07.12.1967
Sameinað þing: 17. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í D-deild Alþingistíðinda. (2793)
63. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Eins og kunnugt er, hefur bylgja hagsældar gengið yfir Vestur-Evrópu undanfarin 6 ár. Áhrifa frá þessari þróun hefur gætt víða og m. a. hér á landi. Þessi hagþróun einkenndist af mikilli eftirspurn eftir iðnaðarvörum, og í kjölfar vaxandi eftirspurnar kom hækkandi verðlag. Atvinna varð mjög mikil í þessum löndum, og verulegur tilflutningur á vinnuafli úr Suður-Evrópu átti sér stað norður á bóginn. Við Íslendingar fundum brátt jákvæð áhrif á eftirspurn eftir útflutningsvörum okkar í kjölfar þessarar þróunar. Allt frá árinu 1960 hefur verðlag farið meira og minna hækkandi sem heild, þótt nokkrar innbyrðis sveiflur hafi komið fram. Þetta tímabil stóð fram á mitt ár 1966, en þá fór að bera á minnkandi eftirspurn og verðlækkun á sumum vörutegundum. Menn reiknuðu ekki með öðru en hér væri á ferð lítilfjörleg lægð er mundi jafnast út fljótlega aftur. En svo varð ekki. Mörg lönd hafa átt við vaxandi erfiðleika að búa í verzlunarjöfnuði við útlönd hina seinustu mánuði. Harðast varð England úti, og þarf ég ekki að rekja það nánar, svo mjög sem búið er að ræða um gengisbreytingu þeirra og ákvörðun um að breyta hér einnig engi íslenzku krónunnar.
Til þess að auka áhrif þessarar hagþróunar hér á landi, tók ríkisstj. þegar upp breytta stefnu árið 1960 frá því, sem verið hafði undanfarin ár. Þessi stefna einkenndist af vaxandi frelsi í viðskiptum og auknu vöruvali til mikilla hagsbóta fyrir neytandann. Hinar hvimleiðu biðraðir og betligöngur fyrir nefnd eftir nefnd voru úr sögunni, og enginn mun sakna þeirra, sem reynt hefur hvort tveggja kerfið. Við þessar breyttu aðstæður hófst hið mesta framfaratímabil í sögu þjóðarinnar. Almenningur lagði hart að sér, og geysimikil uppbygging bæði hjá hinu opinbera og einkaaðilum átti sér stað. þetta tímabil einkenndist af vaxandi þenslu í flestum eða öllum starfsgreinum. hér á landi. Í kjölfar eftirspurnarinnar eftir vinnuafli fylgdi launahækkun sem útflutningsframleiðslan gat mætt, en aðeins vegna hækkandi verðlags erlendis á afurðum og sívaxandi afla í síldveiðum. Þrátt fyrir þetta vöruðu forsvarsmenn útflutningsatvinnuveganna margsinnis við svo miklum launahækkunum, er lagðar voru á þær atvinnugreinar með ýmsu móti, sem geta ekki velt innlendri hækkun af sér endalaust í hærra vöruverði á erlendum markaði. En þetta dugði ekki. Launakröfur komu alls staðar að, og vegna mikils afla höfðu sjómenn góðar tekjur, er óspart var vitnað til við viðmiðun í launakröfum. M.a. notuðu opinberir starfsmenn launakjör sjómanna sér til framdráttar, og í mörg ár fengu bændur sjálfkrafa launahækkun út á góðar tekjur sjómanna Fram hjá þeirri staðreynd verður ekki komizt, og eiga þar allir flokkar hlut að máli, að svona launakerfi var og er stórhættulegt og gat ekki leitt til annars en að um leið og minnkandi afli kom og hvað þá er samtímis varð mikil verðlækkun erlendis, kæmu fljótlega fram risavaxnir erfiðleikar, þrátt fyrir margra ára góðæri.
Menn greinir mjög á um, hvað hægt sé að gera til þess að draga úr neikvæðum áhrifum þeirrar hagsældar, sem þjóðin hefur búið við undanfarin ár. Hitt er augljóst, að ekki er mögulegt að veita mönnum svo mikið frelsi sem æskilegt er, nema full ábyrgð fylgi öllum starfsgreinum. Það verður því að vera meginsjónarmið við þá endurskipulagningu er fara verður fram við núverandi gengisbreytingu að fyrirtæki sem einstaklingar verða að bera fulla ábyrgð á gerðum sínum og taka afleiðingum af röngum fjárfestingarákvörðunum. Hér mun ekki komast á eðlilegt jafnvægi, nema áherzla sé lögð á þetta atriði, vegna þess að við búum við mjög ójafnar tekjur í aðalframleiðslugreinum okkar og hins vegar dreifast tekjur frá þess um greinum með miklum hraða út um allt atvinnulífið og verður ekki lengur unnt að komast hjá. því, að aukið aðhald með fullri ábyrgð verði grundvallaratriðið í rekstri fyrirtækja á komandi árum. Það getur ekki verið til blessunar ár eftir ár að treysta á verðbólgu og að skuldasöfnun verði léttbærari en sparnaður og ráðstöfun á fjármagni til skynsamlegrar uppbyggingar.
