29.02.1968
Neðri deild: 68. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 681 í C-deild Alþingistíðinda. (2485)
130. mál, þingsköp Alþingis
Flm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Hinn 29. apríl árið 1966 samþ. Alþ. svo hljóðandi till. til þál. um endurskoðun l. um þingsköp Alþ.
„Alþingi ályktar, að 7 manna mþn., kosin af sameinuðu Alþingi, skuli falin endurskoðun gildandi l. um þingsköp Alþingis.“
Á Alþ. 5. maí 1966 var síðan kjörin 7 manna mþn. til þess að endurskoða lög um þingsköp Alþ. Starfaði hún síðustu 3 mánuði þessa árs og nokkuð fram á árið 1967. Var n. sammála um að taka þingsköpin í heild til almennrar endurskoðunar. Var í því skyni aflað margvíslegra gagna frá nágrannalöndunum og þau höfð til hliðsjónar í sambandi við ýmsar þær hrtt., sem n. síðan varð sammála um.
Frv. það, sem hér liggur fyrir um breyt. á l. nr. 115 19. nóv. 1936 um þingsköp Alþ., er ávöxtur af starfi fyrrgreindrar n. Stóð n. sameinuð að till. sínum, en í henni voru rædd ýmis önnur atriði en þau, sem felast í frv., en um þau varð ekki fullkomin samstaða. N. taldi hins vegar mikilvægt, að þær till., er hún léti frá sér fara, kæmu frá henni óskiptri. Var það álit hennar, að æskilegt væri, að sem mest samstaða ríkti á Alþ. um breytingar á þingsköpum. Þegar n. hafði lokið starfi sínu, sendi hún till. sínar til forseta Alþ. og hæstv. ríkisstj. Gafst ekki tóm til að leggja frv. fyrir síðasta þing, en nú er það flutt samkv. ósk allra forseta þingsins. Er það skoðun flm., sem einnig áttu sæti í mþn., að nauðsyn beri til að lögfesta þær brtt., sem mþn. gerði till. um. Að sjálfsögðu koma ýmis fleiri atriði til álita. Verður það hlutverk þeirrar þn., sem fjallar um málið, og síðan hv. þm. og þingdeilda að kryfja þetta mál í heild til mergjar. Væri æskilegt, að endurskoðun þingskapa yrði lokið á þessu þingi, ef tími vinnst til.
Helztu nýmæli, sem mþn. gerði brtt. um og felast í frv., eru þessi:
1. Lagt er til, að kjörbréfanefnd verði kosin fyrir allt kjörtímabilið. Í 1. gr. gildandi þingskapa eru ákvæði um prófun kjörbréfa og kosningu þm. í þingbyrjun. Ganga þm. í þrjár jafnar deildir meðan til vinnst. Gildir það jafnt á öllum þingum kjörtímabilsins og þótt eigi þurfi að rannsaka nema eitt kjörbréf. Hér er ákvæðinu breytt þannig, að aðeins skuli skipað í kjördeildir á fyrsta þingi eftir hverjar alþingiskosningar. Annars rannsakar kjörbréfanefnd kosningu og kjörgengi, eins og nú er á öðrum tímum en í þingbyrjun. Þykir þetta hentugra. Til þess að unnt sé að hafa þennan hátt á, er kjörbréfanefnd kosin fyrir allt kjörtímabilið, og er 8. gr. þingskapa breytt í þá átt.
2. Lagt er til, að ef sæti Ed.1þm. losnar og varamaður tekur sæti á þingi, skuli sá þingflokkur, er skipa á sætið, tilnefna mann úr sínum flokki til Ed. Þessi breyting er í samræmi við síðustu kjördæmabreytingu og breytingu á kosningalögum. Eftir að allir þm. hafa fengið varamann, fer ekki fram aukakosning, þó að sæti Ed.-þm. losni. Eðlilegt þykir, að sama regla haldist og nú gildir, ef sæti Ed.-manns losnar við andlát, afsal þingmennsku eða missi kjörgengis, þá tilnefni þingflokkur sá, er skipa á sætið, eftir reglu 7. gr. þingskapa einn mann úr sínum flokki til Ed.
3. Lagt er til, að nm. í utanrmn. verði bundnir þagnarskyldu um þá vitneskju, er þeir fá í n., ef formaður eða ráðh. kveður svo á. Einnig er lagt til, að utanrmn. skuli vera ríkisstj. til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál, jafnt milli þinga sem á þingtíma. Ákvæðið er takmarkað við meiri háttar utanríkismál. Gildandi þingsköp taka til utanríkismála án takmörkunar. Hins vegar þótti n. rétt að láta ákvæðið aðeins taka til meiri háttar mála. Ákvæðið er að því leyti viðtækara en nú er, að það gildir jafnt á milli þinga sem á þingtíma.
