29.02.1968
Neðri deild: 68. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í C-deild Alþingistíðinda. (2490)
130. mál, þingsköp Alþingis
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Ég vil fyrst segja, að ég er yfirleitt á því, að n. hafi unnið gott verk og þessar breytingar, sem hún stingur upp á á þingsköpunum, séu til bóta og spor í rétta átt.
Alþ. hefur breytzt æði mikið síðan ég kom hér fyrir nokkuð löngu síðan, og eitt af því, sem er mjög áberandi í því efni, er það, hvað umr. hafa stytzt stórkostlega frá því, sem þá var. Þá var miklu meira talað. Ég vil ekki segja margfalt meira, en miklu meira. Þá þótti það t.d. sjálfsagt, þegar eldhúsumr. voru, að þreyta þær dögum saman, og ég held, að það séu engar ýkjur, að þær hafi eitt sinn komizt upp í 9 daga samfelldar umr. Og það var afar algengt, að umr. um einstök mál tóku einnig marga daga.
Sumt af þessum ræðuhöldum var víst vegna þess, hve mikið mönnum var niðri fyrir, en sumt var af því, að sá háttur var á hafður að reyna að tefja fyrir málum með því að tala mikið um þau, og það var kallað málþóf. Ég býst við því, að smátt og smátt hafi myndazt sú skoðun hér á Alþ., að þessar umr. væru um of, og menn fóru að draga heldur úr þeim, og þó breytti það mestu, að það voru sett ákvæði inn í þingsköpin, að það mætti takmarka ræðutíma, en svo var ekki áður. Síðan það ákvæði var sett í þingsköp, hefur aldrei verið málþóf á Alþ. með gamla laginu. Það datt alveg niður og mátti missa sig.
Nú ganga þessi mál í þá stefnu, að menn vilja enn stytta umr., og ég held, að flestir hafi löngun til þess að vera fremur stuttorðir og gagnorðir og er þetta ákaflega skynsamleg stofna og æskileg, að í þessa átt verði haldið. En samt sem áður má ekki setja skorður þannig, að menn geti ekki fengið að segja það, sem þeim finnst þeir þurfa að koma á framfæri, þegar mikið er um að vera, og því held ég, að það sé farsælast, að þetta þróist nokkuð af sjálfu sér með samkomulagi. Mér sýnast allar horfur á því, að það verði þannig og það þyrfti ekki að setja í þingsköp neinar frekari takmarkanir á ræðutíma en nú eru þar. Það ætti ekki að gera, a.m.k. alls ekki með ágreiningi. Reynslan er sú á síðustu árum, að löng ræðuhöld hafa, að því er ég bezt veit, aldrei valdið tjóni og aldrei neinum óeðlilegum eða verulegum vinnutöfum. Það er ekkert við því að segja, þó að menn þurfi að tala talsvert mikið, þegar um stórfelld ágreiningsmálefni er að ræða, og af og til verður að vera hægt að hafa nokkuð almennar umr. um stjórnarsteinuna og þá ávirðingar stjórnarandstæðinga o.s.frv. Slíkar umr. verða að geta átt sér stað. Mér finnst reynslan á undanförnum árum sýna það mjög glöggt, að það þurfi ekki að setja frekari ákvæði í þingsköpin til þess að takmarka ræðutíma en nú eru í þeim. Ég held, að það sé ekki rangt, að það, sem kalla mætti málþóf, hefur aldrei komið til greina, síðan ákvæðin um ræðutímann voru sett, og þau voru mjög til bóta.
Það er um tvennt að ræða í þessu efni varðandi útvarp og sjónvarp. Annars vegar þessar kappræður með gamla sniðinu, sem hæstv. forsrh. o. fl. hafa rætt hér um, og hins vegar að taka glefsur úr umr., sem hentuðu að sumu leyti betur fyrir útvarp og sjónvarp en þessar eldri kappræður eða kappræður með eldra sniðinu. Ég held, að í þessu frv. sé farin skynsamleg leið, og hún er sú að fara bil beggja í þessu efni. Ég tel, að það sé ekki skynsamlegt að hætta alveg við kappræðurnar með gamla sniðinu, en það sé hins vegar rétt, eins og hér er stefnt að með frv., að stytta þær. Ég álit, að það sé alls ekki rétt að hætta við eldhúsumr., sem sumum hafa fundizt nokkuð langdregnar, þó að þær hafi aðeins verið tvö kvöld nú upp á síðkastið. Nú á það skv. frv. að vera klippt og skorið, að þær eigi að vera eitt kvöld í útvarpinu, og það sýnist mér raunar alveg nóg og í rétta stefnu að sleppa þeim ekki, en stytta þær.
