26.10.1967
Neðri deild: 9. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í C-deild Alþingistíðinda. (2386)

22. mál, verndun og efling landsbyggðar

Flm. (Gísli Guðmundsson) :

Herra forseti. Í því frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 22, er gerð tilraun til að spyrna gegn þeirri þróun, sem eftir líkum að dæma verður á komandi árum mesta vandamál hins unga íslenzka lýðveldis og getur haft í för með sér, ef illa tekst til, að aldur þess verði skemmri en vonir standa til. En sú hætta vofir yfir, ef Íslendingar halda áfram að safnast saman í stórborg og leggja land sitt í eyði að meira eða minna leyti. Á einum aldarfjórðungi eftir 1940 fjölgaði landsmönnum í heild um nálega 60%. En svo mjög raskaðist á þessum tíma jafnvægið milli landshlutanna, að í einum landshluta fjölgaði fólki á þessum tíma um nálega 134%, en í öðrum fækkaði um rúmlega 19%. Í hinum landshlutunum var fjölgunin ca. 9–31% eða hlutfallsleg fækkun. Í Stór-Reykjavík, sem svo er nefnd af hagfræðingum, býr nú meira en helmingur þjóðar, sem mun vera heimsmet á því sviði. Og enn er í þessari þróun nýtt hættumerki framundan, þar sem er staðsetning aluminium-stóriðjunnar, sem mun hafa sín áhrif á tilfærslu fólks. Frv. sama eða svipaðs efnis og það, sem hér liggur fyrir, um sérstakar ráðstafanir til að stuðla að verndun og eflingu landsbyggðar og koma í veg fyrir eyðingu lífvænlegra byggðarlaga, höfum við nokkrir þm. úr Framsfl. áður flutt fimm ár í röð hér í hv. Nd. Alþ. Og fimm sinnum hefur þetta frv. annað hvort enga afgreiðslu hlotið eða verið vísað frá með þeim rökstuðningi, að þess væri ekki þörf. Eigi að síður hefur það hér í hv. d., einkum í seinni tíð, hlotið atkv. nálega helmings þm., og þess verður nú greinilega vart í ræðu og riti, að rökstuðningi þeim, sem fram hefur komið í þessu máli hverju sinni, hefur verið veitt athygli og áhrifa hans er jafnvel farið að gæta í löggjöf síðustu ára, þó að of skammt sé þar gengið. Ég sá það nú nýlega í blaði mér til mikillar ánægju, að borgarstjórinn í Reykjavík hefur í ávarpi til ungra manna í flokki sinum tekið undir þau sjónarmið, sem hér er um að ræða. Þó munu sumir mæla, að höfuðborgin sé hér ekki í mestri hættu í bili, heldur önnur byggðarlög fremur. En öll erum við hér í sama bát, Íslendingar, og er vel, að hinn áhugasami borgarstjóri skuli gera sér grein fyrir því, að svo er.

Sagt er, að orð séu til alls fyrst, og viðleitni ber að meta. En við hin stærstu viðfangsefni þarf óvenjuleg tök og með smátækum ráðstöfunum verður landsbyggð hvorki vernduð né efld hér á landi, eins og sakir standa. Hér er um framtíðarmál að ræða, og þess vegna mega tímabundnir erfiðleikar í stjórnarfari og efnahagslífi ekki hafa áhrif á meðferð þess hér á þingi í þetta sinn. Ég kem að því síðar. Við teljum það ekki eftir okkur, flm., að flytja nú þetta mál og mæla fyrir því hér á Alþ. í sjötta sinn eða þótt oftar þyrfti til þess að koma. Slíkt gerist oftar, þegar um stórmál er að ræða, og að því mun koma, að það nái fram að ganga á þann hátt, að viðhlítandi sé, ef Alþ. á að verða þeim vanda vaxið, sem því er á herðar lagður. Hér skal ekki sakast um orðinn hlut, en í stuttu máli gerð grein fyrir því, sem í frv. felst, m.a. vegna þeirra hv. þm., sem ekki hafa undanfarin ár átt sæti í þessum sal.