4. Sett eru ný og fyllri ákvæði um skýrslur, sem ráðh. óskar að gefa Alþ., og rétt þm. til að óska slíkra skýrslna. Ekki er skylt að hafa umr. um slíkar skýrslur, nema ráðh. og 1. flm. þeirra óski þess. Ekki er heldur gert ráð fyrir, að ályktanir séu gerðar í sambandi við umr. um skýrslur. Gildir það, hver sem á frumkvæðið að skýrslugerðinni.
5. Ákvæðin um fsp. í Sþ, eru gerð fyllri en nú er og stefnt að því að gera umr. um þær nokkru styttri og hnitmiðaðri. Er lagt til, að munnlegar fsp. skuli teknar fyrir á sérstökum fundi í sameinuðu Alþ. þannig, að þær dragi ekki um of tíma frá öðrum þingmálum, eins og mjög hefur þótt við bera. Lagt er til, að ræðutími ráðh. verði takmarkaður við 10 mínútur í fsp.- tíma í senn, og að hann tali að jafnaði ekki oftar en tvisvar. Til mála kæmi einnig að heimila ekki öðrum þm. en fyrirspyrjendum að taka til máls um fsp. En um það atriði hefur n. ekki flutt neinar brtt. Þá er það nýmæli tekið upp, að þm. geti borið fram skrifl. fsp., er ráðh. svarar siðan skriflega. Forseti sendir fyrirspyrjanda svarið. Skal prenta fsp. og svar í Alþingistíðindum, en aðrir þm. geta einnig fengið svarið, ef þeir óska.
6. Í sambandi við útvarps- og sjónvarpsumr. er lagt til, að það nýmæli verði tekið upp, að útvarpa skuli innan tveggja vikna frá þingsetningu stefnuræðu forsrh. og umr. um hana. Er þá gert ráð fyrir, að slíkar umr. komi í staðinn fyrir útvarp fjárlagaræðu og umr. um hana, sem þótt hefur þungt í vöfum. Þá er lagt til, að á síðari hluta hvers þings skuli útvarpa almennum stjórnmálaumr., er standi í eitt kvöld. Skulu þessar umr. koma í staðinn fyrir eldhúsdagsumr. og verða því allmiklu styttri en þær hafa verið, — standa aðeins eitt kvöld í stað tveggja, eins og nú tíðkast. Þá er lagt til, að almennar útvarpsumr. verði styttar verulega. Lagt er til, að útvarpsumr. verði aðeins hálftími fyrir hvern þingflokk, 20 mínútur í fyrri umferð og 10 mínútur í þeirri síðari. Í gildandi þingsköpum fær hins vegar hver flokkur 45 mínútur til umráða.
Raddir voru uppi um það í mþn. að stytta útvarpsumr. enn meir en hér er gert ráð fyrir, en um það náðist ekki samkomulag. Kemur til kasta Alþ. að skera úr um það atriði. Í sambandi við útvarpsumr. er lagt til, að það nýmæli verði tekið upp, að ef ríkisútvarpið óskar að útvarpa umr. frá Alþ. eða hluta af umr., verði það heimilað að höfðu samráði við forseta og formenn þingflokka. Útvarp umr. eða hluta hennar samkv. þessu ákvæði færi fyrst og fremst eftir fréttagildi hennar. N. aflaði sér ítarlegra upplýsinga um útvarp frá þjóðþingum margra landa. Fylgir skýrsla um þær upplýsingar í áliti mþn. Af henni kemur það í ljós, að útvarp er með mjög misjöfnum hætti frá hinum ýmsu þjóðþingum. Nýja-Sjáland og Ástralía hljóðvarpa þingfundum í heild. Annast sérstakar sendistöðvar í helztu borgum landsins þetta útvarp. Hefur þetta skipulag ríkt í Nýja-Sjálandi allt frá árinu 1936. Einnig er hátíðlegum athöfnum frá þingum þessara landa sjónvarpað, en um almennt sjónvarp frá þingfundum er þar ekki að ræða.
Á Norðurlöndum hefur lengi verið hljóðvarpað frá þjóðþingum. Er þar útvarpað almennum þingstörfum og umr. í þingunum, og þingfréttir í hljóðvarpi og sjónvarpi eru mjög fullkomnar. Yfirleitt hafa ríkisútvörpin á Norðurlöndum mjög rúma heimild til þess að taka upp umr. í þingunum og útvarpa þeim að vild. Sjónvarp hefur einnig farið mjög í vöxt á síðustu árum frá þjóðþingum Norðurlanda.
