14.03.1968
Neðri deild: 75. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í D-deild Alþingistíðinda. (2946)
156. mál, lausn verkfalla
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Ég tel það mjög alvarlegan atburð, að það sýnist nú eiga að nota forsetavaldið á Alþ. til þess að koma í veg fyrir það, að þáltill. sú, sem flutt hefur verið hér fyrir hönd tveggja flokka, verði tekin til umr. og þinglegrar meðferðar á eðlilegan hátt og m a. til útvarpsumr. Ég hygg, að þetta sé nokkuð einstakur atburður í sögu Alþ., þegar þess er gætt, að hér er um málefni að ræða, sem er aðkallandi, sem er svo aðkallandi, að það getur skipt tugum millj. fyrir þjóðina, hvort það er leyst deginum fyrr eða síðar. Hér er ekki um venjulegt mál að ræða sem er hægt að fara með eftir sinni hentisemi og taka til við í tómi, þegar gefst frá öðrum málum, heldur er hér um allt annars konar málefni að ræða. Hér er um málefni að ræða sem vitaskuld ætti að vera sjálfsagður hlutur að taka á dagskrá strax og það kemur fram, svo að það geti fengið þinglega meðferð, annað hvort orðið fellt eða samþykkt.
Nú er það ljóst af því, sem hér hefur komið fram, að sá, sem fyrst og fremst stendur á móti því, að útvarpsumr. hafi fengizt um þetta mál á eðlilegum tíma er hæstv. ríkisstj. Það er hún, sem hefur mótspyrnu gegn því við hæstv. forseta, að þetta mál fái eðlilega meðferð. Ég vil leyfa mér að skora á hæstv. forseta að láta ríkisstj. ekki ráða þessu, heldur taka málið til meðferðar í síðasta lagi annað kvöld til útvarpsumr., eins og óskað hefur verið eftir, og þá fari atkvgr. fram um það, hvort Alþ. vill leysa málið á þeim grundvelli, sem lagður er í þáltill., eða ekki.
Það er óhugsandi annað en umr. um þetta mál í heyranda ljóði verði til góðs, það er alveg óhugsandi annað. Það getur ekki verið ávinningur af því að grúfa sig niður og þykjast ekki sjá þann vanda sem fyrir liggur, og koma í veg fyrir eða neita að ræða hann í áheyrn alþjóðar. Það er þung ábyrgð, sem þeir taka á sig, sem koma í veg fyrir, að uppástunga um að leysa deiluna fái eðlilega þingmeðferð og geti orðið tekin til meðferðar strax, og eins og ég sagði, annaðhvort felld eða samþ. Alveg vafalaust má telja það tjón, sem þjóðin hefur beðið af verkföllunum, í hundruðum millj., og það fer ekkert á milli mála að daglegt tjón miðað við þann árstíma, sem nú er, skiptir milljónatugum.
Nú kynni einhver að segja, að það væri verið að leysa þetta verkfall annars staðar, reyna það, og málið væri því Alþ. óviðkomandi. En því fer svo fjarri, að það sé Alþ. óviðkomandi, þegar slíkir voveiflegir atburðir gerast, að vitaskuld ber Alþ. að gera það, sem það getur, til þess að leysa deiluna. Það er skylda þess. Það er skylda þess að horfa ekki á það aðgerðalaust, að þessu fari fram, ef menn eygja einhverja skynsamlega leið til þess að leysa málið. Og ég held því hiklaust fram, að sú leið, sem stungið er upp á í þáltill. stjórnarandstöðuflokkanna, sé bæði skynsamleg og sanngjörn, eins og á stendur. Detti einhverjum í hug að halda því fram, að þetta sé eingöngu málefni atvinnurekenda og launþegasamtakanna, þá er hollt að minnast þeirrar staðreyndar, að þessi deila er til komin vegna þess, að hæstv. ríkisstj. beitti sér fyrir því, að þingmeirihluti hennar nam úr lögum ákvæðið um að greiða vísitöluuppbætur á kaup. Deilan á því upptök sín öll, gersamlega öll, í löggjöf, sem sett hefur verið á Alþ. fyrir frumkvæði ríkisstj.