Eins og áður var sagt, jókst eftirspurn eftir vinnuafli á þessum árum, og yfirborganir urðu algengar. Þessar ytri aðstæður komu launafólki vel, en voru atvinnuvegunum hættulegar. Þessari þróun varð aðeins mætt með sívaxandi afla, og varð aukningin næstum öll í síldveiðunum, og einnig þurfti hækkandi verðlag að koma til hjálpar, svo að rekstur veiðiflotans gæti verið tryggur og stöðugur. Augljóst var, að við verðsveiflu í útflutningsframleiðslunni niður á við samfara minnkandi aflamagni mundu fljótt koma til miklir örðugleikar. Vegna hagstæðrar þróunar á verðlagi og afla frá 1960 til 1966 var ráðizt í meiri bátakaup á þessum árum en nokkru sinni fyrr í sögu þjóðarinnar. Einkum beindist skipagerðin að skipum til síldveiða, og til aflaaukningar þeirra var sóttur vaxtarbroddurinn í efnahagskerfið undanfarin ár. Sem dæmi um þessa þróun vil ég nefna eftirfarandi skiptingu í síldveiðiflota landsmanna. Árið 1960 voru síldveiðiskipin 258, meðalstærð 82 tonn. Árið 1964 voru síldveiðiskipin 233, meðalstærð 133 tonn og árið 1967 voru skipin aðeins 152, en meðalstærð komin upp í 223 tonn Á þessu yfirliti sést, að stærð meðalsíldveiðiskipsins hefur næstum því þrefaldazt frá árinu 1960 til þessa dags. Þetta segir þó ekki nema hálfa söguna. Verðmæti skipanna um 1960 var 5 til 6 1/2 millj. kr., en er í dag á gamla genginu um 18 til 22 millj. kr. eða jafnvel meira.
Ég vil nefna þessa þróun hér, því að framsóknarmenn hafa komizt að mjög spaklegri niðurstöðu að þeirra eigin dómi hér á hv. Alþ. að undanförnu. Þeir hafa fundið út, að verðið í dag á útflutningi okkar sé mjög svipað svonefndu meðaltali á sömu vörum undanfarin 6 ár. Samkv. þessu ætti alls ekki að vera um nein sérstök vandræði að ræða hjá útveginum eða framleiðslu í dag. Ef um vandræði væri að ræða, stöfuðu þau aðeins af alrangri stjórnarstefnu og klaufaskap þeirra, sem stjórna fyrirtækjunum. Það er ekki úr vegi að líta nokkru nánar á þessa staðhæfingu þeirra og gera sér grein fyrir gildi hennar.
Eins og ljóslega kom fram af yfirlitinu hér að framan, hafa skipin stækkað verulega. Þessi stækkun kostar auðvitað stórfé. Þótt aflaaukning hafi fylgt eftir stækkuninni, er hún ekki í samræmi við aukinn tilkostnað í kaupum skipanna og hækkandi þjónustukostnað hér á landi varðandi rekstur þeirra. Og því hljóta eðli málsins samkvæmt að koma fram vandræði um leið og verð fellur niður fyrir það sem byggt var á við ákvörðun um kaup á stóru skipunum. Þegar svo þessir tveir þættir tvinnast saman verðfall og aflaminnkun, á a.m.k. öllum að vera ljóst, að erfiðleikar skapast, erfiðleikar, sem engum sérstökum aðila hér á landi verður með nokkurri sanngirni kennt um. Á hitt er svo að líta, að það getur verið sjónarmið út af fyrir sig, að skammast yfir kaupum á góðum bátum og þeim afla, sem kemur í land frá þeim, þótt við erfiðleika sé að etja í rekstrinum sjálfum. Það skal fúslega viðurkennt, að unnt er að fiska á árabátum og trillum einhvern afla, sérstaklega þorsk, ýsu og t. d. grásleppu og eins að þessi útgerð tekur sáralítið til sín í erlendum gjaldeyri. En er það afturhvarf til svona útgerðar, sem framsóknarmenn eru að impra á hér undir rós? Ég geri ráð fyrir, að fiskkílóið mundi ekki lækka, þótt það vitnaðist erlendis, að aflinn væri veiddur á árabátum, og því gæti verið um góðan rekstur á honum sem slíkum að ræða, þótt stærri vel útbúnir bátar ættu í vandræðum og þyrftu meira til sín til þess að lifa af. Eða hvaða lífskjör gæfi árabáturinn Íslendingum í dag? Er nokkur maður, sem í alvöru vill hverfa aftur á tímabil árabátanna til sjós og tíma orfs og ljáar í landi? Það sama gildir um landbúnaðinn. Hann þarf mikið til sín í dag vegna vélvæðingar, sem vissulega hefur verið mikil og í mörgum tilfellum of ör. Það haggar samt ekki þeirri staðreynd, að lífskjör bænda, eins og annarra í þessu landi, hafa farið batnandi undanfarið og aldrei í sögunni verið betri en einmitt nú.
