18.10.1967
Efri deild: 5. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í C-deild Alþingistíðinda. (2348)
12. mál, lausn deilu stýrimanna, vélstjóra og loftskeytamanna á farskipum og eigenda farskipa
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson) :
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka þeim tveimur hv. þm., sem til máls hafa tekið um frv. fyrir mjög hógværan málflutning. Slík mál gætu verið tilefni til hávaðasamra umræðna, sem þeir forðuðust þó mjög hyggilega í sínum ræðum, beittu þar þeim rökum, sem þeir höfðu og töldu vera handbær í málinu, þótt þeir teldu sig vera andvíga efni frv. Ég vil samt sem áður leyfa mér að gera örstutta athugasemd við þá yfirlýsingu hv. 3. þm. Norðurl. v., að framsóknarmenn, — ég efast ekki um, að hann hafi greint rétt frá, séu nú algjörlega andvígir slíkri málsmeðferð sem þetta frv. gerir ráð fyrir, þ.e.a.s. að beita gerðardómi í vinnudeilum. Ég man að vísu ekki mjög langt aftur í sögunni, en ég þykist þó muna það, að hans ágæti flokkur hafi einhvern tíma verið orðaður við slíka lagasetningu, og ég vil ekki ætla það þeim mönnum, sem við þetta voru riðnir af flokksins hálfu þá, að þeir hafi ekki gert það í góðum tilgangi, en eigi að síður eru það staðreyndir, að flokkurinn gaf samþykki sitt til slíkra mála áður, og ég tel rétt, að það komi fram, þó að flokkurinn hafi, sem hann hefur rétt til, skipt um skoðun í því efni nú. (Gripið fram í.) Það er einmitt það, það er gott, að það kom fram einnig.
En þá er það aðeins örstutt aths. við ræðu hv. 4. þm. Norðurl. e. Hann lagði fyrst mikla áherzlu á útgáfudag laganna og alþingiskosningarnar, það væri engin tilviljun, að lögin hefðu verið gefin út að kosningunum loknum. Ég vil hvað varðar sjálfan mig mótmæla eindregið þessu og skal færa fyrir því þau rök, sem ég reyndar minntist á í mínum frumorðum með frv. Eins og rétt var frá skýrt af hans hendi, þá voru það miðlunartillögur eða frestunartillögur, sem farmenn töldu sig vera tilbúna til að samþykkja. Eftir það fóru fram forviðræður, sem ég skýrði frá áðan, að fram hefðu farið, að ég hygg í mínu ráðuneyti, á milli mín og þeirra aðila, sem í samninganefnd voru af hálfu farmanna. Það var í þeim viðræðum, eftir að fyrri tilraunir þeirra, sem hv. 4. þm. Norðurl. e. var að lýsa, höfðu mistekizt, sem gerðar voru tilraunir til þess að finna enn aðra lausn málsins. Á fyrri fundi, sem við héldum, komumst við að samkomulagi um að kanna til hlítar um nýja útgáfu af miðlunartillögunni, og á síðari fundinum var henni tekið með þeim hætti, sem ég áðan sagði, að fulltrúar farmanna sögðust mundu mæla með henni, hver í sínu félagi. Þeir fóru síðan með þessa tillögu, að ég hygg í einum fimm liðum, en fengu ekki sína félaga til að ganga inn á hana, og hún var felld með geysimiklum atkvæðamun, hygg ég í öllum þeim félagsdeildum, sem áttu hér hlut að máli. Og það er ekki fyrr en þessi tillaga, sem er a.m.k. nr. 2, ef ekki nr. 3 í sjálfu verkfallinu, hafði verið felld, sem ég tek þá ákvörðun að beita þessari heimild til setningar brbl. til að forðast þau vandræði, sem þá hertu mjög að, eins og ég áðan sagði. En það var ekki sízt úr kjördæmi hv. þm., sem borizt höfðu harðorðar kröfur um, að þessi vandi yrði leystur, vegna þess að vöruskortur væri þar í ýmsum byggðarlögum og færi mjög vaxandi.
