05.12.1967
Neðri deild: 34. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 598 í C-deild Alþingistíðinda. (2416)

68. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu

Flm. (Björn Pálsson):

Herra forseti. Ástæður fyrir því, að ég flyt þetta frv., eru einkum tvær: Í fyrsta lagi sú, að lög þessi eru brotin, eins og allir vita, og þau eru brotin af því að viðkomandi aðilar telja, að það sé nauðsyn fyrir þá til að geta rekið sinn atvinnuveg. Í öðru lagi tel ég, að það sé nauðsynlegt að gera breytingar á l. um hann gegn botnvörpuveiðum og flotvörpu, vegna þess að það eru vissir hlutar landsins, sem ekki brjóta l., en ég tel, að það sé lífsnauðsyn fyrir þá að fá breytingar gerðar á l., til þess að atvinnuskilyrði þeirra séu sæmileg.

Við vitum það hér sunnanlands, að það er meira og minna veitt í landhelgi, og skipstjórar hafa hvað eftir annað verið dæmdir í sektir fyrir landhelgisbrot. Sektirnar hafa ekki verið borgaðar. Síðast í vetur var þeim skrifað og hótað, að þeir yrðu settir í fangelsi, ef þeir greiddu ekki. Ég held, að það hafi nú verið hætt við þær framkvæmdir, en þeir voru a.m.k. margir smeykir við þetta, og í sjálfu sér hlýtur öllum að vera það ljóst, að þetta er ekki eðlileg löggjöf. Annað hvort er að haga löggjöfinni þannig og fylgja því eftir, að hún sé ekki brotin eða breyta henni, þannig að það þurfi ekki að brjóta hana.

Ég hef talað mikið um þetta við menn, sem þekkja vel til veiða hér sunnanlands og eins til hrygningarsvæðanna. Þeir telja, að það séu viss svæði, sem ekki sé saknæmt að veiða á nærri ströndinni, en aftur séu önnur svæði, sem sé mjög óhagkvæmt vegna hrygninganna að veiða á. Ég álít, að þetta eigi í samráði við fiskifræðinga að rannsaka og veita skynsamlegar undanþágur fyrir þessum veiðum. Einnig er þetta fyrir Norðurlandi. Sérstaklega er það í mínu kjördæmi, að kauptún liggja þó nokkuð langt frá miðunum. Smábátar eiga erfitt með að sækja á miðin, nema þá á vissum árstímum, og ég hygg, að eina ráðið til þess að afla þessum kauptúnum, sem lifa meira og minna á sjávarafla norðanlands, a.m.k. á Norðurlandi vestra, viðurværis, sé að leyfa togveiðar að vissu marki. En ef á að nota 50–100 tonna báta, hafa þeir ekki aðstöðu til að fiska á miklu dýpi. Einkum er það þó, þegar fer að styttast dagur og veður að verða misjöfn, sem þetta er ákaflega örðugt.

Ég er sannfærður um það, að það er að mestu leyti klaufaskapur, að atvinnuástand í sjávarþorpunum á Norðurlandi v. er ekki í lagi, m.a. vegna þess, að við höfum ekki hentugar veiðiaðferðir og hagkvæma skipastærð. Það hefur verið mokað í þessa landshluta mörgum millj. á ári í alls konar beinan og óbeinan stuðning við atvinnureksturinn. Frystihúsunum hefur verið lánað, bátarnir hafa verið styrktir, fiskurinn hefur verið borgaður hærra verði en útflutningsverðmæti hans er, og ekkert dugir. Og þetta er bara af því, að það er ekki tekið réttum tökum á málinu. Fénu er eytt jafnóðum í hallarekstur, og það er ekkert vit í þessu.

Það er alveg sama, þó að það sé verið að styrkja frystihús með nokkrum hundruð þúsund kr. Þau geta aldrei lifað eða verið rekin á heilbrigðan hátt nema fá hráefni, þannig að þau geti nokkurn veginn staðið undir sér. Ég get bara sagt ykkur dæmi. Það er rækjuveiði núna í Húnaflóa. Það gekk illa fyrst að pilla rækjuna. Þeir, sem við hana unnu, þóttust hafa of lítið kaup, meðan þeir kunnu ekki vinnuna. Þeir sigruðust á þessum örðugleikum á Hólmavík. Þeir unnu rækjuna í fyrravetur. Það bjargaði algerlega atvinnulífinu þar. Stúlkurnar voru farnar að fá 60–70 kr. á tímann, þegar þær voru búnar að æfa sig, farnar að kunna verkið og það, sem meira var, frystihúsið hafði 2 millj., að mér er sagt, upp í sinn rekstrarkostnað fyrir að vinna rækjuna. Hugsið þið ykkur þann mun, ef það hefði ekki haft rækju. Vegna þess að þeir höfðu rækjuna, gat frystihúsið borið sig, annars ekki. En það er þannig, að þau eru fjárvana. Það vantar kapítalið til þess að geta komið hlutunum í lag, sem þarf að vera. Það þarf t.d. að hafa vél til þess að sortera rækjuna. Það er ekki eðlilegt, að fólkið vilji vinna við litlu rækjuna fyrir sama kaup og þá stærri, og hún kostar nú svona 40 þús., og annað það, að kjarkurinn má ekki vera lamaður af rekstrarfjárskorti.