Ég er ekki sammála hæstv. forsrh. um það, að umr. eins og eldhúsumr., kappræður, við skulum segja með gamla sniðinu með niðurröðuðum ræðutíma, séu alveg eins og þær séu slitnar út úr samhengi við störf Alþ. Það er gömul tradition á Alþ. að hafa eldhúsumræður. Þær eiga að vera eins konar almenn úttekt á stjórnarstefnunni, og stjórnin tekur þá stjórnarandstæðingana út, um leið og hún ver sig. Ég tel, að þessum lið eigi ekki að sleppa, og það sé skynsamlegt, að þjóðin fái að hlusta á þetta, en sett verði eðlileg takmörk, eins og hér er gert ráð fyrir.
Eins er það um einstök stórmál, að ég held, að það sé hyggilegt að hafa ákvæðin, eins og þau eru ráðgerð í þessu frv., stytta útvarpsræðutímann frá því, sem áður hefur verið, en að hægt sé að fá slíkar umr., ef mönnum er mikið niðri fyrir, og tryggja það þá með ákvæðum í þingsköpunum, eins og hér er gert ráð fyrir, að ræðutíminn skiptist jafnt og að menn flytji mál sitt til skiptis, en í raun og veru er það ekki annað en þetta, sem ákveðið er í þingsköpunum.
Ég er mjög fylgjandi því eins og hæstv. forsrh. að breyta til og gera þetta fjölbreytilegra en verið hefur með því að reyna útvarp frá Alþ., þar sem útvarpað er glefsum úr umr. Það er á hinn bóginn vandasamara að framkvæma það. Eins vil ég, að sjónvarpið komi hér inn á Alþ. Ég er eindregið þeirrar skoðunar, að svo eigi að vera, en ég álit, að það eigi einmitt að byrja á þessu án þess að sleppa því eldra öllu um leið. Mér sýnist þetta nýja frv. einmitt stefna að þessu og það sé ágætt.
Varðandi kappræður og fundi með gamla sniðinu vil ég segja, að ég tel, að almenningur hafi aldrei afbeðið þessa kappræðufundi. Almenningur hefur ekki afbeðið þá eða óskað þess, að hætt yrði við þá. Þeir hafa smálognazt út af, einkum í þéttbýlinu. Mér er eiginlega ekki alveg ljóst af hverju. Kannske að verulegu leyti vegna þess, að hér var lengi svo lítið um húsnæði í þéttbýlinu, sem hægt væri að nota fyrir stóra fundi og þess vegna hafi þeir lognazt út af. En sannleikurinn er sá, að ef fulltrúar fyrir tvo stjórnmálaflokka eða fleiri koma og boða fundi t.d. út um landið, flykkist að múgur og margmenni. Það er t.d. reynsla okkar fyrir austan, bæði með framboðsfundina og eins aðra þess konar fundi. Ef við erum samferða fyrir fleiri en einn flokk, flykkist að múgur og margmenni. Fólk þyrstir í að heyra t.d., hvað við höfum að segja um málflutning hvers annars á slíkum fundum. En ef við komum einir saman eða úr sama flokki einungis, koma margfalt færri, því að fólk hefur ekki mikinn áhuga fyrir slíkum fundum. Þá mætti kannske segja, að það væri eitthvað líkt því, sem hæstv. forsrh. sagði, þegar hann talaði um, að á fundina kæmu helzt einhverjir sérvitringar. Þá koma að sjálfsögðu helzt þeir, sem fylgja þeim flokki, sem þá og þá er á ferðinni og hafa áhuga fyrir að kynna sér þann einhliða málflutning, sem verður á slíkum fundum.
Ég tel, að það sé skaði, að kappræðufundum hefur svo mjög fækkað, og að það ætti að keppa að því að innleiða þá aftur meira en gert hefur verið, t.d. í þéttbýlinu. Við sjáum, að fólkið vill fá slíka fundi, einmitt á því, að nú er það farið að tíðkast, að stjórnmálafélög eru farin að útvega sér andstæðinga á fundi sína. Þau eru beinlínis farin að útvega sér andstæðinga á fundina, til þess að heyra þeirra málflutning. Og þetta er vegna þess, að fólkinu hundleiðist að heyra málin flutt aðeins frá einni hlið og finnur, að það hefur stórfelldan ávinning af því að fá fram andstæðinga, sem segja, hvað þeir vilja og benda á veilurnar í málflutningi á báða bóga. Þess eru orðin mýmörg dæmi hér í þéttbýlinu, þar sem þessir almennu kappræðufundir eru ekki lengur til, að menn panta sér andstæðinga á fundina til þess að heyra, hvað þeir hafa að segja og reyna í raun og veru þannig þolrifin í sjálfum sér og sínum mönnum.
