26.03.1968
Neðri deild: 82. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í C-deild Alþingistíðinda. (2530)
169. mál, áfengislög
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð, en ég ætla, að það sé nú með hinni skilmerkilegu ræðu formanns allshn. nokkurn veginn upplýst, hvernig þetta mál hefur borið að, til viðbótar við það, sem ég sagði hér áðan.
Það er rétt, sem hann sagði, að ég átti ekki sæti í þessari n. í fyrra og var þess vegna ekki kunnugt um, hvað þá fór fram á fundum n. eða var talað þar, og það á ekki við um mig einan, því að þeir eru allmargir af núv. nm., sem ekki áttu sæti í n. í fyrra og tóku því ekki afstöðu til þeirrar till., sem þá var um að ræða. Nú held ég, að ekki sé ástæða til þess að ræða meira um þetta formsatriði að öðru leyti en því, að mér er forvitni á að fá að vita það hjá hæstv. dómsmrh., þar sem það er nú komið í ljós, að hann telur eiginlega þetta frv. ekki vera frá sér komið, hvaða afstöðu hæstv. ráðh. hefur til þessa frv. hvort hann er e.t.v. mótfallinn því að einhverju leyti, eins og það hefur komið fram hér í d. Mér skilst samkv. þeim upplýsingum, sem nú hafa komið fram frá formanninum, að það sé hugsanlegt, en það gæti haft þýðingu fyrir n., áður en hún tekur málið til meðferðar á ný, að vita, hvaða afstöðu rn. hefur í málinu, hvort það er e.t.v. andvígt frv. eins og það liggur fyrir.