23.11.1967
Neðri deild: 21. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í C-deild Alþingistíðinda. (2412)
54. mál, gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri
Flm. (Bragi Sigurjónsson):
Herra forseti. Eins og ég gat um, þegar ég mælti fyrir frv. til l. um breyt. á l. um gjöld til holræsa og gangstétta í kaupstöðum öðrum en Reykjavík og Akureyri, átti að fylgja því jafnframt frv. til l. um breyt. á l. um gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri. Fyrir mistök var það ekki lagt fram þá, en hefur síðan komið fram og liggur nú fyrir og er algerlega hliðstætt hinu, sem áður var flutt, þannig að það, sem ég mælti þá fyrir hinu frv., lýtur alveg að þessu, sem nú liggur fyrir.
Ég sé því ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv. til breyt. nú, en óska eftir því, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn., þar sem hitt liggur fyrir til meðferðar.