27.03.1968
Sameinað þing: 47. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í D-deild Alþingistíðinda. (2965)

165. mál, skylduþjónusta ungmenna

Flm. (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Till. sú á þskj. 384, sem ég hef leyft mér að flytja, er um skylduþjónustu ungmenna. Þessi hugmynd hefur verið áleitin við mig síðustu árin, og þar kom, að ég þoldi ekki lengur mátið, og þess vegna liggur till. hér fyrir. Til þessa liggja að meginefni tvær ástæður. Annars vegar eru hin uppeldislegu eða þjóðfélagslegu rök. Hins vegar hin þjóðhagslegu. Það er sú nauðsyn, sú þörf, sem þjóðfélagið hefur á starfsorku til þeirra framkvæmda sem knýja á til að byggja hér upp betra land og til að styðja búsetuna um allt land. Leitast þarf við á svo mörgum sviðum samfélagsins að veita lágmarksaðstöðu fyrir fólkið, hvar sem er, til margvíslegra samskipta. Þjónustuskylda ungmenna mætti verða drjúg til hjálpar í þeim efnum. Og einmitt slík störf eru vel fallin til aukins andlegs þroska. Í sambandi við þetta mál er mér sérstaklega í minni setning eða kafli úr hátíðaræðu Ólafs Thors, þáv, forsrh., sem hann flutti af svölum alþingishússins á 10 ára afmæli lýðveldisins og útvarpað var til þjóðarinnar. Þykir mér vel við eiga að minna á þau orð hér einmitt í framsöguræðu fyrir þessu máli. En Ólafur komst svo að orði :

„Æskan í landinu verður að gera sér ljóst, að á sérhverjum Íslendingi hvílir sú þunga skylda að afkasta meiru en einstaklingar annarra menningarþjóða. Ella fáum vér ekki haldið hér uppi frjálsu menningarríki, þar sem ein lög ganga yfir alla, þar sem réttur þegnanna er einn og skyldan ein og hin sama. Þessari skyldu verður æskulýðurinn að rísa undir. Að launum fær hver og einn að heita Íslendingur, teljast til sérstæðrar gáfu- og menningarþjóðar, sem á sér fegra föðurland en nokkur annar.“

Ég held því ekki fram, að Ólafur hafi hér sérstaklega átt við vinnuskyldu. En að baki þessum ummælum liggur djúpur skilningur á eðli þjóðlífs okkar, að það kostar okkur nokkuð, já, mikið, að vera frjáls þjóð í frjálsu landi. Og einmitt það ætti að efla skilning á því, að við Íslendingar eigum ekki auðvelt með að vera lausir við þá skyldu flestra annarra þjóða sem lögð er á borgarana, herskylduna, án þess að við tökum á herðar okkar skyldu í öðru formi, einmitt í líkingu við það, sem hér er lagt til með þáltill. þeirri, er fyrir liggur. Fóstra vor kallar á starfsfúsar hendur. Um það er ekki að villast. Hitt er ekki minna um vert, að æskufólk okkar hljóti menntun og þroska huga og handa, og það er í mínum huga enn mikilvægara. Að þeim árangri er fyrst og fremst stefnt með skylduþjónustunni, því að menntun og þroski huga og handa styður bezt að þeim þjóðfélagsumbótum, sem fyrir okkur vaka. Þannig myndast tengsl milli þegns og þjóðfélags, og þannig mættu verða að allsherjarveruleika hrifningarorð skáldsins:

,,Svo traust við Ísland mig tengja bönd, ei trúrri binda son við móður.“

Hermann á Þingeyrum barðist fyrir þegnskylduvinnu um aldamótin. Sú hugsjón átti þá erfitt uppdráttar, og var talið, að eiturhvöss ferskeytla hefði þá drepið hana Víst er, að ekki hefur borið mikið á þessari hugmynd framundir síðustu árin. Rétt er þó að nefna, að Björgvin Vigfússon sýslumaður á Efra-Hvoli var mikill áhugamaður og talsmaður þegnskylduvinnunnar.

En við, sem munum tímana um fyrra stríð eða lítið eitt lengra aftur, eigum ekki svo erfitt með að skilja að hugmyndin félli ekki í þjóðlífið þá. Við vorum að vísu að komast yfir það að svelta. En kjörin voru þó um margt kröpp og þeir vafalaust fleiri, sem tæpast máttu missa daga frá starfi, svo að ekki væri afkomunni teflt í hættu. Nú er öldin önnur. Nýtt þjóðfélag með nýjum möguleikum. Lærdómsþjóð, sem nú þarf þó að gæta þess að hafa viðfangsefni við hæfi æskufólksins.

