06.02.1968
Efri deild: 51. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 776 í C-deild Alþingistíðinda. (2563)

97. mál, breyting á lausaskuldum bænda í föst lán

Flm. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Það voru góð tíðindi, sem komu fram í ræðu hv. 5. þm. Sunnl., og ég verð að segja það, að eftir að hafa hlustað á þann mæta mann fannst mér hann sannarlega eiga mjög erfitt með að verja það, hvernig að landbúnaðinum er búið, og ég held, að hann hafi ekki komið með neitt atriði í sinni ræðu, sem hnekkir einu einasta orði í því, sem ég hef sagt áður. Ég tók það fram í framsöguræðu minni, að bændastéttin væri stórhuga, afkastamikil og framfarasinnuð. Að vísu staðfesti hann þetta með nokkrum tölum, en þetta var vitað mál, og við vitum manna bezt, hver þróun hefur verið í þeim málum á undanförnum árum.

Ofurlitla tilraun gerði hv. þm. til þess að draga aðrar ályktanir út úr þeirri skýrslu, sem ég ræddi um í sambandi við heyfenginn á undanförnum árum. Það, sem við verðum að gera okkur ljóst, íslenzkir bændur, er það, að ef við hverfum til þess að nota ræktaða landið meira og minna til beitar, verðum við að hafa túnin miklu stærri heldur en annars, til þess að við fáum nægilegt fóður að vetrinum. Það skiptir því ekki höfuðmáli, hvað beitt hefur verið á túnin. En hitt er það, sem skiptir máli, hvað höfum við til að fóðra búféð af á veturna, því að við gefum ekki það, sem beitt er á á sumrin.

Staðreyndin er sú, að 23 þús. ha. lands, sem er aukning á ræktuninni á tímabilinu 1960—1965, virðist annaðhvort ekki hafa gefið uppskeru, kalið eða ekki gefið næga uppskeru eða verið notuð til beitar þannig, að það fóður, sem fyrir liggur á haustnóttum, er ekki meira þrátt fyrir þessa aukningu í jarðræktinni árið 1965 en það var árið 1960. Og mér er nær að ætla, að ef við förum í stærra mæli en hingað til hefur verið að beita á ræktaða landið, sé það lágmark, að við verðum að miða ræktaða landið við a.m.k. 1/3 stærra ræktað land en við þurfum til að afla þess fóðurs, sem við verðum að hafa á veturna, auk þess sem við verðum að bera mikið meira og betur á ræktaða landið en við höfum gert. Þetta liggur ljóst fyrir, og ég held, að hv. þm. hafi ekki í neinu hnekkt því, sem ég sagði. Hins vegar tók hv. þm. mjög undir það, þegar hann var búinn að skýra frá þeirri fjárfestingu, sem hafði orðið á árunum 1960—1965, að það sé eðlilegt, að stofnlánasjóðir landbúnaðarins hafi ekki getað fullnægt þeim lánum, sem æskilegt hefði verið, að þeir hefðu getað. Og ég verð að segja það, að uppbygging stofnlánasjóðanna er alls ekki æskileg fyrir bændur.

Skömmu fyrir kosningarnar á s.l. vori var hæstv. forsrh. svo vinsamlegur, að hann sendi smápésa heim á íslenzk bændabýli, og fyrirsögnin var „Landbúnaður í framför“. Ég ætla, að það sé erfitt að véfengja sumar þær tölur, sem þarna standa, enda þótt það sé fært Sjálfstfl. í vil, þó er það nú svo, að það hafa slæðzt þarna með tölur, sem ég býst við, að sumir hverjir telji sér ekki til mikils ávinnings. Og þarna stendur á bls. 10 í þessari forsætisráðherrabók, með leyfi forseta:

„Árið 1965 hafði stofnlánadeildin rúmlega 78 millj. kr. í tekjur, og þær tekjur skiptust þannig: Vextir og lántökugjald kr. 34.9 millj., framlag ríkissjóðs 19.2 millj., framlag bænda 15.2 millj., framlag neytenda 8.3 millj., stóreignaskattur 0.6 millj. kr.“

Ef við hugleiðum það, hvaðan hver upphæð fyrir sig kemur, liggur það ljóslega fyrir, að af þessum 78 millj. kr. koma 52 millj. kr. frá bændunum sjálfum og 26 millj. annars staðar að eða frá ríkinu, þannig að á móti hverri 1 kr., sem bændurnir fá til stofnlánadeildarinnar frá ríkinu, verða þeir að leggja fram 2 kr. sjálfir. Svona hefur þetta aldrei verið fyrr en eftir að stofnlánadeildarl. var breytt árið 1962.

