20.02.1968
Efri deild: 60. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í D-deild Alþingistíðinda. (2616)

136. mál, fræðsla í fiskirækt og fiskeldi

Frsm. (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Það mun hafa verið skömmu fyrir jólaleyfi, að landbn. Ed. barst bréf frá Landssambandi ísl. Stangveiðimanna. Ég vildi leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að kynna d. þetta bréf, sem varðar þá till. til þál., sem hér er til umr. Bréfið er svo hljóðandi:

„Á aðalfundi Landssambands ísl. stangveiðimanna, sem haldinn var í Borgarnesi 11. nóv. s.l„ var lögð fram og einróma samþ. eftirfarandi till.:

Aðalfundur Landssambands ísl. stangveiðimanna lýsir stuðningi sínum við og telur mjög tímabæra eftirfarandi till., sem nýafstaðinn aðalfundur úr Félagi áhugamanna um fiskirækt hefur samþ., svo hljóðandi:

Aðalfundur Félags áhugamanna um fiskirækt, haldinn í Átthagasalnum að Hótel Sögu fimmtudaginn 9. nóv. 1967, beinir þeirri áskorun til Alþ. og ríkisstj., að tekin verði sem fyrst upp kennslugrein við búnaðarskólana í landinu um byggingu og ræktun klak– og eldisstöðva Jafnframt verði hafinn undirbúningur að því, að Háskóli Íslands geti veitt vísindalega fræðslu og brautskráð kunnáttumenn í málefnum þessum. Stjórn Landssambands ísl. stangveiðimanna hefur margoft bent á það á undanförnum árum og stuðzt þá m.a. við reynslu annarra þjóða í því efni, að hér á landi verði að álíta, að vatnafiskirækt geti orðið mikil búgrein og þar með nýr atvinnuvegur í landi voru. Er vonandi, að þessu máli verði nú á næstunni meiri gaumur gefinn en verið hefur, þar eð fleiri eru nú að komast á þessa skoðun vora. En þar sem telja verður, að fáir aðilar hér séu svo kunnugir fiskirækt og því, sem henni fylgir, er hér lagt til, að tekin verði upp kennsla í þessari búgrein og byrjað verði á því að veita ungmennum í búnaðarskólum landsins nokkra fræðslu í fiskeldi og rekstri klak– og eldisstöðva, eins og bent er á í ofangreindri till. Vér væntum þess, að hv. landbn. Ed. Alþ. taki till. vora til athugunar og veiti henni brautargengi á Alþ.“

Landbn. hefur haft þessa till. til athugunar, og eftir þá athugun, sem hér hefur verið gerð í málinu innan n., er fram komin sú till. til þál., sem hér liggur fyrir til umr.

Það er rétt, sem tekið er fram í bréfi Landssambands ísl. stangveiðimanna, að mönnum er að verða það æ ljósara, hverja þýðingu það hefur, að atvinnulífið í landinu sé sem fjölbreyttast, og þó að nefnt hafi verið ýmislegt til í því skyni að auka fjölbreytnina í því efni, á sú skoðun vaxandi fylgi, að einmitt fiskirækt og fiskeldi muni vera eitt af því, sem til greina kemur, þar sem það er viðurkennt, að skilyrði fyrir lax– og silungsrækt eru talin vera hér í bezta lagi, og því má vænta mikils árangurs af því starfi, sem til þessa yrði lagt.

Það er engum vafa undirorpið, að lax– og silungsveiði í ám og vötnum verður hagnýtt í vaxandi mæli ,hér á landi, en til þess að svo megi verða, segir það sig sjálft, að í þessari atvinnugrein, eins og í hverri annarri, sem fengizt er við, er þekkingin það, sem máli skiptir, og er það eitt, sem verður til þess, að um verulega þróun og vöxt geti orðið að ræða Það er því álit n., að það sé mjög mikilvægt, að þeir menn, sem líklegir eru til þess að verða eigendur veiðiréttar og aðstöðu fyrir alla fiskirækt, fái sem haldbezta fræðslu um þau efni, sem koma til með að verka á þessi máli.

