17.01.1968
Efri deild: 41. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 743 í C-deild Alþingistíðinda. (2547)
84. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég tel rétt, að áður en þessu frv. er vísað til n. við 1. umr. hér, að láta þess getið, að meginefni þessa frv. hefur þegar um nokkurt skeið verið til umr. í ríkisstj. og þá jafnframt ræddar þær leiðir, sem til greina gætu komið um að efla Fiskveiðasjóð til þess að annast það hlutverk, sem frv. þetta gerir ráð fyrir, sér í lagi með tilliti til innlendrar skipasmíði, og eins þá og jafnframt með hvaða hætti öðrum mætti koma til móts við þær óskir, sem uppi hafa verið, bæði meðal væntanlegra skipaeigenda og innlends skipasmíðaiðnaðar um, að lánin hækkuðu svo sem fram kemur í frv. þessu.
Hinn 4. þ. m. var samþ. í ríkisstj. að beita sér fyrir því, að þessi lán yrðu tryggð, þ.e.a.s., að hækkuð yrðu lán úr 75% frá því, sem er gert ráð fyrir í l. í dag, 85%. Yfir stendur enn þá könnun á því, hvort rétt sé eða hagkvæmara þyki, að þetta viðbótarlán komi fram í aukinni aðstoð við Fiskveiðasjóð, sem um nokkurt skeið hefur átt í miklum fjárhagslegum örðugleikum, eða hvort hagkvæmara og eðlilegra þyki, að þessi lán verði veitt eftir öðrum leiðum, og hefur þá m.a. verið hugsað um Iðnlánasjóð í því tilefni. Endanlegar niðurstöður eru eðlilega ekki komnar í þessu máli, en ég taldi eðlilegt, að hv. þd. vissi um, að þessi mál hafa um alllangt skeið verið til umr. í ríkisstj., og unnið er þar kappsamlega að því, að meginefni þessa frv. nái fram að ganga, og hefur verið unnið um alllangt skeið að því máli.