17.04.1968
Sameinað þing: 52. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í D-deild Alþingistíðinda. (2655)
50. mál, stöðlun fiskiskipa
Frsm. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti.
Þessa þátill., sem hér Iiggur fyrir á þskj. 52, hefur allshn. haft til athugunar og leitað umsagnar um bæði hjá Landssambandi ísl. útvegsmanna, Landssambandi ísl. iðnaðarmanna, enn fremur hjá skipaskoðunarstjóra og Fiskveiðasjóði Íslands. Allshn. var sammála um, að mæla með því, að till. yrði samþ. óbreytt að öðru leyti en því, að felld yrði niður síðasta mgr. upprunalegu till.
Á s.l. ári skipaði ríkisstj. n., þar sem í voru fulltrúar frá skipasmíðastöðvum, útgerð svo og tæknideild Fiskifélags Íslands og Fiskveiðasjóði, og skyldi hlutverk n. vera að vinna að tillögugerð um sem hentugasta gerð íslenzks fiskiskips við núverandi aðstæður. Hafa athuganir þessarar n. einkum beinzt að því að gera till. um stöðlun fiskiskipa, hvað snertir stærð og útbúnað til veiða. Í skipunarbréfi n. er enn fremur sagt, að þegar n. hefði lokið þessu verkefni, muni tekið til frekari athugunar með hvaða ráðum mætti skapa skipasmíðastöðvum verkefni á þessum grundvelli á næstunni samhliða öðrum ráðstöfunum, sem stefna mundu að sama marki. Af þessu virðist ljóst, að verið er að vinna að því verkefni, sem till. fjallar um, og segja má að með samþykkt þessarar till, — en allshn. leggur til, að hún sé samþykkt — sé Alþ. að samþykkja viljayfirlýsingu um, að unnið sé að þessu, sem till. fjallar um og þegar er gert með stofnun þeirrar n., sem ég gat um.