14.12.1967
Efri deild: 33. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í B-deild Alþingistíðinda. (274)

77. mál, ráðstafanir á gengishagnaði af útfluttum sjávarafurðum

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Á árunum 1960–1966, fram á mitt það ár, var velgengni íslenzku þjóðarinnar mikil og hraðvaxandi. Heildarafli landsmanna jókst á þessu tímabili úr 593 þús. tonnum í 1240 þús. tonn og verðmæti útflutningsframleiðslunnar úr 2262 millj. kr. í 5643 millj. Þessi þróun leiddi til verulegrar hækkunar kaupgjalds og hækkunar á raunverulegum kaupmætti að því er talið er um 30–40%. Stærri og fullkomnari skip, nýjar fiskvinnslustöðvar og aukin tækni á sjó og landi stuðlaði að þessari þróun. En auk þess kom það til, sem ekki var áhrifaminnst, að verðlag sjávarafurða fór stöðugt hækkandi á erlendum mörkuðum fram á síðari hluta ársins 1966. Frá miðju s.l. ári og fram á þennan dag hefur hins vegar skapazt mjög uggvænlegt ástand í sjávarútveginum í heild. Ekki þarf ég að vera fjölorður um hið stórfellda verðfall bræðslusíldarafurða og hraðfrystra fiskafurða, hina almennu söluerfiðleika, ekki sízt á skreið, aflabrest á sumarvertíð, á bolfiskveiðum, á vetrarvertíð og á humarveiðum í sumar, fjarlægð síldarinnar frá landinu og stóraukinn veiðikostnað, óhagstæða veðráttu og mun meira veiðarfæratjón en áður hefur þekkzt. Þessar staðreyndir blöstu við öllum, er gengi íslenzkrar krónu var fellt 24. nóv. s.l. Það er vonandi, að þær nauðsynlegu ráðstafanir skapi í framtiðinni frekari grundvöll fyrir rekstri sjávarútvegsins, og er þess að vænta, að þjóðin taki slíkum ráðstöfunum með skilningi, þótt þær sýnilega kosti allverulegur fórnir í bili.

Frv. það, sem hér liggur fyrir, fjallar um það, hvernig ráðstafa skuli gengishagnaði þeim, sem myndast af sölu birgða, sem voru í landinu við gengislækkunina, og sölu þeirra afurða, sem framleiddar verða til ársloka 1967, en í 4. gr. l. nr. 69 frá 1967, um ráðstafanir vegna ákvörðunar Seðlabanka Íslands um gengi íslenzkrar krónu, var svo kveðið á, að mismunur andvirðis skilaðs gjaldeyris á eldra gengi og andvirðis hans á hinu nýja gengi skyldi færður á sérstakan reikning á nafni ríkissjóðs í Seðlabankanum. Jafnframt var svo kveðið á, að því fé, sem á reikninginn kæmi, skyldi ráðstafa í þágu þeirra atvinnuvega, sem eiga viðkomandi afurðaandvirði.

Er nýtt gengi ísl. krónu var ákveðið, voru fyrirliggjandi í landinu óvenjumiklar birgðir, sem stafaði m.a. af nær algerri sölustöðvun á skreið af þessa árs framleiðslu. Með því að einnig kemur til ógreiddur útflutningur á framleiðslu til áramóta, verður hér um töluverðan gengishagnað að ræða. Segja má, að tilgangur frv. sé að meginstefnu til fjórþættur.

Í fyrsta lagi er með frv. verið að efna gefin loforð og bæta upp þætti, er úrskeiðis hafa orðið. Er þar átt við bætur til skreiðarframleiðslu og einnig til bræðslu síldarinnar, bætur vegna verðfalls á frystri rækju, svo og framlag til vátryggingarsjóðs.

