollgæzlustjóra, en ekki eins og nú aðeins þeir, sem ætlaðir eru til geymslu á vörum í lokuðum umbúðum, eða vörum, sem af öðrum ástæðum þurfa sérstaks eftirlits eða rannsóknar við. Heimilt er þó með leyfi tollstjóra í hvert sinn að geyma ótollafgreiddar vörur utan þessara viðurkenndu staða, enda greiði sá, sem slíkt leyfi fær, allan kostnað við eftirlit með vörunni. Til þess að tryggja að viðurkennd geymsluhús eða svæði sé í fullnægjandi ástandi getur tollyfirvald bætt úr göllum, sem á geymslunum kunna að vera, ef geymsluhafi gerir það ekki sjálfur innan ákveðins frests, eða tollyfirvald getur svipt geymsluhafa rétt til að nota geymsluna fyrir ótollafgreiddar vörur. Eins og nú er ástatt t.d. hér í Reykjavík við höfnina, og reyndar víða annars staðar á landinu, eru vörugeymsluhús og svæði oft staðsett langt frá affermingarstað ótollafgreiddrar vöru. Veldur þetta ýmsum erfiðleikum fyrir tollgæzluna, þar sem öruggur flutningur vörunnar verður ekki tryggður nema með aukinni vinnu eða útbúnaði, þegar flytja þarf hana úr augsýn frá affermingarstað. Í 37. gr. er svo kveðið á, að stjórnandi fars skuli, þegar svo stendur á, sem að framan greinir, greiða þann aukakostnað, sem leiðir af þeim ráðstöfunum, sem nauðsynlegar þykja að dómi tollgæzlunnar til að tryggja fullt eftirlit með flutningi varanna. Í sömu gr. er einnig geymsluhöfum gert að skyldu að greiða kostnað við eftirlit í vörugeymslum sínum, og er það í samræmi við dönsk og norsk tollalög.

Í síðustu mgr. sömu gr. er tollstjóra við uppboð á vörunni, vegna ógreiddra gjalda af henni, veittur forgangsréttur fyrir tollum og öðrum gjöldum af vörunni þannig, að þessi gjöld skuli greidd af uppboðsandvirðinu á undan geymslugjaldi geymsluhafa. Þetta er í samræmi við ákvæði danskra og norskra tollalaga.

Í 40. gr. frv. er ákveðið, að ekki megi flytja ótollafgreidda vöru af viðurkenndum eða leyfðum geymslustað nema með leyfi tollstjóra. Er þetta ákvæði sett til þess að tryggja eftirlit með vörunni milli staða á sama hátt og það er talið nauðsynlegt við affermingu eða fermingu eða flutning milli tollhafna.

5. kafli frv. fjallar um flutning á ótollafgreiddum vörum innanlands. Þessi kafli er að mestu leyti í samræmi við ákvæði gildandi laga. Nú er tekið upp það ákvæði, að aðeins sé heimilað að framsenda ótollafgreidda vöru til hafnar, sem er tollhöfn, en það ákvæði er áður í reglugerð. Jafnframt er það skilyrði fyrir framsendingu, að varan fari í viðurkennda vörugeymslu á ákvörðunarstað.

Þá eru í 49. gr. ýmis nýmæli, sem sett eru til öryggis tryggilegri meðferð ótollafgreiddrar vöru, og eru þau ákvæði sniðin eftir norsku tollalöggjöfinni.

Í 6. kafla er fjallað um gjalddaga og fullnustu aðflutningsgjalda. Í 52. gr. er fjmrh. heimilað að setja með reglugerð ákvæði um, að greiðsla aðflutningsgjalda vöru skuli fara fram innan ákveðinna tímamarka frá komudegi hennar til landsins, eða hún sett í tollvörugeymslu innan sama tíma. Það eru því miður allt of mikil brögð að því, að innflytjendur vöru láti vöruna liggja mánuðum saman ótollafgreidda í vörugeymsluhúsum. Veldur þetta ýmsum erfiðleikum, svo sem því, að vörugeymsluhúsin eru venjulega yfirfull af vörum, og tefur það fyrir afgreiðslu og eftirliti, auk þess sem varan þolir oft illa langa geymslu og verður fyrir ýmsu hnjaski í húsunum við sífelldar tilfærslur. Og viðskiptalega séð er það einnig mjög óheppilegt, að þessi háttur skuli á hafður. Í þessari sömu gr. segir enn fremur, að með reglugerð megi ákveða, að hafi aðflutningsgjöld af vöru ekki verið greidd innan mánaðar frá eindaga, þ. e. að lokum þess frests, sem settur verður til að tollafgreiða vöruna, megi tollyfirvöld láta selja vöruna á opinberu uppboði til greiðslu aðflutningsgjalda, og skal áætlað verð hennar, hafi fullnægjandi innflutningsskjöl ekki verið lögð fram. Hér er um að ræða mun strangari reglur en nú eru í l. og eru einmitt til þess að hindra það, að vörur séu látnar liggja lengi ótollafgreiddar. En til þess að mæta þeim erfiðleikum, sem þetta skapar, er tekin upp heimild til þess, að með reglugerð megi heimila tollstjórum að leyfa innflytjendum að greiða aðflutningsgjöld með ávísunum eða skuldaryfirlýsingum, sem falla í gjalddaga innan tiltekins frests, enda sé sett fullgild bankatrygging eða önnur hliðstæð trygging fyrir greiðslunni. Þetta er því skilyrði bundið, að varan sé tollafgreidd og jafnframt flutt úr vörugeymslunni innan ákveðins frests frá komudegi hennar, og má sá frestur ekki vera lengri en 20 dagar. Gert er ráð fyrir, að þessi heimild sé bundin við vissar vörutegundir. Hér er ekki um það að ræða, að hér eigi að fara að „finansera“ verzlunina með því að lána tolla, heldur er þetta gert til þess að flýta fyrir tollafgreiðslu vörunnar. Það er ekki gert ráð fyrir, að þessi frestur verði langur, en í mörgum tilfellum ber brýna nauðsyn til þess, að varan sé tollafgreidd í rauninni samstundis og hún kemur, og á þetta við ýmsar vörur, eins og t.d. timbur og járn, þar sem um heila farma er að ræða, sem ekki er hægt að flytja í vörugeymsluhús venjuleg, heldur í rauninni innflytjandinn verður að taka til sín strax, og ýmsar slíkar vörur, sem nánast eru heilir farmar, en mundi ekki vera notað við stykkjavöru. Og þetta mundi að dómi tollyfirvalda mjög verða til þess að greiða fyrir tollafgreiðslu vara. Vitanlega kæmi ekki til greina, að slík lán yrðu veitt, nema því aðeins, að bankatrygging yrði veitt fyrir greiðslunni hverju sinni.

