07.03.1968
Efri deild: 67. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 790 í C-deild Alþingistíðinda. (2571)

151. mál, lax- og silungsveiði

Flm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Þeir þm. Framsóknarflokksins, sem sæti eiga í þessari deild, hafa borið fram frv. um breytingu á l. um lax- og silungsveiði, sem nú er hér til 1. umr.

Það er nokkuð almenn skoðun, að skilyrði til fiskræktar muni vera góð hér á landi, og eru þau mál nú mjög ofarlega á baugi. Meðal annars hafa þau mál verið rædd hér á hv. Alþ. í sambandi við till., sem fluttar hafa verið bæði hér í hv. þd. og Sþ. Mönnum virðist, að með því að efla fiskrækt og fiskeldi, þá muni vera hægt að koma á fót nýrri atvinnugrein, sem yrði til mikils stuðnings í atvinnulífi landsmanna. Í þjóðfélagi, þar sem fólki fjölgar ört, eins og nú er hér á landi, þá er fyllsta ástæða til þess að gefa því jafnan gaum, hvaða möguleikar eru fyrir hendi um nýjar atvinnugreinar og tryggja þannig betur en nú er atvinnulífið í landinu. Það er einnig kunnugt, að á alþjóðavettvangi er mikið um það talað, að fólksfjölgun í heiminum sé alveg gífurleg, og hjá sumum þjóðum verður greinilega vart matvælaskorts. Það getur því ekki orkað tvímælis, að fiskrækt og aukin fiskgengd og sala fiskafurða á markað er hið mesta nauðsynjamál, sem vert er að styðja svo sem kostur er á hverjum stað. Enn fremur má geta þess, að í öllum atvinnugreinum eykst tæknin, en með aukinni tækni verður rányrkjan enn hættulegri en hún áður var. Það er þess vegna fullkomin ástæða til þess að gera allt, sem kostur er, til þess að koma á ræktun í stað rányrkju á sviði sjávarútvegs eigi síður en í landbúnaði.

Þetta, sem ég hef nú nefnt, eru staðreyndir, sem yfirleitt er ekki ágreiningur um, og sé ég ekki ástæðu til þess í sambandi við þetta frv. að færa fyllri rök fyrir þessu eða ræða um þetta hagsmunamál almennt, heldur sný ég mér að því að gera grein fyrir efni frv. sjálfs.

Í þessu sambandi ber þess að geta, að l. um lax- og silungsveiði eru orðin nokkuð gömul, og af þeim er fengin talsvert mikil reynsla, og það er alveg augljóst, að með þeirri löggjöf var á sinum tíma stigið stórmerkilegt skref, sem hefur leitt til góðrar niðurstöðu, svo langt sem starfsemi á þessu sviði hefur náð, en samkvæmt gildandi l. um lax- og silungsveiði hefur að undanförnu verið keppt að því marki að auka lax- og silungastofninn með ræktun, og með löggjöfinni eru settar reglur um lax- og silungsveiði. Samkvæmt þeim l. hefur veiðimálaskrifstofan á hendi framkvæmdir og umsjón með klaki og fiskeldi, en einnig hefur verið unnið á þessu sviði merkilegt starf af ýmsum áhugamönnum hér á landi.

En þó að þessi reynsla sé góð og mikilsverð, svo langt sem hún nær, ná framkvæmdir á þessu sviði enn of skammt að dómi okkar flm. þessa frv. Við teljum, að á þessu sviði þurfi að stíga enn stærri skref heldur en gert hefur verið, og það, sem beri þá að hafa í huga, sé í fyrsta lagi, að það þurfi að stórauka tilraunir á þessu sviði, því að á aukinni tilraunastarfsemi þurfa framkvæmdir að grundvallast, svo að menn viti nokkurn veginn, hvaða möguleikar séu fyrir hendi og að ekki sé lagt í framkvæmdir, sem ekki hafi nokkurn veginn traustan grundvöll á að byggja. Í þessu frv. er það nýmæli að halda skuli uppi í auknum mæli tilraunum á þessu sviði, og með tilraunastarfseminni skuli kosta kapps um að leiða í ljós, hvaða gerðir fiskeldisstöðva henti bezt fyrir ísl. staðhætti og hvers hagnaðar megi vænta af fiskeldi. Tilraunastarfsemin skal og miða að því að leiða í ljós, hvort firðir við strendur Íslands séu hæfir til fiskræktar og uppeldis nytjafiska. Veiðimálastjóra er ætlað skv. frv. að hafa þessar tilraunir með höndum eða veita þeim forstöðu, og honum er síðan lögð sú skylda á herðar í frv. að birta niðurstöður tilraunanna jafnóðum, þannig að sú vitneskja, sem fæst með þessari starfsemi, verði almenningi kunn.