Í öðru lagi skal greiða af gengishagnaðinum ýmis gjöld og kostnað, sem stafar af þeirri framleiðslu ársins 1967, sem gengishagnaðar nýtur. Er hér átt við hækkaðan reksturskostnað og flutningskostnað vegna gengisbreytingarinnar, útflutningsgjöld og framlög ríkissjóðs, sem greidd hafa verið eða greidd verða vegna þessarar framleiðslu.

Í þriðja lagi er rétt að nefna það framlag, sem varið skal til lánveitinga vegna gengistaps af lánum til fiskiskipa, sem bundið er gengi erlends gjaldeyris.

Í fjórða lagi eru svo ráðstafanir, sem miða að því að byggja upp grundvöll fyrir rekstri sjávarútvegsins í landinu. Kemur hér til framlag til Fiskveiðasjóðs Íslands og ríkisábyrgðasjóðs til að greiða fyrir endurskipulagningu fiskiðnaðarins til framleiðniaukningar og framlag til verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins.

Skal nú reynt að gera grein fyrir hugsanlegum tekjum í gengishagnaðarsjóð og greiðslu samkv. 1. gr. frv.

Það er ávallt nokkrum vandkvæðum bundið að áætla með nokkurri nákvæmni eða vissu, hvers virði birgðir útflutningsafurða eru á hverjum tíma. Þetta er þó jafnvel enn erfiðara nú en oftast áður vegna þeirrar óvissu, sem ríkir um verðlagsþróun á mörkuðunum á næstu mánuðum vegna gengisbreytingar sterlingspundsins. Um þetta hefur þó verið reynt að gera áætlun, sem byggð er á því, sem vitað er um verðlag og sölur, og enn fremur byggt á upplýsingum um þær afurðir, sem þegar höfðu verið fluttar úr landi fyrir gengislækkunina, en ekki voru þá greiddar. Mun ekki fjarri lagi eftir þeirri áætlun að meta andvirði birgðanna ásamt því, sem ógreitt var, um 1700 millj. kr. og er þá tekið tillit til þeirrar framleiðslu, sem áætluð er frá því að gengisbreytingin var gerð og til áramóta, en með gengishagnaðinn af þeirri framleiðslu skal farið á sama hátt og með gengishagnaðinn af birgðunum. En það er ekki nóg að áætla verðmæti birgðanna og þess, sem flutt hefur verið út, en óbreytt var við gengisbreytinguna, því að ef á að áætla, hverjar tekjur geta runnið í gengishagnaðarsjóð, verður að taka tillit til þess, í hvaða gjaldeyri birgðirnar verða greiddar. Um þetta ríkir enn nokkur óvissa, en reynt hefur þó verið að áætla það einnig, og sýnir sú áætlun, að ekki mun óvarlega reiknað með, að heildarupphæðin, sem kemur sem gengishagnaður af þessum birgðum, gæti numið allt að 400 millj. kr.

Skv. 1. gr. frv., liðunum a–f, er gert ráð fyrir því, að áður en til þess kemur að ráðstafa hinum eiginlega gengishagnaði, verði greidd ýmis gjöld og kostnaður vegna framleiðslu ársins 1967. Í a-lið gr. er gert ráð fyrir, að greiddar verði hækkanir á rekstrarkostnaði vegna gengisbreytingarinnar við framleiðslu sjávarafurða, eftir að hið nýja gengi kom til framkvæmda og til ársloka þessa árs, svo og hækkanir á flutningsgjaldi á afurðum, sem greiddar hafa verið fyrir árslok 1967, en fluttar eru út eftir gengisbreytinguna. Ýmsar rekstrarvörur við framleiðslu sjávarafurða hafa að sjálfsögðu hækkað á þessu tímabili frá því að gengisbreytingin var gerð, og leiðir það til hækkunar á rekstrarkostnaði. Hefur verið áætlað, að sú upphæð gæti numið 35 millj. kr.

