14.12.1967
Efri deild: 33. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í B-deild Alþingistíðinda. (278)

77. mál, ráðstafanir á gengishagnaði af útfluttum sjávarafurðum

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Ég vil, áður en þessari umr. er lokið, leyfa mér að taka undir þau mótmæli, er hér hafa komið fram gegn þeirri málsmeðferð, sem hér er fyrirhuguð. En þetta frv. er lagt fram á þingi í gær, því útbýtt þá, og höfð framsaga um það í dag, sem ekkert er við að athuga. En jafnframt fylgja því tilmæli frá hæstv. sjútvmrh. um, að afgreiðslu þess verði hraðað svo sem kostur er. Og þessum tilmælum hæstv. sjútvmrh, er svo rækilega fylgt, að formaður sjútvn. boðar til fundar á ákveðnum tíma, kl. 5, á meðan umr. stendur enn yfir í d. og áður en þessu máli hefur verið vísað til nokkurrar þn. Þetta eru fráleit vinnubrögð, og ber að víta þau, og ég vil ekki láta málið fara hér fram hjá, án þess að það sé vakin athygli á þessu og það sé reynt að sporna við þessum vinnubrögðum.

Hæstv. sjútvmrh. hefur gert tilraun til þess að réttlæta þessi tilmæli sín. Hann hefur sagt, að eins og þingheimi sé kunnugt, hafi gengi íslenzku krónunnar eða fyrst enska pundsins verið fellt 24. nóv. og það sé nú nokkuð skammur tími liðinn síðan, og því sé ekki hægt að saka ríkisstj. um það, að hún hafi brugðið við svo skjótt sem kostur var og látið semja eða samið þau frv., sem nauðsynleg eru vegna þessarar gengisfellingar. Það er bara því til að svara, að þetta gildir ekki aðeins um sjávarútvegsmál og ekki aðeins um afgreiðslu þeirra mála, sem nauðsynleg eru vegna einhverra kaflaskipta í sjávarútvegi. Það eru æ ofan í æ nú allra síðustu daga borin fram frv. hér á Alþ. af stjórnarinnar hálfu, sem þessi sama formúla er látin fylgja, að það er óskað eftir því, að þeim sé hraðað sem mest, og n. gefst naumast tími til þess að athuga þau á þann hátt, sem ætlazt er til og venja hefur verið áður um athugun í n. Það er enginn tími til að kanna þessi mál til hlítar, enginn tími til að senda þau til umsagnar, en það á að afgreiða þau af skyndingu.

Ég verð að segja, að þetta gildir ekki, eins og ég sagði, aðeins um sjávarútvegsmál, heldur og um það frv., sem hér var til meðferðar áður í dag varðandi landbúnaðarmál. Það gildir um ýmis skattamál og það gildir um fleiri mál. Mér þykir skjóta hér nokkuð skökku við varðandi vinnubrögð Alþ. að öðru leyti. Ég veit ekki betur en að svo að segja hvert stjfrv. á fætur öðru sé afgr. með hraði og hafi verið afgr. með hraði hér á Alþ. að undanförnu. En hvað um þmfrv.? Eiga þau ekki eins skjótan og greiðan aðgang í gegnum þingið? Nei, ekki aldeilis. Mig minnir, að hér í þessari hv. d. hafi ekki verið skilað nál. enn þá um eitt einasta þmfrv. Ég verð leiðréttur, ef mig misminnir þetta. Þetta eru dálítið einkennileg og athyglisverð vinnubrögð. Það er með þessum þingvinnubrögðum verið að gera Alþ. að afgreiðslustofnun fyrir ríkisstj. Alþ. var það ekki áður, og það er ömurlegt að hugsa til þess, ef það á að liggja fyrir Alþ. í framtíðinni að verða aðeins afgreiðslustofnun fyrir ríkisstj. á hverjum tíma.

