20.03.1968
Sameinað þing: 46. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í D-deild Alþingistíðinda. (2734)

148. mál, auknar sjúkratryggingar

Flm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Ég hef ásamt 4 öðrum hv. þm. leyft mér að flytja till. til þál. á þskj. nr. 314 um auknar sjúkratryggingar til sjúklinga, sem leita þurfa læknishjálpar erlendis. Tillgr. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþ. ályktar að skora á ríkisstj., að hún láti endurskoða IV. kafla I. nr. 40/1963, um almannatryggingar, með það fyrir augum, að sjúklingar, sem leita þurfa læknishjálpar erlendis, fái verulega auknar sjúkrabætur frá því, sem nú á sér stað.“

Till. samhljóða þeirri, sem hér um ræðir. var flutt á síðasta þingi, en varð þá ekki útrædd. Við höfum því leyft okkur að endurflytja till. nú í von um, að hún nái fram að ganga. Eins og kemur fram í grg. fyrir till., er það ætlun flm., að endurskoðun l. miðist fyrst og fremst við, að gerðar verði breytingar á IV. kafla l., en sá lagabálkur kveður á um það, hvaða sjúkrabætur tryggingunum beri að greiða almennt. Það, sem fyrir flm. vakir, er að endurskoðunin miðist við, að komið verði á auknum bótum til þeirra sjúklinga, sem óhjákvæmilega þurfa á því að halda að leita sér læknishjálpar erlendis. Að sjálfsögðu er hér um nokkurt vandamál að ræða. Það er viss vandi, sem hlýtur að fylgja því að taka ákvörðun um, hvaða sjúklingar það eru hverju sinni, sem nauðsyn ber til, að leitað verði læknishjálpar erlendis. Slík ákvörðun verður að sjálfsögðu að vera í höndum sérfræðinga.

Um allan heim er unnið þrotlaust að hvers konar rannsóknum á sviði læknavísindanna, og hafa slíkar rannsóknir þegar borið góðan árangur. Að sjálfsögðu fylgjast Íslendingar með allri slíkri þróun, eftir því sem kostur er á. Hitt segir sig sjálft, að hinar fjölmennu og auðugu stórþjóðir hafa hér meiri og betri skilyrði til þess að starfrækja fullkomnar og kostnaðarsamar rannsóknarstofnanir, en þær eru fyrst og fremst grundvöllur þeirrar þróunar og framfara, sem á undanförnum árum hefur átt sér stað á sviði læknavísindanna.

Á síðari árum hefur það farið allmikið í vöxt, að Íslendingar, sem gengið hafa með hjartasjúkdóma, hafi leitað sér lækninga á þeim sjúkrahúsum erlendis, sem vitað er, að ráða yfir mestri sérfræðilegri þekkingu og tækni á þessu sviði. á s.l. ári munu ekki færri en 17 sjúklingar hafa leitað læknishjálpar erlendis vegna hjartasjúkdóma. Að sjálfsögðu getur einnig verið um fleiri alvarlega sjúkdóma að ræða, sem undir þessa auknu aðstoð þurfa að falla, en eins og ég áður sagði, verður það að vera í hverju tilfelli eftir mati þar til kvaddra sérfræðinga að dæma um þörfina. Augljóst er, að tala þeirra sjúklinga, sem hér um ræðir, fer stöðugt hækkandi og þess vegna brýn nauðsyn að mál þessi frá tryggingarlegu sjónarmiði verði endurskoðuð og endurbætt með auknum fjárbótum. Þær læknisaðgerðir, sem ég hef hér rætt um, eru hins vegar mjög kostnaðarsamar og í mörgum tilfellum fjárhagslega ofviða þeim, sem í hlut eiga.

Á undanförnum árum hefur Alþ. veitt nokkra fjárupphæð á fjárl., sem ætluð er til styrktar þeim sjúklingum, sem leita verða læknishjálpar erlendis. Í fjárl. yfirstandandi árs er upphæðin 1 1/2 millj., sem er mun hærri fjárhæð en áður hefur átt sér stað. Þá hafa fleiri aðilar látið mál þessi til sín taka á lofsverðan hátt. Má í því sambandi nefna félagssamtökin Hjartavernd og sjóðsstofnun Ásbjörns Ólafssonar stórkaupmanns, en báðir þessir aðilar hafa veitt fjárhagslegan styrk til þeirra sjúklinga, sem hér um ræðir. Allt fyrir það verður að telja réttmætt, að hið almenna tryggingakerfi, sjúkrasamlög og Tryggingastofnun ríkisins, taki málið í sínar hendur og veiti ríflegri fjárstyrk, eins og hér er lagt til. Ég vil því leyfa mér að vona, að hv. alþm. séu flm. till. sammála um, að hér sé nauðsyn breytinga og samþykki till. sem ályktun Alþ.

Herra forseti. Ég sé svo ekki ástæðu til að

orðlengja frekar um málið að sinni, en legg til, að umr. verði frestað og málinu vísað til hv. fjvn.