30.01.1968
Sameinað þing: 31. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í D-deild Alþingistíðinda. (2650)
50. mál, stöðlun fiskiskipa
Dómsmrh. (Jóhann Hafsteín):
Herra forseti. Ég skal nú ekki tefja mjög tímann í sambandi við þessa þátill., en vildi hins vegar gera grein fyrir því, sem ég hélt reyndar, að hv. flm. væri kunnugt um, að það, sem lagt er til í þátill., að gert sé eða ætlazt er til, að ríkisstj. láti gera, er þegar búið að vera í gangi frá hví á miðju s.l. ári, þ.e.a.s. athugun á stöðlun fiskiskipa.
Það mun hafa verið fyrri hluta ársins, að Landssamband skipasmíðastöðva átti viðræður við iðnmrn. um það, að hafizt yrði handa um að athuga möguleikana á stöðlun fiskiskipa fyrst og fremst í þeim tilgangi, að skipasmíðarnar gætu með þeim hætti orðið ódýrari en ella. Var iðnmrn. send um þetta grg. í marzmánuði og áætlanir landssambandsins um það, hvað þeir teldu, að gæti áunnizt í þessu sambandi. Var þar e.t.v. um að ræða um 10% lækkaðan byggingarkostnað með slíkri stöðlun fiskiskipanna. Málið var þá rætt í iðnþróunarráði og einnig við Seðlabankann um hugsanlega aðstoð, sem kynni að þurfa að veita fjárhagslega í sambandi við aðgerðir sem þessar, þ.e.a.s., ef um það væri að ræða, að Fiskveiðasjóður þyrfti að lána töluvert mikið meira eða út á fleiri skip innanlands en áður hefur verið eða verið hefur á undanförnum árum. Svo í framhaldi af því áttu fulltrúar skipasmíðastöðvanna eða Landssambands skipasmíðastöðvanna viðræður við mig aftur í lok júnímánaðar, 27. júní. Í framhaldi af þeim viðræðum ræddum við hæstv. sjútvmrh. þetta mál sérstaklega við stjórn Fiskveiðasjóðs og þar af leiðandi fulltrúa eða bankastjóra bæði Landsbankans, Útvegsbankans og Seðlabankans. Í framhaldi af því var sett á laggirnar með bréfi 19. júlí s.l. n. til þess að vinna að þessari stöðlun, og ég vil leyfa mér að gera grein fyrir þessari nefndarskipun. Held ég, að það væri þá greinarbezt að lesa upp það bréf, sem þar að lýtur, sem skrifað var af minni hálfu til Landssambands skipasmíðastöðvanna og er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Í framhaldi af viðræðum fulltrúa skipasmiðastöðva við iðnmrh. hinn 27. júní s.l. um vandamál skipasmíðastöðvanna vegna breyttra aðstæðna og um ráðstafanir til úrbóta, hafa þessi mál verið rædd innan ríkisstj. Iðnmrh. og sjútvmrh. hafa átt viðræður við stjórn Fiskveiðasjóðs um hugsanlegar leiðir til þess að styrkja aðstöðu skipasmíðastöðvanna Rn. beinir því hér með til yðar að tilnefna tvo fulltrúa til þess að vinna að tillögugerð um hentugasta gerð íslenzks fiskiskips við núverandi aðstæður í samráði við tæknideild Fiskveiðasjóðs og Fiskifélags Íslands ásamt fulltrúum, sem sjútvmrh. mun tilnefna. Að fenginni niðurstöðu þessa atriðis mundi tekið til frekari athugunar með hvaða ráðum mætti skapa skipasmíðastöðvunum verkefni á þessum grundvelli á næstunni samhliða öðrum ráðstöfunum, sem stefna mundu að sama marki. Tilnefningu fulltrúa yðar ber að tilkynna iðnmrn., sem hefur forgöngu um að kalla n. saman til starfa“
