16.12.1967
Neðri deild: 44. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í B-deild Alþingistíðinda. (291)
77. mál, ráðstafanir á gengishagnaði af útfluttum sjávarafurðum
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., hefur hlotið einróma afgreiðslu hv. Ed. nú fyrir skömmu. Hv. d. gerði á frv. nokkrar breytingar, sem fram koma á þskj. 163 og einnig á þskj. 167, skrifl. brtt., sem kom fram við 3. umr. málsins þar. Eins og ég sagði varð alger samstaða um afgreiðslu málsins, eftir að þær breytingar höfðu verið samþykktar, sem n. lagði einróma til. Ég get þess vegna hér miðað við þær umr., sem fram hafa farið um málið áður, verið mjög stuttorður og sleppt því að fara hér út í einstaka tölul. frv., nema sérstaklega verði eftir því óskað. En eins og ég tók fram í hv. Ed., voru þær tölur allar algerar áætlunartölur, enda mjög erfitt að áætla hér nokkrar bindandi tölur.
Það er ávallt nokkrum vandkvæðum bundið að áætla með nokkurri nákvæmni, hvers virði birgðir útflutningsafurða eru á hverjum tíma, og þetta er þó jafnvel enn erfiðara nú en oftast áður vegna þeirrar óvissu, sem ríkir um verðlagsþróun á mörkuðum á næstu mánuðum vegna gengisbreytingar sterlingspundsins. Um þetta hefur þó verið reynt að gera áætlun, sem byggð er á því, sem vitað er um verðlag og sölu, og enn fremur byggt á upplýsingum um þær afurðir, sem þegar hafa verið fluttar út úr landinu fyrir gengislækkunina, en ekki voru greiddar þá. Mun ekki fjarri lagi eftir þeirri áætlun að meta andvirði birgðanna ásamt því, sem ógreitt var, um 1700 millj. kr., og er þá tekið tillit til þeirrar framleiðslu, sem áætluð er frá því, að gengisbreytingin var gerð og til áramóta. En með gengishagnaðinn af þeirri framleiðslu skal farið á sama hátt og með gengishagnaðinn af birgðunum. En það er ekki nóg að áætla verðmæti birgðanna og þess, sem flutt hefur verið út, en ógreitt var við gengisbreytinguna, því að ef á að áætla, hverjar tekjur geta runnið í gengishagnaðarsjóð, verður að taka tillit til þess, í hvaða gjaldeyri birgðirnar verða greiddar. Um þetta ríkir enn nokkur óvissa, en reynt hefur verið að gera um það áætlun, sem ég áðan minntist á, og sýnir hún, að ekki muni óvarlegt að reikna með, að heildarupphæðin, sem kemur sem gengishagnaður af þessum birgðum, gæti numið um 400 millj. kr.
Eins og ég sagði áðan, skal ég stytta mál mitt svo sem kostur er og ekki fara nánar út í einstaka liði frv., en læt í ljós þá sömu ósk og ég gerði í hv. Ed., að frv. fái afgreiðslu, áður en Alþ. fer í jólahlé.
Herra forseti. Ég geri það svo að till. minni, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.