Það er því ljóst, hvernig sem á málið er litið, hvort sem litið er á þá þjóðarógæfu, sem skollið hefur yfir með þessu verkfalli um hábjargræðistímann, eða litið er á efni málsins í þrengri merkingu og hvernig það er til komið, — þá er það augljóst, að þetta mál er í allra fyllsta máta málefni, sem kemur Alþ. við.
Þessi deila er sem sé fyrst og fremst deila hæstv. ríkisstj. og þar með í raun og veru deila Alþ., því að Alþ. ber ábyrgð á ríkisstj.
Það er ekkert annað en ósæmilegur orðaleikur að segja, að þetta málefni sé, eins og það er í eðli sínu og eins og það er til komið, málefni launþegasamtakanna og atvinnurekendanna einna, og málefni, sem ekki komi ríkisstj. landsins eða Alþ. nokkurn skapaðan hlut við.
Varðandi það, sem hæstv. forseti ræddi hér áðan, að hann hefði borið þetta undir aðra eða haft af því fregnir, hvað aðilar málsins annars staðar á öðrum vettvangi álitu um tilhögun starfa á Alþ. og umr. um þessi efni hér, þá verð ég að segja, að það hlýtur fyrst og fremst að vera Alþ. sjálfs að ákveða hvernig það hagar afskiptum sínum af slíkum þjóðarvanda, sem hér liggur fyrir, og það er skylda hæstv. forseta Sþ. að sjá um að láta ekki nein önnur öfl hafa áhrif á ákvarðanir sínar í því efni. Það er hans skylda fyrst og fremst sem forseta þingsins að sjá um, að málefni þau, sem fyrir koma, fái þinglega og eðlilega meðferð. Það er ekki hans verk að hafa vit fyrir mönnum á Alþ. Það er hans verk að sjá um, að mál fái hér eðlilega og þinglega meðferð. Og þetta geta engir utan þings haft neitt ákvörðunarvald um, enda bera þeir enga ábyrgð á störfum Alþingis.
Menn hafa borið sér það í munn, og það kom nokkuð fram hjá hæstv. forseta, og vafalaust hefur það verið haft mjög að yfirvarpi í sambandi við þá pressu, sem hæstv. ríkisstj. hefur lagt á, til þess að koma í veg fyrir, að þetta málefni verði rætt í áheyrn alþjóðar, að það gæti spillt fyrir lausn deilunnar, að Alþ. ræddi þetta mál, þannig að þjóðin hlýddi á í útvarpi. Það gæti spillt fyrir lausn deilunnar.
Vitanlega hlýtur slík skoðun að vera á algerum misskilningi byggð, ef ekki á einhverju allt öðru og miklu verra eðlis. Hvernig getur það spillt fyrir því að leysa deilu af þessu tagi, að málavextir séu raktir fyrir þjóðinni í umr. og síðan fari fram atkvgr. um það, hvort menn vilja aðhyllast þá lausn, sem fram hefur verið lögð? Ef hún er samþ., er málið þar með leyst. Ef sú uppástunga er felld, hvílir skyldan á þeim, sem fella hana, að greiða fyrir því, að önnur lausn fáist. Það er því með öllu óhugsandi, að þetta geti spillt fyrir málinu, slíkt er með öllu óhugsandi.
