21.03.1968
Neðri deild: 79. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í D-deild Alþingistíðinda. (3017)
134. mál, nefnd til að rannsaka ýmis atriði herstöðvamálsins
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Í þeim umr., sem hér hafa farið fram um þessa þáltill., hefur það komið fram, að sumir þm. eru ekki ánægðir með það form, sem á till. er, og m.a. kom það fram hjá hv. 1. þm. Vestf., að hann teldi, að eðlilegra hefði verið, að till. hefði í rauninni fjallað um það beinlínis, hver væri afstaðan til herstöðvamálsins eða setu hins erlenda hers í landinu, þannig að úr því gæti fengizt skorið hér á Alþ., hver afstaða Alþ, væri til þess stóra máls. Mér finnst, að nokkurs misskilnings gæti í sambandi við þessar aðfinnslur. Sú till., sem hér liggur fyrir, ber það alveg ljóslega með sér, að hún fjallar einmitt um herstöðvamálið. Í lok till., í síðustu mgr., segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Í samræmi við 39. gr. stjórnarskrárinnar hefur n. heimild til að heimta munnlegar og bréflegar skýrslur af embættismönnum og einstökum mönnum. Niðurstaða rannsóknarinnar skal lögð fyrir d. eigi síðar en 1. febr. 1989, svo að Alþ. eigi þess kost að taka sjálfstæða afstöðu til herstöðvamálanna árið 1969.“
Nú er það kunnugt, að við Alþb.-menn höfum flutt hér á undanförnum árum hvað eftir annað till. um það, að sagt verði upp herstöðvasamningnum og um brottför hersins úr landinu. Þessar till. okkar hafa ekki fengizt afgreiddar hér á Alþ. Við höfum staðið frammi fyrir þeirri staðreynd, að það hefur ekki verið unnt að fá meirihlutasamþykki á Alþ. fyrir afdráttarlausri yfirlýsingu í sambandi við það. Nú freistum við þess að fá fram athugun á þessu stóra vandamáli, að fá fram athugun á því, hvaða gildi herstöðvarnar hafi fyrir landið, fá fram athugun á því, hvaða áhrif hin erlenda herseta hefur haft þann tíma, sem hún hefur varað hér við, og þegar slík athugun lægi síðan fyrir, rækileg athugun, sem fram færi á þessum málum, sem mikið hefur verið deilt um, fengi Alþ. aðstöðu til þess að taka afstöðu í þessum umdeildu málum.
Það fer ekkert á milli mála, að um það hefur verið mikill ágreiningur á milli flokka í landinu á undanförnum árum, hver væri afstaðan til hinna erlendu herstöðva í landinu. Og ég hygg, að enn sé þessi ágreiningur allmikill, þó að vissulega ættu að vera vonir til þess, að menn vildu íhuga á nýjan leik afstöðu sína til þessara mála með tilliti til breyttra aðstæðna. Að vísu má út af fyrir sig alltaf segja það, að margslungin og flókin mál sé erfitt að rannsaka til hlítar. Það er sagt, að það muni vera erfitt að rannsaka það, hvaða áhrif hin erlenda herseta hefur haft hér á ýmsa þætti okkar þjóðlífs. Eflaust er það nokkuð erfitt mál. En margvíslegar rannsóknir eru hafðar í frammi um málefni, sem ekki er auðvelt að fá fulla skýringu á. En þeir, sem hafa gert sér grein fyrir því, að það að hafa erlendar herstöðvar í landinu um langan tíma., hafa erlenda hermenn í landinu í mörg ár, það hafi margvíslegar hættur í för með sér. Þeir geta auðvitað ekki efazt um það, að sæmilega góð rannsókn, sem fram færi á þessu máli, jafnvel þó að hún gæti verið nokkuð vandasöm og flókin, muni leiða í ljós ýmislegt það, sem gæti haft nokkur áhrif á afstöðu þm. til áframhaldandi hersetu í landinu.