Þessi málsmeðferð, sem hér er við höfð, er þeim mun vítaverðari, að þegar gengið var fellt á sínum tíma, var haft samráð um vissa hluti við stjórnarandstöðuna og henni sýnt það frv., sem þá stóð til að leggja fyrir Alþ. um gengisráðstafanir, og sem yfir var lýst af hæstv. forsrh., að hefði aðeins inni að halda tæknilegar ráðstafanir, sem nauðsynlegar væru vegna gengisfellingarinnar. Í því frv. var að vísu sagt, að gengishagnaður, sem yrði af útfluttum vörum á tímabilinu frá því að gengisfellingin átti sér stað og til áramóta, skyldi lagður á sérstakan reikning, en það var skýrt tekið fram í þeim tölum, og það var skýrt undirstrikað af forsrh., að þessum gengishagnaði yrði síðar ráðstafað með l. Nú, hvað er um að tala, spyrja menn? Er ekki verið að ráðstafa þessu með l. núna? Er ekki verið að ráðstafa þessum gengishagnaði með þessu lagafrv., sem hér liggur fyrir? Ég held nú, að efni þessa frv. hefði mjög auðveldlega mátt koma fyrir í frv. um gengisráðstöfun á sínum tíma. Og ég held, að það væri mjög auðvelt að koma efni þessa frv. fyrir í styttra máli en hér er gert, og ég held, að það hefði ekki þurft neinar 3 vikur til þess að semja það frv. Það frv. mætti orða á þessa leið: „Fé á gengisreikningi ríkissjóðs í Seðlabankanum skal lagt í gengishagnaðarsjóð. Þeim gengishagnaðarsjóði skal varið í þágu sjávarútvegsins. Sjútvmrh. fer með úthlutun úr gengishagnaðarsjóði.“ Þetta væri styttra og að ég álit betra lagamál og kjarnyrtara að koma þessu fyrir á þennan veg. Og það mundi vera miklu betra fyrir hæstv. ráðh. að skýra það en það frv., sem hér liggur fyrir og nokkuð hefur staðið í honum að skýra. (Gripið fram í.) Ég mundi segja til um það, þegar ég sæi það. En maður gefur ekki fyrirfram yfirlýsingar um það, fyrr en málið kemur fram. En sannleikurinn er sá, að þegar þetta frv. er skoðað niður í kjölinn, er þar margt, sem þörf væri að ræða, en ég skal ekki fara langt út í efni þess, af því að það hefur verið gert af þeim, sem hér hafa talað á undan, en ég vildi aðeins með þessum orðum mínum undirstrika það, að þessi vinnubrögð, sem hér eru viðhöfð, eru ekki viðhöfð af neinni nauðsyn. Þetta frv. hefði mátt semja á einni dagstund og leggja það síðan fram, það þarf enga vinnu að leggja í þetta frv., enda hefur engin vinna verið lögð í það. Frv. ber það með sér og hæstv. sjútvmrh. hefur í raun og veru með þögninni viðurkennt það, vegna þess að hann hefur ekki getað svarað þeim spurningum, sem til hans hefur verið beint, og ég er ekkert að álasa honum fyrir það, því að menn hafa alls ekki gert sér málið ljóst. Málið er ekkert ljósara eftir samþ. þessa frv. en það var áður. Það er þannig lagað, þetta frv.

En eins og ég sagði, ætla ég ekki að eyða löngum tíma í að fara út í efni þessa frv. En ég vildi undirstrika mótmælin, sem hafa komið fram gegn þessari málsmeðferð, og ég vil biðja hv. þdm. að staldra við og íhuga, hvernig er farið að fara með Alþ., og það er ekki víst, að Alþ. hafi efni á því um þessar mundir að tileinka sér þvílíka starfsháttu. Vegur Alþ. er því miður ekki of mikill hjá þjóðinni nú. Það er illa farið, því að Alþ. ætti að vera að réttu lagi, bæði vegna sögu sinnar og fyrir annarra hluta sakir, virðingarmesta stofnun íslenzku þjóðarinnar. En ég held t.d., að hv. stjórnarmenn hefðu gott af að kynna sér vikulega yfirlit, sem þingfréttaritari aðalstjórnarblaðsins ritar í sitt blað. Ég sé ekki betur en í hverjum einasta pistli séu minni eða stærri títuprjónsstungur til Alþ. og að því látið liggja, hversu vegur þess nú sé smár og minnkandi. Það má segja, að bragð sé að, þá barnið finnur. Það er vissulega. Ég álít, að Alþ. hafi ekki ráð á því nú að láta leika sig svona. En með svona vinnubrögðum er verið að smækka Alþ., lækka virðingu þess. Það getur verið, að það sé meiningin með svona vinnubrögðum og svona óbilgirni, sem þau bera vott um, að sýna stjórnarandstöðunni einhverja lítilsvirðingu. En það er ekki það, sem máli skiptir, og það er ekki það, sem verið er að gera með þessu. Það er verið að sýna Alþ. og alþm. öllum lítilsvirðingu, ekkert síður stjórnarsinnum, sem á að ala upp í því að vera ekkert annað en strámenn, sem rétta upp hendurnar í hvert skipti, sem stjórnin togar í spottann. Vegur Alþ. verður ekki mikill, ef hér verða aldir upp menn, sem aldrei geta látið örla á hjá sér sjálfstæðri skoðun.

