24.10.1967
Neðri deild: 8. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í C-deild Alþingistíðinda. (2376)

11. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Flm. hefur lagt til, að þessu máli verði vísað til hv. fjhn. Einnig hefur komið fram till. um, að því verði vísað til heilbr.- og félmn., og þar sem ég á sæti í þessum báðum nefndum, gefst mér án efa tækifæri til að skoða frv. nokkuð betur. Ég vil þó, áður en málið fer til n., beina þeirri fsp. til flm., hvernig þetta frv. mundi verka, sérstaklega gagnvart launafólki, ef það yrði samþ. óbreytt hér á Alþ. Ég er ekki alveg viss um, hvort hans stílabók yrði með frv. þessu alveg hrein, ég hygg, að það mundu koma fram allstórar klessur svona á við og dreif. Flm. sagði, að í höfuðatriðum væri ekki breyting á 10. gr. gildandi l. um tekjustofna sveitarfélaga. Þetta er að mínum dómi ekki rétt, ef miðað er við 10. gr. og það hámark, sem þar er sett. Ég vil t.d. benda á, að 10. gr. gerir ráð fyrir 1% aðstöðugjaldi af fiskiðnaði í hinu nýja frv. En í því frv., sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir, að gjaldið verði ½%. Þarna er því um helmings lækkun að ræða, og aðstöðugjald af fiskiðnaði er í mjög mörgum sveitarfélögum víðs vegar við strendur landsins uppistaðan í aðstöðugjöldunum, þannig að þarna er um grundvallarbreytingu fyrir fjölda sveitarfélaga að ræða, sem mundi verka mjög til óhagræðis í mörgum tilfellum.

Þegar tekjustofnanefnd á sínum tíma vann að því að semja og undirbúa frv. til l. um tekjustofna sveitarfélaga, sem síðar var samþ. hér á Alþ., var þetta atriði mjög til umr., hvort lögbinda ætti ákveðið aðstöðugjald í vissum flokkum í hverju sveitarfélagi. Þetta var mjög ýtarlega rætt þar, leitað samráðs og álits Sambands ísl. sveitarfélaga, og niðurstaðan varð sú, að n. varð alveg sammála og einróma sammála um það að hafa þetta heimildarákvæði, þar sem hámark væri tilgreint. Ég hygg, að flm. misskilji nokkuð, hvað tekjustofnanefndin á sínum tíma átti við með aðstöðugjaldi. Hún leit svo á, að heimild til að leggja á aðstöðugjald væri greiðsla viðkomandi aðila fyrir þá aðstöðu, sem sveitarstjórnirnar veittu atvinnufyrirtæki og öðrum, sem einhvern rekstur hefðu. Og einmitt skoðað frá þessu sjónarmiði er það mjög óeðlilegt að binda þetta gjald fast og hafa það sama í öllum sveitarfélögum, því að aðstaða, sem hvert sveitarfélag skapar til atvinnureksturs, er ákaflega misjöfn. Hún er sums staðar engin, sums staðar er hún mun meiri og sums staðar mikil, þannig að það er enginn grundvöllur fyrir því að áliti sveitarstjórnarmanna, að ég hygg, að binda þetta gjald fast, lögbinda það sama í öllum sveitarfélögum, heldur láta sveitarstjórnirnar meta það, hvað þær vilja hver á sínum stað taka í gjald af þeirri aðstöðu, sem þær veita, innan þess ramma, sem tekjustofnalögin heimila.

Ég sagði í upphafi máls míns, að ég efaðist mjög um, að hv. flm. hefði gert sér fulla grein fyrir, hvernig það mundi verka, aðallega fyrir launafólk, ef þetta frv. yrði að lögum. Ég hef bent á, að í fiskiðnaði mundu aðstöðugjöldin lækka um allt að helming og að aðstöðugjald af fiskiðnaði væri í mörgum kaupstöðum og mörgum sveitarfélögum aðaluppistaðan í þessum tekjustofni sveitarfélaganna.