Bretar hafa hingað til ekki leyft hljóðvarp, sjónvarp, myndatökur eða kvikmyndatökur í deildum brezka þingsins. Þó var þingsetningu þar nýlega sjónvarpað og myndir teknar af þeirri athöfn í fyrsta sinn. En mikið hefur verið rætt um það í Bretlandi undanfarin ár, hvort ekki sé rétt að breyta þessu og taka upp útvarp frá þinginu í einhverju formi. Hefur n. verið skipuð til þess að athuga þetta mál, og hefur hún ekki alls fyrir löngu skilað mjög ítarlegu nál.
Í Bandaríkjunum er venjulegum fundum öldungadeildar eða fulltrúadeildar bandaríska þingsins ekki hljóðvarpað eða sjónvarpað. Sameiginlegum fundum deildanna, þegar tignir gestir eða forseti landsins ávarpa þingið, hefur hins vegar verið útvarpað eða sjónvarpað á síðari árum. Nefndafundum í Bandaríkjaþingi er hins vegar iðulega sjónvarpað og útvarpað.
Yfirleitt má segja, að útvarp og sjónvarp frá þjóðþingum fari mjög í vöxt um allan hinn lýðræðissinnaða heim. Er það talið nauðsynlegt til þess að gefa þjóðunum betra tækifæri til þess að fylgjast með störfum löggjafarsamkoma sinna.
Samkv. frv. þessu er gert ráð fyrir, að ákvæðin um hljóðvarp frá Alþ. skuli gilda um sjónvarp eftir því, sem við verður komið, en það var skoðun mþn., að ekki væri unnt á þessu stigi málsins að setja ítarleg ákvæði um sjónvarp frá Alþ. Yrði fyrst að fá reynslu í þessu eini. Talið er sjálfsagt, að sjónvarp frá þingfundum standi mun skemur en hljóðvarp frá þingfundum.
Af öðrum breytingum, sem gert er ráð fyrir í frv. þessu, má nefna, að lagt er til, að þm. verði kenndir við kosningu eða kjördæmi sitt að viðbættu nafni. Fram til þessa hafa þm. um langt árabil aðeins verið kenndir við kjördæmi eða kosningu, en ekki nefndir með nafni. Undantekning var þó gerð við útvarpsumr. Þá á þm., sem beinir máli sínu til annars þm., að nefna hann með nafni. Eftir síðustu kjördæmabreytingu verður þetta ávarpsform nokkru erfiðara í framkvæmd, þar eð kjördæmakjörnir þm. og landsk. hafa hver sitt númer. Þykir mörgum þetta hvimleitt og stirt. Þess vegna er gert ráð fyrir fyrrgreindri breytingu.
Þá er lagt til, að smávægileg breyting verði gerð á ákvæðunum um afbrigði frá þingsköpum. Til afbrigða frá þingsköpum þurfti áður ekki aðeins samþykki Sþ. eða deildar, oft aukinn meiri hl., heldur og leyfi ráðh. Árið 1952 var ákvæðunum um afbrigði breytt í það form, að það nægði, ef ráðh. neitaði ekki um afbrigði. Þetta ákvæði um rétt ráðh. til að neita afbrigði mun ekki hafa verið notað, og þykir því ekki ástæða til að halda því. Leggur því n. til, að það verði fellt niður.
Lagt er til, að nokkrar breytingar verði gerðar á ákvæðum þingskapa um það, hvenær beita skuli hlutfallskosningu. Er lagt til, að forseti geti ákveðið hlutfallskosningu, þegar kjósa á um tvo menn eða fleiri í þd. eða Sþ. Er það í samræmi við venju í þessu efni, sem rétt þykir að lögfesta. Ákvæðið um, að 3 þm. í Ed., 6 í Nd. og 9 í Sþ. geti krafizt hlutfallskosninga, helzt óbreytt. Enn fremur er sú breyting gerð, að tekið er fram, að ef kosnir eru aðalmenn og varamenn, eigi listi, sem hlotið hefur mann eða menn kosna, rétt til jafnmargra varamanna í þeirri röð, sem þeir eru á listanum. Hér er gert ráð fyrir, að í slíkum tilfellum fái hver listi jafnmarga varamenn og aðalmenn. Til þess að tryggja þetta, þarf samtímis að kjósa varamenn og aðalmenn, en ekki fyrst aðalmenn og síðar varamenn eins og tíðkazt hefur fram að þessu.
Herra forseti. Ég hef þá minnzt á flestar þær breytingar, sem felast í frv. þessu frá gildandi þingsköpum. Það er von okkar flm., að þessar breytingar verði til gagns. Það er að sjálfsögðu á valdi Alþ. að gera ýmsar aðrar og róttækari breytingar en hér er gert ráð fyrir. En æskilegt er, að sem nánust samvinna verði um þær á milli þingflokka.
Til þess að auðvelda framgang málsins á þessu þingi færi vel á því, ef allshn. beggja þd. störfuðu saman að afgreiðslu þess. Ég leyfi mér að lokum að óska þess, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.