Það er að sjálfsögðu svo, að það eru auðvitað allir með því, að þessum gengishagnaði, sem hér er um að ræða, sé varið í þágu sjávarútvegsins. Það er ekki nema sjálfsagður hlutur. Sjávarútvegurinn á þetta fé. Það er af honum tekið. Það er skattur, sem á hann er lagður. Það er verðjöfnunargjald, getum við sagt, en ég lærði það á sínum tíma af hæstv. forsrh., þegar hann var að kenna mér stjórnlagafræði, að verðjöfnunargjald mundi því aðeins fá staðizt, að það væri lagt á eftir svipuðum reglum og um það giltu svipaðar grundvallarreglur eins og skatta. Og þetta hef ég auðvitað tuggið upp eftir honum síðan og kennt, og ég ætla að vona, að það standist. Það verða að gilda um verðjöfnunargjald svipaðar grundvallarreglur eins og um skatta. Það liggur í augum uppi. Það er ekki hægt að fara í kringum ákvæði stjórnarskrár með því að fara að kalla skattheimtu verðjöfnunargjald, og þarna hefur verið tekinn skattur af útgerðinni. Ég vil þá segja meira en skattur. Ég vil segja, það er í rauninni gert upptækt fé. Það væri hægt að segja, ef sjávarútvegurinn ætti ekki aftur að fá þetta fé, að fé hans væri gert upptækt, því að auðvitað er það eðlilega og venjulega, að þegar um gengisfellingu er að ræða, nýtur strax sá, sem afurðir á og út flytur og selur eftir það tímamark, þess verðauka, sem gengisfellingin hefur í för með sér. Frá því hefur hér verið vikið og tekin upphæð af honum um ákveðið tímubil í því skyni að greiða honum féð aftur. En hann á að fá það aftur eftir vissum verðjöfnunarreglum. Ég vil alls ekki segja, að þetta sé fráleit hugmynd, alls ekki. Ég álít, að það gæti út af fyrir sig vel staðizt og gæti verið eðlilegt að taka þannig nokkuð og verðjafna. En þá er það auðvitað, að það á að setja lög um það efni, hvernig þessu fé skuli úthlutað og varið í þágu sjávarútvegsins. Þetta er engin lagasetning að leggja það allt á vald sjútvmrh. En í raun og veru er þetta frv. alveg botnlaust. Það er, ef skoðað er niður í kjölinn, allt lagt á vald sjútvmrh. eða nær allt, vegna þess að þær takmarkanir eða þær orðanir, sem gerðar eru í l., eru nánast ekkert annað í flestum tilfellum en stefnuyfirlýsingar, frómar stefnuyfirlýsingar Alþ., en sjútvmrh. er ekki bundinn við þær. Hann getur ráðstafað þessu eins og hann kýs. Hann á að meta það t.d., eins og hér hefur verið rækilega sýnt fram á, hverjar hækkanir á reksturskostnaði á að bæta. Hann hefur alveg frjálsar hendur um það. Hann á að greiða skreiðarframleiðendum bætur vegna markaðsörðugleika. Ekki eitt orð um það, hve mikilli upphæð á að verja til þess arna eða hvernig nánar á að afmarka það, allt lagt í vald hans. (Gripið fram í.) Jú, jú, ég kem að því seinna. Ja, ég heyrði hana nú því miður ekki alla, en ég fékk svona hugmynd um hana. (Gripið fram í: Mér heyrðist það.) Já, eftir öðrum leiðum. Ég skal athuga það seinna. En það er alveg rétt, að hæstv. ráðh. var með áætlun um það, að það mundu fara 35 millj. í hækkanir á rekstrarkostnaði, 12 millj. í bætur til skreiðarframleiðenda, 10 í bætur til bræðslusíldariðnaðar o.s.frv. En heldur hæstv. sjútvmrh., að það séu einhver lög, þó að hann gefi hv. Alþ. upp svona tölur? Hann er ekkert bundinn af því, enda mun hann hafa sagt, að þarna væri um áætlanir að ræða. (Sjútvmrh.: Áætlunartölur.) Áætlunartölur. En alveg sama, þó að það hefðu engar áætlunartölur verið, þá hefði það ekkert lagalegt gildi þannig, hvað ráðh. segir um þetta. Hann hefur eftir I. frjálsar hendur um þetta, og það eru l., sem gilda. Ef menn vilja taka þetta vald af honum og ráðh. vill hafa það svo og standa við þessi orð, þá er að setja inn þessar tölur. Það er einfalt mál.

