20.03.1968
Sameinað þing: 46. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í D-deild Alþingistíðinda. (2961)

163. mál, sumarheimili kaupstaðarbarna

Flm. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Ég hef nú áður úr þessum ræðustóli, oftar en einu sinni, gert grein fyrir þeirri nauðsyn, sem ég og aðrir þeir, sem að þessari þáltill. standa, teljum á því að auka möguleika kaupstaðabarna til sumardvalar í sveit, og þess vegna get ég nú farið fljótt yfir sögu hvað það snertir. Þó vil ég leyfa mér að rifja það upp í örstuttu máli, að það var lengi háttur kaupstaðarbúa að koma börnum sínum í sumardvöl á sveitaheimili. Það var talið eftirsóknarvert, hollt og þroskavænlegt fyrir börnin. Nú hefur orðið hér mikil breyting á, hvað snertir möguleika til slíkrar sumardvalar. Það er hin mikla fólksfækkun í sveitunum, sem veldur þessari breytingu. Það er ekki lengur til neinn vinnukraftur á heimilunum til þess að taka við þessum sumargestum, en þörfin fyrir þessa sumardvöl hefur að sjálfsögðu ekki minnkað, heldur stórvaxið með breyttri búsetu Íslendinga á síðari árum, þar sem við erum nú komnir í stórum stíl í borgir, þar sem áður voru aðeins lítil þorp og fólkið flest í sveitunum. Það eru ýmis félagssamtök, sem hafa komið auga á þessa þörf, sem þarna hefur skapazt, og talsvert starf hefur verið unnið í því skyni að bæta þarna úr.

Ég vil enn á ný og af þessu tilefni undirstrika það og sízt vanmeta það starf, sem ýmsir áhugamenn hafa innt af höndum til þess að skapa þessi skilyrði, sem hér um ræðir. En þetta er bara alls ekki nóg. Vandamálið er stórt, þrátt fyrir þetta, og vaxandi. Af þessari vöntun leiðir svo það, að foreldrar hafa í vaxandi mæli verið að reyna að koma börnum í vinnu, eða þá, að þau hafa ekkert haft að gera, og er það kannske þó það allra versta. Það er því að mínum dómi tvöföld hætta á ferðum: annars vegar sú, að kaupstaðabörnin missi af þeim skóla, sem sveitin og sveitalífið hefur verið og ætti að vera, og hins vegar sú, að þau ráðist til óheppilegra starfa við sjávarsíðuna, eða þá í þriðja lagi, sem líklega er verst, að þau ráfi iðjulaus og hafi ekkert að gera og leiðist þá stundum til þeirrar iðju, sem er ekki heppileg fyrir fólk á þessum aldri. Það er auðvitað mikið verkefni að koma upp slíkum dvalarstöðvum og má vera, að mönnum vaxi það í augum. En versta tjónið er þó, ef ekki fæst það úr hverjum æskumanni, sem hann býr bezt yfir. Ég vil nú treysta því, að skilningur Alþ. og sveitarstjórna sé þrátt fyrir allt svo mikill. að fyrr eða síðar, og þá heldur fyrr en síðar, verði ráðizt í að bæta úr þeim vanda, sem hér er vakin athygli á.

Þegar till. var hér til meðferðar í fyrra, var hún send ýmsum aðilum til umsagnar, eins og löngum er háttur n. Meðal þeirra umsagna, sem bárust, var bréf frá fræðslustjóranum í Reykjavík, en vandamál æskufólks mun líklega hvergi og áreiðanlega hvergi vera meira en hér, og þá einnig þau vandamál æskufólksins og aðstandenda þess, sem þessi till. fjallar sérstaklega um. Með leyfi hæstv. forseta langar mig til að lesa tvær stuttar mgr. úr þessari umsögn fræðslustjórans í Reykjavík, en hann hefur vegna margháttaðra afskipta sinna af æskulýðsmálum höfuðborgarinnar, bæði sem embættismaður og ekki síður sem æðsti maður skátahreyfingarinnar, mikla reynslu, og má hiklaust telja hann einn þann mann, sem beztan kunnugleika hefur á þeim málum, sem hér um ræðir. Í þessu bréfi segir:

„Reykjavíkurborg hefur í vaxandi mæli styrkt þá aðila í Reykjavík, sem hafa haldið uppi sumardvalarstarfsemi fyrir börn, úr borginni. Þessi starfsemi hefur yfirleitt verið á vegum félagasamtaka, sem hafa reynt að sinna sem flestum umsóknum, en takmarkað dvalartímann oft frá einni viku og allt að tíu vikum. Mest er eftirspurnin fyrir yngri börn, allt frá þriggja ára aldri, en hún minnkar, er ofar dregur í aldursflokka.“

Og síðar segir, með leyfi forseta:

