30.01.1968
Sameinað þing: 31. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í D-deild Alþingistíðinda. (2876)
93. mál, lýsishersluverksmiðja á Hjalteyri
Flm. (Hjalti Haraldsson):
Herra forseti. Þessi till., sem hér liggur fyrir á þskj. 219, er um það að athugaðir verði möguleikar á því, að komið verði á fót lýsisherzlu á Hjalteyri við Eyjafjörð og hvort möguleikar væru á því að komast að samningum á hagstæðum grundvelli við eigendur mannvirkja þar norður frá, þeirra mannvirkja, sem koma til með að hafa notagildi fyrir væntanlega verksmiðju. Ég mun ekki í þessari stuttu ræðu minni fara inn á rekstur slíks fyrirtækis eða það, hversu okkur er mikil nauðsyn að koma slíku fyrirtæki á fót. Hvað þetta snertir, bendi ég á skýrslu Jóns Gunnarssonar verkfræðings um þetta efni til stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins frá 10. júní 1966, en í þeirri skýrslu eru tekin af öll tvímæli um það hversu þýðingarmikið fyrirtækið er og arðbært. Þessi skýrsla er vafalaust hv. þm. kunn svo að ég mun ekki rekja efni hennar frekar. Ég mun hins vegar dvelja við þá hlið málsins, sem snýr að staðsetningu verksmiðjunnar, og benda á, hversu Hjalteyri við Eyjafjörð er vel fallin til þess að koma slíku fyrirtæki þar upp.
Bygging verksmiðju sem þessarar yrði vafalaust allkostnaðarsöm, og í þeim fjárhagsþrengingum, sem okkur virðast fyrirbúnar, yrði sú nauðsyn brýnust að komast sem allra ódýrast frá slíku. Nú vill svo til, að einmitt á Hjalteyri eru fyrir mannvirki, sem falla munu vel á þann grunn, sem fyrirtæki af þessu tagi byggist á. Þar er vel uppbyggð síldarverksmiðja, sem að því að mér er tjáð hefur yfir meira plássi að ráða í lýsisgeymum en nokkur önnur verksmiðja hér á landi, eða 7 þús. tonna geymarými. Það eitt út af fyrir sig er fjárfesting upp á miklar fjárhæðir, en það kemur fleira til. Húsakostur er þarna geysimikill annar, sem kæmi að miklu gagni í sambandi við gerð herzluverksmiðju. Önnur mannvirki, svo sem kyndistöð, rafstöð og vatnsveita, eru þarna mjög góð og mundi allt slíkt þjóna vel í þessu augnamiði. Síðast en ekki sízt má svo nefna bólverkin, sem þarna eru, nýlega endurbyggðar bryggjur innan á eyrinni, en þar er aðdýpi mikið og hallinn á marbakkanum 45 gráður, þ.e. dýpið eykst um 1 m við hvern m, sem hann lengist fram. Þarna hafa athafnað sig 7 þús. tonna skip og jafnvel stærri í einstaka tilfellum. Í verstu veðrum, sem þarna koma er örugg höfn við eyrina. Hjalteyri er í góðu vegasambandi við Akureyri, og ef maður má nefna svokallaða Norðurlandsáætlun þá skaðar ekki að geta þess, að eitt af fyrstu verkum, sem þarna koma til greina, er endurbygging vegarins frá Akureyri til Dalvíkur, og tengjast þá með enn betri samgöngum þéttbýliskjarnarnir út með Eyjafirði að vestan, Hjalteyri, Hauganes, Litli-Árskógssandur og Dalvík. Og mundi ekki einmitt þessi verksmiðja falla vel í þann ramma, sem hugsaður er í sambandi við uppbyggingu á Norðurlandi, því að tilkoma slíkrar verksmiðju mundi leiða af sér ýmiss konar iðnað sem hleypa mundi fjöri í atvinnulífið. Vel mætti hugsa sér, að með aukinni flutningatækni á síld yrði tilkoma þessarar verksmiðju til þess, að meiri áherzla yrði lögð á að flytja síldina til bræðslu á hafnir norðanlands. Hleypti hún þannig lífi í þá staði fyrir norðan, sem barizt hafa í bökkum hin síðari ár, og þá ekki hvað sízt Hjalteyri, þar sem allt atvinnulíf hefur lagzt í dróma, en eins og kemur fram í sambandi við atvinnuleysisskráningu, sem þar hefur nýverið verið gerð, eru flestar fyrirvinnur að heiman við að leita sér atvinnu annars staðar.
Ekki sakar að geta þess, að það mun hafa verið gerð áætlun áður um byggingu lýsisherzluverksmiðju á Hjalteyri. Hún var framkvæmd á þeim árum, þegar síldarleysið var hvað mest fyrir Norðurlandi, og málið datt niður af þeim sökum.