Í 7. kafla er ákvæði um það, að ef vantar í vörusendingar, skemmdir og endursendingu vöru. Ég sé ekki ástæðu til að fara að ræða það ítarlega, það er skýrt nákvæmlega í grg., hvað um er að ræða, en þessi ákvæði eru gerð á ýmsan hátt gleggri, því að oft skapast vandamál í sambandi við, hvernig á að fara með greiðslu tolla af vörum, ef þær eru gallaðar, og sérstaklega hefur þetta komið fram, þegar ekki kemur í ljós, fyrr en eftir langan tíma, að vörurnar eru gallaðar, vegna þess að þær eru ekki tollafgreiddar fyrr en kannske mánuðum eftir að varan kemur til landsins.

8. kafli er um útflutning vara, og þar er um að ræða nokkrar breytingar. Sum ákvæði hafa verið felld niður, vegna þess að þau hafa ekki reynzt framkvæmanleg, en heimild er sett til þess, að ákveða í frv. ýmis atriði þessara mála með reglugerð.

Eins og ég gat um áðan, hefur kaflinn um refsingar og viðurlög, sem er 9. kafli frv., verið endurskoðaður rækilega, og öllum ákvæðum hans varðandi refsingar hefur verið breytt í þá átt, að refsingar eru mjög verulega auknar. Þá er einnig sú breyting gerð, sem er veigamikil, að gert er ráð fyrir því, að þegar menn verða uppvísir að tollalagabrotum, sé gengið beint að þeim fyrst, sem varð fyrir sektum, en ekki eins og hefur verið til þessa, að það er haldið sér að útgerðarfyrirtækinu, sem á oft mjög erfitt með að innheimta svo aftur þessar kröfur hjá hinum brotlega. Það þykir sanngjarnt og eðlilegt, að það sé haldið sér fyrst að hinum brotlega, með aðför af hálfu þess opinbera leitazt við að fá fullnægju fyrir sektinni, en að sjálfsögðu er það ákvæði áfram í l., að ef það ekki reynist auðið að fá fullnægju þar, beri útgerðaraðili ábyrgð á, að sektin verði greidd.

Þá er annað ákvæði, sem er nýtt. Það er í 76. gr. Þar er tollyfirvaldi heimilað að ákveða sektir fyrir ólöglegan innflutning, ef brot er skýlaust sannað og ætla má, að það varði ekki hærri sektum en 10.000 kr., og svo jafnframt að beita upptöku eignar í sambandi við slík brot, ef gert er ráð fyrir, að hinar uppteknu vörur séu ekki meira virði en sem svari 50 þús. kr. Þetta ákvæði er ætlað til þess að greiða fyrir skjótari meðferð slíkra minni háttar brota, og er hér farið eftir danskri fyrirmynd. Hliðstæð ákvæði þessu eru í l. um meðferð opinberra mála, að því er varðar afgreiðslu lögreglustjóra og lögreglumanna á minni háttar brotum á umferðarlögum, áfengislögum og öðrum slíkum lögum, þannig að sjálfsagt þykir að taka upp þessa heimild hér.

Ég held, herra forseti, að ég hafi þá í meginefnum gert grein fyrir ákvæðum frv., og er að sjálfsögðu reiðubúinn til að svara fsp., sem fram kynnu að koma um það. Ég tel jafnframt rétt og nauðsynlegt, þar sem hér er um mjög tæknilegt mál að ræða, að sú hv. n., sem fær málið til meðferðar, hafi nána samvinnu við tollstjóra og tollgæzlustjóra um frv. og fái skýringar þeirra á einstökum atriðum þess, svo og ráðuneytisstjóra í fjmrn., eftir því sem ástæða þykir til, og munu þeir allir vera reiðubúnir til þess að upplýsa n. um það, sem hún óskar að vita varðandi rökin fyrir hinum ýmsu ákvæðum frv.

Ég legg þá til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.