Skv. b-lið er gert ráð fyrir bótum til skreiðarframleiðenda vegna markaðserfiðleika. Mikil óvissa ríkir enn um það, hvernig verður háttað útflutningi á skreið til Nígeríu vegna styrjaldarástandsins þar, og því erfitt, eins og um hinar tölurnar, að áætla, hvað eðlilegt væri að greiða skreiðarframleiðendum í bætur vegna þessa erfiðleikaástands, en til bráðabirgða hefur verið reiknað með eða áætlað til þessarar greiðslu allt að 12 millj. kr. Nokkuð sama gildir um áætlun bótagreiðslu til bræðslusíldariðnaðarins vegna vinnslu á Norður- og Austurlandssíld árið 1967. Kemur þar til, að áætla þarf söluverð afurðanna og rekstursafkomu verksmiðjanna í heild, en þó hefur hér verið gert ráð fyrir, að til þessa reksturs væri ekki óeðlilegt að ætla greiðslu, er næmi allt að 10 millj. kr. Skv. d-lið er gert ráð fyrir greiðslu vegna verðfalls á frystri rækju, sem framleidd er á árinu 1967. Verðlag á rækju lækkaði mjög mikið á þessu ári borið saman við það, sem verið hafði árið 1966, og ef gert er ráð fyrir, að sama magn af rækju seljist á þessu ári og árinu 196fi og tekið tillit til verðlagsins í ár samanborið við verðið fyrra ár, gæti þessi greiðsla numið allt að 7 millj. kr.

Í e-lið er svo gert ráð fyrir, að af gengismuninum verði greidd útflutningsgjöld, þ.e.a.s. þau gjöld, sem tekin eru fyrir útflutning afurðanna, svo sem hið eiginlega útflutningsgjald, aflatryggingasjóðsgjald o.s.frv., og mun rétt að gera ráð fyrir, að sú upphæð verði vart undir 16 millj. kr.

Þá er loks f-liður, þar sem gert er ráð fyrir, að endurgreidd verði framlög ríkissjóðs skv. 1., 3., 8. og 9. gr. laga um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins, en það eru greiðslur, sem ákveðnar voru á sínum tíma til fiskuppbótar og annarra beinna styrkja til útgerðar og fiskvinnslu. Með því að hafa hliðsjón af þeim birgðum, sem gengishagnaðurinn reiknast af, og þeirri framleiðslu, sem verið hefur á árinu af þeim afurðum, sem njóta þessara framlaga úr ríkissjóði, hefur verið áætlað, að þessi endurgreiðsla gæti numið allt að 1/3 af þeim upphæðum, sem áætlaðar voru til greiðslu skv. fyrrgreindum l., eða um 60 millj. kr.

Þannig mundi mega áætla, að heildargreiðslur skv. a–f liðum 1. gr. gætu samtals numið 141 millj. kr. Hinn eiginlegi gengishagnaður, þegar fyrrgreind gjöld og kostnaður hafa verið greidd, mundi því nema skv. þeirri áætlun, sem áður var gerð, um 259 millj. kr.

Skv. 2. gr. frv. er gert ráð fyrir því að skipta þeirri upphæð í fjóra hluta þannig, að ef um yrði að ræða fjóra jafna hluta, mundu á hvern lið koma 65 millj. kr. Skv. a-lið þessarar gr. er gert ráð fyrir, að allt að 1/4 upphæðarinnar renni til greiðslu á vátryggingargjöldum fiskiskipa, og mundi sú upphæð, sem áður getur, að vísu ekki hrökkva til að jafna þann halla, sem er á þeim sjóði og að skal vikið síðar, en hins vegar verða til þess að hjálpa verulega til að grynnka á hallanum, en vonir standa til þess, að tekjur sjóðsins muni aukast verulega á næsta ári, m.a. vegna hækkandi verðlags á útflutningsafurðum frá því, sem það hefur verið á yfirstandandi ári.

