30.01.1968
Sameinað þing: 31. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í D-deild Alþingistíðinda. (2667)
47. mál, undirbúningur þess að gera akfært umhverfis landið
Flm. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir undirtektir hans í þessu máli. Ég ætla aðeins að segja örfáar setningar í tilefni af því, sem hefur komið fram.
Ég vil leggja áherzlu á, að þessi þátill. okkar fjallar um athugun á því að gera akfært umhverfis landið, þ.e.a.s. vegi og brýr, og þetta er vitanlega miðað við það að tengja saman þjóðvegakerfið, þannig að menn geti farið hindrunarlaust ferða sinna á venjulegan hátt. Þess vegna mundi það ekki geta leyst þetta mál, þótt sett yrði upp loftferja eða einhvers konar ferja á þessari leið. Það mundi ekki geta leyst það, sem fyrir okkur vakir en það er að gera akfært umhverfis landið, þannig að menn geti haldið ferð sinni áfram hringleiðina, hindrunarlaust á venjulegan hátt.
Ég vil fagna því, að hæstv. ráðh. tók undir þá meginstefnu, sem er í ályktuninni Hann sagði: „Skeiðará verður brúuð, og hringvegurinn kemur“. Það er þetta, sem er aðalatriðið, Skeiðará og hinar árnar á sandinum verða alveg vafalaust brúaðar, og hringvegurinn kemur, það er meginstefna ályktunarinnar.
Ég get ekki lýst neinu yfir fyrir hönd flm. varðandi brtt. þá, sem hefur komið fram frá hv. 4. þm. Reykn., en ég legg aðeins áherzlu á að ef farið yrði inn á þá leið að hafa þarna ferju, yrði þar eingöngu um bráðabirgðalausn að ræða, og þá vegna þess, að menn gæfu það upp á bátinn að leggja þarna eðlilega og venjulega leið. Gæfu það upp á bátinn í bili, t.d. ef menn teldu. að það þyrfti að dragast svo Iengi, að gera yrði bráðabirgðaráðstafinir. eða gæfu það alveg upp á bátinn, sem ég hef enga trú á, að komi nokkru sinni til mála því ég álít, að Skeiðará muni einmitt verða brúuð og þessi vötn öll og hringvegurinn komi. En þetta atriði um ferjuna, sem hv, þm. hefur skotið fram og hann ymprað á sem bráðabirgðalausn, verður að sjálfsögðu athugað af þeirri n., sem fær málið til meðferðar og íhugað hvort það ætti að fylgja með að skoða það einnig. En það er náttúrlega alveg annars eðlis en það sem þáltill. gerir ráð fyrir. En þetta verður vonandi allt athugað hleypidómalaust af nefnd.