27.03.1968
Sameinað þing: 47. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í D-deild Alþingistíðinda. (2751)
160. mál, náttúruvernd, friðun Þingvalla og þjóðgarða
Utanrrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Út af þessari aths. hv. 6. þm. Reykv. skal ég aðeins segja það, að ég hafði skilið hana þannig og þessa aths., sem í grg. er um það mál, að það yrðu ekki Ieyfðar fleiri nýbyggingar innan þjóðgarðsins heldur en gert hefur verið. Það var ákveðið í Þingvallanefnd, þegar síðasta lóðaúthlutun fór fram, að það yrðu stöðvaðar leyfisveitingar í bili, svoleiðis að ég hef enga trú á því, að það þurfi að gera neina ályktun í því sambandi nú.