01.02.1968
Efri deild: 48. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 752 í C-deild Alþingistíðinda. (2555)

97. mál, breyting á lausaskuldum bænda í föst lán

Flm. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Frv. þetta, sem er um breytingu á lausaskuldum bænda í föst lán, er flutt af framsóknarmönnum í þessari hv. þd.

Ég tel, að það séu fjórar höfuðorsakir, sem valda lausaskuldasöfnun í landbúnaðinum. Það er í fyrsta lagi, að fjárfesting öll í landbúnaði kostar geysimikla fjármuni. Á það bæði við vélvæðingu og byggingar allar. Í öðru lagi, að stofnlán til landbúnaðarins eru óhagstæð, lánstíminn er stuttur, vextirnir háir og þar ofan í kaupið eru bændur skattlagðir, til þess að hægt sé að veita þeim úrlausn í lánastarfsemi. Í þriðja lagi, að verðlag búsafurðanna er ekki miðað við þarfir landbúnaðarins né farið eftir neinum lögum við úrskurð þess verðlags, sem gildir fyrir yfirstandandi verðlagsár. Í fjórða lagi hefur árferði nú undanfarið verið fremur óhagstætt bændum. Það hefur verið kal í túnum og grasleysi, sem hefur orðið þess valdandi, að kaup á fóðurbæti hafa orðið mun meiri heldur en þau annars hefðu orðið.

Ég ætla til að byrja með að líta á nokkra þætti úr landbúnaðinum, sem birtir hafa verið í margs konar skýrslum frá undanförnum árum. Ég vil minna á það þegar í upphafi, að bændastéttin hefur verið stórhuga, afkastamikil og unnið sleitulaust að framfaramálum landbúnaðarins nú í áratugi. Þar hafa bændurnir notið þekkingar og vel skipulagðrar leiðbeiningarstarfsemi ráðunauta Búnaðarfélags Íslands og héraðsráðunauta búnaðarsambandanna. Og einnig hafa þeir notið mikillar og skeleggrar baráttu Stéttarsambands bænda svo langt, sem sú barátta hefur náð.

Í skýrslu Búnaðarbanka Íslands fyrir árið 1965 er gerð grein fyrir fjármunamyndun í landbúnaði frá stofnun Búnaðarbankans árið 1930 og allt til ársins 1965. Þar er fjárfestingin miðuð við það verðlag, sem gilti árið 1965, og þar kemur fram, að fjárfesting í landbúnaði árið 1930 var 123 millj. kr., en árið 1935 er fjárfestingin komin niður í 106 millj. og 1940 í 72 millj. En aftur 1945 hefur fjárfesting hækkað nokkuð, farið upp í 140 millj. kr., 1950 í 160 millj. kr., 1955 í 361 mill., 1960 í 317 millj. og 1965 í 527 millj. kr. Það lætur nærri, að fjárfesting í landbúnaði hafi rúmlega fjórfaldazt á 35 árum. En ef maður athugar þessar tölur nánar, kemur í ljós, að fjárfestingin flest árin er um það bil 1/4 hluti af heildarframleiðsluverðmæti landbúnaðarins. T.d. árið 1930 er fjárfesting í landbúnaði 123 millj., en verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar sama ár 438 millj. kr. Þetta er með verðlagi ársins 1965. Fjárfesting er því 28% af framleiðsluverðmæti landbúnaðarins fyrir það ár. Ef við tökum aftur á móti árið 1965, eru hliðstæðar tölur 527 millj. fjárfesting, en verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar 2 milljarðar, 39 þús. kr. eða 26% fjárfesting af verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar fyrir það ár eða heldur minni en hún var 1930. Minnst er fjárfestingin á þessu tímabili 1940 eða um það bil 9% af verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar. En mest er fjárfesting í landbúnaði árið 1955 og er þá rúmlega 28% af verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar fyrir það ár.

Enn fremur segir í skýrslu Búnaðarbankans, að árið 1964 hafi fjármunamyndun í landbúnaði verið 439.5 millj. kr. Til þessara framkvæmda voru framlög frá ríkinu veitt á því ári 80.1 millj. kr. eða 18% af fjármunamynduninni. Stofnlán Búnaðarbankans það sama ár voru 77.8 millj. kr. eða tæp 18% af fjármunamynduninni eða m.ö.o., að stofnlánin og framlög ríkisins voru 36% Eigin vinna bænda og önnur lán, sem þeir gátu fengið, voru því 64% af heildarfjármunamynduninni árið 1964 eða samtals 282 millj. kr.