Svona við lauslegan samanburð á frv. og 10. gr. tekjustofnal., sem fjallar um aðstöðugjaldið, hygg ég, að það sé ekki langt frá vegi, að gjaldið mundi lækka um 1/3 til helmings, eða frá 33–50%. Þegar sveitarstjórnir semja fjárhagsáætlun, hygg ég, að allir, sem þar hafa komið nálægt, viti, að þá er byrjað á því að áætla þau útgjöld, sem sveitarstjórnin telur, að óhjákvæmileg verði á því ári, sem áætlunin á að ná yfir. Þegar aftur kemur að því að áætla tekjuhliðina, er þar því miður um mjög fáa tekjustofna að ræða, þannig að útsvör, tekju- og eignarútsvör, eru í flestum sveitarfélögum aðaluppistaðan og aðalliðurinn í tekjuhlið hverrar fjárhagsáætlunar. Þar kemur að vísu einnig til greina framlag úr Jöfnunarsjóði og aðstöðugjöld. En ef framlag úr Jöfnunarsjóði er lækkað, þýðir það, að tekju- og eignarútsvar hlýtur að hækka í sama hlutfalli. Lækkun aðstöðugjalda þýðir því, að það er verið að færa á milli frá þeim aðilum, sem aðstöðugjöld greiða, yfir á þá, sem greiða tekju- og eignarútsvar. Og ef við lítum svo aftur á, hvernig tekju- og eignarútsvör eru almennt lögð á, hvaða aðilar það eru, sem þau bera, skýrist þetta mál nokkuð, og sést þá, hversu þetta frv., sem hér er lagt fyrir, er að mörgu leyti ranglátt og að því er ég tel sem sveitarstjórnarmaður fráleitt.

Ég veitti forstöðu einu sveitarfélagi hér á landinu um nokkuð langan tíma. Ég gerði venjulega að niðurjöfnun lokinni athugun á því, hvað stóran hluta félög og atvinnurekstur greiddu og hve stóran hluta einstaklingar, sem þá eru að langmestu leyti og nær öllu leyti launafólk, hvernig skipting væri á milli þessara aðila um greiðslu útsvara. Það hefur alla tíð í þessu sveitarfélagi legið þannig, að það eru um 80–85% af heildarupphæð útsvara, sem greitt er af launafólki. Ég hygg, að það sé ekki fjarri lagi, að þetta sé einnig svo hér í Reykjavík, en kann að vera, að hlutföll séu þar einhver önnur, en það mun ekki mikill munur vera þar á. Ég hef ekki haft aðstöðu til þess að láta athuga það. Þess vegna verður að athuga, hvað við erum að gera.

Ef hér á hv. Alþ. á að samþykkja það frv., sem hér liggur fyrir, erum við, eins og ég sagði áðan, að færa nokkurn hluta útsvarsbyrðarinnar af aðstöðugjöldunum, sem atvinnureksturinn borgar, yfir á þá, sem greiða tekju- og eignarútsvar, sem launamenn borga að langsamlega mestu leyti eða 80–85%. Hér í Reykjavík voru á s.l. ári álögð aðstöðugjöld, sem námu 178 millj. kr. Ef reiknað er með, að frv. það, sem hér liggur fyrir, lækki aðstöðugjöldin um 30%, sem ég mundi telja lágmark, þýddi það, að 60 millj. yrðu færðar frá gjaldendum aðstöðugjalda hér í Reykjavík og yfir á gjaldendur tekju- og eignaútsvara. Í meðalkaupstað eins og þeim, sem ég var hér með í huga, þ. e. Vestmannaeyjakaupstað, námu aðstöðugjöldin þetta ár 11 millj. kr., og 1/3 hluti af því eru 3.6 millj. Ég hygg þó, að það sé nær að reikna með, að aðstöðugjöld þar vegna mikils fiskiðnaðar mundu lækka a.m.k. um 40%, en þetta þýddi alltaf það, að það yrði að færa af gjaldendum aðstöðugjalda yfir á gjaldendur tekju- og eignaútsvara 3.6 millj. kr. Ég skal viðurkenna, að það gæti verið ákaflega gott, og mundu allir vera ánægðir með það, ef hægt væri að létta þessum gjöldum af atvinnuvegunum. Það er ekkert deilumál. En spurningin er, hvort það sé forsvaranlegt að færa gjöldin þannig á milli, eins og lagt er til með þessu frv.

