14.03.1968
Neðri deild: 75. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 408 í D-deild Alþingistíðinda. (2956)

156. mál, lausn verkfalla

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Það var aðeins örstutt í tilefni af því, sem hv. 5. þm. Vestf., forseti Sþ., sagði hér. Mér fannst koma fram hjá honum í því, sem hann sagði, svo háskalegur misskilningur, að það beri að mótmæla slíkri skoðun. Hann sagði, að hann teldi óheppilegt, að umræða t.d. um þá þáltill., sem hér er um að ræða, fari fram á meðan sáttatill. frá sáttasemjara geti komið fram. Auðvitað hlýtur það að liggja fyrir í svona deilum, að til slíkrar till. getur komið frá sáttasemjara hvenær sem er, allan tímann. Á þá gersamlega að loka fyrir allar umr. á Alþ. á meðan þjóðin stendur jafnvel í margra mánaða verkfalli, af því að það geta komið till. frá sáttasemjara? Vitanlega getur þetta ekki staðizt á neinn hátt. Það, sem forseti á að gera í þessu tilfelli, það er það, að hann á að fara eftir þingsköpum og tryggja þingflokkum og þingmönnum þann rétt, sem þingsköp ætlast til, mál yrði flutt, beðið um útvarpsumr. Samkv. þingsköpum á að flýta því eins og kostur er, að þetta geti átt sér stað, og þm. verða svo vitanlega að bera ábyrgð á því, hvernig þeir standa að flutningi mála og rekstri mála á Alþ. En það er ekki á verksviði hæstv. forseta að hafa vit fyrir þm., eins og hann virðist vilja gera, og að hann eigi þannig að víkja til hliðar málum um svo og svo langan tíma og afstýra því, að þau komi til umr., vegna þess að einhver, eins og t.d. sáttasemjari, kunni að bera fram sáttatill. í málinu. Þetta er vitanlega alveg fráleitt.

Ég skal svo ekki ræða þetta mál neitt frekar hér, en ég ítreka það enn einu sinni, að ég tel það mjög alvarlegt mál. ef forseti verður ekki við þeirri kröfu, sem fram er komin um það, að ákveða útvarpsumr. um þessa till. í fullu samræmi við þingsköp, en þingsköp ætlast til þess, að þetta gangi allt mjög fljótt fyrir sig, eins og ég hef hér lesið upp úr þingsköpunum.