18.12.1967
Neðri deild: 46. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (297)
77. mál, ráðstafanir á gengishagnaði af útfluttum sjávarafurðum
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Varðandi b-lið 1. gr. þess frv., sem hér er til umr., um bætur til skreiðarframleiðenda vegna markaðserfiðleika, vil ég taka fram, að ríkisstj. er ljóst, að hér er ekki um þær bætur að ræða, að talizt geti greiðsla upp í hráefnisverð, heldur er með þessu fé, sem ætlað er til þessara hluta ásamt öðrum nauðsynlegum ráðstöfunum, verið að aðstoða skreiðarframleiðendur til að komast yfir það óvissa tímabil, sem enn þá ríkir um sölu þessara afurða. Ef það reynist hins vegar svo, að þessi framleiðsla verði að seljast við mun lægra verði en nú er á skreið til annarra landa eða varan reynist alls ekki seljanleg, er komið upp algerlega nýtt vandamál, sem taka verður þá til sérstakrar úrlausnar. Enn þá ríkir sú óvissa um endanlega afsetningu skreiðar, að ekki verður á þessari stundu sagt til með nokkurri vissu, hver úrslit mála þar verði.
Í sambandi við c-lið 2. gr. frv. um, hvernig varið skuli 1/4 hluta gengisjöfnunarsjóðs vil ég taka fram, að ríkisstj. er einnig ljóst þetta atriði, að þau lán, sem þar er gert ráð fyrir, verða að vera með hagkvæmum kjörum, ef þau eiga að gegna því hlutverki, sem þeim er ætlað. Kæmi þá m.a. til greina, að þau verði afborgunarlaus hluta lánstímans, meðan þunginn er mestur af greiðslu hinna erlendu lána.