13.03.1968
Sameinað þing: 44. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í D-deild Alþingistíðinda. (2938)

135. mál, akreinar á blindhæðum

Flm. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti Hæstv. fjmrh. kvartaði undan því áðan, að till. sú, sem ég talaði fyrir þá, væri vantraust á sig sem ráðh. og hann gæti ekki stutt hana. Hæstv. samgmrh. kvartar nú yfir því, að ég skuli ekki, þegar lögin um hægri umferð voru samþ., hafa vantreyst sér svo mikið, að ég flytti þá undireins till. um að framkvæma þetta verk; sem þessi till. fjallar um.

Nú er það ekki minn háttur að treysta hæstv. samgmrh. nema hæfilega mikið. Geri ég það þó eins og verðugt er. En ég hef alltaf gert ráð fyrir því, að þegar búið væri að afgreiða hér lög um hægri umferð, mundi verða horfið að því ráði að skipta í akreinar af hálfu þeirra, sem sjá um framkvæmd vegamála. Ég hafði alltaf talið það sjálfsagt, úr því að þetta var afgreitt sem lög, og ég hafði gert ráð fyrir því, eins og ég gerði hér í vetur grein fyrir, að ef þetta næði fram að ganga þá yrði að búa vegakerfi landsmanna undir þessa breytingu. Og ég endurtek það, sem ég sagði hér áðan, að það er ekki gert í því að reyna að fyrirbyggja slys eða undirbúa þessa breytingu eins og þarf að gera og á að gera, nema verulega verði unnið í þessu máli.

Það eru engin ný sannindi að segja það, að bezta vörnin gegn slysum sé aðgæzla. Það vitum við alltaf, að það er. En svo er um ótalmargt, sem lög eru sett um, að það mætti koma í veg fyrir það, ef fullkomin aðgæzla væri viðhöfð, og ekki þyrfti af hendi stjórnvalda að sjá um framkvæmd á. Þess vegna eru það ekki nein rök í þessu máli og það er líka jafnöruggt, að slysahættan á blindbeygjum og blindhæðum eykst við þessa breytingu. Það leiðir af sjálfu sér, að mönnum, sem eru vanir að aka á vinstri kanti, mun hætta til að grípa til þess, ef þeir þurfa að mæta öðrum ökumanni og ósjálfráð hreyfing á sér stað. Í því liggur hættan.

Ég fagna því, sem kom fram síðast í ræðu hæstv. ráðh., að allt yrði gert til þess að hraða þessu máli. En í framhaldi af því vil ég spyrja hæstv. ráðh.: Mun hann beita sér fyrir því, að í framkvæmdaáætlun verði útvegað lánsfé til þess að reyna að koma þessu í framkvæmd? Mér er það fullkomlega ljóst, að með tekjum vegasjóðs verður mjög takmarkað gert í þessa átt. Ef hæstv. ráðh. meinar eitthvað með því, að allt verði gert til þess að reyna að hraða þessu eins og mögulegt er, þýðir það, að það verður að útvega fjármagn til þess að láni. Ég spyr því hæstv. ráðh., hvort stefnt sé að því af hendi hans.