13.11.1967
Neðri deild: 16. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í C-deild Alþingistíðinda. (2405)
51. mál, vegalög
Landbrh. (Ingólfur Jónsson) :
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. síðasta ræðumanni, frsm. þessa frv., fyrir það, sem hann sagði hér um leið og hann gekk úr ræðustólnum. Hann sagðist vera sannfærður um það, að stjórnarvöldin gætu gert stórt átak í vegamálunum. Þetta var nú í raun og veru ekki meira en það, sem ég vissi, að hv. þm. ber talsvert traust til þessarar ríkisstj., þótt hann sé stundum að reyna að gagnrýna hana, enda er það vitað, að núverandi ríkisstj. hefur lýst því í sínum stjórnarsáttmála, að hún ætli að gera stórt átak í vegamálum. Hún hefur það á stefnuskrá sinni að gera hraðbrautir á fjölförnustu vegina. Þessir fjölförnustu vegir eru upp í Borgarfjörð, í áttina til hv. 3. þm. Vesturl., austur á Hvolsvöll, austur í miðja Rangárvallasýslu, og vegur út frá Akureyri, þar sem fjölfarnast er. Og það er reyndar um ár síðan ég lýsti því hér á hv. Alþ., að ríkisstj. hefði áhuga á því að undirbúa þessi mál.
Hv. þm. sagði hér, og það stendur reyndar í grg. fyrir þessu frv., að Framsfl. hafi alveg sérstaklega látið vegamál til sín taka, öðrum flokkum fremur hefði Framsfl. forystu um þessi mál, segir hérna í upphafi þessarar grg. Ekki dettur mér í hug að efast um það, að framsóknarmenn hafi haft áhuga fyrir því að byggja upp vegakerfi landsins. Ég hygg líka, að það sé leitun á þeim manni, sem hugsar um þjóðmál og atvinnumál í landinu, sem ekki hefur áhuga fyrir því, að þjóðin fái góða vegi. Ég þekki ekki þá menn, og framsóknarmenn eru vitanlega engin undantekning frá því. Ég held, að við getum verið sammála um það, að þm. allir og þjóðin, hvar í flokki sem er, hafi nú orðið næman skilning á því, að það er nauðsynlegt að byggja upp vegakerfi landsins. Hv. 3. þm. Vesturl. segir þess vegna ekki neinar fréttir, þegar hann upplýsir það, að framsóknarmenn hafi áhuga fyrir þessu máli. En það munu flestir vera í vafa um, að hann segi sannleikann, þegar hann heldur því fram, að Framsfl. hafi öðrum flokkum fremur bæði fyrr og nú sérstöðu í þessu máli. Ég efast mikið um það. Og ég held, að ef við rifjum upp söguna, stjórnmálasöguna, flettum upp í Alþingistíðindum og látum staðreyndirnar tala, sé ákaflega erfitt fyrir hv. 3. þm. Vesturl. að koma með svona staðhæfingar hér og standa við þær. Og ætla ég þó alls ekki að gera lítið úr þeim áhuga, sem hann og aðrir hans flokksmenn hafa haft fyrir þessu máli.
Til fróðleiks er hægt að rifja upp ýmislegt í þessu máli. Hv. þm. fullyrti hér áðan, að á 4. og 5. tug þessarar aldar hafi verið varið til vegamála 12–14% af ríkisútgjöldunum. Þetta held ég, að fái alls ekki staðizt. Ég hef ekki tölurnar fyrir mér, en ég held, að þetta fái alls ekki staðizt. En ég hef tölur fyrir mér frá árinu 1958 og síðan. Árið 1958 er síðasta valdaár Framsfl., og þá kemur í ljós, hvað hefur verið varið til vegamála sé miðað við ríkisútgjöldin, sé miðað við fjármunamyndunina, sé miðað við þjóðartekjurnar. Ef við miðum við ríkisútgjöldin, er varið til vegamála 1958 4.5%, en 1966 7.5%. Þetta eru staðreyndir, sem hvergi er hægt að hrekja. Ef við miðum við framlög til nýbygginga vega og brúa 1958 og 1967 og fjármunamyndun alls á þessum árum, er það svo, að 1958 er varið til vega og brúa 2.3% af fjármunamynduninni, 1959 2%, 1960 2.5%, 1961 3%, 1962 3.6%, 1963 3.9%, 1964 2.8%, 1965 3.7%, 1966 2.6% og 1967 3%. Þetta eru staðreyndir, sem ekki verða hraktar. Og fjármunamyndunin annars vegar og það hlutfall, sem er notað til vega og brúa nú og þegar framsóknarmenn voru í stjórn, er allt annað og hagstæðara nú, og verður ekki af þeirri ástæðu, frekar en þegar miðað er við ríkisútgjöldin, hægt að segja, að framsóknarmenn hafi haft miklu meiri áhuga og gert stærra átak í þessum málum á meðan þeir höfðu völd en t.d. núv. ríkisstj. hefur gert. Það er svo allt annað mál, að við erum sammála um það, að vegirnir þurfi að fá meira fé, og það sé tími til þess kominn að fara að gera varanlega vegi, þar sem umferðin er mest, og við þurfum ekki að tala hér eins og það líti út fyrir, að það sé einhver ágreiningur um þetta. Ef við hins vegar miðum við útgjöld til vegamála og miðum við þjóðarframleiðslu 1958 og 1967, verður það svo, að sé miðað við þjóðarframleiðslu 1958, eru útgjöld til vegamála 1.3%. Þetta fer síðan hækkandi, að undanskildu árinu 1959, 1.2%, en er 1967 1.9%.