„Á s.l. ári var reynt að kanna hve mörgum umsóknum var ekki hægt að sinna af hálfu þeirra aðila, er Reykjavíkurborg styrkir. Erfiðlega gekk að afla þessara upplýsinga, og liggja til þess margar orsakir. Þess vegna er vart hægt að gera sér glögga grein fyrir, hve mikil þörfin er á auknum sumardvölum fyrir börn hér í borg. Ég tel þó engum efa bundið, að þessi þörf er fyrir hendi hér í Reykjavík, og þá einnig í öðrum þéttbýlishverfum landsins og því eðlilegt, að þessi mál séu sett í athugun, hvernig svo sem það verður gert.“

Eins og hér kemur fram, telur fræðslustjórinn þörfina vera fyrir hendi og mælir með athugun á málinu. Þetta var raunar líka skoðun allra hv. nm. í allshn. á s.l. þingi. Ágreiningurinn var ekki um það, að vandamálið væri ekki fyrir hendi, og heldur ekki um það, að athugun ætti að fara fram. Ágreiningurinn var um það, hvaða háttur væri hafður á þessari athugun. Við, sem mynduðum minni hl. n., töldum réttast að fara þá Ieið, sem í þáltill. er bent á, þ.e.a.s., að það verði athugað að stofna heimili, eins og þar er nánar kveðið á um. En meiri hl. allshn. bar, eins og stundum áður, mest traust til hæstv. ríkisstj. og vildi fela málið í forsjá hennar og vísa málinu til ríkisstj. Það má raunar segja að það sé afgreiðsla út af fyrir sig og leggi, a.m.k. ef rétt er á haldið, nokkra skyldu á hæstv. ríkisstj. til þess að sinna þeim málum, sem þannig er vísað til hennar af Alþ. Það hefði kannske mátt sætta sig við þá afgreiðslu, a.m.k. frekar en ekki neitt, og þess vegna mundi ég ekki hafa hreyft þessu máli nú í þriðja sinn, ef þessi uppástunga meiri hl. hefði verið framkvæmd. Ef till. hefði í raun og veru verið vísað til hæstv. ríkisstj., þá tel ég víst, að eitthvað hefði verið athugað um þessi mál. En einhverra hluta vegna hlaut tili. aldrei fullnaðarafgreiðslu. Meiri hl. n. skilaði aldrei áliti, og síðari umr. fór þar af leiðandi aldrei fram.

Mér finnst það vera lágmarkskrafa að till., sem bornar eru fram á Alþingi Íslendinga, a.m.k. þegar þær fjalla um ekki ónauðsynlegri mál en uppeldi æskulýðsins, fái þinglega meðferð og einhverja afgreiðslu, og það er þess vegna, að ég vil leyfa mér að gera þessa kröfu til Alþ., sem ég ræðst í það að flytja þessa till. eina ferðina enn. Það er enn þá nægilega mikill tími eftir af þinghaldinu til þess, að tóm gefist til að athuga till., ekki sízt, þegar um ræðir, eins og í þessu tilfelli, till., sem flestum hv. alþm. er að fornu fari nokkuð kunn, og umsagnir liggja fyrir frá ýmsum aðilum, sem þessi mál hafa látið sig varða flestar jákvæðar, þó ekki allar. Ég vil ekki leyna því, að kirkjuþing sendi allshn. umsögn um þessa till., þar sem lagt er til, að málefni kaupstaðabarna og sumardvöl þeim til handa yrðu áfram í höndum áhugamanna, en jafnframt bætt við, að vitanlega þyrfti að styrkja þetta áhugamannastarf enn að miklum mun. Nú mundi það auðvitað fást athugað í þessu sambandi, ef þessi till. yrði samþykkt, hvort sú tilhögun gæfi betri raun, þannig að ástæðulaust virðist að leggja till. fyrir róða af þeirri ástæðu einni, að aðrar leiðir gætu komið til greina. Það mundi þá koma í ljós við skoðun málsins.

Ég hygg, að öllum hv. þm. séu enn í fersku minni þeir erfiðleikar, sem ungmenni, og þá sérstaklega hér í þéttbýlinu, áttu við að glíma á s.l. sumri í því efni að fá eitthvað að gera. Þá var hér virkilega vandamál að þessu leyti. Sumarvinnan er auðvitað nauðsynleg mörgum úr skólaæsku landsins af fjárhagsástæðum. Sízt skal ég gera lítið úr því. Þau eru ekki fá ungmennin bæði fyrr og síðar, sem hafa brotizt menntabrautina fyrst og fremst fyrir það sjálfsaflafé, sem sumarvinnan hefur skapað þeim. Það gilti, þegar ég var í skóla á mínum skólaárum, og það gildir vafalaust enn í dag, þó að aðstæður séu að vísu mikið breyttar. En sumaratvinnan er ekki einasta nauðsynleg vegna peninganna, þó að þeir séu góðir og nauðsynlegir, aðrar ástæður vega einnig þungt þar. Iðjuleysið er böl, sem marga hættu skapar, ekki sízt fyrir fólk á þessu aldursskeiði. Þessu þurfa yfirvöld landsins að gefa gaum og vera tilbúin að mæta. Það er að vísu rétt og sjálfsagt að viðurkenna það, að á undanförnum veltiárum nokkuð mörgum, hefur verið nóg atvinna fyrir allar vinnufærar hendur og þá skólafólkið líka, en á s.l. sumri skipti mjög um til hins lakara og þá var það raunhæft vandamál, a.m.k. hér í Reykjavik, sem borgarstjórnin komst ekki hjá að sinna, að útvega skólafólki atvinnu, því að tugir þess, ef ekki hundruð, gengu þá án þess að hafa neitt að gera.