Undirstaðan undir öllu er það, að þeir, sem afla fisksins, eiga fyrst að fá hann borgaðan. Ef einstaklingarnir, sem búa í þessum kauptúnum, hafa ekki efni á því, að hafa fiskvinnslustöðvarnar þannig fjárhagslega stæðar, að þær geti greitt fiskinn jafnóðum, leggja menn þar ekki upp. Ef undanþágur væru leyfðar með togveiði fyrir vissa bátastærð og frystihúsin og/eða fiskvinnslustöðvar væru undirbyggðar þannig fjárhagslega, að þær gætu greitt hráefnið, er ég sannfærður um að margir togbátar sunnan af landi kæmu norður og öfluðu þar yfir sumartímann. Það hagar þannig til hér á landi, að togveiðar eru hagstæðari fyrir Suðurlandi að vetrinum en mikið hagstæðari fyrir Norðurlandi að sumrinu. Þetta vita allir, sem til þekkja, þannig að það væri mikið hagkvæmara fyrir togbátana að vera fyrir norðan að sumrinu. Þar er miklu meiri fiskur, og hér geta þeir ekki veitt nema upp undir landsteinum að sumrinu, það er vitað mál. Þeir hafa margir sagt mér það. Ég hef spurt þá að því. Því eruð þið að veiða í landhelgi? Þeir segja: Við bara fáum ekkert utan við landhelgina.

Það getur vel verið, að það væri æskilegt að kaupa stóra togara, nýtízkutogara. Ég skal ekki þræta um það. En hitt verðum við alveg að gera okkur ljóst, að þeir bera sig ekki, nema við getum selt fiskinn fyrir svipað verð og nágrannaþjóðir okkar. Bretar gera út frá sinni heimabyggð og þurfa ekki að borga toll. Við þurfum að borga vissa toll, og við þurfum að hafa þessi viðskiptasambönd í þannig lagi, að við getum selt fyrir svipað nettóverð og þeir, til þess að það beri sig. Ég hef sannar sögur af því, að Bretar hafi engan tekjuafgang af sínum nýtízkutogurum. Þeir gera ekki betur en bera sig, ef þeir gera það. Þess vegna held ég, að fyrir byggðirnar, hin dreifðu þorp og bæjarfélög kringum landið, verði víðast hvar hagkvæmara að hafa togbáta en stór togskip. Og við vitum það, að það eru bátarnir, sem afla fólkinu lífsviðurværis í flestum kauptúnunum. Togararnir gera meira og minna að því að sigla til Bretlands með fiskinn óunninn, en það eru bátarnir, sem leggja upp og skapa vinnuna. Og það er ótrúlega mikil vinna í kringum hvern bát.

Undanþága þessi, sem ég fer fram á að gerð verði, er í þremur liðum. 1. Hafrannsóknastofnunin og Fiskifél. Íslands mæli með því að heimila togveiði og hafi gert till. um takmörkun veiðisvæða og tölu þeirra fiskibáta, sem veita á undanþágu. 2. Sveitarstjórnir eða bæjarstjórnir þeirra kauptúna eða kaupstaða, sem að veiðisvæðunum liggja, mæli með að veita slíkar undanþágur og lýsi yfir því, að vöntun sé á hráefni vegna atvinnuástands viðkomandi staðar. 3. Að ákveðið sé, þegar bátum er veitt undanþága til togveiða, hvar afli skuli lagður upp til vinnslu og við það miðað, að verkun aflans fari fram, þar sem um atvinnuskort er að ræða.

