15.12.1967
Efri deild: 34. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í B-deild Alþingistíðinda. (235)

72. mál, ráðstafanir vegna landbúnaðarins í sambandi við breyting á gengi íslenskrar krónu

Frsm. 2. minni hl. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Út af því, sem fram kom hjá frsm. 1. minni hl. landbn. í þessu máli, að nefndarfundurinn hefði ekki verið fullskipaður, þegar mál þetta var afgr. í n., vil ég til skýringar taka þetta fram:

Fundur var boðaður í landbn. síðdegis í gær kl. 17.30, en þegar að þeim tíma kom, var alls ekki lokið fundi hér í hv. þd. Nú stóð þannig á, að ég hafði með nokkrum fyrirvara ráðstafað tíma mínum kl. 18.00 í gær, og tilkynnti ég formanni landbn. þetta og fékk leyfi hæstv. forseta d. til þess að víkja af þingfundi, áður en að þessu kom. En hv. 1. þm. Vesturl., sem á sæti í landbn. af hálfu Framsfl. ásamt mér, var á þessum tíma staddur við skyldustörf á fundi í bankaráði í bankastofnun hér í bænum. Við höfðum því báðir gild forföll á þessum tíma, en eigi að síður mun nefndarfundurinn hafa verið lögmætur, þar sem meiri hl. n. var mættur og málið þá efnislega afgreitt, þrátt fyrir fjarveru okkar fulltrúa Framsfl.

Frv. þetta fjallar um ráðstafanir vegna landbúnaðarins í sambandi við breyting á gengi íslenzkrar krónu. Frv. er því í nánu sambandi við þá gengisbreytingu, sem gerð hefur verið, og afleiðing af henni. Í frv. er það tekið fram, að endurskoða skuli verð í kostnaðar- og tekjuhlið verðlagsgrundvallar landbúnaðarafurða fyrir framleiðsluárið 1967/1968 með tilliti til þeirra verðbreytinga, sem breytt gengi íslenzku krónunnar frá 24. nóv. 1967 hefur í för með sér. Þetta teljum við, sem í 2. minni hl. landbn. erum, eðlilegt og sjálfsagt og erum því samþykkir þessu meginákvæði frv. En þegar fjallað er um þetta mál, verður naumast hjá því komizt að minnast þess, hvað gerzt hefur um verðlagningu landbúnaðarafurða nú á þessu ári og hvernig þau málefni hafa farið úr hendi.

Þess er þá fyrst að geta, sem öllum hv. dm. er kunnugt, að framleiðsluráðsl. mæla svo fyrir, að verðlagsgrundvöllur skuli ákveðinn fyrir 1. sept. ár hvert. Þetta tókst ekki á s.l. sumri, með því að Sexmannanefnd varð ekki sammála og sáttaumleitanir sáttasemjara um ágreiningsatriði leiddu ekki til niðurstöðu. Þá er málinu samkv. framleiðsluráðsl. vísað til yfirnefndar og það hefur komið fram í gögnum, sem nú hafa verið birt af yfirnefndinni, að hún hóf störf sín 15. okt. s.l., en mun hafa lokið störfum eða fellt úrskurð um mánaðamótin nóv.–des. Og ég hygg, að naumast sé fyllilega gengið frá verðlagningunni enn þann dag í dag, þó að nú sé kominn miður desember. Þetta er að dómi okkar í 2. minni bl. landbn. óhæfilegur dráttur á ákvörðun verðlags á landbúnaðarvörum og fordæmi, sem ekki er séð fyrir, hvaða afleiðingar kann að hafa um meðferð þessara mála framvegis. Þetta verður því að átelja út af fyrir sig, og það er einnig mjög athyglisvert í þessu efni, að framkvæmdin er alls ekki í samræmi við bein fyrirmæli I. um það tímamark, sem þau setja í þessu efni.

Hitt er þó ekki veigaminna atriði, hvernig verðlagningin sjálf hefur farið úr hendi. Nú liggur fyrir úrskurður yfirnefndar um þetta efni. Úrskurður yfirnefndar er dómur, og það má segja, að dómar séu ekki til þess fallnir eða til þess ætlaðir að gera þá að umræðuefni eða hafa um þá mikla gagnrýni. En eitt er þó grundvallaratriði í þessu máli, þegar um dómsniðurstöðu er að tefla, sem enginn ágreiningur á að geta orðið um, að dómar eiga að vera grundvallaðir á lögum. Og mig minnir, að í stjórnarskránni sjálfri standi þessi fyrirmæli: Dómendur skulu í embættisverkum sínum fara einungis eftir lögum.