Er þá líklegt, að umr. sjálfar spilli fyrir málinu? Ég vil í því sambandi aðeins minnast á örfá atriði. Ég skal ekki halda hér langa ræðu utan dagskrár. En mundi það geta t.d. spillt fyrir lausn þessarar deilu, að það kæmi greinilega fram, um hvað sé deilt og hverjar séu rætur deilunnar? Mundi það geta spillt fyrir lausn deilunnar, að þjóðin gæti gert sér grein fyrir því, að rætur hennar liggja í því, að verðlagsuppbót, sem lögfest var á laun, var numin úr gildi? Mundi það geta spillt fyrir lausn deilunnar, að þjóðin gerði sér þetta fullkomlega ljóst? Mundi það geta spillt fyrir lausn þessarar deilu, að þjóðin fengi að vita, hver sé málstaður verkalýðshreyfingarinnar í þessari deilu, hvað það sé, sem hún leggur áherzlu á, að fá fram, og hvernig hún haldi á málinu á þessu stigi? Slíkt mundi vitanlega hafa upplýstst í umr., sem fram hefðu farið um málið. Og í því sambandi er rétt að upplýsa það, sem lauslega hefur komið fram áður, að verkalýðurinn er ekki nú að berjast fyrir því að fá fullar verðlagsuppbætur á öll laun, há og lág, holt og bolt, heldur hafa aðilar verkalýðshreyfingarinnar í þessari deilu fyrir ærið löngu, og mér er næst að halda mjög snemma í deilunni, gefið þær upplýsingar, að þeir gætu fellt sig við, að full verðlagsuppbót næði ekki lengra en til 11 þús. kr. launa á mánuði, en eftir það yrði uppbótin skert. Mundi það hafa getað spillt fyrir lausn deilunnar, að það hefði jafnframt verið upplýst í slíkum umr., að verkalýðshreyfingin hefur boðið fram, að þessi uppbót yrði innleidd í áföngum, þannig að nú strax yrði aðeins tekinn inn í kaupið helmingur af þeirri hækkun vísitölunnar, sem kominn er fram, og síðan í vor eitthvað meira og svo áfram í áföngum og ekki fyrr en allra síðast á árinu yrði greidd full vísitöluuppbót á lægstu launin? Mundi það geta spillt fyrir lausn þessarar deilu, að þetta kæmi skýrt og greinilega fram, eins og það hlyti að koma, ef umr. um þetta mál færu fram í útvarpi frá Alþ.? Þjóðin þyrfti þá ekki að treysta á þær sundurleitu fréttaglefsur um deiluna, sem koma í sjónvarpi og útvarpi og sannast að segja eru sumar þannig, að menn eru alveg jafnnær um, hvað það raunverulega er, sem fyrir liggur, eins og kunnugt er. Mundi slíkt geta spillt fyrir lausn deilunnar? Alls ekki. Mundi það spilla fyrir því, að deilan leystist, að það kæmi greinilega fram í slíkum umr., sem er staðreynd, að ríkisstj. gæti leyst þessa deilu með því að rétta út höndina, — ef hún vildi? Mundi það geta spillt fyrir lausn deilunnar, að þetta væri upplýst í almennum umr. og rökrætt frammi fyrir þjóðinni? Ég álít, að slíkar umr. hljóti að verða til þess að auka stórkostlega líkurnar fyrir því, að deilan leysist fljótt, m.a. vegna þess að slíkar umr. mundu sýna svart á hvítu, hversu launþegasamtökin fara hér hógværlega í sakirnar, og enn fremur mundu slíkar umr. gera það alveg ljóst, hver eru upptök deilunnar og, að hæstv. ríkisstj. hefur það í sinni hendi og þingmeirihlutinn að leysa þessa deilu, eins og ég orðaði það áðan: með því að rétta út höndina, og firra þjóðina því gífurlega tjóni, sem hún bíður nú daglega við þetta verkfall, og koma í veg fyrir, að við það bættist.
Hitt er náttúrlega annað mál, við vitum það og það hefur komið fram, að hæstv. ríkisstj. hefur ekki áhuga á þessum umr., og það er vegna þess að mínu viti, að hún telur, að slíkar umr. mundu þyngja pressuna á ríkisstj., mundu þyngja kröfurnar til ríkisstj. um að leysa deiluna, því að hún getur leyst hana. Það er kannske mannlegt, að ríkisstj. freistist til þess að líta þannig á, en það er ekki skynsamlegt af ríkisstj. að ganga að þessu máli með slíku hugarfari, og það er ekki að mínu viti verjandi eða eðlilegt að reyna að þvinga hæstv. forseta, eins og ríkisstj. er að gera, til þess að nota forsetavald sitt til að koma í veg fyrir, að þessi deila verði tekin fyrir hér á hv. Alþ. á þinglegan hátt og í heyranda hljóði.
Ég skal ekki reyna meira á þolinmæði hæstv. forseta í sambandi við þessar umr. utan dagskrár, en ég vil enda þessi orð með því að leggja hina allra mestu áherzlu á þá áskorun, sem hv. 4. þm. Austf. flutti og er að vísu sameiginleg ósk þeirra, sem að þessari þáltill. standa, áskorun til hæstv. forseta um, að hann taki till. á dagskrá og efni til útvarpsumr. um hana í síðasta lagi annað kvöld.