Hvað segir nú þetta í sambandi við það, sem hv. 3. þm. Vesturl. var að fullyrða hér áðan? Staðfesta þessar tölur, sem teknar eru úr þjóðhagsreikningum og opinberum skýrslum,fullyrðingar þm.? Nei, þær staðfesta þær ekki. Þær staðfesta, að hv. þm. hefur farið með rangar tölur, og fullyrðingar hans eru byggðar á sandi. Ef við hins vegar tökum hér t.d. útgjöld til vegamála að meðtöldum útgjöldum til gatna og holræsa 1958 og 1967 og athugum, hvað mörg % af þjóðarframleiðslunni fara til þess, eru það 1958 2.3%, en 1967 3.1%. Það má vel vera, að framkvæmdir í kaupstöðum hafi verið eitthvað meiri nú síðustu árin en 1958. Ef við miðum svo útgjöld til vegamála 1958 annars vegar og 1967 hins vegar við kostnaðarvísitölu, vísitalan er 100 1958, þá er hún 540 1967, þegar miðað er við þá fjárhæð, sem til vegagerðarinnar fer. Ef við tökum hins vegar kostnaðarvísitöluna, sem er 100 1958, er hún 1967 1992, en framlag til vegamála hefur 5½-faldazt á þessu tímabili, þegar kostnaðurinn hefur tæplega tvöfaldazt. Þrátt fyrir þessar upplýsingar, er ég samþykkur hv. 1. flm. þessa frv. um það, að það þurfi að gera meira til þess að koma okkar vegamálum í gott lag, þó að framlög til vegamála hafi 5½-faldazt síðan 1958, þegar framsóknarmenn voru í stjórn síðast, en kostnaðarvísitala tæplega tvöfaldazt. Náttúrlega er ekki nóg það fjármagn, sem til veganna fer, miðað við þörfina, en hins vegar getur hv. 3. þm. Vesturl. ekki með góðri samvizku haldið því fram að núverandi ríkisstj. hafi gert lítið eða minna í vegamálum en sanngjarnt var að krefjast. Og hv. þm. veit það, að þótt framsóknarmenn hefðu verið í stjórn á þessum árum, hefði ekki farið meira fjármagn til veganna og ekki svona mikið miðað við reynslu undanfarinna ára.