Ég sé það á síðustu samningaviðræðum, sem áttu sér stað milli verkalýðs og atvinnurekenda, að a.m.k. verkalýðsfélögin hafa ekki gleymt þessu ástandi, sem ríkti hér í fyrrasumar, og það er víssulega gott til þess að vita, að 6. liður í yfirlýsingu hæstv. ríkisstj., sem gefin var út í sambandi við lausn verkfallsins, fjallar einmitt um þetta mál og er einhvern veginn þannig, að athuguð verði atvinnumál unglinga, sem eru við nám, og stuðlað að sumaratvinnu fyrir þá. Ég tel, að þetta sé mjög góð og tímabær yfirlýsing, og vonast til þess, að ekki verði látið sitja þar við orðin tóm, því að fyrir vinnuna er full þörf.

En ég bendi þara á það, að iðjuleysi og verkefnaleysi er einnig óhollt þeim, sem eru yngri en sú skólaæska sem hér mun aðallega vera átt við. Ég hygg, að það muni vera nemendur framhaldsskólanna sem fyrst og fremst er átt við í yfirlýsingu hæstv. ríkisstj. En þetta gildir engu síður, a.m.k. verkefnaþörfin, þó að maður tali ekki kannske um fjárhagshlið þessa máls, í sambandi við þá, sem yngri eru. Einnig þeir þurfa að hafa sín verkefni við að fást, og þess vegna er það, sem ég a.m.k. og við flm. allir leggjum mikla áherzlu á það, sem segir í 2. mgr. þessarar till., að að því skuli stefnt, að á slíkum sumarheimilum hafi börnin viðfangsefni, sem geti orðið þeim að sem mestum andlegum og líkamlegum þroska. Svo er talið hér upp, þ. á m. ræktunarstörf, gæzla húsdýra og umgengni við þau. Vitanlega er þessi upptalning allsendis ótæmandi og fjöldamargt annað, sem kemur til greina. Mér dettur t.d. í hug, að hugsanlegt væri nú í þessum heyforðaskorti, sem virðist hafa stungið upp kollinum nú undanfarin sumur, a.m.k. í sumum landshlutum, hvort ekki væri hægt að nota þann vinnukraft, sem þarna gæfi sig fram, til heyöflunar. Það kæmi fyllilega til greina og áreiðanlega í góðar þarfir. En allt það eru náttúrlega bollaleggingar, sem ástæðulaust er að halda áfram hér og mundi verða athugað, ef þessi till. næði fram að ganga.

Ég sé, að næst á dagskrá þessa fundar er önnur þáltill., till. frá hv. þm. Austf., Jónasi Péturssyni, um skylduþjónustu ungmenna. Mönnum kann kannske að finnast, að till. séu farnar að nálgast hvor aðra, en svo er þó ekki. Þessi skylduþjónustuhugmynd hefur oft skotið upp kollinum, og það getur vel verið, að ýmislegt verra væri hægt að gera ungu fólki heldur en það að ætlast til nokkurrar vinnu af því, sérstaklega ef það væri fellt inn í námsbrautina. Ég ætla ekki að ræða þá till. neitt sérstaklega, en er þó hræddur um, að slík lagaboð mundu mæta talsverðri mótspyrnu, En hér er ekki um neitt lagaboð, neina skyldu að ræða í því máli, sem ég flyt hér. Hér er aðeins verið að skapa aðstöðu fyrir þá, sem hana vilja þiggja, og aðstöðu, sem ég tel, að nauðsynlegt sé að skapa.

Ég skal ekki tefja tímann meira en orðið er. Ég vænti þess, að þegar þessari umr. lýkur, verði till. vísað til hv. allshn. og síðari umr., og leyfi mér að ætlast til þess, að hv. allshn. skili áliti og láti till. fá þinglega afgreiðslu að þessu sinni, svo að ekki þurfi að koma til þess enn þá einu sinni, að hún verði óútkljáð á Alþingi.