Þá fullyrti hv. þm. einnig, að skipaeigendur hefðu í þessu tilfelli treyst á það, að brbl. yrðu sett og þess vegna síður verið viðræðuhæfir til samningagerðar. Ég veit ekkert um, hvað skipaeigendur hugsuðu í þessu máli og hafði sáralítið samband við þá að öðru leyti en því, sem ég var um beðinn af hálfu einstaklinga, er í deilunni stóðu hinum megin við borðið, þ.e.a.s. af hálfu farmanna. En að þeir hafi nokkurt vilyrði af minni hendi fengið um slíkt, eru algjörlega órökstuddar fullyrðingar, sem með sanni verður aldrei fundinn neinn staður. Ástæðuna til þess, að til þessa neyðarúrræðis var gripið, hef ég þegar skýrt, og endanleg reynsla á því fékkst ekki fyrr en daginn, sem þessi brbl. voru sett. Þá taldi ég, að gerðar hefðu verið þær úrslitatilraunir til sátta, sem mögulegar voru af hendi ráðuneytisins eins og á stóð.
Mér þykir þá einnig nokkurs virði, að hv. þm. taldi, að það hlyti að vera þung raun fyrir mig að flytja slík mál, hafandi startað lengi í verkalýðshreyfingunni, sem væri algjörlega andvíg slíkum vinnubrögðum. Ég skal ekkert leyna því, að þetta var ekkert gleðiverk fyrir mig og alls ekki gert af því að ég hefði þar minnstu löngun til, en ég hef ekki enn skipt um þá skoðun eða þá afstöðu, sem ég tók þennan nefnda dag, að ég tel, að öðruvísi hefði þessi deila, eins og á stóð, ekki verið leyst. Enn fremur þykir mér það nokkurs virði, að þm. viðurkenndi, að það gæti komið fyrir það ástand, að til slíkra laga yrði að grípa. Og ég mat svo, að þetta ástand væri þarna fyrir hendi.
Þá spurði þm., einnig að því, hvers vegna ekki hefði verið staðfest ákveðin og eindregin miðlunartillaga í þessum lögum. Svarið við því er einfaldlega það, að eftir að þessar tilraunir farmanna til sátta tókust ekki, þá tóku þeir upp allar sínar fyrri kröfur eins og þær höfðu upphaflega verið og sögðust mundu halda sig við þær, þar sem engin hönd hefði verið á móti þeim rétt til sátta í málinu. Svo sem títt er áður við samkomulagsumleitanir, þá hafa verkalýðsfélögin iðulega gert það, að ef ekki hefur verið fallizt á miðlunartillögur, sem þau hafa getað hugsað sér á þeim stigum deilunnar, þá hafa þau tekið upp sínar frumkröfur. Ég taldi það því beinlínis rangt gagnvart farmönnunum sjálfum, ef það ætti að þvinga upp á þá ákveðnum miðlunartillögum, en þeir, eins og á stóð þá, töldu, að þeir ættu kröfur til fullnægingar á sínum upphaflegu og fyllstu kröfum. Þess vegna var eðlilegt, að sá gerðardómur, sem í málinu starfaði, hefði sem allra mest bundnar hendur um afgreiðslu málsins, þannig að fyrirfram yrði ekki þvingað upp á hann neinum starfsreglum.
Svo spurði þm. að lokum spurningar, sem nánast var í tvennu lagi. Í fyrsta lagi um það, hvort ráðh. hefði ekki sjálfur haft neina skoðun á málinu, og ef ekki, þá væri eðlilegt, að engin lausn hefði í því fengizt. Svo sem ég hef nú þegar skýrt og gerði í minni frumræðu, þá hafði ég þá skoðun, að réttmæt lausn væri eins og á stóð það samkomulag, sem tókst uppi í ráðuneyti, og reyna bæri það í félögunum, en farmenn voru þá á öðru máli og felldu það samkomulag með geysilega miklum atkvæðamun, eins og ég hef áður skýrt frá. Hann spurði svo, hvað ég hygðist gera, þegar þessu tímabili, sem um ræðir í lögunum, lýkur og ekki hefur komið þá úrskurður gerðardóms. Því er einfaldlega til að svara, að ég mun þá, eins og ég tel mig hafa gert meðan á deilunni stóð og reyndar áður en til sjálfs verkfallsins kom, leggja mig allan fram um að ná sáttum í deilunni og gera það, sem í mínu valdi stendur, til að samkomulag náist.