30.10.1967
Neðri deild: 10. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 574 í C-deild Alþingistíðinda. (2390)

28. mál, sala Holts í Dyrhólahreppi

Flm. (Guðlaugur Gíslason) :

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 28 um heimild til handa ríkisstj. að selja frú Jóhönnu Sæmundsdóttur, Nykhól, eyðijörðina Holt í Dyrhólahreppi, var flutt hér á síðasta þingi af 1. varamanni Sjálfstfl. á Suðurl. ásamt hv. 2. þm. Sunnl. Það er endurflutt hér að þessu sinni af mér einnig ásamt hv. 2. þm. Sunnl. og er, eins og ég gat um, um heimild til handa ríkisstj. að selja Jóhönnu Sæmundsdóttur, Nykhól, eyðijörðina Holt í Dyrhólahreppi. Jörðin Holt var í mörg ár í eigu og ábúð Jóhönnu Sæmundsdóttur og manns hennar, Þorsteins Einarssonar, sem nú er látinn. Þau hjónin seldu ríkissjóði jörðina á sínum tíma eða árið 1936, og fór salan þá fram sökum hættu á landsspjöllum á landi jarðarinnar. Ég tel ekki ástæðu til þess að hafa um þetta lengri framsögu. Það var gerð grein fyrir málinu, þegar það var lagt hér fram í fyrsta sinn á síðasta þingi, en meiri hl. hreppsnefndar viðkomandi hrepps hefur mælt með þeirri heimild, sem hér var farið fram á.

Ég leyfi mér að leggja til, herra forseti, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.