Það er efni frv., að sérstök og sjálfstæð ríkisstofnun, sem kalla mætti byggðarjafnvægisstofnun, vinni að verndun og eflingu landsbyggðar með rannsóknum, áætlanagerð og fjárhagslegum stuðningi, sem um muni. Að stjórn þessarar stofnunar verði kosin af Alþ. og starfsemi hennar taki til þeirra landshluta, þar sem bein eða hlutfallsleg fólksfækkun hefur átt sér stað eða er talin yfirvofandi. Í II. kafla frv. er fjallað um stofnun og starfsemi byggðajafnvægissjóða, sem er ætlað það hlutverk að leggja fram fjármagn til þeirrar starfsemi, sem hér er um að ræða og gert er ráð fyrir, að útvegað verði með árlegu lögbundnu framlagi úr ríkissj. og lántökum með ríkisábyrgð auk þess, sem gert er ráð fyrir, að hinn nýi byggðajafnvægissjóður, ef lögfestur verður, yfirtaki núverandi Atvinnujöfnunarsjóð og fjármuni hans.

Ég ætla fyrst í sambandi við einstök atriði að víkja að þeim ákvæðum frv., sem fjalla um útvegun fjármagns til byggðajafnvægissjóðsins. Þau ákvæði eru fyrst og fremst í 8. og 9. gr. frv., en einnig í 12. gr. þess. Í 8. gr. er gert ráð fyrir því, að fjármunir Atvinnujöfnunarsjóðs samkv. l. nr. 69 frá 1986 verði stofnfé sjóðsins. En í 9. gr. eru ákvæði um árlegar tekjur byggðajafnvægissjóðs. Þar er gert ráð fyrir, að tekjur sjóðsins verði í fyrsta lagi ákveðinn hundraðshluti af tekjum ríkisins ár hvert, 2%, sem greiðist sjóðnum í byrjun hvers mánaðar af innheimtum tekjum næsta mánaðar á undan, í fyrsta sinn í byrjun febrúarmánaðar árið 1969, og í öðru lagi skattgjald það. sem í núgildandi löggjöf er gert ráð fyrir, að renni til Atvinnujöfnunarsjóðs. Við gerum ráð fyrir því, að ríkisframlagið, hið fasta ríkisframlag, 2% af innheimtum ríkistekjum, greiðist í fyrsta sinn af ríkistekjum ársins 1969. Þetta þýðir það, að við ætlumst ekki til þess, að það fjárlagafrv.. sem nú liggur fyrir þinginu, þurfi að afgreiða með tilliti til þessa frv., þó að lögum verði, heldur verði hér um nokkurn fyrirvara að ræða, þannig að það komi í fyrsta sinn til greina við afgreiðslu fjárl. fyrir árið 1969 að ætla fyrir þessu framlagi af tekjunum, sem á að ganga til byggðajafnvægissjóðsins. Ég vil geta þess, að til þess að hv. þm. fái nokkra hugmynd um, hvert sé hér er um að ræða, þessir 2 aurar á hverja kr., að ef miðað er við fjárl. ársins 1967, væru þetta 94 millj. kr., en yrði að sjálfsögðu hærra, ef fjárl. hækka í krónum. Ef svo kynni að vera, að einhverjum þætti hér farið fram á óhæfilega hátt framlag úr ríkissj., vil ég aðeins geta þess til samanburðar, að ef haldið hefði verið áfram að greiða til byggðajafnvægisstarfsemi þá hlutfallslegu upphæð, sem á árinu 1957, í tíð svonefndrar vinstri stjórnar, var veitt til atvinnuaukningar, væri upphæðin nú nokkurn veginn sú, sem hér er farið fram á. Hún var þá 15 millj. En síðan lækkaði sú upphæð í kr. og enn meir í hlutfalli við hækkun fjárl. og sú þróun hefur kennt okkur flm. frv. það, að ef við viljum tryggja, að ríkissj. kippi ekki að sér hendinni síðar í sambandi við þessa mikilvægu starfsemi, er réttara að ákveða hana á þennan hátt, sem hér er lagt til, en tiltekna upphæð, a.m.k. á þeim tímum, þegar verðlagsþróunin er slík og þróun í ríkisbúskapnum, sem hún nú er. Þetta er að segja um ákvæði um fjármagnsöflun byggðajafnvægisstarfseminnar samkv. 8. og 9. gr., en í 12. gr. frv. er gert ráð fyrir því, að byggðajafnvægisn., eða hin þingkjörna stjórn starfseminnar, afli sjóðnum lánsfjár til starfsemi sinnar allt að 200 millj. kr. á ári á árunum 1968–1972 og að þar komi til ábyrgð ríkissj. Það lánsfé, sem gert er ráð fyrir að sjóðurinn starfi með á þessum árum, þ.e.a.s. á 5 árum, næmi samtals 1000 millj. kr. á þeim tíma, til viðbótar eigin fé sjóðsins, sem ég áður hef gert grein fyrir.