Það er vert að minna á það, að einmitt með þeirri lagasetningu er talið, að það muni aldrei verða svo miklar framfarir í íslenzkum landbúnaði, að þessi ágætu kjör, sem stofnlánadeild landbúnaðarins veitir, muni geta staðið að verulegu leyti undir kostnaði framkvæmdanna. En því miður hefur það farið á annan veg. Það fyrsta, sem hæstv. landbrh. gerði, þegar hann tók við því starfi 1960, að mig minnir, það var að hækka vexti stofnlánadeildarinnar eða vexti byggingarsjóðs og ræktunarsjóðs um 60—70% jafnframt því, sem hann fyrirskipaði, að lánstíminn yrði styttur, 15 ára lánin niður í 10 ára lán og 20 ára lánin niður í 15 ára lán. Og mér er ekki kunnugt um það, að þessum lánskjörum hjá þessum aðilum hafi verið breytt síðan. Ef það hefur verið gert, væri æskilegt, að hæstv. ráðh. upplýsti það.

Svo er hér annað vitni varðandi stofnlánadeildina, sem er ekki ómerkara, en það er hæstv. fjmrh., sem var um skeið bankastjóri Búnaðarbankans og hafði þá það hlutverk að skammta bændunum úr þeim sjóðum, sem þar voru, og almennu lánsfé bankans. Þetta er í Búnaðarblaðinu Frey, sem hann ræðir um þessi mál, að ég ætla. Það er 3. tbl. 1964. Og þar segir hæstv. ráðh., þáv. bankastjóri:

„Þótt matsgrundvöllur framkvæmda hafi verið hækkaður verulega, þarf hann enn að hækka, svo að miðað verði við raunverulegt kostnaðarverð framkvæmda. Ekki hefur enn verið talið fært að lána til bústofnskaupa. Eru slík lán ýmsum vandkvæðum bundin .“

Hæstv. ráðh. er það ljóst, að það skortir mikið á, að það sé fylgt þeim raunverulega kostnaði, sem liggur í framkvæmdunum, heldur er þarna áætlaður kostnaður, sem ekki er til samræmis við raunverulegan kostnað, og þótt lánuð sé sú prósenta, sem gert er ráð fyrir úr stofnlánadeild landbúnaðarins, þá fullnægir það ekki uppbyggingunni í landinu. Það, sem því þarf að gera, er að lána sem næst eða meta framkvæmdirnar líkt og þær kosta raunverulega, og þó að nú séu liðin nokkur ár síðan, hefur þetta ekki breytzt á þann veg, að þarna sé tekið fullt tillit til framkvæmdanna, eins og þær eru.

Hæstv. landbrh. fór hér vítt og breytt, og það, sem fór nú mest í taugarnar á honum, að mér fannst, var það, að ég minntist nokkuð á málflutning hv. stjórnarsinna fyrir kosningarnar í vor. Það er þeim af eðlilegum ástæðum viðkvæmt mál, og ætla ég ekki að ræða það frekar, enda finna þeir víst fyrir ýmsum sárindum í sambandi við þessi mál nú og lausn þeirra. Og óska ég þeim til hamingju að fá að glíma við eigin vandamál.

Ein orsök lausaskuldasöfnunar hjá bændum er m.a. sú, að rekstrarlán landbúnaðarins hafa ekkert hækkað síðan 1959. Í skýrslu frá Sláturfélagi Suðurlands, sem ég ætla, að sé byggð á staðreyndum um þessi efni, hafa þessi mál staðið þannig, að lán fyrir slátraðan dilk miðað við haustið á undan í kr. var 1960 132 kr., 1961 112 kr., 1962 95 kr.; 1963 110 kr., 1964 122 kr., 1965 133 kr. og 1966 í 123 kr., þannig að þau hafa ekki einungis staðið í stað, heldur hafa þau farið lækkandi.