Skv. b-lið gr. skal verja einum hluta til Fiskveiðasjóðs Íslands og ríkisábyrgðasjóðs til að greiða fyrir endurskipulagningu fiskiðnaðarins til framleiðniaukningar og mundi sú upphæð, sem hér er áætluð og áður var nefnd, verulega geta greitt fyrir því, að þessir sjóðir gætu sinnt þessu sérstaka verkefni meir en þeir hafa gert.

Í c-lið gr. er svo ráðgert að stofna sérstakan gengisjöfnunarsjóð við fiskveiðasjóð í því skyni að veita lán eða með öðrum hætti að styrkja skipaeigendur vegna gengistaps á lánum til fiskiskipa, sem bundin eru gengi erlends gjaldeyris. Ekki hefur verið unnt að kanna enn til hlítar, hversu mikið gengistap hér er um að ræða, en ekki mun fjarri að áætla, að það geti numið hátt á annað hundrað millj. kr. Mundi með slíkum lánveitingum af þessu fé vera unnt að veita verulega fyrirgreiðslu þeim aðilum, sem þessi skip eiga.

Loks er skv. d-liðnum gert ráð fyrir því, að afgangurinn af gengishagnaðarsjóði renni til verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins sem stofnframlag.

Skal nú vikið nokkuð nánar að einstökum þáttum frv. og helztu ástæðunum, er til þeirra ákvæða liggja.

Eins og fyrr er sagt, hefur sala á skreið til Austur-Nígeríu, en það hefur verið helzta markaðssvæði okkar fyrir skreið, lagzt niður með öllu á þessu ári vegna styrjaldarástandsins þar. Algjör óvissa virðist enn ríkjandi um það, hvenær þetta markaðssvæði opnast aftur, og því miður ekki stórar líkur á, að nýir markaðir komi þar í staðinn. Meginhluti skreiðarframleiðslunnar frá þessu ári er því enn óseldur. Er talið, að nú liggi í landinu óseldar 6000 lestir af skreið. Eru það þungar búsifjar fyrir skreiðarframleiðendur, ekki sízt vegna þess, að með öllu er óvist, eins og ég áðan sagði, hversu lengi þeir þurfa að geyma framleiðslu sína. Í b-lið 1. gr. frv. er gert ráð fyrir bótum til skreiðarframleiðenda vegna markaðserfiðleikanna. Má segja, að hér sé um hreina neyðarráðstöfun að ræða, til þess að létta nokkuð af þeim miklu erfiðleikum, sem steðja að þessari framleiðslu. Eins og áður segir, er gert ráð fyrir, að bætur þessar til skreiðarframleiðenda muni nema allt að 12 millj. króna.

Ekki þarf heldur að fjölyrða um það, að hið gífurlega verðfall á lýsi og mjöli er eitthvert mesta áfall, sem sjávarútvegurinn hefur nokkurn tíma orðið fyrir á svo skömmum tíma. Við verðlagningu síldar til bræðslu við upphaf sumarsíldarvertíðar var horfið að því ráði að láta verðlagninguna aðeins gilda fyrir hálft verðlagstímabilið, þ.e. til júlíloka. Það var þó þegar ljóst, að verksmiðjurnar tóku á sig umtalsverðan hluta þeirrar verðlækkunar, sem þá var orðin. Ástandið á mörkuðunum fór enn versnandi, þegar á sumarið leið, og þegar síldarverðið var ákveðið óbreytt fyrir tímabilið ágúst–sept., versnaði hlutur verksmiðjanna enn til muna. Nýtt verðlagstímabil hófst svo 1. okt. og þrátt fyrir það, að verðlag á lýsi og mjöli færi enn töluvert lækkandi, var hráefnisverðið ákveðið óbreytt til ársloka.

Við þessa verðákvörðun var verksmiðjunum heitið, að reynt yrði að veita þeim nokkra aðstoð, ef reksturshallinn yrði meiri en fjárhagsgeta þeirra þyldi. Til að efna það loforð, sem hér um ræðir, er í c-lið 1. gr. frv. gert ráð fyrir bótum til bræðslusíldariðnaðar vegna vinnslu á Norður- og Austurlandssíld haustið 1967.