Nú kemur ýmislegt í ljós í forsendum yfirnefndarinnar fyrir þeim úrskurði, sem hún hefur fellt um verðlagningu landbúnaðarafurða. Það kemur m.a. í ljós í forsendum dómsins, að yfirnefndin eða meiri hl. hennar taldi, að það væri eigi unnt að framfylgja ákvæði 4. gr. framleiðsluráðslaganna að þessu sinni. Og í forsendunum er beinlínis sagt á öðrum stað, orðrétt:

„Aftur á móti var yfirnefndin sammála um það, að eigi væri sanngjarnt, að verðlagsgrundvöllur, sem byggði ákvörðun um laun bóndans á óhjákvæmilegu frávíki frá ákvæði 4. gr. l., gilti lengur en eitt ár, eða til 31. ágúst 1968.“

Það er því beinlínis fram tekið í forsendum yfirnefndarinnar, að úrskurðurinn er byggður á fráviki frá l., m.ö.o., það er ekki dæmt eftir l. sjálfum eins og þau liggja fyrir. Hitt gæti verið álitamál eða ágreiningsatriði, að yfirnefndin segir, að þetta frávik hafi verið óhjákvæmilegt, en aðrir munu álíta, að það hafi ekki verið óhjákvæmilegt. Það er þetta, sem aðeins getur verið álitamál, en ekki hitt, að frávik hefur verið gert frá l. að þessu sinni. Nú kemur það fram, að minni hl. yfirnefndar lítur ekki þannig á, að það hafi verið óhjákvæmilegt að þessu sinni að gera þetta frávik, og hann dregur það fram, í stuttu máli þó, hvað hann telur á skorta, að verðlagsgrundvöllur sé að þessu sinni svo gerður, að hagsmuna bænda sé nægilega gætt. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa orðrétt það, sem minni hl. yfirnefndarinnar hefur að segja um þetta.

„Til viðbótar þeim upplýsingum, sem fram koma í framanskráðri grg. oddamanns yfirnefndar, vil ég undirritaður taka fram, að ég tel niðurstöðu úrskurðarins í heild brot á því ákvæði framleiðsluráðsl., að verðlagning landbúnaðarvara skuli við það miðast, að heildartekjur þeirra, sem landbúnað stunda, verði í sem nánustu samræmi við tekjur annarra vinnandi stétta. Veigamestu ástæður þess, að bændur geta ekki náð því tekjujafnrétti við aðrar stéttir, sem lög gera ráð fyrir, tel ég þessar:

1. Vinnuliðurinn er ekki metinn samkv. upplýsingum búreikninga og vinnumælinga. Sé miðað við meðaltekjur viðmiðunarstéttanna 1966, ætti launaliðurinn að vera ca. 22% hærri.

2. Magn kjarnfóðurs er stórlega vanreiknað í grundvellinum. Sama er að segja um áburðarmagn. Og rökstuddum óskum bænda um leiðréttingu á vélakostnaðarliðum er ekki sinnt.

3. Flutningskostnaðarliðurinn er ekki í samræmi við afurðamagn búsins og rekstrarvöruþörf.

4. Vextir eru vanreiknaðir.

5. Afurðir af sauðfé eru ofreiknaðar og enn fremur garðávextir.

Ýmsar fleiri veilur tel ég, að finnist í verðlagsgrundvelli þeim, sem yfirnefnd skilar nú, þótt ég geri það ekki að þessu sinni að nánara umræðuefni.

Reykjavík, 1. des. 1967.

Ingi Tryggvason.“

Þetta, sem ég las, er orðrétt frá minni hl. yfirnefndarinnar, og skýrir það sig sjálft. Þessi atriði, sem ég hef nú drepið á, tel ég eðlilegt og nauðsynlegt að hafa í huga, þegar frv. þetta er afgr., sem hér liggur fyrir.