Upp úr þessu var svo þessi n. sett á laggirnar með tveimur aðilum frá landssambandinu, skipasmíðastöðvum, og tveimur aðilum tilnefndum af sjútvmrh. og þremur sérfræðingum Fiskveiðasjóðs og Fiskifélagsins. Ég lagði svo áherzlu á, að n. reyndi að hraða sem mest störfum sínum, en þegar nm. fóru betur að athuga málið, var það þeirra skoðun, að það þyrfti meiri og nánari athugun en þeir hefðu gert sér grein fyrir í öndverðu. Niðurstaðan varð svo sú, að þessi n. skilaði bráðabirgðaskýrslu um störf þessarar skipanefndar, sem er dags. 16. okt. 1967. Þessi bráðabirgðaskýrsla gefur nokkurt yfirlit um það, sem n. hafði unnið að og hvað hún mundi ætla sér á næstunni að gera, og vildi ég þess vegna gera hv. þingi grein fyrir þessari bráðabirgðaskýrslu með því að lesa hana upp, með leyfi hæstv. forseta. Hún er ekki löng, en í henni segir:
„Með bréfi dags. 12. júli 1967 fór iðnmrh. þess á leit við Landssamband skipasmíðastöðva, að það tilnefndi tvo fulltrúa í n. til þess að vinna að tillögugerð um hentugasta gerð íslenzks fiskiskips við núverandi aðstæður í samráði við tæknideild Fiskveiðasjóðs og Fiskifélags Íslands ásamt fulltrúum, sem sjútvmrh. mun tilnefna. Landssamband skipasmíðastöðva tilnefndi þá Jón Sveinsson framkvæmdastj., Garðahreppi og Jósef H. Þorgeirsson lögfr., Akranesi. Með bréfi dags. 21. júlí 1967 fól sjútvmrh. þeim Tómasi Þorvaldssyni framkvæmdastj., Grindavík og Þorsteini Jóhannessyni skipstj., Garðahreppi að taka sæti í n. Með bréfi dags. 14. júlí 1967 fól stjórn Fiskveiðasjóðs Íslands þeim Erlingi Þorkelssyni vélfræðingi, Reykjavík, Herði Frímannssyni verkfr., Reykjavík og Jóni B. Hafsteinssyni verkfr., Reykjavík að taka sæti í n.
Fyrir forgöngu iðnmrn. kom n. saman til 1. fundar hinn 19. júlí 1967 og kaus Jósef H. Þorgeirsson formann og Jón Sveinsson ritara N. hefur samtals haldið 7 fundi og aflað sér gagna um skipasmíði hér á landi á seinustu árum og breytingar, sem orðið hafa á samsetningu skipastólsins eftir stærðarflokkum á árunum 1961 til 1966, og er þá fiskiskipunum skipt í eftirfarandi stærðarflokka, er varða athuganir n.: Bátar undir 12 rúml., skip 12–49 rúml., skip 50–99 rúml., skip 100–149 rúml., skip 150–299 rúml., skip 300–499 rúml. og skip 500–749 rúml. Einnig hefur n. kannað innflutning skipa frá 1960 og skrá um skip í smíðum 1. jan. 1967. N. samdi fyrirspurnir, sem voru sendar öllum meðlimum Landssambands ísl. útvegsmanna, samtals 350–360 aðilum. Voru útvegsmenn beðnir að svara eftirfarandi spurningum: Í fyrsta lagi, hvaða gerð og stærð af fiskiskipi teljið þér hagkvæma fyrir yðar útgerð? Nefnið rök fyrir ástæðunni, gerð t.d. hliðartogskip, skuttogskip, 2 dekk, stærð í rúmlestum og/eða lengd og breidd. Í öðru lagi, til hvaða veiða er skipið ætlað, snurpunótaveiða, togveiða, línuveiða, netaveiða, dragnótaveiða? Ef um fleiri en eina veiðiaðferð er að ræða, þá merkið við það, sem við á. Í þriðja lagi, hvaða ganghraða skipsins teljið þér nauðsynlegan? Í fjórða lagi, hafið þér í hyggju að smíða fiskiskip á næstu 2–3 árum? Og í fimmta lagi aðrar upplýsingar, sem þér teljið máli skipta, svo sem um búnað, tæki, rafkerfi o.s.frv. Alls bárust n. 63 svör frá útvegsmönnum, og hefur verið unnið að flokkun þeirra og gerð heildaryfirlits.
