30.01.1968
Sameinað þing: 31. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í D-deild Alþingistíðinda. (2681)

57. mál, lífeyrissjóður togarasjómanna

Flm. (Geir Gunnarsson):

Herra forseti Á þskj. 65 flyt ég svo hljóðandi þáltill.:

„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta undirbúa og leggja fyrir Alþ. frv. til l. um breyt. á l. um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum á þann veg, að sjóðsfélögum verði tryggð eigi minni réttindi en aðilar að lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins njóta nú.

Árið 1958 voru sett l. um lífeyrissjóð togarasjómanna, en frv. um það mál hafði þáv. hv. 3. þm. Reykv., Einar Olgeirsson, þá margsinnis flutt á Alþ. áður, án þess að það yrði samþykkt. Lög um lífeyrissjóð togarasjómanna voru í höfuðatriðum sniðin eftir l. um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, en þó var hámarkslífeyrir í lífeyrissjóði togarasjómanna lægri miðað við sama starfstíma en gert var ráð fyrir í lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Þannig var ellilífeyrir togarasjómanna eftir 10 ára starfstíma 10% af meðallaunum síðustu 10 starfsára, en 12 1/2% hjá starfsmönnum ríkisins, og eftir 30 ára starfstíma voru ellilaunin ákveðin 50% hjá sjómönnum, en 60% hjá ríkisstarfsmönnum. Á sama hátt nam hámarks makalífeyrir í lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins 40%, en 35% í lífeyrissjóði sjómanna. Orsakirnar fyrir því, að réttindi í lífeyrissjóði togarasjómanna voru höfð sýnu knappari en í lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, enda þótt flestar gr. l. væru að öðru leyti næstum samhljóða frá orði til orðs, hafa sjálfsagt verið þær, að ógerlegt hefur þótt að segja fyrir um, hvers sjóðurinn yrði megnugur og hversu langan tíma tæki að byggja hann svo upp, að unnt væri að veita jafnmikil réttindi og í þeim lífeyrissjóðum, sem fyrir voru.

Þegar við þáv. hv. 11. landsk. þm., Gunnar Jóhannsson, fluttum árið 1960 frv. um aukin réttindi sjóðsfélaga í lífeyrissjóði togarasjómanna, féllst meiri hl. heilbr.- og félmn. þessarar hv. d. ekki á að samþykkja frv. og bar það fyrir sig, að enn hefði sjóðurinn ekki starfað nógu lengi til þess, að fullnægjandi reynsla væri fengin um framkvæmd laganna og getu sjóðsins. Nú eru liðin um 7 ár síðan,og á því tímabili hafa engar breytingar verið gerðar á lífeyrissjóði togarasjómanna aðrar en þær, að undirmenn á farskipum hafa fengið aðild að honum og nafni hans og ákvæðum verið breytt til samræmis við það, og lítils háttar breytingar voru gerðar s.l. vor um aðild starfsmanna sjómannafélaga, og nokkur fleiri atriði voru þá samþ. Á sama tíma hafa hins vegar verið gerðar mjög veigamiklar breytingar á lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna. Áður voru réttindi sjóðsfélaga í lífeyrissjóði togarasjómanna sínu lakari en sjóðsfélaga í lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, en eftir breytinguna á síðartalda sjóðnum eru réttindin ekki sambærileg, svo mjög er réttur í lífeyrissjóði togarasjómanna og undirmanna á farskipum nú lakari.

Sú grundvallarbreyting hefur verið gerð á lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, að þar eru lífeyrisgreiðslurnar, ellilífeyririnn, örorkulífeyririnn, makalífeyririnn og barnalífeyririnn, ekki lengur miðaðar við meðaltekjur sjóðsfélaga síðustu 10 ár, 10 síðustu starfsár hans, heldur eru greiðslurnar nú ákveðinn hundraðshluti af þeim launum, sem á hverjum tíma fylgja því starfi, sem sjóðsfélagi gegndi síðast, þ. e. a s. greiðslurnar eru verðtryggðar og hækka með hækkandi launum. En í lífeyrissjóði togarasjómanna og undirmanna á farskipum eru þessar greiðslur enn miðaðar við ákveðinn hundrashluta af meðaltekjum sjóðsfélaga síðustu 10 starfsár hans og rýrna því samhliða aukinni verðþenslu. Þetta er grund­ vallarmismunurinn á réttindum sjóðsfélaga í þessum tveim sjóðum.