Í sambandi við efnahagsvandræðin að undanförnu hafa menn almennt mikið rætt um möguleika á sparnaði hjá hinu opinbera. Þetta er að vonum, en hægara sagt en gert. Fulltrúar launþega höfðu fjárlagafrv. til meðferðar og athugunar í marga daga, þegar viðræður stóðu sem hæst milli fulltrúa þeirra og ríkisstj., en raunhæfar till. frá þeim um sparnað komu ekki fram. Hins vegar var sagt, að spara mætti víða, og þar við sat. Vissulega þarf að gera átak í sparnaði hjá hinu opinbera, en er það ekki mest undir ríkisstarfs mönnunum sjálfum komið ber þeim ekki að sýna forsjálni og aðgæzlu? Eins er það mjög þýðingarmikið að stjórnarvöld landsins sýni í verki sparnað. Þaðan verður fyrirmyndin um aðhald á erfiðum tímum að koma. Ég man ekki eftir öðru en að allar ríkisstj. hafi fengið um það kvartanir, að sparnaðurinn gæti verið meiri hjá þeim hverri og einni. En hér er vandamál á ferðinni, sem á djúpar rætur í okkar skipulagi.
Nú höfum við Íslendingar náð þeim áfanga. að verða 200 þús. manns. Þessi hópur manna vill reka hér nútíma þjóðfélag með hliðstæðri stjórnskipan og er hjá stórþjóðum að undanteknum hernum. Við viljum halda uppi mikilli menningarstarfsemi í ýmsu formi, skólum, listum, íþróttum o. s. frv. Allt þetta kostar stórfé og miklar álögur á hvern og einn þjóðfélagsþegn. Gerðar eru hinar margvíslegustu kröfur til ríkisins á sama tíma og því er hallmælt eins og einhverju foraði, sem reytir og ruplar af þegnum sínum eftir fremsta megni. Þannig eru viðhorfin andstæð.
Niðurstaða fjárlaga er 6,2 milljarðar, og vissulega eru það miklir peningar, jafnvel í dag. Til fróðleiks má nefna aðalútgjaldaliðina samkv, frv., en breytingar kunna þó að koma fram. Þessir eru helztu liðir til útgjalda: Almannatryggingakerfið 1384 millj. kr. Fræðslumál, listir og söfn o.s.frv. 867 millj. kr. Samgöngumál 599 millj. kr. Niðurgreiðslur ýmislegar eru áætlaðar 519 millj. kr. Ýmisleg félagsmál 437 millj. kr. Dómgæzla og lögreglumál 296 millj. kr. Toll- og skattheimta 98 millj. kr. Menn sjá af þessu að geysileg tekjujöfnun á sér stað í hinu íslenzka þjóðfélagi í gegnum almannatryggingakerfið. Á komandi ári er gert ráð fyrir að jafna til baka til hinna efnaminni og öldruðu fyrst og fremst ásamt einstæðum mæðrum yfir 1 milljarði kr. Margir vilja draga úr þessu, en meðan Alþfl. hefur áhrif á stjórn þessa lands, mun ekki verða slakað á, heldur sótt fram á tryggingasviðinu til aðstoðar við þá, sem af einhverjum orsökum mega sín miður í lífsbaráttunni. Mér finnst rétt að undirstrika sérstaklega kostnaðinn við dómgæzlu og sögreglumálin og innheimtu skatta. Þessi kostnaður er um 40 millj. kr. Hér væri og er vissulega þörf á, að verði á breyting, en hvar verður breytingin? Hún þarf og verður að koma frá þegnunum sjálfum. Það er óhugnanlega há tala, að þarfa að kosta til af hálfu ríkisins um 7% af ríkistekjunum til dómgæzlu og lögreglumála og innheimtu skatta, sem mönnum ber að greiða.