Athuganir n. hafa einkum beinzt að samtals 5 stærðum fiskiskipa, enda telur n. að engin ein stærð eða gerð fiskiskips sé fullnægjandi við allar aðstæður. Stærðir þær, sem n. hefur kannað, eru sem hér segir: Í fyrsta lagi fiskiskip 35–45 rúml., sem gætu stundað veiðar með línu, netum, botnvörpu, dragnót og humartrolli á heimamiðum. Í öðru lagi fiskiskip 80–120 rúml., sem gætu stundað veiðar með línu, netum og botnvörpu, bæði á heimamiðum og fjarlægari miðum, t.d. við Grænland, og einnig stundað síldveiðar með góðum árangri, ef fjarlægð miða er ekki óhæfilega mikil. Í fjórða lagi fiskiskip 350–400 rúml., sem gætu stundað síldveiðar jafnvel á fjarlægum miðum með viðunandi árangri ásamt bolfiskveiðum með línu, netum og botnvörpu bæði á heimamiðum og fjarlægari miðum. Í fimmta lagi fiskiskip 500–700 rúml., sem fyrst og fremst væru hugsuð til að stunda síldveiðar og bolfiskveiðar á fjarlægari miðum og hefðu aðstöðu til að verka afla um borð, en gætu jafnframt stundað veiðar á heimamiðum. N. telur það ekki í verkahring sínum að athuga fiskiskip, sem eingöngu eru ætluð til veiða með botnvörpu, enda vinnur sérstök n. að því verkefni. Á vegum n. hafa verið samin drög að smíðalýsingum fyrir 4 stærðarflokka fiskiskipa, sem hafa verið rædd á fundum n.
Í fyrrgreindu bréfi iðnmrh., dags. 12. júlí 1967 segir orðrétt:
„Að fenginni niðurstöðu þessa atriðis, það er tillaga um hentugasta gerð ísl. fiskiskips við núverandi aðstæður, mundi tekið til frekari athugunar með hvaða ráðum mætti skapa skipasmíðastöðvunum verkefni á þessum grundvelli á næstunni, samhliða öðrum ráðstöfunum, sem stefna mundu að sama marki.“
Með tilvísun til þessa hafa fulltrúar Landssambands skipasmíðastöðva í n. lagt áherzlu á að störfum hennar væri hraðað eftir því sem kostur er, enda brýnt, að verkefni innlendra skipasmíðastöðva verði aukin sem allra fyrst. Nm. er jafnframt ljóst, að fjöldamörg sérstök vandamál í þessu sambandi eru ekki nægjanlega könnuð enn sem komið er og fyrirsjáanlegt, að athugun þeirra takur langan tíma og mun kosta einhver útgjöld. Á þetta einkum við um fjölda þilfara í stærri fiskiskipum, fyrirkomulag í vélarúmi, afkastagetu og gerð rafkerfis, fyrirkomulag í fiskiIestum, varðveizlu aflans um borð og flutning til lands, hagkvæma stærð fiskilesta, úthaldstíma og stærð geyma fyrir brennsluolíu
og vatn. Einnig þarf að kanna sérstaklega, hverjir eru taldir vera helztu gallar að áliti skipstjórnarmanna og vélstjóra á núverandi búnaði fiskiskipa. Þegar framangreind atriði liggja ljósar fyrir, er tímabært að láta gera nákvæma smíðalýsingu og teikningar samfara annarri undirbúningsvinnu að hentugu skipi til að smíða í flokkum. Nm. eru því allir sammála um, að verkefni það, sem þeim var falið að leysa, sé svo viðamikið og tímafrekt, að fyrirsjáanlega sé ekki hægt að leysa það á þeim tíma, sem fulltrúar Landssambands ísl. skipasmíðastöðva í n. telja nauðsynlegan til að forða stöðvunum frá rekstrarstöðvun sökum verkefnaskorts, og telja þeir því nauðsynlegt, að sérstakar ráðstafanir séu gerðar til að útvega stöðvunum verkefni til bráðabirgða unz endanlegar till. n. liggja fyrir. N. er sammála um að halda áfram störfum og beita sér fyrir rækilegnum athugunum á þeim atriðum, sem um getur hér að framan, enda takist að útvega fé til að kosta þessar athuganir og þeim verði hraðað eftir mætti.“
