14.12.1967
Efri deild: 33. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í B-deild Alþingistíðinda. (279)

77. mál, ráðstafanir á gengishagnaði af útfluttum sjávarafurðum

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Á samvinnutíma okkar hér á hv. Alþ., mín og hv. 3. þm. Norðurl. v., hef ég oft orðið þess var, að hann ber virðingu Alþingis mjög fyrir brjósti, og ég efast ekkert um heilindi hans í því efni. En þess vegna ætlaði ég nú að neita mér um að minna á, að hér hafa stundum áður verið aðrir flokkar í ríkisstj., aðrir flokkar, sem þurft hafa á því að halda að afgreiða mál einmitt á þessum árstíma, síðustu dögunum fyrir jól. Og ég minnist þess, að í samvinnu við flokksbræður hans — ekki hann sjálfan, ég held, að hann hafi ekki átt sæti hér 1957 — fór frv. um geysilega víðtækar efnahagsráðstafanir á 21/2 sólarhring í gegnum báðar d., og ég heyrði ekki, að fram kæmi nein sérstök mótmælaályktun, nema síður væri, frá hans ágæta flokki, Framsfl., því að fjmrh., sem þá var úr Framsfl., hv. 1. þm. Austf., sá eins og aðrir nauðsyn þess að afgreiða þetta mál á tilteknum tíma. Þessar ráðstafanir hlutu þá í blöðum andstæðinganna nafnið „jólagjöfin“, og ég heyrði ekki, að eitt einasta bofs kæmi úr röðum þeirra ágætu framsóknarmanna um, að virðingu Alþingis væri á nokkurn hátt misboðið.

Ég tók þátt í þessum leik þá af alveg nákvæmlega sömu sannfæringu og ég geri í dag og tel, að rétt sé að farið, þótt ég viðurkenni sjálfur, að slíkum hraða á ekki að beita, nema brýn nauðsyn krefji. En því minni ég á þetta, að slík nauðsyn hefur áður verið fyrir hendi og þá að áliti ríkisstj., sem á allt annan hátt var saman sett. Og hið sama gildir um páskagjöfina, sem kom árið eftir. En ég segi þetta ekki neinum flokki til ávirðingar. Ég segi þetta einmitt til að minna á það, að svona aðstæður eru oft fyrir hendi í málum okkar Íslendinga og er alls ekki nein ný bóla, og virðing Alþ. þarf af þeim sökum ekkert að þverra nú frekar en hún hefur gert áður.

Ég sá, að hv. þm. var ekki við, meðan ég flutti mína framsöguræðu og vil ekki óvirða hv. þd. með því að fara að lesa hér sömu kaflana nokkrum hálftímum seinna, en ég taldi, að ég hefði rakið hvern einasta lið frv. í minni framsöguræðu, ekki bara frá annarri hliðinni, heldur báðum og greint frá þeim ástæðum, sem til þess lágu, að þessir liðir eru orðaðir eins og frv. gerir ráð fyrir. Upplýsingar um alla þessa liði og afstöðu mína og ríkisstj. til þeirra getur hv. þm. fengið í þessari ræðu minni. Og úr því að ég minnist á þetta, vil ég enn fremur minna á, að það kemur ósjaldan fyrir, að þm. stöðva sína ræðu í miðjum klíðum og krefjast þess, að ráðh. sitji hér og hlusti á þeirra mál. Þetta er út af fyrir sig þingmannsréttur, en þessum rétti hafa ráðh. ekki afsalað sér. Við hljótum að eiga gagnkvæman rétt á hendur þeim mönnum, sem um málið vilja fjalla, að þeir hlusti á frumflutning málsins í einstökum liðum. Mér finnst það bara sanngjarn gagnkvæmisréttur.