Það má með nokkrum rétti segja, að hæstv. landbrh. beri ekki beina ábyrgð á þeirri málsmeðferð og þeim drætti, sem orðið hefur á verðlagningunni að þessu sinni, þar sem um þetta hafa vitanlega fjallað aðilar, sem til þess eru kvaddir samkv. I. En ég vil nú ætla, að hæstv. ráðh. hafi ekki beitt áhrifum sínum nægilega mikið í þá stefnu að hafa áhrif á, að þessi mál yrðu afgreidd fyrr en raun hefur á orðið. Ég hygg, að ef maður, sem hefur á hendi framkvæmdavald í landbúnaðarmálum og vissulega hefur áhuga á þeim efnum, hefði beitt áhrifum sínum til hins ýtrasta í þessu efni, hefði það haft mikið að segja. Og ég vil segja, að það er annað, sem vakti nokkra eftirtekt mína við 1. umr. um þetta mál hér í hv. d., og það var það, hve hæstv. ráðh. virðist vera ánægður fyrir bændanna hönd. Hæstv. ráðh. sagði, ef ég man rétt, að 1966 hefði orðið samkomulag um afurðaverðið, og spurði síðan: „Hvað hefur gerzt á einu ári, ef það er rétt, að hlutur bænda sé núna svo fyrir borð borinn sem ýmsir vilja halda fram?“ — Ja, ég skal nú ekki fara langt út í þetta, en ég get bent á örfá atriði um það, hvað hefur gerzt. Það hefur m.a. gerzt, að í maí 1666 gengu í gildi lög um breytingar á framleiðsluráðsl. Sú breyting var svo ný af nálinni í sept. 1966, að það var náttúrlega ómögulegt að ætlast til þess, að hún gæti orðið grundvöllur undir verðákvörðun að því sinni. En á þeim tíma, sem liðinn er síðan í maí 1966 og fram á haustið 1967, hefur gefizt tóm til þess að glöggva sig á því, til hvaða niðurstöðu þessi lagabreyting leiðir. Og niðurstaðan er sú, að því er bezt verður séð, að hún leiði til þess, að bændur eigi rétt á hærra verðlagi, þegar það er reiknað á grundvelli þessara nýju l., en annars hefði orðið. Þetta er eitt af því, sem hefur gerzt. Og þessa ætti hæstv. ráðh. að vera minnugur vegna þess m.a., að það var hann sjálfur, hæstv. landbrh., sem bar fram þetta frv. og beitti sér fyrir framgangi þess hér á hv. Alþ. og fékk um það samkomulag.

Annað, sem hefur gerzt, er það, að útreikningar sýna, að afurðamagn, eins og það var ákveðið í verðlagsgrundvellinum 1966, hefur að dómi bændafulltrúanna og samkv. grg. minni hl. í yfirnefnd verið ofreiknað hærra en það raunverulega er. Og þetta vildu bændafulltrúarnir nú að þessu sinni vitanlega láta taka til greina og fá leiðréttingu, sem þessu nemur.

Og í þriðja lagi má benda á, að ýmsir liðir í rekstrarkostnaðinum — því miður fyrir alla, vil ég segja — hafa hækkað meira en fært var til reiknings í verðlagsgrundvöllinn 1966. Það er m.a. þetta, sem hefur gerzt.

En það liggur og skýrt fyrir, að á verðlagningunni að þessu sinni hafa orðið miklar tafir, sem valda miklu óhagræði, bæði fyrir bændastéttina og verzlanir ýmsar. Nú er gert ráð fyrir því í þessu frv., að með þær breytingar, er reiknaðar verða út og eru afleiðingar af gengisfellingunni, verði farið á sama hátt og með verðlagninguna sjálfa. Þetta reikningsdæmi verður fellt alveg í sama farveginn og öll hin atriðin. Fyrst sé það Sexmannanefnd, og verði ekki samkomulag, þá yfirnefnd. Og þetta á samt sem áður allt að vera um garð gengið 23. des., en í dag er 15. des.

Satt að segja höfum við, sem skipum 2. minni hl. landbn., ekki trú á því, að þetta verk verði unnið á þennan hátt á þeim tíma, sem tilskilið er í lagagreininni. Við drögum þá ályktun af því, sem á undan er gengið í þessu efni. Okkur sýnist enn fremur, að um þetta sérstaka atriði, sem hér liggur fyrir, sé málið svo tiltölulega einfalt, að það sé fyrst og fremst reikningsdæmi, sem Hagstofu Íslands sé bezt trúandi til að reikna út, enda gert ráð fyrir því í frvgr., eins og hún liggur fyrir frá hendi ríkisstj., að fengnar séu skýrslur og gögn frá Hagstofu Íslands við að styðjast í þessu starfi. Við berum því fram þá brtt. við 1. gr. frv., að framkvæmdin verði sú, að Hagstofu Ís- lands sé falið að reikna út verðbreytingarnar, sem hér um ræðir, og Framleiðsluráð landbúnaðarins verðskrái síðan vörurnar í einstökum atriðum á grundvelli þeirra útreikninga, sem Hagstofa Íslands gerir.

