20.03.1968
Sameinað þing: 46. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í D-deild Alþingistíðinda. (2606)
81. mál, aðild Íslands að GATT
Frsm. (Bragi Sigurjónsson):
Herra forseti. Þáltill. sú, sem hér liggur fyrir til afgreiðslu, fjallar um það að heimila ríkisstj. að gerast fyrir Íslands hönd aðili að hinu almenna samkomulagi um tolla og viðskipti, í daglegu tali kallað GATT, og að bókun við það samkomulag gerðri 30. júní 1967 og kennd er við Genf.
Aðildarríki að GATT eru nú orðin rúmlega 80 talsins, þar í flokki öll aðalviðskiptaríki okkar bæði í Austur- og Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku. En höfuðtilgangur GATT er að stuðla að auknum milliríkjaviðskiptum með lækkun tolla og afnámi viðskiptahafta Í 1. gr. GATT-samkomulagsins er kveðið svo á, að beztu kjör skuli gilda milli aðildarríkjanna. Ísland hefur átt bráðabirgðaaðild að GATT síðan 1964, og rann sú aðild út í árslok 1967. Sem aukaaðili að GATT tók Ísland þátt í svonefndum Kennedy-viðræðum aðildarríkjanna, en þær stóðu um þriggja ára skeið eða frá því í maí 1964 þar til í maí 1967, og var aðildarsamningur Íslands að GATT staðfestur af GATT-aðilum 30. júní í fyrra sem hluti af niðurstöðum Kennedy-viðræðnanna. En samkv. þessum samningi falla nær allir tollar á útfluttum sjávarafurðum okkar hjá aðalviðskiptaþjóðunum undir svonefndar GATT-bindingar, en það táknar í stórum dráttum, að þær geti ekki hækkað tolla sína á sjávarafurðum okkar nema að veita okkur jafngilda lækkun á móti. Þessa samninga við GATT önnuðust fyrir Íslands hönd Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstj. og Einar Benediktsson sendiráðunautur og undirrituðu þá fyrir Íslands hönd 16. okt. s.l. en sú undirritun er háð staðfestingu Alþ., sem hér er farið fram á, að veitt verði. Allshn. Sþ. hefur fjallað um þáltill. þá, er hér ræðir um, á nokkrum fundum sínum og kynnt sér grg. þá er henni fylgir. Jafnframt kvaddi n. Einar Benediktsson sendiráðunaut á fund sinn, og veitti hann nm. upplýsingar um gang þeirra mála og lýsti þeirri skoðun sinni, að íslenzka ríkinu væri hagfellt að gerast aðili að GATT.
Eins og fram kemur af framlögðu nál. allshn. á þskj. 382, leggur hún einróma til, að þáltill. verði samþykkt.