Hv. flm. þessa frv. talaði hér í gær fyrir öðru frv. Það var um heimild til þess, að greidd yrðu 3% til atvinnurekenda fyrir innheimtu á útsvörum. Ég tók ekki til máls um það frv. þá, vegna þess að ég þóttist vita, að frv. um breytingu á tekjustofnal. mundi koma mjög fljótlega fyrir, og þar sem hér er um að ræða mál, sem er alveg sama eðlis, vildi ég ekki vera að tefja tíma þingsins á því að ræða þau sitt í hvoru lagi, en mun með leyfi hæstv. forseta nokkuð koma inn á það frv. einnig hér. Ég segi, að það frv. fari alveg í sömu átt, það vill segja í á átt að færa af atvinnurekstrinum yfir á tekju- og eignaútsvörin og þá að langmestum hluta yfir á launafólk, því að vitanlega þýðir 3% greiðsla á innheimtu útsvara aukin útgjöld fyrir hvert sveitarfélag. Það fer ekkert á milli mála. Hér í Reykjavík voru á þessu ári lögð á gjöld, útsvör 722 millj. og aðstöðugjöld 178 millj. eða samtals 900 millj. Ef það er nú rétt, sem ég hef hér bent á, að a.m.k. 80% af þessari upphæð séu greidd af launafólki, þýðir það, að launafólk greiðir þarna 600–700 millj., og 3% af þeirri upphæð eru eins og allir sjá um 20 millj. Ef þetta er tekið nákvæmlega, er heildarupphæðin 21.6 millj. og þar af 80% 17.3 millj., sem mundu lenda beint í hlut þess launafólks, sem greiðir hér útsvör.

Ég tel ekki, að þessi stefna, sem bæði þessi frv. marka, sé réttlætanleg, þó að það væri ágætt að geta, — ég skal viðurkenna það, — létt af atvinnuvegunum. Ég tel ekki, að sú stefna, sem þessi frv. marka, sé réttlætanleg, a.m.k. ekki eins og aðstæður eru hér á landi í dag. Og ég vil benda hv. flm. á það, af því að hann kom í sinni ræðu í gær nokkuð inn á efnahagsfrv., að það, sem formaður Framsfl. og hv. 4. þm. Reykv. Kristján Thorlacius töldu því frv. mjög til foráttu, var það, að það væri verið að koma með aukaálögur á launafólk í landinu. Ég skal ekkert um það atriði ræða. Það hefur verið gerð grein fyrir því hér á hv. Alþ. af fulltrúum ríkisstj., hvaða áhrif þeir telja, að það frv. muni hafa, en þetta voru sem sagt aðalrök formanns Framsfl., hv. 1. þm. Austf., og hv. 4. þm. Reykv., Kristjáns Thorlaciusar, að þetta væru álögur á launafólk. Nú kemur hv. 1. þm. Norðurl. v., sem einnig, eins og allir vita, tilheyrir Framsfl., með tvö frv., sem bæði ganga í þá átt að þyngja beinlínis álögur á launafólkið. Ég segi, að það náttúrlega geti verið ágætt fyrir Framsfl. að spila þá plötu, sem hann spilaði hér í sambandi við efnahagsmálið. Við því er ekkert að segja, en hinum megin á þeirri plötu hlýtur að koma fram rödd hv. 1. þm. Norðurl. v., og hún er á allt annan veg. Hún gengur alveg í gagnstæða átt. Ef hliðar þessarar plötu eru spilaðar sín í hvoru lagi, þá auðvitað getur þetta gengið, en ef á að fara að spila plötuna samtímis báðum megin, er ég hræddur um, að það verði úr því nokkur ruglingur, eins og manni hlýtur að finnast, þegar maður skoðar bæði þessi frv. í ljósi þess, sem framsóknarmenn hafa sagt um efnahagsmálafrv., og í ljósi þess, sem hv. 1. þm. Norðurl. v. leggur nú til, þá er ákaflega eðlilegt, að ruglingur verði, ef á sem sagt að spila þessa plötu Framsfl. báðum megin samtímis.