Ég álít, að í þessum þremur liðum sé tekið það, sem nauðsynlegt er, fram í þessu efni. Í fyrsta lagi það, að þetta er gert í samráði við Fiskifélag Íslands og Hafrannsóknastofnunina, og þess vegna ættu þessar veiðar ekki að vera skaðlegar. Ég hef rætt þetta mál ýtarlega við þá aðila, sem veita þessum stofnunum forstöðu, og frv. var upphaflega flutt í samráði við þá, og ég skil ekki, að skoðun þeirra hafi neitt breytzt síðan ég talaði við þá, þannig að það ættu ekki að vera leyfðar togveiðar annars staðar en þar, sem þeir telja skaðlaust vegna fiskistofnsins.

Ég ræddi ýtarlega um þetta við aðalfiskifræðinginn hjá Hafrannsóknastofnuninni, og hann taldi, að togveiðar væru ekkert skaðlegri en aðrar veiðar. Vitanlega þarf að athuga það að hafa möskvastærðina hæfilega. Hún má ekki vera of lítil. En að öðru leyti taldi hann það, að togveiðar væru á engan hátt skaðlegri fyrir fiskistofninn en aðrar veiðar og ýmsir halda því nú fram, að netaveiði sé hættulegust. Í öðru lagi, á að bera þetta undir sveitar- og bæjarstjórnir þannig, að ef þær óska ekki eftir því, verði þessar veiðar ekki leyfðar. Og í þriðja lagi sé heimilt að setja skilyrði fyrir því, hvar aflann eigi að leggja upp, þannig að þetta ætti að verða til þess að tryggja það, að atvinna héldist sæmileg þar sem togveiðarnar eru leyfðar. Ég álít, að allan þennan atvinnurekstur þurfi að skipuleggja sem bezt. Það þurfa vafalaust að vera einhver takmörk fyrir því, hve mörgum bátum eru leyfðar togveiðar. Þess vegna væri eðlilegt að heimila undanþágu fyrir vissa bátatölu, og í öðru lagi þarf að ákveða veiðisvæðin. Í þriðja lagi er ástæðulaust að bátar séu að veiða með togveiðum, ef forráðamenn sveitarfélaganna telja, að þess sé ekki þörf, það sé hagkvæmara að veiða með öðrum veiðitækjum.

Það, sem veldur því, að hagkvæmara er að veiða í tog en á línu er m.a. það, að það er hægt að komast af með 5 manna áhöfn á togbát, en til þess að beita og gera út venjulegan línubát af 75–100 tonna stærð, skulum við segja, þarf 11 menn. Það er krafizt þess yfirleitt, að það sé kokkur með, og 5 menn þurfa að beita, og 5 þurfa að vera á bátnum fyrir utan kokkinn. Nú er það orðið svo víða, að það er orðið mjög erfitt að fá menn til að beita, og að sumrinu má heita, að það sé ógerlegt að fá menn til að stunda beitingu. En togveiði norðanlands er einkum hagkvæm að sumrinu og að það skuli vera atvinnuleysi norðanlands er alveg óþarfi, vegna þess að það ætti að vera hægt að veiða nægilega mikið í togbáta, ef vissar undanþágur væru veittar allan tímann, nema um háveturinn. Mér er það alveg ljóst af kynnum mínum af veiðum fyrir norðan, að í febrúarmánuði er um mjög lítinn fisk að ræða þar, og jafnvel fram í marz. En þó að sjómenn hafi frí í 1–2 mánuði yfir háveturinn, kalla ég það ekki atvinnuleysi, ef þeir hafa nóg að gera allan hinn tímann. Og satt að segja álít ég, að sjómönnum veiti ekkert af því að hafa 1–2 mánuði til að hvíla sig á ári.

Í öðru lagi er það, sem togbátar hafa fram yfir báta, sem stunda aðrar veiðar, að það er hægt að stunda togveiðar í 8–10 mánuði árlega, en línuveiðar er tæplega hægt að stunda nema í 3 mánuði. Það er svona frá því í október og fram í janúar. Það er hentugur tími fyrir línubáta fyrir norðan. Hér fyrir sunnan má kannske segja, að væri hægt að stunda línu allan veturinn, en afli er nú oft rýr svona fram eftir. Togbátar hafa mun meiri möguleika til þess að bera sig fjárhagslega en línubátar. Aflinn verður jafnari og það er hægt að leita nýrra leiða til þess að koma verðmæti sjávaraflans í meira verð en oft er gert. Yfirleitt fáum við góðan fisk af togbátum, betri en af netabátum. Og í fjórða lagi álít ég, að togbátarnir hafi það fram yfir línubátana, að það sé eina leiðin til að auka fiskafla verulega í kauptúnum og kaupstöðum á vesturhluta Norðurlands. Ég álít, að það sé eina leiðin.