Og þannig mætti náttúrlega halda áfram í þessum dúr, því að þetta er allt, eins og ég sagði, þetta er allt botnlaust, þannig að það er allt lagt á vald ráðh. að fráskildum kannske þessum e- og f-liðum í 1. gr., sem má segja, að séu meira ákveðnir. Það sama má vitaskuld segja bæði um 2. og 3. gr. Það er verið að segja það í 2. gr., að gengishagnaðarsjóði megi ráðstafa til ákveðinna hluta, sem eru náttúrlega þó mjög teygjanlegir, eins og að greiða til Fiskveiðasjóðs Íslands og ríkisábyrgðasjóðs til að greiða fyrir endurskipulagningu fiskiðnaðarins og framleiðniaukningar, sem er náttúrlega heldur teygjanlegt. En það segir bara, að það megi verja allt að 1/4 til þessara hluta. En þá er ekkert vitað, hvaða upphæð verður afgangs, eftir að úthlutað hefur verið eftir 1. gr. Og þannig er haldið áfram. Og svo er rúsínan í pylsuendanum þarna, að það á svo með afganginum að stofna verðjöfnunarsjóð. En það veit enginn, hver afgangur verður. Það getur verið ágæt hugmynd að stofna verðjöfnunarsjóð. En ég held, að um hann gildi einmitt þetta, sem ég hef verið að reyna að segja, að það er vitaskuld alveg ófært, að til hans sé stofnað, nema lagðar séu línur nokkuð nákvæmar um það, hvernig hann skuli úr garði gerður, því að hér er um ákaflega viðkvæm mál að tefla, eins og auðvitað er. Það er tekið af A og aftur úthlutað til B og ég held, að það sé ekki hægt að gera svona hluti bara eftir geðþótta. Það verður að vera ákveðið kerfi í því og ákveðinn skyldleiki, að ég held, milli þeirra greina, sem á að jafna á milli. Ég held, að það sé naumast stætt á öðru, og ég held, að það sé ekki hægt að stofna þvílíkan sjóð, nema áður hafi verið gerð nokkur grein fyrir því, hvernig þessar línur skuli lagðar. Þetta er nú ljóst. Þetta er nú þeim mönnum, sem að þessu frv. standa, nokkurn veginn ljóst, vegna þess að þeir gera ráð fyrir því, að það þurfi svo, eftir að þessi lög hafa verið samþ. og afgreidd, að setja sérstök lög um þennan verðjöfnunarsjóð. Ég fellst á það, það verður nauðsyn að gera það. En það er þá bara vonandi, að ekki fari eins með þá lagasetningu eins og lagasetninguna, sem boðuð var með l. um gengisráðstafanir. Það átti svo sem að setja lög um gengisreikninginn og gengissjóðinn, og efndirnar á því loforði eru þessar, sem hér liggja fyrir.

Það liggur af minni hálfu ekki út af fyrir sig nokkurt vantraust í því á hendur hæstv. sjútvmrh., að ég vil ekki fela honum þetta vald. Ég hef enga ástæðu til annars en ætla, að hann mundi samvizkusamlega vinna að þessum málum. En þarna er um það að ræða að verja 400 millj. kr. Ég vil ekki veita neinum ráðh. vald til þess að ráðskast með þvílíka upphæð, og það er alveg í ósamræmi við þær grundvallarreglur, sem settar eru um fjárstjórn okkar ríkis, nefnilega þær, að það er Alþ., sem á að leggja meginlínurnar um fjárstjórn ríkisins. Það á ekki aðeins að veita skattaheimildirnar, heldur líka að leggja höfuðlínurnar um það, hvernig fénu skuli ráðstafað. En ef á að taka þann hátt upp að heimila einstökum ráðh. úthlutun úr sjóðum, sem eru upp á 400 millj. sé ég ekki, hvar slíkt getur endað. Það gæti verið byrjunin, en það er ekki víst, að það væri endirinn. Með þvílíku spori gæti verið skapað fordæmi, sem ætti eftir að verða heldur óheppilegt.

Í sömu átt, en í miklu minna mæli gengur það frv., sem hér var einnig til umr. í dag varðandi landbúnaðinn. Þar er það lagt á vald landbrh. að úthluta þeim millj., sem þar er um að ræða. Allt er þetta í stíl, og það þarf enginn að ætla það, að ef þetta verður samþ., verði það síðasta skrefið á þessari braut, en ég held, að Alþ. verði hollast að standa fast á rétti sínum til þess að hafa með höndum fjárveitingarvaldið. En þó að engin upphæð sé nefnd í þessu frv., upplýsti sjútvmrh., að gera mætti ráð fyrir því, að hér væri um 400 millj. að tefla, skildist mér, og það er bara engin smáupphæð. Það er talsvert brot af fjárl., þó að þau séu nú orðin nokkuð há.