Í till. þeirri, sem Félag áhugamanna um fiskirækt samþykkti á s.l. hausti, er einnig getið um annan þátt fræðslu, sem ekki er komið inn á í þeirri till., sem landbn. hefur hér leyft sér að flytja. En það er um það að hafinn verði undirbúningur að því, að Háskóli Íslands geti veitt vísindalega fræðslu og brautskráð kunnáttumenn í málefnum þessum. Landbn. hefur ekki farið inn á það að gera neitt í þessu efni, og byggist það fyrst og fremst á því, að þetta er miklu stærra mál en svo, að það sé unnt að gera neitt með skjótum hætti í því. Hitt er svo annað, sem líka ber að hafa í huga í því sambandi, og það er, að þessi atvinnugrein er hér ung í landinu. Þess er varla að vænta, að á næstunni verði mjög margir menn, sem mundi vera þörf fyrir að sérmennta í þessu efni, og eitt þó, sem er það allra veigamesta., og það er það, að við eigum enn sem komið er ekki svo mjög marga, sem þannig menntun hafa hlotið, að þeir geti tekið að sér að veita þá fræðslu, sem til þarf í þessum efnum. N. hefur því valið þann kostinn að binda ekki þennan þátt inn í þá till., sem hér er flutt, en snúið sér heldur að hinni almennu fræðslu um þessi málefni.

Eins og kemur fram í grg. þeirri, sem fylgir þáltill., getum við þess, að það sé líklegt, að það þurfi ekki að koma til verulegra fjárútláta, þó að þessi fræðsla yrði upp tekin við bændaskólana. Veiðimálastofnun hefur verið hér starfandi a.m.k. um 20 ára skeið. Lengst af hefur hún átt litlum starfskröftum á að skipa, en nú í seinni tíð hafa starfskraftar hennar aukizt nokkuð, og er mér kunnugt um, að fenginn hefur verið að stofnuninni annar fiskifræðingur, og eru þeir því tveir starfandi við hana nú. Auk þess hefur verið komið á klak- og eldisstöð í tilraunaskyni í Kollafirði, og þaðan koma nú niðurstöður vísindalegra athugana, og munu þær að sjálfsögðu verða því þýðingarmeiri og betur undirbyggðar sem stöðin starfar lengur.

Til þess að geta hagnýtt þau hlunnindi, sem vatnafiskar gefa nú, þarf að auka mjög fræðslu veiðiréttareigendanna og veiðimanna á öllu því, sem lýtur að veiðimálum, jafnt að klaki, eldi, göngum og öðru því, sem máli skiptir í því sambandi. Og til þess að unnt sé að auka þessi hlunnindi og stofna til þeirra á nýjum stöðum, þarf og fræðslu, svo að allt ber hér að sama brunni, og má segja, að þó að í þessari till. sé ekki neitt farið inn á það að stuðla að fjölgun fiskiræktarstöðva, er þetta þó liður í því starfi að styðja að því, að þær komi upp og geti orðið til gagns fyrir þá sem þær reka, og þjóðina í heild. Ég tel, að áherzlu beri að leggja á vísindalegar tilraunir og athuganir í þessu sambandi, og ég hygg, að það megi vænta þess, að sú endurskoðun, sem nú er verið að gera á veiðimálalöggjöfinni, muni beinast mjög að því, að þessar tilraunir verði efldar og styrktar að verulegu marki. En þá þarf einnig að vinna að því að koma þessum niðurstöðum á framfæri jafnóðum til þeirra manna, sem þar hafa mestra hagsmuna að gæta og munu mest um fjalla.

Landbn. er öll sammála um, að með samþykkt þessarar till. sé stefnt í rétta átt og að nokkurs árangurs megi vænta af þeirri starfsemi, sem hér er lagt til, að komið verði á.

Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að fjölyrða frekar um þetta efni að þessu sinni, nema sérstakt tilefni gefist til. En ég legg til, að umr. verði frestað, svo að n. gefist tóm til að leita umsagnar þeirra aðila, sem hér koma helzt til að fjallla um þetta mál.