Á þessu ári hefur orðið stórfellt verðfall á frystri rækju. Við verðlagningu rækjunnar á s.l. hausti var framleiðendum frystrar rækju heitið því, að þeim skyldi bætt verðfallið að einhverju leyti og er ekki óeðlilegt, að vinnsla frystrar rækju njóti svipaðrar eða sömu fyrirgreiðslu ríkisvaldsins í þessu efni eins og frystiiðnaðurinn nyti. Í liðunum a, e og f í 1. gr. frv. er gert ráð fyrir greiðslum, er standa í beinu sambandi við gengisbreytinguna. Í a-liðnum er gert ráð fyrir greiðslum á hækkandi rekstrarkostnaði vegna gengisbreytingarinnar við framleiðslu afurðanna, eftir að hið nýja gengi kom til framkvæmda og til ársloka 1967. Sama gildir um hækkanir á flutningsgjaldi af afurðum, sem framleiddar hafa verið fyrir árslok 1967, en fluttar eru út eftir gengisbreytinguna. Með því að gengishagnaðurinn er tekinn inn í gengishagnaðarsjóðinn, en ekki ráðstafað til útflytjendanna eða eigenda afurðanna, sem gengishagnaðarins afla, er ekki rétt, að þeir beri þann aukakostnað, sem verður á rekstrinum vegna sjálfrar gengisbreytingarinnar. Svipað er að segja um útflutningsgjöld samkv. e-lið gr. Með því að útflutningsgjöld eru að sjálfsögðu innheimt af öllu andvirði hinna útfluttu sjávarafurða, er rétt, að útflutningsgjöld séu einnig greidd af þeim hlutanum, sem fer til gengishagnaðarsjóðsins, en útflytjendur sjálfir greiði aðeins útflutningsgjöld miðað við hið gamla gengi. Svipuð sjónarmið liggja að baki fliðar 1. gr. Samkv. þeim lið er gert ráð fyrir, að framlög ríkissjóðs samkv. 1., 3., 8. og 9. gr. I. nr. 4 frá 1967, um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins, til þeirrar framleiðslu, sem nýtur gengishagnaðar, endurgreiðist af þeim hagnaði, svo að ekki sé greitt tvisvar með sömu framleiðslunni.

Þegar greiddur hefur verið ýmiss konar kostnaður og gjöld samkv. 1. gr. frv. vegna þeirrar framleiðslu, sem gengishagnaðar nýtur, skal afgangurinn, sem er hinn eiginlegi gengishagnaður, ganga til sjóðs, sem ráðstafa skal til sameiginlegra þarfa sjávarútvegsins í heild. Kemur þar fyrst til, að verja skal allt að 1/4 hluta gengishagnaðarsjóðs til greiðslu á vátryggingariðgjöldum fiskiskipa. Vátryggingarsjóður fær tekjur sínar af útflutningsgjaldi af sjávarafurðum samkv. l. nr. 4 frá 1966, nú 72.82% af útflutningsgjaldinu. Sjóðurinn greiðir vátryggingargjöld fiskiskipa eftir reglum, sem sjútvmrn. setur.

Innheimta gjalda fyrir sjóðinn hófst 1. ágúst 1961. En sjóðurinn greiddi vátryggingargjöld skipanna frá ársbyrjun 1961, og þannig var í upphafi 7 mánaða tímamunur milli tekna sjóðsins og gjalda. Hefur sá munur haldizt lítið breyttur fram á þetta ár. Á þessu ári er hins vegar útlit fyrir mikinn halla á sjóðnum. Vegna minnkandi útflutningsverðmætis hafa tekjur sjóðsins stórlækkað undanfarið, en hins vegar hafa útgjöld sjóðsins farið hækkandi undanfarin ár með tilkomu hins mikla fjölda nýrra og dýrra skipa.

