01.11.1967
Sameinað þing: 8. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í D-deild Alþingistíðinda. (2638)

24. mál, listasöfn og listsýningar utan Reykjavíkur

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður beindi til mín einni fsp., sem ég skal með ánægju reyna að svara, eftir því sem mér er unnt í örfáum orðum, sérstaklega vegna þess, að orðalag fsp. gæti gefið tilefni til misskilnings, sem ég þá um leið gjarnan vil fá tækifæri til að leiðrétta. Hann spurði, hvort í undirbúningi væru af hálfu ríkisstj. ráðstafanir til þess, eins og hann tók til orða, að sjá svo um, að félagsheimilasjóður gæti staðið við skuldbindingar sínar. Um þetta er það að segja, að málefni félagsheimilasjóðs hafa verið til athugunar í menntmrn. í mörg ár. Það verður að segja það alveg eins og það er, og skal ég ekki gera neina tilraun til að draga fjöður yfir það, að vandamál félagsheimilasjóðs hefur reynzt svo stórt, svo vandmeðfarið og torleysanlegt, að mér hefur ekki enn tekizt að fá nægilega samstöðu um neina lausn á því máli, sem mér hefur fundizt vera frambærileg og ég treyst mér til þess að standa að eða bera fram. En eftir sem áður er málið til athugunar, og ég mun gera mitt til þess, að þessu þingi ljúki ekki án þess, að ný löggjöf verði sett um félagsheimilasjóð. En vegna þess, að hv. þm. tók þannig til orða að skilja mætti þannig, að hann hefði ekki staðið við skuldbindingar sínar, þá er hér um að ræða misskilning, sem raunar er mjög algengur, ekki aðeins meðal nýrra þm., heldur eldri þm. líka og meðal blaðamanna og alls almennings.

Svo sem kunnugt er, hefur félagsheimilasjóður í tryggðar tekjur 45% af skemmtanaskatti, önnur 45% ganga til Þjóðleikhússin til greiðslu á rekstrarhalla þess og 10% ganga til sinfóníusveitarinnar til greiðslu á hluta rekstrarhalla hennar, og þessi 45% af skemmtanaskatti eru árlega svona 6–7 millj. kr. Þær má stjórn félagsheimilasjóðs nota til þess að greiða allt að 40% af byggingarkostnaði félagsheimila. Hún má samkv. gildandi l. félagsheimilasjóðs frá 1949 nota fé sitt til þess að styrkja byggingarkostnað félagsheimila allt að 40%. Það er hámark styrksins, sem veittur hefur verið.

Frá upphafi starfsemi félagsheimilasjóðs hefur stjórn hans aldrei lofað nokkru heimili, að það skyldi fá 40% byggingarkostnaðarins. Stjórn félagsheimilasjóðs hefur aldrei skuldbundið sig til þess að greiða nokkru heimili 40% byggingarkostnaðarins. Hún hefur sagt, að hún mundi stefna að því, þegar fjárhagur félagsheimilasjóðs leyfði, þá mundi verða greitt í hæsta lagi 40%. Stundum hefur því verið slegið föstu, að viss félagsheimili undir vissum kringumstæðum gætu ekki fengið minna og þá lægra hámark nefnt, en það hefur ávallt verið tekið skýrt fram, að um enga skuldbindingu væri að ræða, enda má í rauninni telja vafasamt, að stjórn félagsheimilasjóðs hefði í rauninni lagalegan rétt til þess að skuldbinda greiðslu af opinberum tekjustofni, sem engin trygging er fyrir að muni haldast, og mér er vel kunnugt um það, að stjórn félagsheimilasjóðs hefur aldrei farið út fyrir umboð sitt í þeim efnum. Þess vegna eiga forráðamenn einskis félagsheimilis neina lagakröfu á hendur félagsheimilasjóði um greiðslu 40% byggingarkostnaðar síns. Mér er kunnugt um það af ótal viðræðum við forráðamenn félagsheimila, að þeim er þetta ljóst. Mér er ekki kunnugt um nokkurn forráðamann nokkurs félagsheimilis, sem ekki er þessi staðreynd Ijós. Hitt er svo annað mál, að ég tel mjög æskilegt, að hægt verði af opinberu fé að greiða 40% byggingarkostnaðar þeirra félagsheimila, sem þegar eru í byggingu, það tel ég mjög æskilegt, en hins vegar er jafnnauðsynlegt að breyta framtíðarreglum um byggingu nýrra félagsheimila hvað þetta snertir, enda hefur þegar svo mikill hluti þeirra verið byggður, að lítill skaði væri skeður, þó að mun hægara verði farið í þær framkvæmdir framvegis en hingað til.

Hugmyndir hafa verið uppi um lausn á þessum gífurlega vanda, sem hér er um að ræða, Það eru til nokkur félagsheimili, sem hafa fengið greidd 40% síns byggingarkostnaðar, og það er ekki mikill hluti þeirra félagsheimila, sem ýmist eru fullbyggð eða eru í byggingu. Vandinn, sem hér er á ferðinni, er geysilega mikill, og skal ég ekki nefna tölur í þessu sambandi. En hugmyndirnar, sem uppi hafa verið í margs konar formi um það að leysa þennan vanda, eru þess efnis, að gefin verði út skuldabréf, sem væru ríkistryggð. Félagsheimilasjóður fengi heimild til þess að gefa þau út, og ógreitt fjárframlag, — ég kalla það ekki skuld, það er ekki skuld —, og ógreitt fjárframlag, allt upp í 40% af byggingarkostnaði, yrði síðan greitt með þeim, en jafnframt stuðlaði hið opinbera eða bankakerfið að því, að stjórnir félagsheimilanna, sem fengju þessi skuldabréf, gætu komið þeim í verð með sérstökum hætti. Þetta er grundvallarhugmyndin, sem reynt hefur verið að fá nægilega samstöðu um á undanförnum árum.

En þegar um slíkar upphæðir er að ræða sem hér er, upphæðir, sem skipta mörgum, mörgum tugum millj. kr., verða mörg ljón á veginum við lausn málsins. En sem sagt, fyrst hv. þm. nefndi þetta, sem er mjög eðlilegt, að hann hafi nefnt, og fyrri flm. líka, vildi ég skýra frá því, að enn mun verða haldið áfram að reyna að finna einhverja lausn á vandamálum félagsheimilasjóðs.