Síðan skrifa þessir 7 aðilar, sem áður hafa verið nefndir, undir þetta nál., sem dags. er 16. okt. s.l. í Reykjavík. Það, sem þessi þátill. fjallar um, er að álykta að fela ríkisstj. að láta fara fram nákvæma rannsókn á því, hvort ekki sé hagkvæmt að láta staðla veiðiskip landsmanna í ákveðnar stærðir og gerðir, eins og þar stendur, svo að þau verði ódýrari í smíðum fyrir innlendar skipasmíðastöðvar. Að þessu hefur sem sé verið unnið, og ég þykist mega búast við því, að það sé ekki langt undan, að þessi n., sem skipuð er ágætum og sérfróðum mönnum, skili endanlega sínu nál. Að öðru leyti hefur, eins og kunnugt er, ríkisstj. átt hlut að máli um að skapa verkefni fyrir skipasmíðastöðvarnar, eins og síðari hluti till. víkur að. M.a. hafa verið athugaðir möguleikarnir á því að gera bilið stærra í sambandi við lánveitingar til þeirra, sem láta smíða skip hér innanlands, og hinna, sem láta smíða skip fyrir sig erlendis. Mig minnir, að það hafi verið 4. jan. s.l., að ríkisstj. ályktaði um það, að hún mundi hlutast til um að útvega allt að 10% til viðbótar þessum venjulegu 75% lánum Fiskveiðasjóðs að minsta kosti í bili og til þess þannig að skapa verkefni, sem trauðla væru annars fyrir hendi Þeir aðilar, sem vildu láta smíða skip innanlands, gætu með þessum hætti fengið allt að 85% af stofnkostnaði skipsins.
Á hitt er svo að líta, að það hefur verið rýrnandi og takmörkuð eftirspurn eftir smíði fiskiskipa og ekki aðeins hér innanlands heldur einnig fiskiskipa, sem smíðuð væru erlendis. Samkv. upplýsingum, sem ég hef nýlega fengið, eru fiskiskip, sem nú eru í smíðum erlendis og um var samið á fyrri hluta ársins 1967, að fenginni viðurkenningu Fiskveiðasjóðs Íslands, aðeins 5 talsins, og enn segir þar, að auk þeirra fiskiskipa, sem nú eru í smíðum, var árið 1967 fengin viðurkenning Fiskveiðasjóðs Íslands á 2 öðrum fiskveiðiskipum, er komu til landsins sama ár. Þetta er auðvitað gífurlega mikil breyting frá því, sem var á undanförnum árum, þegar uppgangur útvegsins var meiri. Þá voru kannski keypt erlendis frá 20–30 eða milli 30–40 skip. En það er eðlilegt eins og nú standa sakir, að eftirspurnin hafi minnkað eftir skipakaupum ekkert síður erlendis en innanlands, og það hefur verið stuðlað að því að reyna að gera mönnum auðveldara að láta smíða fyrir sig skip hér innanlands, m.a. til þess að skapa með þeim hætti frekari verkefni fyrir íslenzku skipasmíðastöðvarnar.
Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta að sinni. Þessi mál hafa verið nokkuð rædd, en ég vildi aðeins á þessum vettvangi koma því á framfæri, þannig að hv. þm. væri það ljóst, að þessu máli hefur að undanförnu verið unnið og sérstök n., eins og ég hef áður gert grein fyrir, skipuð sérfræðingum og kunnáttumönnum á þessu sviði hefur verið vinnandi að því að athuga möguleikana á stöðlun fiskiskipa. Og það er enginn vafi á því, að það er réttilega á það litið hjá flm. þessa máls, að með því móti ætti bæði í senn það að nást, að hér sköpuðust kannske frekar verkefni en ella, og einnig hitt, að fiskiskipin yrðu ódýrari í smíðum með þessum hætti en ella mundi vera.