Í lok ársins 1966 skorti 83 millj. kr. á, að sjóðurinn gæti greitt að fullu iðgjöld til fiskiskipaflotans, en á þessu ári, sem nú er að líða, hefur ástandið versnað svo til muna, að nú í árslok mun skorta 186 millj. upp á, að unnt sé að greiða öll iðgjöldin, sem útistandandi eru. Með því fé, sem hér hefur verið gert ráð fyrir að renni til sjóðsins, ætti verulega að grynnka á þessari skuld sjóðsins, sem að stórum hluta hefur byggt á starfsemi tryggingafélaganna í landinu. Í þessu sambandi er rétt að geta þess, að undanfarið hafa verið kannaðar leiðir, sem helzt kæmu til greina til að rétta við fjárhag sjóðsins og forða því, að sá dráttur, sem er á greiðslu til tryggingafélaganna, lengist frá því, sem verið hefur. Ber nauðsyn til innan tíðar að taka endanlega ákvörðun um, hvað gert skuli í þessum efnum.

Samkv. c-lið 2. gr. er ætlað, að allt af 1/4 gengishagnaðar sjóðsins renni til fiskveiðasjóðs, þar sem myndaður verði sérstakur gengisjöfnunarsjóður, er varið verði til lánveitinga vegna gengistaps á þeim lánum til fiskiskipa, sem bundin eru erlendum gjaldeyri. Skal stjórn fiskveiðasjóðs setja nánari reglur um sjóð þennan að fengnu samþykki sjútvmrh. Vegna gengisfallsins hafa auknir fjárhagslegir örðugleikar lagzt á þá útvegsmenn, sem á síðustu árum hafa keypt skip erlendis. Stórfelld efling síldveiðiflotans á undanförnum árum hefur að verulegu leyti gerzt fyrir erlent lánsfé, þar sem innlent fjármagn hefur ekki verið nægjanlegt fyrir hendi. Fiskveiðasjóður hefur um árabil einnig veitt lán, sem bundin eru að hluta við gengi erlends gjaldeyris, þar sem sjóðurinn hefur tekið erlent lán til þessarar starfsemi sinnar.

Vegna þess fjölda báta, sem byggðir hafa verið erlendis á undanförnum árum, eru enn ógreiddar stórar fjárhæðir, sem gjaldfalla munu á næstu árum. Ekki er óeðlilegt, að notaður sé hluti af hinum sameiginlega sjóði í því skyni að gera fiskveiðasjóði kleift með lánveitingum eða á annan hátt að létta nokkuð byrði þeirra, sem eru með lán á skipum sínum, sem bundin eru gengi erlends gjaldeyris.

Í b-lið 2. gr. er gert ráð fyrir, að fiskveiðasjóður og ríkisábyrgðasjóður fái allt af 1/4 gengishagnaðarins í því skyni sérstaklega að greiða fyrir endurskipulagningu fiskiðnaðarins til framleiðniaukningar. Þegar lög nr. 4 frá 31. marz 1967 um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins voru sett, var ekki látið nægja að ákveða greiðslur til hinna ýmsu greina sjávarútvegsins á þessu ári, heldur var einnig gert ráð fyrir því, að fram færi gagngerð athugun á rekstraraðstæðum og fjárhagslegri uppbyggingu frystiiðnaðarins með það fyrir augum að bæta rekstrargrundvöll iðnaðarins í heild. Þessari athugun, sem er mjög margþætt svo sem fram kemur í ákvæðum l., var síðan hleypt af stokkunum á s.l. vori með samstarfi helztu lánastofnana sjávarútvegsins og fulltrúa frystiiðnaðarins. Nauðsynlegt reyndist að safna ýtarlegum gögnum um frystiiðnaðinn, svo að fá mætti sem bezta heildarmynd af allri aðstöðu hans. Þessari gagnasöfnun er nú að mestu lokið og úrvinnsla komin vel á veg, þannig að vænta má, að áður en langur tími líður muni unnt að mynda sér um það skoðun, hverra aðgerða sé hér þörf og gera um það endanlegar till. Í þessu sambandi er rétt að gera sér það ljóst, að enda þótt gengislækkunin bæti stöðu frystiiðnaðarins, þegar á heildina er litið, leysir hún ekki þau vandamál, sem tengd eru ýmsum sérstökum aðstæðum í þessum iðnaði og til hafa orðið í gegnum þróun á mun lengra tímabili í uppbyggingu hans. Það eru m.a. slík vandamál, sem þessi athugun frystiiðnaðarins miðar að því að finna lausn á.