Þó að það sé svo, að ég telji, að hér sé ekki sérlega djúpt í árinni tekið, er það nú svo, að hér yrði um allöfluga stofnun að ræða á þessu sviði, a.m.k. miðað við það, sem nú er. Gert er ráð fyrir því, að á vegum byggðajafnvægisn. eða byggðajafnvægisstofnunarinnar fari fram sérstök rannsóknar- og áætlunarstarfsemi, eða áætlunargerð. Ákvæði um þetta eru í 7. gr. frv. Þar segir svo:

„Byggðajafnvægisn. lætur, þegar þörf þykir til þess, gera áætlanir um framkvæmdir í einstökum byggðalögum, enda séu þær við það miðaðar, að með þeim sé stuðlað að jafnvægi í byggð landsins. Áætlanir þessar skulu að jafnaði gerðar í samráði við sýslun., bæjarstjórn eða hreppsn., eina eða fleiri. Lán og framlög úr byggðajafnvægissjóði, sbr. II. kafla, skulu ákveðin með hliðsjón af slíkum áætlunum, séu þær fyrir hendi.“

Eins og fram kemur í þessu, er gert ráð fyrir því, að rannsóknar- og áætlunarstarfsemi byggðajafnvægisstofnunarinnar verði algerlega sérstök og óháð starfsemi. Okkur er að sjálfsögðu kunnugt um þá áætlunargerð, sem fram fer á takmörkuðu sviði hjá Efnahagsmálastofnun ríkisins. En við teljum, að það sé heppilegra og raunar nauðsynlegt, að sú áætlunargerð eða þær rannsóknir, sem hér er um að ræða, fari fram á vegum þeirrar stofnunar, sem ætlað er að veita stuðning til þessara mála, til þess að þau sjónarmið, sem þar verða ráðandi, njóti sín að fullu við áætlunargerðina. Við teljum, að þau sjónarmið njóti sín ekki, þegar þessi starfsemi fer fram í sambandi við ýmsa áætlunargerð á öðrum sviðum. En auk þess, sem um þetta stendur í 7. gr., er einnig ákvæði um áætlunargerð í 14. gr., en þar segir svo:

„Nú ákveða sveitarstjórnir eða sýslun. að skipa sérstaka svæðisáætlunarn. til að gera áætlun um framkvæmdir í umdæmum sínum í samræmi við tilgang þessara l., og er byggðajafnvægisn. þá heimilt að veita slíkri áætlunarn. fé úr byggðajafnvægissj. til að greiða kostnað eða hluta af kostnaði við áætlunargerðina. Sama gildir um fjórðungsn., sem skipuð er af fjórðungssambandi til að annast áætlunargerð fyrir fjórðunginn.“ Er þá m.a. bæði átt við þau fjórðungssambönd, sem starfað hafa, og sömuleiðis þau fjórðungssambönd sveitarfélaga, sem nýbúið er að stofna eða verið er að stofna sums staðar á landinu. En það, sem fram kemur í þessari gr. og raunar víðar, er, að við flm. ætlumst til þess, að að því leyti sem það reynist framkvæmanlegt og nægilegt framtak er fyrir hendi heima fyrir, verði sú starfsemi, sem annars er falin byggðajafnvægisn. ríkisins samkv. frv. að meira eða minna leyti lögð í hendur sérstakra aðila í einstökum landshlutum. Þó þannig, að þarna sé samráð á milli. Þetta kemur fram í þessari gr., og það kemur einnig fram í sambandi við ákveðinn fjárstuðning úr sjóðnum, sem ég kem að síðar, að við hugsum okkur þetta á þann veg og teljum, að æskilegt sé, að þessi starfsemi geti að svo miklu leyti, sem unnt reynist, verið í höndum þeirra landshluta eða fulltrúa þeirra, sem fyrst og fremst munu njóta góðs af þessari lagasetningu og þessari starfsemi.