Sannleikurinn er sá, að ef þessir kappræðufundir falla alveg niður, er það ákaflega mikið tjón fyrir allt pólitískt líf í landinu, vegna þess að hvað sem hægt er nú að segja um þá að öðru leyti, voru umræðurnar ákaflega þroskandi fyrir þá, sem tóku þátt í þeim. Menn æfðust í ræðumennsku miklu betur á þeim fundum en með nokkru öðru móti. Þá var ekki nóg að koma undirbúinn með eitthvað skrifað á blað. Menn urðu að vera reiðubúnir til þess að mæta andstæðingunum og flytja fyrirvaralaust vörn og sókn eftir því, sem fundurinn þróaðist og fleiri og fleiri atriði drógust inn í umr. Það er ekki nokkur vafi á því, að það urðu miklu betri þjóðmálamenn, sem ólust upp við þetta hark en menn geta orðið með því móti að mæta svo að segja aldrei andstæðingi, fyrr en þeir eru komnir á þing.
Eins og þessi mál eru farin að þróast núna, má segja, að þetta séu allt saman einhliða fundir flokksmanna í þéttbýlinu, ýmist félagsfundir eða þá fundir fyrir almenning, þar sem menn mæta aðeins af einu sauðahúsi. Menn mæta þá aldrei andstæðingi, nema þá helst einhverjum, sem gerir fsp. utan úr sal o.s.frv. Ég held, að þeir, sem alast upp við þetta, verði aldrei jafnvaskir stjórnmálamenn og hinir, sem vöndust gamla laginu í þessu, sem mér finnst, að þyrfti að koma aftur í vaxandi mæli, og sem er eiginlega að byrja að koma aftur, eins og við sjáum á því, þegar farið er að útvega sér andstæðinga á flokksfundina.
Ég tel að vísu, að útvarpið og sjónvarpið muni bæta þarna nokkuð úr, því að þar munu menn verða kallaðir til í vaxandi mæli að tala við andstæðinga sína, og það tel ég stórfellt og gott nýmæli, að slíkt eigi sér stað. Og þá kemur sá kostur til, eins og forsrh. tók fram, að þar verða menn að vera stuttorðir, og þar dugir ekki innihaldslaus lopi. Þegar í það er komið, verða menn að spjara sig í mátulega stuttu máli, og af því hafa menn gott. En þó að þarna sé áreiðanlega von á góðum áhrifum, álít ég, að menn ættu samt ekki að hætta við kappræðufundina, heldur taka þá upp einnig á ný í vaxandi mæli.
Þetta eru almennar hugleiðingar, en í þessu, sem ég hef nú sagt, á að koma fram, hvað ég meina. Ég tel, að það þurfi að breyta nokkuð til, en fara bil beggja og þreifa sig inn á nýjar leiðir, en halda nokkru af því eldra, eins og hér er gert ráð fyrir í þingskapafrv. Ég álít, að þótt athuga mætti, hvort ganga ætti lengra í einhverju atriði, þá sé frv. til bóta.
Ég tel það til stórbóta að skipta á fjárlagaræðu og stefnuræðu forsrh. Ég held, að þessar fjárlagaræður, sem ég var að halda hér á árunum, og þá auðvitað ekki síður þær, sem nú eru haldnar, séu ekki æskilegt útvarpsefni frá Alþ. Það sé miklu heppilegra að fá stefnuræðu forsrh. og svo umræður á eftir í frh. af henni. Það sé til stórbóta.
Eins er þetta með fyrirspurnatímann. Það er búið að eyðileggja hann. Hann er orðinn allt öðruvísi en hann átti að vera, og um það hljótum við allir að vera sammála. Það er auðvitað engin glóra í því að flytja langar ræður í fyrirspurnatímanum, eins og hæstv. ráðherrar hafa freistazt til að gera. Ég skal ekki nú fara að deila út af því, en það þarf að setja þessu skorður. Og það kemur vel til greina að mínu viti að taka upp þá till., sem hæstv. forsrh. skaut hér fram, að í fyrirspurnatíma tali aðeins sá, sem spyr, og sá, sem svarar, og aðrir skipta sér ekki af því, sem fram fer. Ef þeir vilja spyrja einhvers, geta þeir spurt sjálfir og fengið sín svör.
Ég hef áður tekið fram, að mér sýnist til bóta að stytta eldhúsumr., en alls ekki að hætta við þær. Þetta er gömul venja, sem við eigum að halda við, en reyna að samræma þær nýjum tíma með því að gera þær styttri og menn þar með gagnorðari. Einnig er til bóta, að útvarpsumr. um önnur mál séu styttar, og þá eru hér þau nýmæli, að taka inn á Alþ. hljóðvarp og sjónvarp með nýju sniði í samráði við forsetann og þingflokkana.
Ég endurtek að lokum, að yfirleitt finnst mér frv. ganga í rétta stefnu, og ég vil fyrir mitt leyti þakka þeim, sem lagt hafa vinnu í þetta, en að sjálfsögðu er ekkert verk þannig unnið, að það sé ekki hægt að bæta það. Og því finnst mér æskilegt, að þeir, sem vildu benda á einhverjar breytingar frá því, sem hér er gert ráð fyrir, komi fram með þær.