Í 2. gr. frv. er kveðið svo á, að fé það, sem kemur vegna útfluttra landbúnaðarafurða á reikning þann, sem um getur í 4. gr. l. nr. 67/1967, skuli nota til þarfa landbúnaðarins samkv. ákvörðun landbrh. Við flytjum brtt. við 2. gr. á þá lund, að nánar verði kveðið á um það í l., hvernig verja skuli þessu fé, sem hér um ræðir. Við leggjum til, að þetta fé verði notað til verðuppbótar á útfluttar landbúnaðarafurðir, eftir till. Framleiðsluráðs landbúnaðarins, til viðbótar því fé, sem greitt er samkv. 12, gr. 1. nr. 101/1966. Ef litið er á þetta frá almennu sjónarmiði, hvort fylgja á þeirri reglu að tiltaka sem nánast í I. um úthlutun fjár, eða hvort á að leggja það einhliða í vald ríkisstj. eða einstakra ráðh., þá er það að segja, að eins og fram hefur komið og rætt hefur verið í sambandi við önnur mál hér í hv. þd., þá teljum við, sem stöndum að þessu nál., það sjálfsagða meginreglu af hálfu Alþ. að tiltaka sem nánast í l., hvernig verja á þeim fjármunum, sem til ráðstöfunar eru. Það er alveg án tillits til þess, hvaða einstakir ráðh. eiga í hlut eða gegna starfi hverju sinni. Þetta vil ég taka fram sem almenna, eðlilega og sjálfsagða lagareglu.

Þessi brtt. okkar styðst því að sjálfsögðu við þetta sjónarmið, en nú stendur svo á, að gengishagnaður kemur fram á landbúnaðarvörunum vegna breyttrar skráningar gengis krónunnar, og á sama tíma kemur fram sem afleiðing af gengislækkuninni hækkun á ýmsum vörum, sem til landbúnaðarframleiðslunnar þarf. Það má því með miklum rétti segja, að með því að verja þessum gengishagnaði til uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir sé það betur tryggt en ella eða fært nær því marki en ella, að bændur fái raunverulega grundvallarverð, eins og það kemur fram eftir að þessar verðbreytingar hafa verið felldar inn í verðlagið, fyrir afurðir sínar. Þegar á þetta er litið, virðist það í sjálfu sér mjög eðlileg ráðstöfun, sem við leggjum til, að það sé bundið í l., að þessi gengishagnaður fari til uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir til viðbótar því fé, sem greitt er samkv. 12. gr. I. nr. 101/1966.

Nú mætti í þessu sambandi segja, að þar sem lögákveðið er, að ríkissjóður greiði útflutningsuppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir að því marki, að útflutningsuppbæturnar í heild nemi allt að 10% af framleiðsluverðmæti landbúnaðarafurða eða landbúnaðarins á verðlagsárinu, þá væri með því ákvæði nægilega séð fyrir útflutningsuppbótum. En það mun nú vera svo, að þeir, sem hafa reynt að gera sér grein fyrir stöðu landbúnaðarins að þessu leyti nú á þessu hausti, hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að það séu miklar líkur til þess, að allverulegar fjárhæðir vanti á, til þess að þessi tiltekna, samkvæmt l. afmarkaða fjárhæð útflutningsuppbóta nægi að þessu sinni til að greiða bændum fullt grundvallarverð fyrir alla framleiðsluna. Og þess vegna er það eðlilegt, sem við leggjum til, að gengishagnaður komi hér til viðbótar. Ég vil enn fremur taka fram, að mér þykir ótrúlegt, að um þetta geti í sjálfu sér verið ágreiningur, því að það kemur fram í forsendum yfirnefndar fyrir þeim dómsúrskurði, sem birtur er nú í dag, að svo virðist sem hæstv. ríkisstj. hafi hugsað sér framkvæmdina á þann veg, sem við leggjum til, því að hér segir í forsendum yfirnefndarinnar, með leyfi hæstv. forseta, þar sem talað er um gengishagnað, að gengishagnaður yrði m.a. af ull og gærum, og í því sambandi, hvert yrði sennilegt útborgunarverð þeirra. Síðan segir orðrétt:

„Voru yfirnefndinni og flutt þau skilaboð frá ríkisstj., að ákveðið hefði verið, að allur gengishagnaður af landbúnaðarafurðum rynni til landbúnaðarins, fyrst og fremst til verðuppbóta á ull og gærum af framleiðslu verðlagsársins 1967/1968.“

Ég fæ ekki betur séð en þessi till. okkar sé í samræmi við það, sem hæstv. ríkisstj. hefur hugsað sér og sent yfirnefnd skilaboð um, eins og það er orðað, og ætti það að stuðla að því, að þessi till. okkar nái samþykki hér í hv. d.

Ég hef þá gert nokkra grein fyrir brtt., sem við flytjum á þskj. 154, og leggjum við til, að þetta frv. verði samþ. með þeim breyt., sem þar greinir.