Ég kemst ekki heldur hjá því að benda á annað, sem mér þykir athugavert orðið um vinnubrögð hér á þingi, og sem því miður kom fram hjá hæstv. sjútvmrh. áðan, þeim ágæta manni. Til hans var beint ákveðnum og afmörkuðum spurningum af hálfu þeirra, sem fyrr ræddu frv. Hv. 5. þm. Reykn. beindi t.d. ákveðinni spurningu til hæstv. sjútvmrh. Hann beindi þeirri spurningu til hans, hvernig sjútvmrh., sem á að fara með þetta vald, sem honum er fengið hér í þessu frv., hefði hugsað sér að framkvæma a-lið 1. gr., þ.e.a.s., hvernig ráðh. hefði hugsað sér að framkvæma það ákvæði, að bæta skuli hækkanir á rekstrarkostnaði. Þessari spurningu svaraði ráðh. ekki. Enn fremur beindi sami hv. þm. alveg ákveðinni spurningu til sjútvmrh. Hann spurði hann að því, hvort ætlunin væri að stórhækka útflutningsgjald af sjávarafurðum. Ég varð þess ekki var, að hæstv. sjútvmrh. svaraði þessari spurningu einu orði. Ég vil ekki vera að deila sérstaklega á hæstv. sjútvmrh. fyrir þetta. Hann er samvizkusamur maður, sem ég gæti margt gott sagt um, ef ég vildi það við hafa. En ég nefni þetta, vegna þess að þetta er orðið áberandi einkenni á vinnubrögðum hér á Alþ., að stjórnarandstæðingar halda sínar ræður og gera sínar fsp. til ráðh. og deila á frv., sem lögð eru fram, kannske með misjöfnum hætti, við skulum játa það, þær ádeilur eru kannske misjafnlega málefnalegar, eins og gengur, en áreiðanlega oft fullkomlega málefnalegar, en það er eiginlega segin saga, að ráðh. eru bara hættir að svara þessu. Ég tala nú ekki um óbreytta liðsmenn stjórnarinnar, það heyrist nú ekki tíst í þeim. Þetta eru vinnubrögð, sem ég vil átelja. Ráðh. eru á þingi til þess að taka þátt 4 umr. og svara fsp. frá þm. og upplýsa það mál, sem til meðferðar er, og verja þau mál, sem þeir berjast fyrir og óska eftir, að samþ. séu. Þeir eru ekki staddir hér á þingi til þess eins að svara fsp., sem þm. bera fram og þm. hafa 5 mín. til þess að ræða, með klukkutíma fyrirlestrum. Þeir eru hér á þingi staddir til þess að taka þátt í venjulegum umr. um mál og svara ádeilum og fsp., sem stjórnarandstæðingar bera fram, en á þessu er orðinn mikill misbrestur, ekki frekar hjá hæstv. sjútvmrh., nema síður sé, en hjá öðrum ráðh.

Það gefur auga leið, að það er geysilegt hagsmunamál fyrir sjávarútveginn, hvernig þessum 400 millj., sem af honum hafa verið teknar, er varið. Það er að mínu viti alveg fráleitt að ætla að setja um það reglur, án þess að hafa með einhverjum hætti samráð við þá aðila, sem þetta mál varðar mest, fyrirsvarsmenn ýmissa greina sjávarútvegsins. En það kemur ekki fram í þessu frv., að ég ætla, að samráð hafi verið haft við þá við samningu þessa frv. Það má vera, að svo hafi verið gert, en það getur hæstv. ráðh. þá upplýst. En ég held að það komi ekki fram í þessari grg., sem fylgir hér með frv., að haft hafi verið samráð við neina fyrirsvarsaðila sjávarútvegsins. Það liggur því í augum uppi, að þetta frv. verður að sjálfsögðu að senda til umsagnar þeirra aðila, annað væri óhæfa. Það er verið að senda smáfrv., sem litlu varða, til umsagnar þvílíkra aðila. Það væri því furðulegt, ef afgreiða ætti frv. sem þetta, án þess að umsögn þvílíkra aðila væri fengin.

Ég held, að þessu frv. þurfi að gjörbreyta. Ég held, að það þurfi að setja það í lagasnið, þannig að í því séu einhverjar bindandi réttarreglur, en ekki þannig úr garði gert, eins og þetta frv. er, að það má nánast skoða sem þál., fróma stefnuyfirlýsingu frá Alþ. um það, hvernig þessum 400 millj. skuli varið, en annars lagt í hendur hæstv. sjútvmrh. að fjalla um það og fara með ákvörðunarvald í því efni.