Ég kem þá næst að ákvæðum frv. um þann fjárhagslega stuðning, sem hér er um að ræða. Í 10. gr. segir:

„Úr byggðajafnvægissjóði má veita lán til hvers konar framkvæmda, sem að dómi sjóðsstjórnar,“ — þ.e.a.s. byggðajafnvægisn. „eru til þess fallnar að stuðla að jafnvægi í byggð landsins samkv. 1. gr., þ. á m. til kaupa á atvinnutækjum, enda séu aðrir lánsmöguleikar fullnýttir. Skal áður leitað álits hlutaðeigandi sveitarstjórnar, sé hún ekki sjálf umsækjandi“.

Þetta eru hin almennu ákvæði um lánveitingar úr byggðajafnvægissjóði, að lán verði veitt í þeim ákveðna tilgangi, sem þar er tilgreindur og sérstaklega nefnt, að þau verði veitt til kaupa á atvinnutækjum. En við þetta er tengt það ákvæði, að áður en til kemur lánveiting úr byggðajöfnunarsjóði, þurfi það skilyrði að vera fyrir hendi eða samhliða, að aðrir lánsmöguleikar séu fullnýttir til þeirrar starfsemi, sem þar um ræðir. Það er ekki nokkur ætlun, að aðrar lánsstofnanir, sem að jafnaði lána til þeirra framkvæmda eða þeirrar starfsemi, sem hér er um að ræða víðs vegar um land, geti við stofnun þessa sjóðs kippt að sér hendinni, því að þá yrði þessi löggjöf lítils virði. Þess vegna teljum við þetta nauðsynlegt ákvæði.

Seinna í sömu gr., þ.e.a.s. í 10. gr., er svo sérstakt ákvæði um það, að veita megi sveitarfélögum lán til að koma upp eða stuðla að því, að komið verði upp íbúðum til viðbótar lánum, sem aðrar lánastofnanir veita út á sömu íbúðir. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að það kemur oft fyrir í bæjum og þorpum í þeim landshlutum, sem ákvæði þessa frv. eiga við, að það reynist ekki mögulegt fyrir fólk, sem þangað vill flytja og sem kannske sérstaklega er óskað eftir innflutningi á, svo sem ýmissa sérfróða menn, að flytjast þangað vegna skorts á húsnæði. Húsnæðið í bæjum og þorpum þessa lands er víða, og það jafnvel í þeim, sem varla halda við íbúatölunni, mjög af skornum skammti. En það liggur í augum uppi, að ef á að stuðla að því, að eðlileg fólksfjölgun eigi sér stað einhvers staðar, verður að vera til húsnæði fyrir fólkið. Nú segja menn e. t. v. sem svo, að hér sé starfandi í landinu stofnun, sem eigi að veita lán til íbúða. Það er rétt. Möguleikar hennar til lánveitinga eru raunar mjög takmarkaðir, og hún hefur nú nýlega tekið að sér verkefni í þágu höfuðborgarinnar, sem veldur því, að útlit um lánveitingar annars staðar á landinu á næstunni er mjög slæmt. En þó að þetta væri nú ekki fyrir hendi, hefur þessi stofnun sínar reglur um lánveitingar og þær almennu reglur, sem gilda fyrir allt landið, gera ekki möguleg nein sérstök átök í þessu efni í jafnvægisátt. Þess vegna hyggjum við, að það væri mjög mikilsvert, ef einmitt sú stofnun, sem hér er um að ræða, og þetta frv. fjallar um, gæti þar komið verulega til aðstoðar.

