28.02.1968
Sameinað þing: 41. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í D-deild Alþingistíðinda. (2893)

123. mál, stjórnmálasamband við Austur-Þýskaland

Flm. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Hér er borin fram till. um framkvæmdaatriði í stjórn utanríkismála, og ætti að vera ástæðulaust að hafa um hana mörg orð. Efni hennar er það, að Íslendingar taki upp formlegt stjórnmálasamband við Deutsche Demokratische Republik, sem í daglegu tali er nefnt Austur-Þýzkaland. Það er sjálfsögð regla í utanríkissamskiptum okkar, að við höfum formlegt stjórnmálasamband við ríki, sem við höfum viðskipti við. Austur-Þýzkaland hefur um langt skeið verið í hópi hinna beztu viðskiptalanda okkar, verzlunarsamskiptin hafa verið fjölþætt og hagkvæm Íslendingum. og við höfum raunar notið margvíslegrar fyrirgreiðslu Austur-Þýzkalands utan venjulegra verzlunarramma, fengið þar t.d. ágæt lán í sambandi við skipakaup. Samt er Austur-Þýzkaland eina meiri háttar viðskiptalandið okkar, sem við höfum ekki formlegt stjórnmálasamband við. Ástæðan er öllum kunn; þau pólitísku vandamál, sem upp komu í Evrópu eftir síðustu heimsstyrjöld, skipting Þýzkalands í tvö ríki, kalda stríðið og sú afstaða vestur-þýzka ríkisins að neita að viðurkenna Austur-Þýzkaland og slíta stjórnmálasambandi við öll þau ríki, sem létu slíka viðurkenningu í té. Ég skal fúslega viðurkenna að íslenzkum stjórnarvöldum var nokkur vorkunn, þótt þau neituðu að viðurkenna Austur-Þýzkaland formlega. meðan Hallstein-kenningin var í gildi. En nú hafa þeir ánægjulegu atburðir gerzt, að vestur-þýzk stjórnarvöld hafa breytt þessari afstöðu sinni, og þau eru nú sjálf tekin að sækjast sérstaklega eftir stjórnmálasambandi við ríki, sem áður höfðu viðurkennt Austur-Þýzkaland. Þannig hefur nú um skeið verið stjórnmálasamþand á milli Austur-Þýzkalands og Rúmeníu, og nýlega tóku Vestur-Þjóðverjar aftur upp stjórnmálasamband við Júgóslavíu en þeir höfðu áður slitið því stjórnmálasambandi, einmitt vegna þess, að Júgóslavar höfðu viðurkennt Austur-Þýzkaland. Einnig hafa vestur-þýzk stjórnarvöld að undanförnu sótzt eftir stjórnmálasambandi við fleiri ríki, þeirra á meðal Pólland og Tékkóslóvakíu. Þannig er brott fallin eina frambærilega ástæðan fyrir því, að við höfum haft aðra afstöðu til Austur-Þýzkalands en til allra annnarra viðskiptalanda okkar. Ástæða er til að benda á, að það væri röng og háskaleg afstaða ef við biðum aðeins átekta og létum önnur ríki um allt frumkvæði í þessu máli. Austur-Þýzkaland er mikilvægur markaður, eins og öllum ætti að vera sérstaklega ljóst nú, þegar viðskiptaörðugleikar steðja að og við eigum að beita utanríkisþjónustu okkar til þess að tryggja okkur sem bezt sambönd og sem vinsamlegust skipti við öll viðskiptalönd okkar.

Vitað er, að í mörgum Evrópuríkjum er nú rætt um viðurkenningu á Austur-Þýzkalandi, og á því sviði kunna fljótlega að gerast tíðindi, sem sumir hafa ekki áttað sig á enn þá. Hinn nýi forsrh. Dana, Baunsgaard, hélt t.d. ræðu á þingi nýlega lýsti þar stuðningi við austurlandamæri Þýzkalands, Oder-Neisse mörkin og kvað rétt að athuga viðurkenningu á Austur-Þýzkalandi í sambandi við hugsanlegan öryggissáttmála í Evrópu. Vel kann svo að fara, að ríki, sem keppa við okkur um markaði í Austur-Þýzkalandi, verði á undan okkur, ef við höldum að okkur höndum m.a. í þeim tilgangi að tryggja sölu á afurðum sínum. Austur-Þýzkaland er nú eitt af mestu iðnaðarríkjum heims og á sífellt umfangsmeiri, alþjóðleg verzlunarviðskipti. Þá staðreynd ber okkur að meta af fullu raunsæi í samræmi við hagsmuni okkar sjálfra.

Það er alkunnugt, að Þýzkalandsmálið er það vandamál, sem enn veldur mestum viðsjám í Evrópu, og lausn á því vandamáli mundi stuðla mjög að öryggi í okkar heimshluta. Vissulega geta Íslendingar ekki lagt mikið af mörkum á því sviði, en samt skulum við ekki vanmeta okkur svo, að við teljum okkur einskis nýta. Ég tel engum vafa bundið að hin nýja utanríkisstefna vestur-þýzkra stjórnarvalda að ná sem eðlilegustum ríkjasamskiptum við Austur-Evrópulöndin, stuðlar að friðsamlegri þróun; einmitt eðlileg samvinna um hagnýt viðfangsefni eyðir smátt og smátt fordómum og leysir upp tilfinningahnúta. En rökrétt afleiðing þessarar stefnu er, að menn viðurkenni þá staðreynd, að þýzku ríkin eru tvö, hvort sem þeim líkar hún betur eða verr. Slík viðurkenning á óumflýjanlegri staðreynd er forsenda þess, að málefni Evrópu þróist á friðsamlegan hátt. Með því að viðurkenna Austur-Þýzkaland værum við að framkvæma almenna og eðlilega reglu í utanríkissamskiptum okkar, búa í haginn fyrir útflutningsframleiðslu okkar og við stuðluðum um leið að okkar leyti að því, að samskipti Evrópuríkja þróuðust á raunsæjan og friðsamlegan hátt. Ég vil leyfa mér að vænta þess, að hv. alþm. bregðist vel við þessari einföldu till.

Ég vil svo leggja til, að málinu verði að umr. lokinni vísað til hv. utanrmn.