27.03.1968
Sameinað þing: 47. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 418 í D-deild Alþingistíðinda. (2967)

165. mál, skylduþjónusta ungmenna

Flm. (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Ég var að sjálfsögðu við því búinn, þó að ég gerði ekki till. um það, að málinu yrði vísað til n., að þá kynni sú ósk að koma fram eða till. hér á hv. Alþ., og vitanlega sker Alþ. úr um það. Hins vegar vakti það fyrir mér, eins og ég sagði, að þar sem eru tvær umr. um þetta mál og það er aðeins um nefndarskipun, þá taldi ég það mjög koma til greina að láta tvær umr, nægja.

Að öðru leyti er ekki óeðlilegt kannske. að þessi spurning kæmi fram hjá hv. 1. þm. Vestf. um, hvað ég hugsaði mér um kjörin í framkvæmd vinnuskyldunnar. Ég skal alveg segja það, hvernig þetta mál er í mínum huga. Ég hef ekki hugsað mér, að unglíngarnir ynnu fyrir kaupi, heldur hefðu þeir það, sem kallað er frítt uppihald.