Í 15. gr. frv. er sérstakt heimildarákvæði, þar sem gert er ráð fyrir því, að byggðarjafnvægisn. sé heimilt, þegar sérstaklega stendur á, að gerast fyrir hönd sjóðsins meðeigandi í atvinnufyrirtæki, sem hún telur nauðsynlegt að koma á fót í samræmi við tilgang þessara l., enda séu a.m.k. 5 nm. því samþykkir og að þeirra dómi og hlutaðeigandi sveitarstjórnar ekki unnt að koma fyrirtækinu á fót á annan hátt. Við gerum ekki ráð fyrir því, að það verði hið almenna fyrirkomulag um framvindu þessara mála, að byggðajafnvægisstofnunin eigi og reki fyrirtæki. En hins vegar álítum við, að þannig geti staðið á, að það sé alveg nauðsynlegt, ef fyrirtæki á að komast á fót, að byggðajafnvægisstofnunin geti verið meðal stofnenda þess og tekið þátt í rekstri þess. Í norsku byggðajafnvægislöggjöfinni, sem við höfum kynnt okkur allrækilega á undanförnum árum í sambandi við flutning þessa máls, er gert ráð fyrir þessu fyrirkomulagi þar og hefur verið framkvæmt.

Þá er í 11. gr. frv. gert ráð fyrir því, að það fé, sem sjóðurinn lætur af hendi, verði ekki eingöngu veitt í lánaformi, heldur komi einnig óafturkræf framlög til greina, þegar sérstaklega stendur á, en gerum þá einnig ráð fyrir því, að til þess þurfi aukinn meirihl. nm., því að sjálfsögðu er það ætlunin, að óafturkræf framlög verði ekki veitt, nema þess sé brýn þörf og rétt, að vel sé um þetta búið. Um vexti af lánum úr sjóðnum og um lánskjör að öðru leyti eru ekki ákvæði í frv. að öðru leyti en því, að það er lagt á vald sjóðsstjórnarinnar. En ég vil segja það hér, að ég hygg, að það sé alveg óhjákvæmilegt, að sjóðsstjórnin hafi nokkuð rúmar hendur á þessu sviði. Þessi sjóður nær ekki tilgangi sínum, ef hann er rekinn eins og banki. Það má ekki reka hann með hagnaðarsjónarmið sem aðalsjónarmið, eins og banki hlýtur að vera rekinn, heldur er hér um að ræða lánastofnun á félagslegum grundvelli. Ef menn ætla að gera þá kröfu um stuðning við byggðajafnvægisstarfsemi, að allt það, sem stuðning fær í því sambandi, verði að bera sig sem kallað er, þá geta menn alveg eins hætt að tala um þessi mál. Því að hér er um það að ræða að styðja þann vaxtarbrodd í þjóðfélaginu, sem á erfitt uppdráttar um sinn, þó að á því verði vonandi breyting, ef löggjöf sem þessi verður sett og ber árangur.

Í 13. gr. frv. eru ákvæði, sem eru skyld áætlunarákvæðunum í 14. gr., sem ég gat um áðan. Í 13. gr. er kveðið á um, að ef hreppsn., bæjarstjórn eða sýslun., ein eða fleiri saman, ákveður að koma upp sérstökum byggðajafnvægissjóði til starfa í umdæmi sínu, getur byggðajafnvægisn., ef stofnandi eða stofnendur óska, löggilt slíkan sjóð sem byggðajafnvægissjóð þess svæðis, sem um er að ræða. Síðan segir: „Hafi sjóður fengið slíka löggildingu, er byggðajafnvægisn. heimilt að veita honum sem lán eða framlag þá fjárupphæð árlega, sem rétt telst að úthluta á starfssvæði hans. Stjórn slíks sjóðs ber að fylgjast með áætlunum byggðajafnvægisn. um framkvæmdir á hlutaðeigandi landsvæði, enda þarf, ef n. hefur veitt honum lán, samþykki hennar til lánveitingar úr honum skv. reglum, er hún setur“. Þetta ákvæði stefnir í sömu átt og ákvæðið, sem ég las upp áðan um möguleika til þess, að sérstakar svæðisáætlunarn. starfi sjálfstætt með stuðningi úr byggðajafnvægissjóði.