Að þessu slepptu langar mig svo í örfáum orðum að víkja að skýrslu Jóns Gunnarssonar verkfræðings, er hann skilar stjórn Síldarverksmiðja ríkisins, eins og ég áður sagði, 10. júní 1966, en það ætla ég að gera þrátt fyrir það, að sennilega er þessi skýrsla í höndum flestra þm., því að henni var útbýtt í hinu háa Alþ. skömmu eftir að henni var skilað. En áður en ég geri grein fyrir niðurstöðum Jóns, vil ég aðeins víkja að því, að árið 1964 seljum við Norðmönnum 27 þús. og 800 tonn af síldarlýsi. Það ár var síldarlýsisframleiðsla Íslendinga 80 þús. tonn. Þetta magn herða síðan Norðmenn og flytja út aftur, og eitt af því fáa, sem þeir halda leyndu í sínum verzlunarskýrslum er það hvert þeir selja sína hertu fiskolíu. Hvað smjörlíkisframleiðsluna áhrærir, bendir Jón á, að vélar séu til í landinu til að framleiða mun meira magn af smjörlíki en við þurfum að nota. Til þess að hægt sé að fullnýta afkastagetu þessara verksmiðja, þurfi þær að geta flutt út, en til þess þurfi þær að fá ódýrara hráefni, en þetta ódýra hráefni sé einmitt hert síldarlýsi. Enn fremur mundi slík verksmiðja, sem hér um ræðir, geta flutt inn í tankskipum aðrar olíur, sem til framleiðslunnar þarf, svo sem jurtaolíur, og hreinsað og hert þær og afgreitt til verksmiðjanna eftir þörfum, en allt þetta mundi ekki einasta lækka verð á smjörlíki til innanlandsnotkunar, heldur og einnig gera útflutning á smjörlíki framkvæmanlegan.
Þá kem ég að niðurstöðum Jóns, en þar stendur orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Ég tel tímabært, að byggð verði lýsisherzluverksmiðja á Íslandi. Afurðirnar eru seljanlegar, rekstur verksmiðjunnar hagkvæmur og mjög hagkvæmur eftir 5 starfsár, þegar vélar eru orðnar afskrifaðar. Það er þó ekki eingöngu vegna fjárhagslegrar afkomu verksmiðjunnar, að ég mæli með því, að hún verði byggð, heldur einnig vegna þess, að Íslendingar þurfa breiðari markaðsgrundvöll fyrir sína síldarlýsisframleiðslu en þeir hafa nú. Þeir eru orðnir nokkuð stór aðili á markaðnum, en aðeins einn kaupandi, Unilever, kaupir beint eða óbeint um 80% af framleiðslunni. Verðið sem fæst fyrir síldarlýsið er langt fyrir neðan heimsmarkaðsverð á feiti og olíum, sem notaðar eru ásamt síldarlýsi við framleiðslu á smjörlíki og „shortening“. Sú staðreynd, að verð á fiskolíunni er langt fyrir neðan heimsmarkaðsverð t.d. á soyabaunaolíum, stafar af því, að á soyabaunaolíunni er heimsmarkaðsverð en ekki á síldarlýsi.“
Og síðar segir Jón:
„Þegar Unilever kaupir soyabaunaolíu þá verður hann að greiða heimsmarkaðsverð fyrir hana en verðinu á íslenzka síldarlýsinu ræður hann, þar sem hann kaupir um 80% af framleiðslunni og ekki er sem stendur um aðra kaupendur að ræða. Vilji framleiðendur ekki selja fyrir það verð sem Unilever ákveður, þá þarf hann ekki nema að bíða með að kaupa þar til framleiðendur eru orðnir þreyttir og samþykkja hans verð. Þeir geta ekki annað. Þeir hafa ekki annan markað. Meðan þetta ástand helzt, er ekki hægt að búast við að Íslendingar og aðrir framleiðendur síldarlýsis fái sannvirði fyrir það samanborið við aðrar olíur, sem eru á heimsmarkaðsverði. Unilever breytir ekki ótilneyddur þessu ástandi. Það er til hagsmuna fyrir hann að halda því við. Herzluverksmiðja, sem hér um ræðir, mundi vera vísir að því að skapa breiðan markaðsgrundvöll fyrir síldarlýsið svo hægt væri að fá fyrir það sannvirði“
Og í öðru lagi segir Jón:
„Með lýsisherzluverksmiðju fá Íslendingar reynslu í hreinsun og herzlu síldarlýsis. Með fullkominni efnarannsóknarstofu í sambandi við lýsisherzluverksmiðju geta þeir unnið með nýjum og ætíð fullkomnari vinnsluaðferðum á lýsi til að gera úr því fullkomnari og verðmeiri vöru.“
Og í þriðja lagi segir hann: „Lýsisherzluverksmiðja gerir útflutning á smjörlíki og „shortening“ framkvæmanlegan og gæti gefið góða raun, einnig skapast grundvöllur fyrir iðnað úr ýmsum úrgangsefnum.“
Þessi skýrsla Jóns er svo greinileg og niðurstöður hennar svo afdráttarlausar, að ástæðulaust er að véfengja hana. Hún bendir okkur ótvírætt í þá átt, hversu okkur er nauðsynlegt að koma slíkri verksmiðju á fót, fyrst og fremst til þess að brjótast úr þeim viðjum, sem við erum í, hvað verzlun með síldarlýsi áhrærir. Mundi þetta þannig gjörþreyta viðhorfi allra þeirra, sem við síldveiðar og síldarverkun fást hér á landi.
Þessi till. mín hnígur að því, að það verði athugað hvort hægt sé að komast að samkomulagi við eigendur mannvirkja á Hjalteyri um nýtingu þeirra í þessu skyni. Fengist það yrði hún okkur auðveldari í uppbyggingu hún kæmist fljótar í gagnið en ef ætti að fara að reisa hana frá grunni annars staðar, hún mundi hleypa nýju lífi í atvinnulíf norðanlands og steingrá báknin á eyrinni fengju nýjan svip í augum þess fólks, sem nú eigrar í kringum þau vonsvikið. Minningin um horfið líf og umsvif gefur því ekki brauð. Það er á okkar valdi, hv. samþingsmenn, að gæða þetta nýju lífi. Vera mín hér á hinu háa Alþ. endist sennilega ekki til þess að fylgja þessu máli eftir, en ég leyfi mér að vona, að hv. þm. úr Norðurl. e. veiti því brautargengi og það fái náð fyrir augum þingheims. Ég fer svo fram á það við hæstv. forseta, að málinu verði vísað til allshn.