Með því að þeir tveir sjóðir, er mest mundu koma hér við sögu, eru fiskveiðasjóður og ríkisábyrgðasjóður, er eðlilegt, að hluti af fé gengishagnaðarsjóðs renni til þeirra. Hins vegar er eðlilegt að gera ráð fyrir því, að aðrar greinar fiskiðnaðarins njóti hér einnig fyrirgreiðslu, þegar um er að ræða aðgerðir, sem leitt geta til hagkvæmari rekstrar og framleiðniaukningar.

Þótt ég krafi hér haft mörg orð um endurskipulagningu frystiiðnaðarins, skal þó sérstaklega tekið fram og lögð áherzla á, að fáar atvinnugreinar hér á landi hafa lagt eins mikla áherzlu á aukna framleiðni og sjávarútvegurinn og frystiiðnaðurinn, og fáar atvinnugreinar hér á landi standa nær því að standast erlenda samkeppni en þær gera. E.t.v. væri vel þess vert að athuga, hvort ýmsar aðrar greinar atvinnulífsins þyrftu ekki sams konar athugunar við með endurskipulagningu fyrir augum.

Í d-lið 2. gr. er loks ákveðið, að afgangurinn af gengishagnaðarsjóði skuli renna í verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins. En grundvallarákvæðin um stofnun slíks sjóðs eru í 3. gr. frv. Sú gr. kveður á um stofnfé og tekjur verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, en nánari ákvæði um sjóðinn skulu sett með sérstökum lögum síðar.

Samkv. 6. gr. l. nr. 4 frá 31. marz 1967 um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins var stofnaður sjóður, er hefur það hlutverk að greiða verðbætur vegna verðfalls á frystum fiskafurðum, sem framleiddar eru á árinu 1967, öðrum en síldarog loðnuafurðum. Er gert ráð fyrir því, að ríkissjóður greiði til þessa sjóðs 140 millj. kr. af greiðsluafgangi ársins 1966. Verði innistæða í sjóðnum eftir reikningslok, skal því fé ráðstafað sem stofnfjárframlagi til verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, enda hafi þá verið sett lög um slíkan sjóð. Nánari reglur um greiðslu þessara verðbóta eru í 7, gr. nefndra l. Stofnfé hins nýja verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins verður í samræmi við þessi lagaákvæði það fé, sem kemur frá þeim afgangi verðbótasjóðs, sem ráð er fyrir gert í áðurnefndum lögum, og í öðru lagi kemur til afgangur af gengishagnaðarsjóði samkv. d-lið 2. gr. þessa frv.