Á sama hátt er hér ákveðið í 13. gr., að einstakir landshlutar geti komið sér upp sínum eigin byggðajafnvægissjóði og þá lagt honum til það fé, sem þeir geta útvegað sjálfir og fái þá til ráðstöfunar þann hluta úthlutunarfjár, sem hverjum landshluta mundi vera ætlað á hverjum tíma. Um þetta mætti ræða langt mál, en ég ætla ekki að gera það að þessu sinni, en allvíða hefur orðið vart við það hér og þar í landinu, að menn vilja gjarnan hafa þessar framkvæmdir á sínum vegum og framkvæmdastarfsemi staðsetta í sínum landshluta, og ég hygg, að það sé rétt og heppilegt, ef því getur orðið þannig fyrir komið, því að hver er sínum hnútum kunnugastur. Og ef hægt er að koma upp slíkum stofnunum á þeim svæðum, þar sem byggðajafnvægissjóður lætur gott af sér leiða, verður þar að sjálfsögðu alltaf um meiri kunnugleika að ræða og í sumum tilfellum meiri áhuga en hjá lánastofnunum hér í höfuðstaðnum, sem mjög er eðlilegt. Og í þessu sambandi vil ég segja það, að það þarf auðvitað að athuga það miklu betur og með meiri áhuga en gert hefur verið, hvort ekki er hægt að skipta starfsemi ýmissa ríkisstofnana, þannig að þær starfi að einhverju leyti í hinum einstöku landshlutum og að því er varðar sumar ríkisstofnanir a.m.k. á þetta að vera hægt og er áreiðanlega nauðsynlegt. Þá vil ég minnast hér á ákvæði 8. gr. frv., ég bið afsökunar, ákvæði 16. gr. frv., en þar segir svo : „Þegar komið er upp atvinnufyrirtækjum með fjárhagslegum stuðningi ríkisvaldsins, skal ríkisstj. leita álits byggðajafnvægisn. um staðsetningu þeirra“. Ef ríkisvaldið vill stuðla að því, að eðlilegt jafnvægi sé í byggð landsins og milli landshluta, er það hlálegt, að unnið sé á móti þessari stefnu með því að láta sig einu gilda, þó að fyrirtæki, sem ekki gætu komizt á fót, nema með því að ríkið eigi hlut að máli, séu þannig staðsett að nauðsynjalausu, að þau vinni á móti þeirri byggðajafnvægisstefnu, sem talið er, að fylgt sé. Og ef þetta frv. verður að l., tel ég það alveg sjálfsagt, að svona ákvæði verði lögfest. Og það hefði þurft að vera lögfest fyrir, þá hefði kannske verið hægt að koma í veg fyrir meiri háttar þjóðhagsleg slys, sem orðið hafa í þessum efnum, og það enda þótt ekki væri í gildi öðru vísi ákvæði en hér er gert ráð fyrir, sem sé að leita umsagnar byggðajafnvægisn.