Nú hefur reynslan sýnt það, að útgerðarmenn hér sunnanlands, og jafnvel hér sunnan til á Vesturlandi, telja, að það sé ógerlegt að gera þessa báta út, nema með togveiðum. Reynslan hefur sýnt þetta, og ég álít ekki sæmandi í raun og veru fyrir Alþ. og ríkisstj. að haga löggjöfinni þannig, að hún sé þverbrotin ár eftir ár. Það má deila um það, hvaða stærð af bátum eigi að veita undanþágu. Ég get vel gengið inn á það, að það ætti að breyta eitthvað þeim stærðarhlutföllum, sem ég legg hér til, en það er aukaatriði. Það væri e. t. v. rétt að miða við 120 tonn, gæti komið til mála að miða við 150 tonn, en það er ekkert aðalatriði. Aðalatriði er, að löggjöfinni sé breytt í það horf, sem skynsamlegt er og hagkvæmt. Og ef, eins og fiskifræðingar telja, það er á engan hátt skaðlegt fyrir fiskistofninn að veiða í tog, sé ég ekki, að það sé nein ástæða til þess að hafa þessar hömlur jafnstrangar og þær eru.

Ég álít, að atvinnuástandið í vissum kauptúnum, m.a. í mínu kjördæmi, sé óviðunandi, eins og nú standa sakir. Ég álít, að þetta sé hagkvæmasta leiðin til að bæta úr því. Vitanlega þurfa að fylgja því aðrar ráðstafanir, eins og ég hef að nokkru leyti drepið á. Það þarf að veita skynsamlegu fjármagni til þessara staða, og það er ekki nóg að veita því þangað. Það þarf að sjá um, að því sé skynsamlega varið. Það þarf að byggja atvinnulífið upp á skynsamlegan og heilbrigðan hátt. Ef það er gert, er enginn vandi að efla atvinnulíf í þessum stöðum og með meiri hráefnisöflun fylgja alls konar framkvæmdir, fólkið sezt þarna að, og það þarf að byggja yfir sig hús. Iðnaður getur vaxið í skjóli aukins hráefnis, og það opnast ótal möguleikar, sem ekki eru fyrir hendi, eins og sakir standa núna. En eitthvað verður að gera, og reynslan hefur sýnt, að undanfarin ár hefur það verið þannig, að það hefur verið lagt fé til þessara staða svo að millj. kr. skiptir, en engan veginn komið að því gagni, sem það hefði getað, ef rétt hefði verið að farið.

Til viðbótar við þetta er það, að þegar deyfð er yfir atvinnulífinu, verður það oft, að framtakssömustu mennirnir flytjast í burtu, og eftir verða þeir, sem minna framtak hafa, þannig að allt miðar í sömu áttina. Það er mikið um það hjá okkur hér úti í dreifbýlinu, að einmitt þeir menn, sem hafa kannske hvað mestar gáfurnar og dugnaðinn, fara í skóla, verða langskólagengnir, og koma aldrei aftur, og það nægir ekki, að þeir flytji hingað suður, þeir fara til annarra landa og setjast þar að. Þetta er ákaflega hættuleg þróun og skaðleg fyrir hinar dreifðu byggðir. Og ég held, að það þurfi að breyta þessum áróðri, þannig að menn fara að sjá, að það er víðar hægt að verða glaður og ánægður og hafa heilbrigða sál í heilbrigðum líkama en hér í höfuðstaðnum. Og satt að segja dreg ég í efa, að þroskaskilyrði ungra manna séu meiri hér en úti á landsbyggðinni. En þetta er að verða eitt allra hættulegasta atriðið fyrir okkur, sem búum úti í dreifbýlinu. Og það, sem þarf að stuðla að, m.a. með skynsamlegri ráðstöfun á fjármagninu, er að gera þessum mönnum, sem eru efnilegir og framgjarnir, kleift að njóta sín úti í dreifbýlinu, og þá þarf að styðja þá fjárhagslega, til þess að þeir geti notið sín annars staðar, en þurfi ekki að flytja hingað, þar sem þéttust er byggðin, eða jafnvel til annarra landa. Það er ekki von, að ungir og efnilegir menn vilji taka að sér að veita fyrirtækjum forstöðu, sem er algerlega vonlaust að reka fjárhagslega, þar sem rekstrarfjárskorturinn er það mikill, að það er engan veginn hægt að snúa sér við. Þetta þarf að skipuleggja og athuga allt saman. Ég gerði mér talsverðar vonir um, að Efnahagsstofnunin eða Jónas Haralz mundi gera till., sem að gagni kæmu í þessum efnum, og ég vona, að hann geri það, en til framkvæmdar er þetta ekki komið enn. En þetta þolir bara ekki bið. Það þarf að rannsaka þessi mál rækilega. Það þarf að athuga, hvað rétt er að gera, og það þarf að veita nægilegt fé til þess, að það sé hægt að framkvæma þá hluti, sem þörf er á, þannig að reksturinn geti borið sig. Og eins og ég tók fram áðan, tel ég, að fyrsta skilyrðið sé, að á einhvern hátt séu fiskvinnslustöðvarnar efldar þannig, að þær geti staðið í skilum og keypt nauðsynleg tæki til þess að hægt sé að vinna hráefnið á hagkvæman hátt og greiða það skilvíslega. En það hefur vantað mikið á, að þetta yrði. Vera má, ef ekki fást hæfir menn til að veita þessum fyrirtækjum forstöðu, að ríkisvaldið verði að taka þetta í sínar hendur, eða einhver stofnun, sem ríkið á, og reka fyrirtækið. En það er náttúrlega gersamlega ómögulegt að reka atvinnu í neinu byggðarlagi, þar sem ekki eru hæfir menn til að sjá um reksturinn. Enda sjáum við það í þeim byggðarlögum, þar sem eru menn, sem hafa haft sæmilegt lánstraust, þannig að þeir hafa fengið fyrirgreiðslu í bönkunum og hafa hæfileika til að reka hlutina, gengur allt vel, en þar sem þetta vantar, gengur ekki neitt.