Annað, sem þarf að gera á þessu sviði að dómi okkar flm. þessa frv., er að auka svo fljótt sem kostur er almenna þekkingu manna á þessari grein og síðar yrði þá hægt að koma á leiðbeiningarstarfsemi um fiskeldi. Í þessu frv. er ekki sérstaklega fjallað um fræðslu á þessu sviði, en ég vil í þessu sambandi minna á, að hv. landbn. þessarar d. hefur flutt till. um, að tekin skuli upp kennsla í fiskrækt við bændaskólana, og er það einn þáttur af þessu stóra máli. Væntanlega fær þessi till. afgreiðslu hér í hv. d. fyrr en seinna.

Hið þriðja, sem að dómi okkar flm. þarf að gera, er að stórauka fjármagn, sem varið er til þeirrar starfsemi, sem hér um ræðir. Til þess að góður árangur náist og að fiskrækt verði arðvænleg búgrein, þarf ekki aðeins að auka þekkingu á þessu sviði, heldur jafnframt að tryggja þeim, sem hafa áhuga á að vinna að þessari starfsemi og telja sig færa um að takast hana á hendur, að þeir eigi sæmilega greiðan aðgang að fjármagni, sem lagt sé fram, eða völ sé á, til stuðnings framkvæmdum á þessu sviði.

Við höfum hreyft þessu máli hér í frv.-formi með það fyrir augum, að við teljum, að það þurfi að setja lagaákvæði, sem leggi grundvöll að aukinni starfsemi á þessu sviði og opni einstaklingum leið til þess að hefjast handa í þessari grein, og um leið sé í löggjöf opnuð leið til þess að ná þeim markmiðum, sem yfirleitt virðist ekki vera ágreiningur um, að þurfi að keppa að. Við teljum því, að það sé fullkomlega tímabært að gera lagabreytingu, sem stefnir í þessa átt, og með þetta í huga er lagt fram þetta frv. um breytingu á l. um lax- og silungsveiði.

Ég hef drepið á, að frv. geri ráð fyrir stóraukinni tilraunastarfsemi og að till. liggur hér fyrir í hv. d. um aukna fræðslu um fiskrækt. Það eru hvort tveggja þættir í þessu máli. En í þessu frv. er það lagt til, að ríkisframlög verði veitt til framkvæmda í fiskeldi, bæði til framkvæmda á vegum ríkisins, sérstaklega veiðimálaskrifstofunnar, og einnig til þeirra framkvæmda, sem einstaklingar eða félagsskapur áhugamanna kann að hefjast handa um. Þær framkvæmdir, sem notið geta framlags af ríkisfé, sem ákveðið verður samkvæmt fjárl. hverju sinni, það eru fiskvegir og önnur meiriháttar mannvirki, er stefna að því að auka fiskför um vatn, það eru klakhús og það eru eldisstöðvar, bæði þær sem reistar verða af hálfu ríkisins og af hálfu annarra aðila. En til viðbótar þessu gerum við ráð fyrir, að tekin verði upp lánastarfsemi til framkvæmda í þessari atvinnugrein og að stofnaður verði sérstakur sjóður í því skyni, er beri nafnið Fiskræktarsjóður. Sjóður þessi á samkv. frv. að vera deild í Búnaðarbanka Íslands, og bankastjórar Búnaðarbankans ráða þá að sjálfsögðu lánveitingum, en gert er ráð fyrir því, að veiðimálastjóri hafi eftirlit og gefi umsögn um þær framkvæmdir, sem lán er veitt til. Sjóðnum á skv. frv. að afla fjár með útgáfu og sölu skuldabréfa, er ríkissjóður beri ábyrgð á, og Seðlabankanum er lögð sú skylda á herðar að kaupa á nafnverði skuldabréf Fiskræktarsjóðs fyrir eigi lægri fjárhæð en 30 millj, kr. árlega næstu 10 árin. Skv. frv. eiga lánakjör úr Fiskræktarsjóði að vera mjög hliðstæð þeim lánakjörum, sem gilda í stofnlánadeild landbúnaðarins til útihúsabygginga og ýmissa annarra framkvæmda á jörðum. Þau lán, sem veitt yrðu úr Fiskræktarsjóði skv. frv., yrðu fyrst og fremst veitt sem stofulán vegna framkvæmda á því sviði, sem að fiskrækt lýtur. En í frv. er þó gert ráð fyrir, að það geti komið til greina að veita einnig rekstrarlán til fiskeldisstöðva, eftir því sem fé er fyrir hendi í Fiskræktarsjóði.

Ég hef þá gert stutta grein fyrir þeim nýju ákvæðum, sem í þessu frv. felast, og sé ég ekki ástæðu til, nema sérstakt tilefni gefist, að hafa um þetta fleiri orð við þessa umr., en ég veit, að fyrir hendi er hæði hér í hv. þd. og meðal þm. almennt, góður skilningur á því máli, sem hér er reifað, og ég vænti þess, að þetta frv. verði athugað með fullum velvilja hér í hv. þd., og það verði greitt fyrir framgangi þess svo vel sem efni standa framast til. Ég legg svo til, að að þessari umr. lokinni verði frv. vísað til 2. umr. og hv. landbn.