Ég ætla svo að síðustu að vekja athygli á einu ákvæði í frv. enn, sem er ákvæði til bráðabirgða. En þar segir svo: „Byggðajafnvægisn. skal þegar eftir gildistöku þessarar l., í samráði við Landnám ríkisins, gera bráðabirgðaáætlun um sérstaka aðstoð við þau byggðalög, sem dregizt hafa aftur úr eða yfirvofandi hætta er á að dragist aftur úr því sem almennt er, að því er varðar aðkallandi framkvæmdir og uppbyggingu atvinnuvega, eða fara í eyði að verulegu eða öllu leyti, enda sé þar að dómi landnámsins um vel viðunandi atvinnurekstursskilyrði frá náttúrunnar hendi að ræða á landi eða sjó. Leita skal, eftir því sem þurfa þykir, álits Búnaðarfélags Íslands, Fiskifélags Íslands og Landssambands iðnaðarmanna um úrræði á hverjum stað. Til framkvæmda bráðabirgðaáætluninni er n. heimilt að veita óafturkræf framlög úr sjóðnum, allt að þriðjungi tekna hans til ársloka 1971. Framlögin skulu veitt sveitar- eða sýslufélögum með fyrirmælum, sem n. setur um notkun þeirra“. Í þessum bráðabirgðaákvæðum er haft í huga, að sérstakar og skjótar ráðstafanir þurfi vegna þeirra, sem eru að farast í þessum efnum. Það er jafnan svo, þegar þannig stendur á, að ráðstafanir, sem eiga að koma að gagni, þurfa að koma fljótt. Því er þetta ákvæði sett í frv.

Ég skal svo ekki með fleiri orðum gera grein fyrir einstökum ákvæðum þessa frv. Það er nú alllangt liðið síðan byrjað var að komast svo að orði hér á hinu háa Alþingi og víðar á opinberum vettvangi, að nauðsyn bæri til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins og hefja á vegum ríkisvaldsins sérstaka og sjálfstæða starfsemi í því skyni. Það var um það leyti, sem fyrst var farið að orða þetta hér, þegar kunnugt var orðið, að Norðmenn, frændur okkar, höfðu gert framkvæmdaáætlun mikla fyrir Norður-Noreg 1950, sem þá var orðinn hlutfallslega mun mannfærri en aðrir landshlutar þar og hafði dregizt aftur úr á ýmsum sviðum. Framkvæmd þessarar Norður-Noregs áætlunar er nú lokið fyrir 2 árum eða svo, en ráðstafanir af sama tagi hafa verið gerðar á breiðari grundvelli, það hefur verið sett um það ný löggjöf. Mikilvægi þessa máls virðist vera ráðamönnum Noregs vel ljóst, og þeir sýna það í verki. Í fleiri löndum eru nú gerðar opinberar ráðstafanir til að draga úr vexti stórborga og efla landsbyggð utan þeirra. Að dómi okkar flm. er ekki tímabært að svo stöddu að setja með lögum nákvæmari reglur en hér er gert ráð fyrir um starfsemi þá til stuðnings jafnvægi í byggð landsins, sem hér ræðir um.

