12.10.1967
Sameinað þing: 1. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í B-deild Alþingistíðinda. (27)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Pétur Benediktsson:

Herra forseti. Mér var eiginlega um og ó að stuðla að því að þröngva vinum mínum í Alþb. til að taka við þingsæti, sem pólitísk hófsemi þeirra hannar þeim að gera kröfur til, þótt ég telji lagaréttinn vera þeirra megin, og því hafði ég heldur hallazt að því að fylgja þeim hópi, sem ekki greiðir atkv.; en hinn skýri málflutningur hv. 6. þm. Reykv. í gær hefur opnað augu mín fyrir ótvíræðum rétti kjósenda til þess, að þingsætum sé úthlutað í samræmi við það, hvernig atkv. féllu á kjördag á löglega auglýsta framboðslista, og því hlýt ég að segja nei.