Hér er aðeins minnzt á þátt ríkisins, en um þátt bæjarfélaga veit ég ekki að sinni, hve stór er. Það getur verið að það sé ofrausn að tala um bætta stefnu í þessum málum á meðan ríkiskassinn reiknar með teljum af víni og tóbaki hvorki meira né minna en tæplega 700 millj. kr. En svona er háttalag mannsins undarlegt. Nútímaþjóðfélag veitir þegnum sínum mikið, en leggur um leið ákveðnar kvaðir á herðar hverjum og einum. Þessar kvaðir bera menn misjafnlega, og það er mannlegur veikleiki að reyna að skjóta sér undan þeim eftir beztu getu og velta með því byrðinni yfir á náungann. En þegar öll starfsemi þjóðarbúsins er skoðuð niður í kjölinn, sést veð, að ekki er svo auðvelt sem um að tala að gera þar á verulegar sparnaðarráðstafanir, eins og nauðsynlegt er samt að gera hér á Íslandi. Núv. ríkisstj. hefur stofnað til sérstakra athugana á öllum rekstri þjóðarbúsins með stofnun hagsýsludeildarinnar, og verður að vænta þess, að sú viðleitni beri mikinn og góðan árangur. Það er nauðsynlegt að skapa aðhald og öryggi í öllum ríkisrekstrinum og einkum þegar efnahagsörðugleikar steðja að. Almenningur á réttmæta kröfu á slíku.
Við þessar umr. sem aðrar áður hafa hlustendur heyrt tölur margar og misjöfn sjónarmið. Stjórnarliðar draga fram sem bezta mynd af högum lands og þjóðar, en andstæðingar ríkisstj. hamast á ranghverfunni og finna allt til foráttu og sjá hyldýpið eitt fram undan. Svona hefur þetta löngum verið. En ég vil spyrja sem nýliði á þessum vettvangi: Þjónar þetta nokkrum tilgangi í sjálfu sér, eru landsmenn svo miklir aular, að þeir gelti ekki af eigin raun séð og dæmt af eigin dómgreind, hvað sé að gerast í kringum þá? Ég ætla mér ekki þá dul að álíta menntaða og vel lesna menn svo dómgreindarlausa, að þeim sé ekki treystandi til þess að meta, hvað vel er gert og hvað miður fer, og af hvaða orsökum lífið gengur misjafnlega hér á Íslandi.
Það eru nýafstaðnar kosningar. Um það verður ekki deilt, að þjóðin vottaði Alþfl. og Sjálfstfl. ótvírætt traust með góðum meiri hluta. Þessir flokkar ákváðu því að hafa áfram stjórnarsamvinnu og byggja á heilbrigðum grunni stefnu sína, sem er landsmönnum vel kunn frá ræðu forsrh. í upphafi þingtímans. Vissulega er ekki unnt að ráða við allt í þjóðarbúskap okkar Íslendinga, og núv. stjórn gerir sér grein fyrir því. Hins vegar hefur hún sett sér það markmið og nýtur til þess stuðnings meiri hluta Alþ. að halda áfram að byggja upp, og efla velferð í þessu landi. Það er heilbrigt að rökræða um leiðir, en það er lágmarkskrafa, að um möguleika til aukningar hagsældar sé rætt af fullri einurð og ábyrgð en ekki með upphrópunum um að breyta þurfi um menn og nefna ekki í leiðinni neina sénstaka úrlausn á aðsteðjandi vandamálum. Slíkt hjal ber ekki vott um raunsæi.
Það eru engin ný sannindi, að við Íslendingar verðum að hafa okkur alla við til þess að geta lifrað hér menningarlífi. Hitt mætti fremur kalla afrek að geta rekið hér svo umfangsmikinn þjóðarrekstur sem hið unga lýðveldi hefur í dag. Þetta er því aðeins mögulegt, að allir landsmenn leggi jafnan að sér mikla vinnu og stór hluti þjóðarinnar fari vel með sitt og ráðstafi arði sínum skynsamlega. Það er von okkar Alþfl.-manna, að þetta fólk fái að njóta sín sem mest, og svo mikill var stuðningur, þess fólks við Alþfl. í kosningunum í vor, að hann mun ekki vega að þessum liðsmönnum nú. Hitt vitum við sem sitjum fyrir Alþfl. á Alþ. núna, að mikill vandi er á höndum um ákvarðanir til lausnar þeim vanda, er við er að etja í dag. Engu að síður er það von okkar, að menn muni láta skynsemi ráða, en ekki rasa um ráð fram með kröfum, sem ómögulegt er að fá framgengt nema með því að auka enn til muna verðbólgu og glundroða í íslenzku efnahagskerfi. Við treystum því, að almenningur vilji standa áfram að baki okkar í viðleitni til þess að hafa hér frjálsa verzlun og athafnir með fullri ábyrgð hvers þegns, er tekur á sig af fúsum vilja þær skyldur, sem lýðveldið leggur honum á herðar. Þess vegna mun Alþfl. standa fast að núverandi stjórn og Stjórnarstefnu.