Í frv. er, eins og ég hef gert grein fyrir, ákvæði um tilgang stefnunnar og meginatriði, en að öðru leyti verður hún að mótast smám saman af rannsóknum og reynslu og áætlunum þeim, sem gerðar verða á vegum byggðajafnvægisn. Hér er um að ræða, að okkar dómi, ráðstafanir, sem mundu verða, ef til kemur, allri þjóðinni til hagsbóta. Einnig sá landshluti, sem fjölmennastur er eða verður, mun njóta hér góðs af í ríkum mæli, ef takast mætti að stöðva fólksstrauminn þangað, því að hið mikla aðstreymi fólks, sem þar hefur átt sér stað áratugum saman, hefur skapað þessum landshluta ýmiss konar erfiðleika og ekki verið honum hentugt, enda á sumum sviðum haft í för með sér mikil fjárútlát fyrir borgarana. Í öðrum landshlutum mundi byggðajafnvægissj. með beinum fjárframlögum, og þó einkum útlánum styðja þá uppbyggingarstarfsemi, sem að undan genginni athugun telst til þess fallin á hverjum tíma að draga úr fólksstraumnum þaðan eða stöðva hann og koma í veg fyrir yfirvofandi eyðileggingu verðmæta. Hér er ekki um það að ræða, að hvergi megi leggja niður byggt ból eða flytja á hagkvæmari stað. Uppbygginguna ber að miða við það að hagnýta sem bezt gæði náttúrunnar til lands og sjávar, þar sem þau eru til staðar. Björgulega staði ætti ekki að yfirgefa heldur stefna að því þar að gera mönnum kleift að koma atvinnurekstri sínum og aðstöðu í samræmi við það, sem hæfilegt má teljast og óhjákvæmilegt á hverjum tíma. En jafnframt ber að hafa það í huga, að ráðið til þess að hindra beina eða hlutfallslega fólksfækkun í einhverjum landshluta getur verið m.a. í því fólgið að koma þar upp þéttbýlishverfum eða efla kaupstaði og kauptún, sem fyrir eru, og ber þá byggðajafnvægisstofnuninni að sjálfsögðu að greiða fyrir uppbyggingu og vexti slíkra staða jafnhliða annarri uppbyggingu þar um slóðir. Aukning fólksfjölda á slíkum þéttbýlisstöðum, þótt þeir í bili dragi til sín eitthvað af fólki úr umhverfi sínu, getur verið brýnt hagsmunamál hlutaðeigandi landshluta, ef hún ræður úrslitum um það, að hann sem heild haldi sínum hlut. Í bæjum og þorpum skapast líka markaður og ýmsir aðrir slíkir möguleikar fyrir nálægar sveitir. Af þessu leiðir, að byggðajafnvægismálið verður ekki leyst, svo að vel sé, nema á það sé litið frá heildarsjónarmiði hinna stóru landshluta og þá jafnframt haft í huga, að björgulegar byggðir, þó að nú séu af einhverjum ástæðum fámennar og eigi í vök að verjast,dragist ekki aftur úr í sókn þjóðarinnar til bættra atvinnuhátta og betri lífskjara. Byggðajafnvægisstarfsemin á ekki að vera fólgin fyrst og fremst í atvinnuleysisráðstöfunum eða örvun þjóðhagslega óhagkvæmrar framleiðslu, heldur í því að gera börnum landsins kleift með aðstoð fjármagns og tækni að grundvalla búsetu sína, lífsafkomu og menningu á náttúrugæðum til lands og sjávar, hvar á landinu, sem þau eru. Að koma með skynsamlegum ráðum í veg fyrir, að landsbyggðin eyðist og dragist svo aftur úr, að framtíðarvonir hennar verði að engu gerðar. Það þarf að koma í veg fyrir þann misskilning — þann meinlega misskilning — sem stundum ber á, að hin fámennari byggðarlög og atvinnurekstur þeirra séu yfirleitt byrði á þjóðarbúskapnum. Athugun hefur sem sé leitt í ljós, að í sumum fámennum sjávarplássum skilar hver íbúi að meðaltali svo mikilli gjaldeyrisvöruframleiðslu til þjóðarbúsins, að athygli vekur við samanburð. Víða í sveitum er framleiðslan líka án efa mjög mikil, ef reiknað er á þennan hátt. En þar sem fjármagn skortir og tækni er af skornum skammti, verður þetta oft á annan veg. Þess ber einnig að geta, að engin stétt í þjóðfélaginu mun leggja hlutfallslega eins mikið fram af eigin tekjum og með vinnu sinni til uppbyggingar á landinu og bændastéttin. Óhætt mun að gera ráð fyrir, að hagnýt þjóðarframleiðsla minnki ekki heldur vaxi við aukið jafnvægi í byggð landsins.

Ég hef í sambandi við kynningu þessa frv. lagt sérstaka áherzlu á eða einkum rætt um umbætur á sviði atvinnulífs í hinum einstöku landshlutum og húsnæðismálin. Fleira mætti auðvitað nefna, þó að ég geri það ekki hér, t.d. ýmsar nauðsynlegar framkvæmdir, sem nauðsyn ber til að efla í sambandi við menntamál héraðanna og á félagsmálasviðinu. Ég geri ráð fyrir því, að sú stofnun, sem hér er rætt um og lagt til að sett verði á fót, mundi á þessum sviðum, til viðbótar því sem þjóðfélagið í heild leggur af mörkum gegnum ríkissjóð, einnig geta látið til sín taka.

Ég vil svo, herra forseti, ljúka máli mínu að þessu sinni. Ég legg til, að frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og, eins og fyrr, til hv. fjhn.