14.11.1967
Efri deild: 16. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í B-deild Alþingistíðinda. (259)

52. mál, sveitarstjórnarlög

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er flutt í beinu framhaldi af þeim tveimur frv., sem áður hafa verið lögð fyrir Alþingi af hæstv. forsrh., varðandi þær breyt., sem fyrirhugaðar eru á kosningaraldri, og felur þetta frv. í sér hliðstæða eða sams konar breyt. á sveitarstjórnarlögunum, um að sami aldur gildi til kosninga þar eins og í kosningum til Alþingis.

Ég tel óþarft að fjölyrða frekar um þetta frv. Vona ég, að öllum hv. þdm. sé ljós nauðsyn þess, að það sé flutt, með hliðsjón af þeim frv., sem áður hafa verið flutt um sama efni, þótt í öðrum greinum sé.

Ég óska þess, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.