Hv. þm. segir, að það sé stefna Framsfl. að láta vegakerfið njóta allra þeirra tekna, sem af umferðinni koma. Þetta út af fyrir sig er gott og blessað, ef við höfum efni á því. En þegar hv. þm. talar um, að þarna séu um 600 millj. á ári eða jafnvel meira, þetta er nú ekki alveg eins mikið og hv. þm. talar um, það munu vera nær 500 millj., sem hægt er að tala um, þá verður um leið að gera sér grein fyrir því, hvernig eigi að afla ríkissj. tekna í staðinn fyrir þetta fé. Hv. þm. segir, að það sé enginn vandi, og það er náttúrlega enginn vandi fyrir hann. Hann segir, að það sé hlutverk þeirrar stjórnar, sem með völd fer á hverjum tíma, að sjá fyrir því. Og þarna komum við að ástæðunni fyrir því, að hv. þm. leyfir sér að tala eins og hann gerir, tala af fullkomnu ábyrgðarleysi, vegna þess að það er ekki hans eða hans flokks að benda á leið til þess að afla fjár í staðinn fyrir það, sem af ríkissjóði á að taka, heldur er það ríkisstj. En það eru nú flestir, sem skilja, hvað hér er á ferðinni. Og ég trúi því ekki, að það sé stefna þessa þm., að það megi hafa greiðsluhalla á fjárl., sem þessu nemur. Sjálfur hefur þm. ekki bent á það, að það mætti spara á fjárl. þessa upphæð eða nokkuð, sem um munar. Og ég minnist þess, að fyrir tveimur árum við fjárlagaafgreiðslu, hlustaði ég á stjórnarandstæðing tala um sparnað á fjárl., og ég held, að þessi hv. þm. hafi talað í meira en hálftíma og var að leita að því, hvað mætti spara og það, sem hann taldi upp, nam að mig minnir nærri 6 millj. kr., sem hann treysti sér til þess að spara. Hann taldi ekki fært að spara á fræðslumálunum, hann taldi ekki fært að spara á heilbrigðismálunum, hann vildi ekki lækka tryggingarnar, honum fannst ýmsar verklegar framkvæmdir of litlar, að mig minnir, hann vildi ekki lækka til landbúnaðarins, en hann taldi fært að lækka útgjöld til utanríkisþjónustunnar. Það var aðallega það, sem hann nefndi, og það voru 6 millj. kr. Og ég geri ekki ráð fyrir því, að hv. stjórnarandstæðingar geti nú frekar en þá bent á verulegar upphæðir, sem þeir telja að megi spara í fjárl., og þó væri, ef þetta verður tekið af ríkissjóði, við skulum segja 500 millj. á ári, ekki nema um tvennt að ræða, láta vera greiðsluhalla á fjárl. eða útvega nýtt fé, og þetta nýja fé yrði að taka af þjóðfélagsborgurunum í einhverju formi, í hækkuðum tollum eða beinum sköttum. Og alveg er það víst, að ef fjárl. væru afgreidd með greiðsluhalla, gæti það nú ekki gengið til lengdar, og þá þyrftum við ekki að tala um það að fá lán erlendis til vegagerðar eða annarra framkvæmda. Þá væru öll okkar fjármál og efnahagsmál komin í hreint öngþveiti. Og við þyrftum ekki að leita til opinberra aðila erlendis, hvorki alþjóðastofnana né prívatstofnana, um lán. Til þess að hafa traust erlendis, verðum við að reyna að hafa okkar fjármál í lagi og styrkja aðstöðuna út á við, eins og núv. ríkisstj. hefur gert, og það er þess vegna, sem við tölum um það að fá lán til vegagerðar og annarra framkvæmda. Það er þess vegna, sem það hefur tekizt, af því að núv. ríkisstj. hefur áunnið sér aftur það traust, sem Ísland þarf að hafa út á við.
Eins og ég hef áður lýst hér á Alþ., er starfandi svokölluð hraðbrautanefnd, og það er nú unnið að því að undirbúa hraðbrautagerð. Vegamálastjórnin hefur látið fram fara í sumar athuganir á þessu og á næsta ári verður haldið áfram undirbúningi að hraðbrautagerð, og það er okkar von, að í árslok 1968 verði þessi undirbúningur kominn það langt, að það megi bjóða út framkvæmdir í hraðbrautum fyrri hluta árs 1969 og byrja á hraðbrautagerð á því ári.
Ég held, að það sé nú ekki ástæða til að hafa öllu fleiri orð um þetta frv., sem vitanlega fer til n., en ég gat ekki stillt mig um það að draga hér fram nokkrar staðreyndir og sýna fram á það, að þótt sagt sé hér í grg. fyrir þessu frv., að framsóknarmenn hafi áður og nú mestan áhuga fyrir vegagerð í landinu og þeir hafi helzt látið þessi mál til sín taka, stangast það á við þær staðreyndir, sem opinber gögn hafa að geyma. Og um leið og ég geri það, efa ég ekkert áhuga hv. framsóknarmanna um það að fá meira fjármagn til vegagerðar í landinu heldur en yfir er að ráða, þótt það hafi mikið aukizt, en ég held þó, að af öllum, sem lesa þetta frv. og hlusta á þetta tal, sem er líkt og hjá hv. 1. flm., sé það nú tæplega tekið alvarlega. Það verður, um leið og gert er ráð fyrir að taka hundruð millj. af ríkissjóði, sem ráðstafað er á fjárl., vitanlega að gera ráð fyrir því að ná þessu fé annars staðar með tollum eða sköttum, og það er það, sem ég býst nú við, að standi í mörgum hv. þm. að gera. Og þess vegna er málið ekki eins einfalt og hv. 1. flm. frv. vildi vera láta.