Ég legg til, að þessu frv. verði vísað til sjútvn. Ég vona, að það verði rætt þar. Ég flutti þetta frv. í fyrra, og það var aldrei afgr. í n. Í sjálfu sér eru það engin vinnubrögð hjá þinginu, þegar komið er með frv., að ræða það ekki og afgreiða það. Ef það eru vitlausar ráðstafanir, sem lagt er til, að gerðar séu, er náttúrlega sjálfsagt að sýna fram á það, hrekja það og fella frv. Það er yfirleitt ákaflega vafasöm regla hjá stjórnarliðum, að þó að einhver úr stjórnarandstöðunni komi með frv., sem eitthvert vit er í, að salta það þá bara, hreyfa því aldrei meira. Það eru ekki þingræðisleg vinnubrögð.

Ég vona því, að þetta frv. verði tekið til athugunar, og verði afgr. í n. Ef ástæða er til að breyta því, sem vel má vera, og ég get vel gengið inn á breytingar á því, er ekki nema sjálfsagt, að þær séu gerðar, en ég álít, að það sé svo aðkallandi að gera ráðstafanir í þessu efni, að það megi ekki dragast lengur. Einn þm. úr stjórnarliðinu sagði mér, að þetta væri í athugun hjá ríkisstj. Það hefur vafalaust verið í athugun áður hjá henni, og ég veit það, að Jónas Haralz slær því fram í Norðurlandsáætluninni, að það geti verið mjög athugandi að leyfa undanþágur fyrir togbáta í landhelgi, en úr framkvæmdum hefur ekki orðið. En ég álít, að þetta megi bara ekki dragast. Þetta er í raun og veru algert siðleysi, hvernig þetta er. Menn þverbrjóta l., menn eru sektaðir, en borga ekki sektirnar. Yfir þeim vofir fangelsi, ef þær verða ekki greiddar, og það ætti öllum að vera ljóst, að þetta hefur ekki hagkvæm áhrif á viðkomandi skipstjóra og útgerðarmenn. Vitað er, að þeir geta ekki borgað sektirnar, og þá er ekkert nema fangelsi, sem bíður þeirra. Og fangelsismál okkar eru ekki í því lagi, að það sé nú rúm fyrir mikinn hluta af skipstjórum á bátum af þessari stærð hér sunnanlands, þannig að það ber allt að sama brunni. Og fyrir okkur, sem búum á Norðurlandinu, a.m.k. vesturhluta Norðurlands, tel ég, að þetta sé alger lífsnauðsyn, til þess að atvinnulíf geti verið í lagi. Ég veit, að þetta horfir allt öðru vísi við fyrir Austfirðinga og Vestfirðinga. Veiðisvæðið fyrir utan Vestfirði er þannig lagað, að það hentar ekki fyrir togbáta, og það er þá ástæðulaust fyrir þá að stunda togveiðar, og enda þótt þetta frv. yrði samþ., yrði það algerlega undir þeim sjálfum komið, hvort þeir gera það eða gera það ekki. En fyrir sunnan land og norðan álít ég, að það sé nauðsynlegt að gera breyt. á þessum l.