Ef við tökum til samanburðar hliðstæðar tölur fyrir árið 1958, var fjármunamyndunin 172 millj. kr. og ríkisframlög til þeirra framkvæmda 33.4 millj. kr. eða 19%. Stofnlán Búnaðarbankans það sama ár voru 44 millj. kr. eða 25.5%. Eigin vinna og önnur lán það ár var því 56.5%. Það kemur fram í skýrslu Búnaðarbankans, að bæði ríkisframlög og stofnlán eru minni árið 1964 en árið 1958. Stofulánin hafa lækkað um 7.5% á þessu 7 ára tímabili og ríkisframlög lækka um 1%, þegar lögð er til grundvallar fjármunamyndunin í landbúnaðinum. Það er því ofur eðlilegt, að lausaskuldir hafi hækkað á þessum tíma, enda hefur dýrtíðin farið jafnt og þétt vaxandi allt þetta tímabil.

Ræktunin hefur verið nokkuð mismunandi mikil hin einstöku ár og sömuleiðis þátttaka þeirra bænda, sem hafa ræktað árlega. Árið 1954 eru það 4453 bændur, sem taka þátt í ræktun, og jarðabætur það ár eru 3600 ha. En árið 1959 er þessi tala komin niður í 3906 með jarðabótamenn, en aftur á móti hefur verið meira ræktað eða 4500 ha. Árið 1962 eru jarðabótamenn 3210 og ræktaðir 3900 ha. lands. Árið 1964 eru jarðabótamenn 3711 og rækta þá 6300 ha., og er það mesta, sem ræktað hefur verið á einu ári. En aftur á móti árið 1965 eru jarðabótamenn ekki nema 2729 og rækta þá 1000 ha. minna en ræktað var árið 1964, og sama er þróunin árið 1966, að þá hefur enn þá minnkað ræktunin um 1000 ha. og fer niður í 4377 eða m.ö.o., að ræktaða landið hefur náð hámarki 1964 en lækkað um 2000 ha. síðan, en ég vil geta þess, að ég hef ekki tölur fyrir árið 1967, en eftir því sem fram kom í skýrslu búnaðarmálastjóra rétt eftir áramótin, telur hann, að í meginatriðum hafi jarðræktin verið svipuð og árið 1966, að því undanskildu, að framræsla lands hafi verið þá nokkru meiri en árið áður. Og framræslan hefur um mörg ár ekki verið meiri en hún var árið 1958, því að þá voru vélgrafnir skurðir 4 millj. 92 þús. 703 rúmmetrar. Og fór hún lækkandi allt til ársins 1962, en þá voru ekki grafnir nema 2 millj. 475 þús. 262 rúmmetrar, en hefur aftur á móti hækkað nokkuð hin siðari ár. Með aðrar framkvæmdir, sem tilheyra jarðræktarlögum, þá hafa þær verið mjög svipaðar frá ári til árs, þ.e. hlöðubyggingar og girðingar og annað, sem þar tilheyrir.

Fyrir nokkru síðan hefur verið birt skýrsla frá Landnámi ríkisins um stöðu landbúnaðarins á árunum 1955-1965. Þar kemur í ljós, að ræktað land alls hefur verið árið 1965 um 100 þús. ha. og töðufengur af hverjum ha. 33 kaplar eða 3300 kg. Aftur á móti, ef við lítum á árið 1960, gaf hver ha. af sér samkv. skýrslu 45 kapla eða 4500 kg, og hefur þó bætzt við ræktunina á þessu tímabili 23.000 ha. lands eða m.ö.o., að þrátt fyrir 25 þús. ha. ræktun á þessu 5 ára tímabili, hefur töðufengurinn ekki neitt vaxið. Hér eru ýmis vandamál á ferðinni, sem þurfa athugunar við, ef það reynist svo, að afrakstur ræktaða landsins minnkar eftir því, sem ræktunin eykst.