Að ýmsu öðru leyti eru réttindi sjóðsfélaga í lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna meiri. Má þar t.d. nefna, að í þeim sjóði nýtur hver sjóðsfélagi lífeyris við tilskilið aldursmark, ef hann hefur greitt iðgjöld í 5 ár, en í lífeyrissjóði sjómanna njóta sjóðsfélagar ekki réttinda nema þeir hafi greitt a.m.k. í 10 ár. Í lífeyrissjóði togarasjómanna og undirmanna á farskipum er greiðsla makalífeyris, ef sjóðsfélagi andast, bundin við það, að sjóðsfélaginn hafi greitt í a.m.k. 10 ár til sjóðsins, en engin slík takmörkun er í lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna á greiðslu makalífeyris. Í sambandi við örorkulífeyrinn er sá munur á sjóðunum, að í lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna er örorkulífeyririnn greiddur, ef örorkan nemur 10%, en í lífeyris­ sjóði sjómanna er örorkulífeyrir ekki greiddur nema örorkan nemi a.m.k. 35%.

Þá má geta þess, að í lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins fá börn eða kjörbörn, sem sjóðsfélagi lætur eftir sig, lifeyri til 18 ára aldurs, en í lífeyrissjóði sjómanna til 16 ára aldurs. Ef sjóðsfélagi í lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins hættir störfum af öðrum sökum en elli eða örorku, á hann rétt á að fá iðgjöld sín endurgreidd með vöxtum, en í lífeyrissjóði togarasjómanna og undirmanna á farskipum eru slíkar endurgreiðslur reiknaðar án vaxta fyrir þann tíma, sem iðgjöldin hafa staðið í sjóðnum. Óþarft er að rekja fleiri atriði, en höfuðatriðið er það, að í lífeyrissjóði sjómanna eru allar greiðslur án verðtryggingar, en miðast við meðallaun sjóðsfélaga síðustu 10 starfsár hans og missa því að verulegu leyti gildi sitt, þegar um verðbólgutímabil er að ræða.

Fyrir um það bil 7 árum fengust ekki þær breytingar gerðar á lifeyrissjóði togarasjómanna, að greiðslur úr honum væru sambærilegar við greiðslur úr lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, en á þeim tíma, sem síðan er liðinn, hafa verið gerðar breytingar á l. um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins á þann veg, að mjög hefur aukizt munurinn á þeim kjörum, sem félögum í þessum sjóðum eru búin. Á sama tíma hefur framkvæmdin á l, um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum sýnt, að eignir hans aukast mjög ört og námu um síðustu áramót um 146 millj. kr. og á árinu 1966 námu vaxtatekjurnar einar 11 sinnum hærri upphæð en bótagreiðslur sjóðsins.

Með tilliti til vaxtar sjóðsins virðist fullkomlega eðlilegt, að lög um hann verði endurskoðuð, því að ekki eru sýnileg rök fyrir því, að kjör sjóðsfélaga í þessum sjóði þurfi að vera miklum mun lakari en kjör sjóðsfélaga t.d. í lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Fyrst og fremst er ástæða til, að athugað verði, hvort ekki er tímabært að taka upp þá sömu reglu og gildir í lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna, að bótagreiðslur úr sjóðnum verði verðtryggðar. Hins vegar er naumast unnt að haga verðtryggingu bóta með nákvæmlaga sama hætti og í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, þ.e.a.s., að miðað verði við þau laun, sem á hverjum tíma eru greidd fyrir það starf, er sjóðsfélagi gegndi síðast, þar sem nokkur annar háttur er á um launagreiðslur til sjómannsins og þær eru að því er togarasjómenn varðar að verulegu leyti aflahlutur. En vissulega ætti það ekki að vera óleysanlegt vandamál að færa laun sjómannsins, heildarlaunin, til raunverulegs, sambærilegs verðgildis á þeim tíma, sem bótagreiðslurnar færu fram. Á sama hátt er óhjákvæmilegt að taka tillit til þess, hversu verulegur hluti af launum farmanna er yfirvinna, og er eðlilegt, að af henni sé greitt í lífeyrissjóð og raunveruleg heildarlaun farmanna reiknuð út að fullu og sambærilegu verðgildi á þeim tíma, er bótagreiðslur færu fram, eða bótagreiðslurnar yrðu þá við þau heildarlaun miðuð. Ég vænti þess, að hv. alþm. geti á það fallizt, að tímabært sé að endurskoða þessi l. í því skyni, að togarasjómönnum og undirmönnum á farskipum verði tryggð eigi minni lífeyrisréttindi en starfsmenn ríkisins njóta nú.

Ég legg til, herra forseti, að umr. verði frestað og málinu vísað til hv. allshn.