18.12.1967
Neðri deild: 46. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í B-deild Alþingistíðinda. (300)
77. mál, ráðstafanir á gengishagnaði af útfluttum sjávarafurðum
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég þarf ekki á löngum ræðutíma að halda að þessu sinni. Það eitt hefur komið fram í þessum umr. af hálfu þeirra stjórnarandstæðinga, sem við höfum heyrt við nánast hvert einasta stjfrv., sem hér hefur verið flutt. Það á, þrátt fyrir það, að þjóðin hefur misst milli þriðjungs og fjórðungs sinna tekna, að vera hægt að gera allt fyrir alla og framfylgja öllum ýtrustu óskum og kröfum, sem berast á hendur þess opinbera. Þetta var meginþátturinn í ræðu hv. 4. þm. Austf., sem var að ljúka máli sínu hér áðan, og þá höfum við heyrt um úrlausnir allra þeirra vandamála, sem uppi hafa verið og í hlut ríkisstj. hefur komið að flytja frv. til lausnar á.
Í sambandi við ræðu hv. 5. þm. Norðurl. v. og þá sérstaklega það atriði hennar, sem hann lagði töluvert mikið upp úr, þ.e. söluskattsgreiðslur af vátryggingu fiskiskipa, vil ég upplýsa það, að fjmrh. hefur með samþykki ríkisstj. þegar ákveðið að fella niður söluskatt af vátryggingu fiskiskipa og farmgjöldum, og með hliðsjón af þessu hefur hann lagt til við fjvn., að lækkaðar verði tekjur af söluskatti um 25 millj. kr. Um einstök atriði í ræðum hv. stjórnarandstæðinga er, eins og ég áðan sagði, ekki brýn þörf á að ræða hér frekar. Á sömu stundinni og það er sagt, að þær upphæðir, sem hér skapast við þennan gengishagnað, eigi að fara nánast meira og minna frá sjávarútveginum, er þó viðurkennt af öðrum, að þeir komi að vísu í einu eða öðru formi til sjávarútvegsins aftur, bara ekki réttu leiðina. Sannleikurinn er sá, að allt það fé, sem í þessa sjóði safnast, rennur beint til sjávarútvegsins aftur, og því verður ekki með neinum rökum í móti mælt, að uppistaðan undir velgengni íslenzka bátaflotans að undanförnu, það, að við höfum getað aflað þess mikla afla, sem raun ber vitni um, meginundirstaðan undir því hefur verið sú efling fiskveiðasjóðs, sem átt hefur sér stað á þessum tíma og gert hefur möguleg þau skipakaup, sem gerð hafa verið á s.l. árum. Verkefni allra þeirra sjóða, sem hér um ræðir, er að veita þessu fé aftur inn í sjávarútveginn og til hinna einstöku þarfa þar og verður ekki, hvað sem öllum ræðuflutningi hér líður, sagt, að þar sé ekki um að ræða fyllstu þarfir og þær brýnustu, sem sjávarútvegurinn þarf á að halda í dag.
Ég hlýt einnig að fagna þeim kafla úr ræðu hv. 4. þm. Norðurl. v., þar sem kveður nokkuð við annan tón en hjá öðrum hv. stjórnarandstæðingum, er hann sagði, að leita þyrfti áratugi aftur í tímann til að finna sambærilega erfiða vertíð og hér var um að ræða. Hingað til höfum við mátt hlusta á það í hverri einustu ræðu hv. stjórnarandstæðinga, að allur sá vandi, sem ísl. þjóðfélagið á við að etja í dag, sé fyrst og fremst heimatilbúinn klaufaskapur af ríkisstj. og slæm framkvæmd hennar í einstökum atriðum atvinnulífsins. Þetta er mikilsverð viðurkenning, sem ég vil gjarnan undirstrika og við höfum reynt að gera hér af hálfu ríkisstj. í flestum þessum málum, en talað þar fyrir daufum eyrum þangað til nú, að á þessu fæst viðurkenning. Sjómenn hafa orðið fyrir gífurlegu verðfalli, sagði hv. 4. þm. Austf., og eiga nú að greiða gjöld af tekjum sínum frá miklu tekjuári á því ári, er tekjur þeirra lækka um allt að því helming, eftir því sem hann sagði. Án þess að vefengja þessar tölur hv. þm., vil ég enn þá minna á, að það kemur niður á alþjóð, hið mikla þjóðartekjutap, sem átt hefur sér stað. Og eins og margsinnis hefur verið yfirlýst í umr. um efnahagserfiðleikana, eru þetta þeir erfiðleikar, sem þjóðin öll verður að bera. Ég hef aldrei heyrt á það minnzt, að sjómenn hafi beðizt undan þeim vanda að bera þær byrðar, sem eðlilegt væri, að þeir bæru miðað við sinn efnahag. Hitt er áreiðanlega rétt, hinn stórkostlegi tekjumunur hér á milli ára veldur þeim stórum búsifjum, og skal ég í engu efa það. Við höfum viljað styðja að því, að hér kæmist á staðgreiðslufyrirkomulag skatta og stafar þetta ástand af því, að það fyrirkomulag er ekki komið í framkvæmd. Á því hafa reynzt mjög miklir annmarkar, sem ég skal nú ekki fara út í hér, en flestum þm. eru kunnir, en þess er enn þá að vænta, að að því máli verði unnið, þannig að einmitt fyrst og fremst launastéttir eins og sjómenn þurfi ekki að standa í þeim erfiðleikum, sem þeir eiga nú við að etja í sambandi við sínar mjög svo sveiflukenndu tekjur.
Ég veit, að hv. þm. harmar það mjög, að það skuli koma í hlut Alþfl.- þm. að mæla með frv. eins og þessu hér, en ég leyfi mér nú samt sem áður, miðað við annan málflutning um þessi efni, að efast um, að sú hryggð sé mjög djúptæk. En við vinnum að framgangi þessa máls, Alþfl.-menn, í fullvissu þess, að við séum að gera það skásta úr hlutunum fyrir þá aðila, sem erfiðast eiga með að bera byrðar, og höfum stutt þau frv., sem í efnahagsmálum hafa verið til úrlausnar, með það fyrst og fremst í huga.