Tekjur verðjöfnunarsjóðs eru áætlaðar tvenns konar. Í fyrsta lagi hluti af verðhækkunum sjávarafurða, sem verður á framleiðslu hvers árs, og er þá gert ráð fyrir, að miðað sé við meðalverðlag undanfarinna þriggja ára. Hér liggur sú hugsun til grundvallar, að á móti verðlækkunum, sem leiði til greiðslu úr sjóðnum, komi hluti af verðhækkunum, sem verða umfram meðaltal tiltekins tímabils, eða eins og hér er gert ráð fyrir, meðaltal þriggja ára. Um þessa meginreglu sjóðsins verður að setja nánari ákvæði, eins og ég áðan sagði, í sérstökum l. Aðrar tekjur sjóðsins eru áætlaðar af útflutningsgjaldi og verður þar um að ræða tekjur, sem eru stöðugri og ekki eins háðar verðlagsþróun og þær, sem ætlaðar eru samkv. a-lið. Verður hér um að ræða hluta af útflutningsgjaldi, sem ákveða verður með endurskoðuðum l. um útflutningsgjald sjávarafurða.

Eins og áður segir hefur hugmyndinni um verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins áður brugðið fyrir, þar sem eru lög frá s.l. vori um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins, en í haust við ákvörðun bræðslusíldarverðs á Norður- og Austurlandi frá 1. okt. til áramóta, gáfu fulltrúar síldarseljenda í yfirnefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins þá yfirlýsingu, að þar sem áætlað andvirði bræðslusíldarafurða nægði ekki að óbreyttu bræðslusíldarverði fyrir breytilegum kostnaði við vinnslu síldarinnar, svo að svari kostnaði við að halda verksmiðjunum opnum næstu mánuðina, teldu þeir óhjákvæmilega nauðsyn bera til að hefja undirbúning að stofnun verðjöfnunarsjóðs, er gæti bætt að nokkru svo stórfellt verðfall, sem átt hefði sér þá stað. Skuldbundu fulltrúar seljenda sig til þess að vinna á vettvangi hlutaðeigandi samtaka að stofnun verðjöfnunarsjóðs. Óþarft er að rekja það frekar hér, en ýmis samtök hafa lýst stuðningi sínum við framkomna hugmynd um umræddan verðjöfnunarsjóð fyrir fiskiðnaðinn.

Það er ljóst, að hinar miklu verðsveiflur, sem átt hafa sér stað á fiskafurðum á s.l. árum, sýna svo að ekki verður um deilt, að stórfelldar og skyndilegar verðhækkanir eða — lækkanir á erlendum mörkuðum geta haft mjög alvarleg og truflandi áhrif á þróun innlendra efnahagsmála. Stofnun verðjöfnunarsjóðs, er hefði það hlutverk að jafna á milli ára verulegum hluta slíkra verðbreytinga, væri því æskileg. Slíkur sjóður mundi skapa mun öruggari grundvöll fyrir rekstri fiskiðnaðarins og forða samdrætti og rekstrarerfiðleikum á verðlækkunartímum og koma í veg fyrir ótímabæra fjárfestingu jafnframt því, sem safnað væri til mögru áranna á verðhækkunartímum.

Eins og í upphafi var sagt, hefur efnahagsleg velgengni íslenzku þjóðarinnar aldrei verið eins mikil og hraðvaxandi og s.l. ár, og er þess að vænta, að þær ráðstafanir, sem nú verða gerðar, m.a. með þessu frv., verði til að skapa öruggari grundvöll fyrir rekstri sjávarútvegsins og blása nýjum krafti í atvinnulíf þjóðarinnar til stórbætts hags fyrir okkur alla.

Herra forseti. Ég skal ekki hafa um þetta frv. öllu fleiri orð. Þar sem nú er skammt til þinghlés vegna jólahátíðar, væru það eindregin tilmæli mín til þeirrar hv. n., er málið fær til meðferðar, að hún hafi við athugun málsins samstarf við hlutaðeigandi n. í hv. Nd., en brýna nauðsyn ber til þess, að frv. fái endanlega afgreiðslu fyrir þinghlé. Um það, sem þessi framsöguorð ekki upplýsa varðandi frv. sjálft og tilgang þess, mun hv. þn. að sjálfsögðu fá allar þær upplýsingar, sem eftir verður óskað undir meðferð málsins í n.

Herra forseti. Ég geri það að till. minni, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. sjútvn.