Það bar á því á s.l. ári, að erfitt væri að fá störf við hæfi ýmissa ungmenna, er skólum lauk. Skortur verkefna og viðfangsefna er mesta hættan á leið þroskans. Ég ætla ekki hér að fjölyrða svo mjög um þau viðfangsefni, sem væru hæfileg við framkvæmd vinnuskyldunnar. Mér eru ofarlega í huga skógrækt og landgræðsla. Störf við byggingar samfélagsins, sjúkrahús, skóla, félagsheimili, íþróttamannvirki. Við samgöngumál, við brýr, vegi, hafnir og flugveldi. Við þjónustustörf í sjúkrahúsum, skólum, vistheimilum, og jafnvel Póst og síma, hjálp við rannsóknarstörf, störf sem jöfnum höndum eru í þágu sveitarfélaga og ríkis. Ég held, að störfin skorti ekki. En mikilvægt er með alla stjórn og forstöðu í framkvæmd þessa máls, að þar sé gætt ýtrustu hagsýni og sparnaðar í meðferð þeirra fjármuna, er til framkvæmdarinnar þarf, og þó fyrst og fremst, að forstaða öll sé með réttu hugarfari. Ég verð að segja það hér, að það kröfuhugarfar, sem nú virðist mjög ráðandi, sem réttlætir að taka svo til orða að loft sé lævi blandið, skapar ekki hið rétta umhverfi við framkvæmd þjónustuskyldunnar. Kjörorð þessarar hugsjónar er hófsemi og að gera fyrst kröfu til sjálfs sín. En ef þeir, sem verða leiðbeinendur, ráðsmenn og verkstjórar eiga ekki þetta hugarfar, er tæpast að vænta, að þeir innræti það hjá æskufólkinu.

Í stuttu máli er grundvöllur þessarar hugsjónar og sá andi, sem þar verður að svífa yfir vötnum: Burt með Kains-hugsunarháttinn, sem spyr: Á ég að gæta bróður míns? Þvert á móti þarf spurningin að vera: Hvað get ég gert fyrir föðurlandið?

Það kann að vera álitamál með aldursmörk, sem í till. eru, 14—18 ára, og lengd vinnuskyldunnar. Sú n., sem Alþ. kýs, athugar það mál allt nánar. Ég tel, að það komi vel til greina að skylduþjónustan komi að einhverju leyti í stað skyldunáms hjá nemendum, ef einhverjir þeirra skyldu sérstaklega óska eftir því. Ég segi þetta af því að margvísleg störf eru sumum ungmennum tvímælalaust ekki síður menntabrunnur en bóknámið.

Ég tel till. þessa tímabæra. Um hana hafa verið ákveðnar tvær umr. Till. er um nefndarkosningu á Alþ. til könnunar málinu. Ég geri því ekki till. um, að henni verði vísað til n. Við tvær umr., t.d. með viku millibili, ættu hv. alþm. að geta gert það upp við sig, hvort málið er þess virði að kjósa þá n., sem hér er lagt til. Og ég vildi vona, að Alþ. tæki þá afstöðu.

Þetta mál er í mínum huga liður í margvíslegum þjóðfélagsumbótum. Ég ritaði tvær greinar í Morgunblaðið í haust og vetur, þar sem ég vék að skylduþjónustunni ásamt mörgu öðru í stjórnsýslu okkar, þar sem róttækra breytinga væri þörf. Ég rakti þar 11 punkta í skattamálum, tryggingamálum, launakerfi, skyldusparnaði, verðtryggingu. Ég er ekki byltingarmaður í venjulegum skilningi þess orðs. En þegar verzlunarárferði og tíðarfar og jafnvel fiskifang tekur á sig byltingarsvip, getur blóðið hitnað, jafnvel í stilltustu mönnum. Við þurfum gerbreytingu í skattamálum okkar, í fjármálum okkar á mörgum sviðum og við þurfum að taka upp þjónustuskylduna. Þessi till. fjallar um þann þátt einan, og ég vil því ekki hér hasla völl á víðara sviði nú. En eins og áður segir eða eins og ég áðan sagði, geri ég ekki till. um að vísa þessu máli til n., en að því verði nú að lokinni þessari umr. vísað til síðari umr.