Aðalástæðan fyrir minnkandi uppskeru á ha. liggur að nokkru leyti í kali á túnum og enn fremur í of mikilli beit bæði haust og vor og e.t.v. of litlum áburði og ekki nógu réttu hlutfalli í áburðartegundum, sem völ er á hér á landi. Þessi mál þurfa því rannsóknar við, og úr verður að bæta, ef aukin ræktun á að koma að tilætluðum notum Það þykir e.t.v. ótrúlegt, en það er nú samt svo, að sumir bændur hafa ekki efni á að kaupa nógu mikinn áburð, og þetta fer versnandi með hverju ári, sem líður. Ef ræktaða landið gæfi eðlilega uppskeru, væri ekki skortur á heyi fyrir þá búfjáreign, sem til er í landinu.

Landnámsstjóri segir í sömu skýrslu, að meðalbú lögbýlis sé 16.6 kúgildi. En það hefur verið talið nægjanlegt fóður fyrir eitt kúgildi 1 ha. lands. En meðal túnstærð á býli er um 18 ha. Í sömu skýrslu segir landnámsstjóri, að 262 jarðir hafi farið í eyði á árunum 1955—1965, þar af 94 á árunum 1955—1960 og 168 frá 1960—1965. Enn fremur segir hann, að það fólk, sem vinni eða hafi framfæri sitt af landbúnaði sé aðeins 10–11% af fólksfjölda landsins. Þessi þróun er ískyggileg, ef áfram heldur sem nú horfir.

Ég hef minnzt hér á nokkra þætti úr sögu landbúnaðarins, tekið nokkur atriði hjá þremur stofnunum, Búnaðarbanka Íslands, Búnaðarfélagi Íslands og Landnámi ríkisins. Samkv. skýrslu Búnaðarbankans eru ríkisframlög til framkvæmda í landbúnaði árið 1964 18% af fjármunamynduninni. Og stofnlán Búnaðarbankans til sömu framkvæmda 18% af fjármunamynduninni. Önnur lán og eigin vinna bænda í þessari fjármunamyndun er langsamlega stærsti hlutinn eða 64%.

Samkv jarðræktarskýrslum hefur ræktun lands dregizt saman síðan 1964 um 1000 ha. hvort árið, 1965 og 1966, og jarðabótamönnum fækkað allmikið. Og þurrkun lands hefur einnig minnkað frá því 1958. Í skýrslu landnámsstjóra segir, að 168 jarðir hafi farið í eyði á árunum 1960-1965 og heyfengur landsmanna staðið í stað þrátt fyrir það, að ræktun hefur aukizt um rúma 20000 ha. á því 5 ára tímabili. Því miður er þessi þróun óæskileg, og þarna þurfa að sjálfsögðu margir að leggjast á eitt með að bæta úr, svo að betur horfi fyrir bændum í þessum efnum en nú er.

Í byrjun árs 1960 eru heildarskuldir bænda taldar vera 513 millj. 352 þús. kr. Þar af er í stofnlánum 58% en í lausaskuldum 42%. Meðalskuld á bónda fyrir það ár eru 90 þús. kr. Samkv. grg. þessa frv., sem hér liggur fyrir, er birt skýrsla frá Stéttarsambandi bænda, og er sú skýrsla samin af Hagstofu Íslands, og verð ég að ætla, að þar sé farið með réttar tölur. Og þar segir, að í árslok 1966 hafi skuldir bænda þrefaldazt frá því 1960—1966, og það, sem vekur þó meiri athygli, er það, að aðeins 40% af þessum skuldum eru í stofnlánadeild og veðdeild Búnaðarbankans, en 60% skuldanna eru annars staðar. Það eru víxlar í bönkum og sparisjóðum, skuldir í verzlunum og e.t.v. skuldir manna á milli og annars staðar, þar sem skuldasöfnun hefur orðið. Þessi breyting hefur einkum átt sér stað síðustu 3–4 árin. Þá hækka lausaskuldir hraðar en föst lán til framkvæmda. Nú er það svo, að bændur skulda mjög misjafnlega. 66% bændanna skulda undir meðaltali, þ.e.a.s. undir 266 þús. kr. En 34% bænda eru með skuldir ofan við meðaltal. En 15% bænda eru með skuldir ofan við 1/2 millj. kr. og allt yfir 1 millj. kr.