Og svo vil ég á það benda, að það er undarlegur hlutur, þegar íslenzka þjóðin á í sparifé líklega í kringum 9 milljarða kr., að það skuli hvergi vera hægt fyrir bændastéttina að fá neitt af lánum sem heitir af þessu almenna sparifé landsmanna. En það á að heita, að það sé útilokað nú fyrir bónda að fá svo mikið sem 60 eða 100 þús. kr. víxil, hversu góða tryggingu, sem hann hefur. En þá er sá hátturinn á hafður, sem hæstv. fjmrh. kom á í Búnaðarbankanum, að það er hægt að fá svona 10—15—25 þús. kr. víxla til þriggja og sex mánaða og meira ekki. Þrátt fyrir það, að sparifé hefur nokkuð hækkað á þessu tímabili.

Ég veit ekki um það, hvort hæstv. landbrh. hefur talið það vera til tekjudrýginda fyrir bændur, þegar hann ráðlagði þeim árið 1966 að fækka verulega bústofni sinum. Ég geri ráð fyrir, að Morgunblaðið hafi rétt eftir ráðh. En í forystugrein þess þann 24. febr. 1966 segir m.a. eftir hæstv. landbrh., Ingólfi Jónssyni:

„Eðlilegt er að hafa í góðum árum allt að 10% mjólkurframleiðslu umfram það, sem notað er á innlendum markaði. Ef við það væri miðað, ætti kúnum að fækka u.þ.b. 5000, en sauðfénu að fjölga þess í stað u.þ.b. 100 þús. Sú breyting væri sem svarar því, að hver bóndi hefði sinni kú færra og fjölgaði sauðfénu þess í stað í um 20 ær. Þannig hefðu bændur ekki minni tekjur, heldur talsvert meiri tekjur, þar sem útflutningsuppbæturnar mundu sennilega nægja til þess að bæta hallann á útflutningnum með því að auka kjötútflutninginn og minnka yfirframleiðsluna á mjólk.“

Hver er svo staðreyndin í þessu, og hvernig hafa þessi mál skipazt? Það er lítið hagstæðara fyrir íslenzka bændur, að flytja út kjöt en mjólk, fyrir utan það, að slík tilfærsla í bústofnseign bænda hlýtur að hafa verulegan kostnað í för með sér. Það hlýtur að hafa talsverðan kostnað í för með sér, ef einhver bóndi t.d. hættir að hafa kýr og þarf að byggja yfir sauðfé, sem því svarar, eða öfugt. Þetta kostar aukna fjárfestingu og mikla röskun frá því, sem verið hefur, og mér er ekki grunlaust um það, að sumir þeirra, sem tekið hafa tillit til þessa, hafi orðið að taka á sig töluverða skuldabagga vegna þeirra breytinga, sem í þessu fólust. Og eitt er víst, að bústofnseign landsmanna hefur ekki aukizt hin síðari ár, heldur hið gagnstæða og verðlagið staðið nokkurn veginn í stað, þannig að þar er um mikla tekjurýrnun að ræða, svo að bændur eiga erfiðara með að mæta skuldaaukningunni en ella hefði verið.

