29.03.1968
Neðri deild: 84. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 552 í C-deild Alþingistíðinda. (2370)
162. mál, happdrætti fyrir Ísland
Fjmrh. (Magnús Jónsson) :
Herra forseti. Svo sem öllum hv. þdm. er kunnugt, hefur Happdrætti Háskólans því veigamikla hlutverki að gegna að afla fjármagns til þess að standa straum af nýbyggingum Háskólans og yfirleitt öllum fjárfestingarframkvæmdum stofnunarinnar. Það eru mjög mikilvæg og mörg verkefni, sem bæði hefur verið unnið að í þessu efni og sem framundan er að leysa, þannig að fjármagnsþörfin er brýn og vaxandi. Happdrætti Háskólans hefur gengið vel og mætt miklum skilningi hjá þjóðinni. Margar breytingar hafa verið gerðar á l. um happdrættið, frá því að það upphaflega tók til starfa, bæði fjölgað hlutamiðum og einnig, sem er síðasta breytingin við þessi lög, var heimilað með l. frá 1963 að gefa út nýjan flokk hlutamiða, B-flokk, sem er með sama númerafjölda og A-flokkur. Þessi aukning happdrættisins hefur gefið góða raun, þannig að stjórn happdrættisins hefur farið fram á það að fá heimild Alþ. til þess að gefa út III. flokk hlutamiða, C-flokk, sem verður þá hliðstæður þeim tveimur flokkum, sem fyrir eru. Þessi háttur er einfaldari í framkvæmd og þykir líklegri til árangurs heldur en það beinlínis að fjölga hlutamiðum með venjulegum hætti. Ríkisstj. þótti rétt að verða við þeirri ósk Háskólans að flytja þetta frv. hér. Frv. mætti miklum skilningi í hv. Ed. og var samþ. þar einróma. Ég vildi leyfa mér að vænta þess, að það gæti einnig átt hliðstæðum skilningi að mæta í þessari hv. d. Ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja frekar um málið. Það er einfalt og skýrir sig sjálft, og með frv. fylgir grg. frá hálfu Happdrættis Háskólans um ástæðuna fyrir flutningi málsins, og sé ég því ekki ástæðu til þess af minni hálfu að vera að eyða um málið fleiri orðum. Hins vegar, ef hv. n., sem fær það til meðferðar, óskar frekari upplýsinga um það, verður að sjálfsögðu orðið við því svo sem auðið er.
Ég vil leyfa mér herra forseti, að leggja til, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. fjhn., og ég vildi leyfa mér að beina þeim tilmælum til þeirrar hv. n., þar sem fer nú að líða á seinni hluta þingtímans, að hún reyni að hraða málinu svo, að það geti fengið lokaafgreiðslu, áður en þingi lýkur.