Sýnilegt er, að þeir bændur, sem verst eru settir, geta ekki leyst fjármál sín nema með lagalegum stuðningi. Að breyta lausaskuldum í föst lán til langs tíma með lægri vöxtum en annars er um að ræða, mun koma mörgum að notum, en þó mun vera nokkur hópur bænda, sem þarf meira til þess að leysa sín fjármál, og þurfa þau mál sérstakrar athugunar við. Það þarf að rannsaka orsakir skuldanna og haga ráðstöfun eftir eðli þeirra. Í sumum tilfellum dugar ekki neitt nema eftirgjöf skulda eða lánastofnanir falli frá innheimtu, þar til grundvöllur er fenginn fyrir búrekstri hjá hlutaðeigandi bændum. Ég get þessa hér, því að ljóst er, að nokkrir bændur eru mjög illa settir og miklu verr en almennt gerist. Orsakir lausaskuldanna eru mjög margar. Vélvæðingin og byggingar hafa kostað mikið og orðið þeim mun dýrari, sem lengur hefur verið beðið með að kaupa vélar eða að hefja byggingar. Það er t.d. talið, að íbúðarhús kosti vart undir 1 millj. kr. nú til dags. Framlag ríkis og lán stofnlánadeildar til þessa húss er 320 þús. kr. eða um það bil 1/3 hluti af byggingarkostnaði. Nær 700 þús. kr. þarf bóndinn að afla sér með öðrum hætti, og hann má þykjast góður, ef hann fær nú til dags smávíxla hér og þar, en mestur hluti skuldarinnar verður jafnan í verzlunum eða hjá þeim mönnum, sem vinna að hlutaðeigandi byggingum. Aðeins 5 ára lán eru veitt til aflvélakaupa og þá aðeins 30% af kaupverðinu. Þarna er líka erfitt að fylla í skarðið án lausaskuldasöfnunar. Bygging peningshúsa kemur betur út í fyrstu en vélvæðing og bygging íbúðarhúsa, en þó leikur sá grunur a, að mat framkvæmdanna sé ekki í samræmi við raunverulegan kostnað, og lán þessi eru til allt of skamms tíma og með of háum vöxtum. Kaupi bóndi jörð fær hann kannske eftir dúk og disk lán úr veðdeild Búnaðarbankans, 100 þús. kr. eða kannske 200 þús., ef jörðin kostar mikið og lítið hvílir á af öðrum skuldum. Þarna safnast því einnig lausaskuldir í stórum stíl. En hvernig er með bústofnskaup hjá bændum? Þar er yfirleitt engin föst lán að fá og varla víxla. Nei, það væri synd að segja, að það sé vel búið að þeim bændum, sem eru að hefja ævistarfið og standa samtímis í miklum umbótum. Það er ekki undarlegt, þótt jarðir fari í eyði eða þótt lausaskuldir safnist, þegar athugaðar eru allar þessar aðstæður.

Þess má líka geta, að árferði hefur sums staðar valdið því, að lausaskuldir hafa hlaðizt upp, og það bætir ekki úr hjá þeim, sem hafa staðið í umbótum. Verðlag á framleiðsluvörum bænda er of lágt, og er margt, sem veldur því. Þeirra kaup er ekki reiknað út samkv. neinum lögum, og nú er þeim skammtað af gerðardómi, sem sumpart hefur starfað eftir skilaboðum frá hæstv. ríkisstj., svo að það er ekki á góðu von. Verðlagið getur ekki borið uppi búrekstur þeirra, sem lítið skulda, hvað þá hinna, sem mikið skulda. Og vert er að geta þess, að í verðlagsgrundvelli er aðeins lítið brot af skuldavöxtum, sem þar eru teknir inn, og því ekki von til þess, að verðlagið beri þessar skuldir uppi. Það er yfirleitt svo, að þar er gizkað á upphæðir, en hvorki stuðzt við þau úrtök, sem hafa sýnt raunverulegar skuldir bænda, né farið eftir öðrum þeim skýrslum, sem gefið hafa nákvæmari tölur. Ofan á þetta bætist það, að hvort sem bændur eiga nokkra krónu eða ekki, verða þeir að borga 1% af framleiðsluverðmætum sínum til stofnlánadeildar landbúnaðarins og síðan er þeim skammtað, hvað þeir mega framkvæma. Ég held, að bændur séu eina stéttin í þjóðfélaginu, sem býr við fjárfestingareftirlit. Þetta er þeirra frelsi. Síðan skammtar ríkisstj. svo naumt í framkvæmdaáætlun ríkisins, að það fá ekki allir stofnlán til framkvæmda, sem hafa fengið loforð um lán, eins og t.d. sumar vinnslustöðvar landbúnaðarins nú á þessu ári.

