17.01.1968
Neðri deild: 50. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í C-deild Alþingistíðinda. (2326)
91. mál, tollheimta og tolleftirlit
Fjmrh. Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég er þakklátur hv. þm. fyrir vinsamlegar undirtektir hans við þetta frv., þó ég skilji, að það sé eðlilegt, að hann á þessu stigi og aðrir hv. þm. hafi fyrirvara um það, að það kunni að vera ýmis atriði í því, sem þeir óskuðu eftir að væru á annan veg. Þetta er stórt mál og eðlilegt, að það sé, en mér þykir sérstaklega vænt um, að hann skyldi nefna það atriði, er hann nefndi í sínu máli, vegna þess að þar er um nýmæli að ræða, sem vissulega getur alltaf orkað nokkurs tvímælis, en ég held, að það sé alveg rétt, sem hann sagði, og á því er þetta ákvæði byggt, að hér sé um að ræða ráðstöfun, sem oft geti orðið til góðs til þess að greiða fyrir tollafgreiðslu vara til Þess að létta fyrir því, að í bili geti innflytjendur flutt inn mjög þýðingarmiklar vörur. Hér yrði fyrst og fremst um hinar brýnustu nauðsynjavörur að ræða, sem yrðu látnar falla undir þetta ákvæði, þannig að það gæti verið hagkvæmt að hafa slíka heimild í l. Varðandi fyrirspurn hans um frv. til breytinga á tollskránni þá er það að segja, að mig furðar ekkert á því, að sú fyrirspurn komi fram. Það er alveg rétt, að því var lýst yfir, þegar fjárlög voru afgreidd, að það væri ætlunin að nota það fé, sem ríkissjóður kynni að hafa aflögu á árinu 1968, til þess að mæta afleiðingum gengisbreytingarinnar, þannig að það væri ekki ætlunin, að ríkissjóður ætlaði að halda því fé í sinn rekstur, og þá fyrst og fremst haft í huga, og enda frá Því skýrt, að fyrirhugaðar væru tollabreytingar og yrði leitazt við að nota eins mikið fé til þeirra tollabreytinga og frekast væri unnt, þó að menn væru ekki á einu máli um það, hverjar fjárhagsástæður ríkissjóðs á árinu 1968 yrðu. Það er annað mál, eins og hv. þm. sagði. Og það er jafnframt rétt, að það átti m.a. sinn þátt í því að ákveða samkomudag Alþ. strax um miðjan janúar, að ekki var talið auðið að bíða lengi með fyrirhugaðar tollabreytingar. Það er einnig rétt, sem hv. þm. sagði, að frv. um breytingar á tollskránni er tilbúið og var tilbúið, þegar Alþ. kom saman, þannig að það hefði verið auðið að leggja það þá þegar fyrir Alþ., en ástæðan fyrir Því, að það ekki hefur enn verið gert, er einfaldlega sú, sem ég veit, að bæði fyrirspyrjendur og allir hv. þm. vita, að það hafa orðið, síðan talað var um þessi mál hér í Alþ. síðast, þá hafa orðið allverulegar breytingar, og það virðast líkur til þess, að lausn á útgerðarvandamálunum nú um áramótin leiði til þess, að ríkissjóður verði í einhverju formi að taka á sig auknar skuldbindingar, og gefur þá að sjálfsögðu auga leið, að það þarf fyrst að átta sig á því vandamáli, áður en hægt er að slá einhverju föstu um það, hvaða möguleikar verða til þess að verja stórum fjárhæðum til tollabreytinga. Þetta er ástæðan til þess, að frv. hefur ekki verið lagt fram.
Niðurstaða á samningum við hraðfrystihúsin liggur ekki enn fyrir, og er þó gert ráð fyrir væntanlega, að það verði núna seinni partinn í þessari viku, en áður en öll kurl eru þar til grafar komin og við sjáum þetta dæmi, er auðsýnilegt, að það er ekki hægt að fara að ráðstafa stórum fjárhæðum úr ríkissjóði, nema jafnframt sé þá um leið séð fyrir endann á því, hvernig eigi að mæta þessum vanda. Ég er ekki reiðubúinn á þessu stigi til þess að tala um eða nefna neinar tölur varðandi það, sem þegar hefur gerzt í sambandi við bátakjarasamningana, hversu þeir leiði af sér miklar kvaðir fyrir ríkissjóð, og miklu síður þó að ræða um frystihúsin, hvort þar þurfi eitthvað að hlaupa undir bagga, en hvort tveggja þetta leiðir af sér, eins og ég áðan sagði, að það hefur ekki reynzt auðið að leggja þetta frv. fyrir Alþ. nú, enda þótt það hafi verið tilbúið í tæka tíð.