13.11.1967
Neðri deild: 16. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 586 í C-deild Alþingistíðinda. (2401)

49. mál, gjöld til holræsa og gangstétta í kaupstöðum öðrum en Reykjavík og Akureyri

Flm. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Þessu frv. átti raunar að fylgja annað hliðstætt um svipuð gjöld á Akureyri, en fyrir mistök er það ekki komið gegnum prentun, en ég bið hv. alþm. að athuga, að það, sem hér verður sagt um þetta frv., fjallar í raun og veru einnig um hitt, sem koma mun fram innan tíðar.

Í nær hverju kauptúni og hverjum kaupstað bíða stórfelld verkefni í gatnagerð. Fram að þessu hefur gatnagerð verið næsta ófullkomin hérlendis, sumpart vegna kunnáttuskorts, sumpart vegna fjárskorts og sumpart vegna vélaskorts. Hins vegar er það ekki umdeilanlegt, að fátt eða ekkert stuðlar meir að hreinlæti og bæjarprýði en vel gerðar götur með varanlegu slitlagi og gangstéttum, enda nú komnar til sögunnar stórvirkar vélar til að leggja malbik, steypu eða olíumöl á götur, svo að hugur er í öllum bæjarfélögum að koma slíku í framkvæmd sem fyrst. En framkvæmd þessa verks er fjárfrek og takmarkað, hve mikið af útsvörum má ætla í slíkar framkvæmdir. Af þeim sökum er allvíða tekið að krefjast gatnagerðargjalds, þegar nýjar byggingarlóðir eru veittar og því gjaldi ætlað að standa undir nýlagningum gatna. En mjög víða þarf að gera eldri götur, sem þegar hefur verið byggt við, upp að fullu, skipta jafnvel að öllu um undirbyggingu, holræsa- og vatnslögn, áður en hægt er að leggja á þær varanlegt slitlag. Vafasamt þykir, að nú sé stoð í l. til að leggja á þegar reist hús gatnagerðargjöld við þessar aðstæður, þótt þessi endurgerð götu sé jafndýr og nýlagning, og er frv. það, er hér um ræðir, flutt með það fyrir augum að taka af öll tvímæli og gera sveitarfélögum frjálst að velja á milli að endurbyggja götur að öllu fyrir útsvarsfé eða að hluta fyrir álögð gatnagerðargjöld.

Að öðru leyti tel ég mig ekki þurfa að skýra þetta. Það mun vera flestum, sem fjallað hafa eitthvað um sveitarstjórnarmál, ljóst, hvað hér er á ferðinni, og æski ég þess, að því verði vísað til heilbr.- og félmn.