Ég skal taka það fram, að ég er ekki á móti því, að haft sé eftirlit með fjárfestingu og framkvæmdir skipulagðar. En ég er á móti óréttlæti því, sem felst í því að skammta naumt bæði fjármagn og framkvæmdir, að því er bændastéttina varðar, á sama tíma og ekkert eftirlit er haft innan annarra stétta þessa þjóðfélags.

Eða hvernig er það með verzlunarstéttina? Er eitthvert fjárfestingareftirlit þar? Og hverjir ákveða tekjur þeirra, sem fást við þá þjónustustarfsemi? Og er það ekki þjóðin í heild, sem borgar yfirleitt alla þá þjónustustarfsemi, og þeim mun verri, sem skipulagning er á þeim málum, þeim mun dýrara verður allt, sem hlutaðeigandi aðilar þurfa að veita sér í landinu, því að það er þjóðin, sem þorgar þær framkvæmdir og allt, sem þar er gert.

Frv. þetta fjallar eingöngu um það, að lausaskuldum bænda og lausaskuldum hjá fyrirtækjum þeirra sé breytt í föst lán til langs tíma á vöxtum, sem séu í hæsta lagi jafnháir stofnlánadeildarvöxtum og því nokkru lægri en almennir viðskiptavextir í landinu. Eins og frv. þetta ber með sér, felst í því heimild fyrir veðdeild Búnaðarbanka Íslands að gefa út nýjan flokk bankavaxtabréfa. Bréf þessi eru takmörkuð við lausaskuldir bænda og fyrirtækja þeirra og ná til skulda, sem safnazt hafa á árunum 1960—1967. Veð er tekið í bújörðum bænda, mannvirkjum, vélum og vinnslustöðvum landbúnaðarins. Að lækka vexti frá því, sem almennt er á lausaskuldum, er nauðsynlegt, samhliða því að tryggja lánin til margra ára. Það hlýtur líka að hafa sina þýðingu og valda því, að skuldirnar séu viðráðanlegri hlutaðeigandi aðilum en þær ella mundu verða.

4. gr. þessa frv. mælir svo fyrir, að Seðlabankinn kaupi bankavaxtabréfin. Það er erfitt að segja að svo stöddu fyrir um það, hvað frv. þetta kann að ná til margra aðila eða hvað upphæðin kann að verða há, sem um verður að ræða. Árið 1962, þegar lausaskuldir bænda voru settar í föst lán, nam sú upphæð 60—70 millj. kr. og hefur að því er mér skilst, verið nálægt 1/3 hluti af lausaskuldum bænda á þeim tíma. Ekki er ólíklegt, að samkv. þessu frv. verði um tiltölulega hærri upphæð að ræða, þar sem fyrirtæki bænda eiga einnig að falla undir þessa löggjöf. Á það vil ég minna, að Seðlabanki Íslands er með innifryst sparifé víðs vegar að af landinu, hátt á 2. milljarð kr. Það er því engan veginn fráleitt að hugsa sér þann möguleika, að bankinn kaupi þessi bankavaxtabréf, enda mun sú hafa orðið raunin á með lausaskuldabréfin frá 1961. Það hlýtur að samrýmast hugsun og stefnu Seðlabankans, að atvinnulíf landsmanna standi traustum fótum. Einn liður í því að styrkja stöðu landbúnaðarins nú er að koma lausaskuldunum í föst lán, en þar þarf að sjálfsögðu margt fleira að gerast jafnframt, ef landbúnaðurinn á að vera jafnstyrk stoð þjóðarbúinu og hann hefur verið um aldaraðir.

Herra forseti. Ég hef hér gert grein fyrir frv. því, sem hér um ræðir, og vænti ég þess, að ráðandi öfl í landinu, bæði hv. alþm. og aðrir, sjái sóma sinn í því að styðja að framgangi þessa máls. Ég legg til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.