Þá sagði hæstv. landbrh., að það hefði aldrei verið lánað út á vélar eða til vinnslustöðva í tið framsóknarmanna. Þetta held ég, að sé algerlega rangt með farið, að það hafi aldrei verið gert, því að enda þótt stofnlánadeildin eða þáv. byggingarsjóður og ræktunarsjóður Búnaðarbankans hafi ekki lánað í stórum stíl til þeirra framkvæmda, áttu fyrirtæki bændanna miklu þægilegra með að fá af almennu sparifé landsmanna til framkvæmda en nú er. Nú eru slík lán útilokuð í viðskiptabönkunum, og fyrirtæki fá heldur ekki lán úr stofulánadeildinni. þó að það sé ákveðið með l. nema eftir dúk og disk, og það hélt ég, að hæstv. landbrh. væri ekki síður kunnugt um en öðrum. En á það má minna, að vélakaup í stærri stíl, t.d. til ræktunarsambandanna, þá væri til þeirra veitt framlag úr ríkissjóði helmingur af kostnaði vélanna, þannig að ræktunarsamböndin stóðu miklu betur að vígi með sín vélakaup áður heldur en nú, þegar þau fá einungis fjórða part í styrk og það einhvern tíma eftir nokkur ár, því að þau fá það ekki jafnharðan og vélarnar eru keyptar og svo gengistryggð lán í stofnlánadeild landbúnaðarins. Þetta er það, sem þau fá. En eitt er þó talandi tákn um það hvað sem því kann að valda., hvernig hagur bændanna var áður og er nú, því að ég tel, að það séu tölur, sem óhætt er að byggja á, en þær hafa verið teknar eftir framtölum bænda, birtar opinberlega og unnið úr þeim af Hagstofu Íslands. Ef við tökum árið 1957, eru veðskuldir bænda 230 millj. 814 þús. kr. og aðrar skuldir 172 millj. 146 þús. kr. Sem sagt, veðskuldirnar eru 57%, en lausaskuldir 43%. Og það lætur nærri, að þetta hafi verið hlutföllin í skuldaaukningunni, að veðskuldirnar hafi verið nær 60% allt til ársins 1964 eða á milli 55 og 63% og lausaskuldir þar af leiðandi verið í kringum 40% og farið nokkuð niður fyrir 40% það ár, sem lausaskuldir bænda eru færðar í föst lán. Ég tel þetta nokkurn mæli kvarða á það, hvernig búið hefur verið að lánastarfsemi landbúnaðarins á undanförnum árum og einnig í dag, því að framfarir hafa alltaf verið miklar í landbúnaði og vélakaup mikil og framleiðslan vaxið jafnt og þétt, og ég tel þetta því nokkurn mælikvarða á það, hvernig hag bændanna hefur verið komið. En árið 1966, í árslok, eru lausaskuldirnar um 60% og föstu lánin um 40%. Það skiptir engu máli, þó að lesið sé hér upp úr skýrslum, hve mörg lán ílafi verið veitt og hve margar millj. Það, sem skiptir máli, er það, hvað bændurnir búa við hagkvæm kjör í lánamálum landbúnaðarins.

Ég las úr skýrslu, sem ekki hefur verið vefengd, en hæstv. landbrh. hefur ekki minnzt á, að árið 1964 hafi stofnlánin verið minni hluti í fjármunamynduninni en árið 1958. Sama gegnir með ríkisframlög vegna fjármunamyndunarinnar. Þau eru sömuleiðis minni. Þetta sýnir þróunina í þessum málum og eru óvéfengjanlegar tölur, og mér er það vel ljóst, að hér hefur ekki neinn einn hlutur valdið því, að lausaskuldasöfnun hefur orðið þetta mikil. Það eru ýmsar samverkandi ástæður fyrir því og m.a. þær, að stofnlán til landbúnaðarins eru óhagkvæm með miklu lakari kjörum en þau voru fyrir 1960, því að þá voru vextir í landbúnaðinum yfirleitt ekki nema 3 1/2% út á íbúðarhús, 4% til annarra framkvæmda og engin stofnlánadeildarskattur. Og þó var alltaf hægt að lána úr Búnaðarbankanum út á þær framkvæmdir, sem til féllu hverju sinni. En nú er þróunin að verða allt önnur, því að stofnlánadeildinni er sniðinn svo þröngur stakkur með framkvæmdaáætlun ríkisins, að það er útilokað mál, að stofnlánadeildin geti sinnt sínu hlutverki eins og vera ber í lánastarfsemi landbúnaðarins, ef svo heldur áfram.

Það er sjálfsagt ýmislegt, sem hér mætti ræða um þessi mál. En það, sem ég vil benda á, er, að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hæstv. landbrh. og hv. 5. þm. Sunnl. hafa þeir ekki vefengt eina einustu tölu af þeim, sem ég hef farið með og komið með máli mínu til sönnunar. Lýsir það bezt því, að það ástand, sem ég hef hér talað um, styðst á allan hátt við staðreyndir í þessu máli.