Það er auðvitað engin tilviljun, að allar þjóðir leitast við að komast hjá slíku ástandi eins og að hafa erlenda heri um langan tíma í sínu landi. Reynslan hefur sýnt mönnum það, að af slíkum herstöðvum leiðir margvísleg vandkvæði og margvíslegar hættur. Í þessari till., sem hér liggur fyrir, er m.a. á það minnzt, að fram verði látin fara sérstök athugun á því, með hvaða hætti Íslendingar gætu reynt að koma í veg fyrir það, að atburðir líkir þeim, sem skeðu við Grænland, þegar herflugvél missti niður kjarnorkusprengjur þar á ísinn, gætu komið fyrir hér á landi. Auðvitað vitum við það, að við þær aðstæður, sem við búum, getur verið erfitt fyrir okkur að finna ráð til þess að koma fullkomlega í veg fyrir það, að slíkir atburðir geti gerzt hér. En ég held, að það leiki enginn vafi á því, að auðvitað getum við Íslendingar tekið upp nokkurt eftirlit sjálfir með því, sem er að gerast í þessum efnum í okkar landi. Það liggur sem sagt fyrir, að hingað fljúga til nokkurrar viðkomu hér í landinu margar herflugvélar í margs konar tilgangi á vegum hins erlenda hers. Við gætum sett upp nokkra athugun á því, hvernig þær eru útbúnar og hvað þær flytja með sér hverju sinni. Það var einmitt þetta, sem Danir gerðu, þegar þeir fréttu af atburðunum í Thule. Þá ákváðu þeir að láta sér ekki aðeins nægja sögusögn Bandaríkjamanna um málið, heldur sendu þeir sína eigin menn á staðinn til þess að hefja þar athuganir á málinu og gera umsagnir um það, hvað þarna hefði raunverulega gerzt og hvernig málið allt væri vaxið. Við höfum nú á stuttum tíma heyrt af því, að svona hættulegir atburðir hafi gerzt við Spánarstrendur og við Grænland. Hér er erlend herstöð. Hér er mikið flogið um þetta svæði á vegum hins erlenda hers. Hví skyldum við ekki, eftir að hafa heyrt frá atburðum sem þessum, hví skyldum við ekki reyna að kanna það, hvaða eftirlit við gætum haft með því, að ekki væri brotið á okkur loforð varðandi slíkt flug sem þetta? Auðvitað er hér svo mikið í húfi, að við eigum nokkuð á okkur að leggja til þess að reyna að hafa hér nokkurt eftirlit á. Þetta finnst okkur flm. till. sjálfsagt verkefni í sambandi við þetta mál, að það sé kannað, með hvaða hætti Íslendingar gætu haft þarna nokkru meira eftirlit á til þess að reyna að forða okkur frá hættum af því tagi, sem þarna er um að ræða.
Í þessari till. er einnig að því vikið, að það verði athugað, hver séu raunveruleg áhrif 17 ára samfelldrar hersetu í landinu á t.d. uppvaxandi kynslóð, á siðgæði í fjármálum og siðgæði almennt í landinu. Ég efast ekkert um það fyrir mitt leyti, að það er hægt að efna til rannsóknar af þessu tagi og hún gæti leitt ýmislegt það í ljós, sem meira að segja þeim, sem helzt hafa haldið uppi vörnum fyrir hersetuna, mundi ekki lítast fullkomlega á. Og þó að athugun af þessu tagi sé erfið, eigum við ekki að víkjast undan þeim vanda að láta slíka athugun fara fram. Einmitt á grunvelli slíkrar athugunar, sem Alþ. léti fara fram, ætti að vera miklum mun auðveldara að taka síðan afstöðu til þessa máls. En einmitt á næsta ári eru nokkur þáttaskipti varðandi þessi herstöðvamál eða í sambandi við þátttöku landsins í Atlantshafsbandalaginu.
Ég verð að segja, að af þeim umr., sem hér hafa farið fram, sýnist mér, að afstaða hæstv. utanrrh. sé mjög einkennileg. Hann vill víkja sér undan því að takast á við það vandamál, sem hér er um að ræða. Hann sér enga leið fyrir Íslendinga að hafa neitt eftirlit á í sambandi við hættulegt flug til og frá landinu. Hann sér enga leið til þess að hægt sé að rannsaka á neinn hátt áhrifin af hersetunni. Mér sýnist, að hann gefist hér algerlega fyrir fram upp í sambandi við þetta vandamál og vill þá sannfæra síg um það, að það, sem nú sé í þessum efnum, sé allt gott.
Þá er einnig í þessari till. lagt til, að fram fari allrækileg athugun á því, hvert sé í rauninni, eins og nú er komið, gildi herstöðvanna fyrir varnir landsins. Það neitar því eflaust enginn maður, að frá því að hinn erlendi her fyrst kom í þessar herstöðvar og fram að þessum tíma hafa orðið í þessum efnum gífurlegar breytingar á gildi slíkra herstöðva og af því er auðvitað full ástæða til þess nú að láta fara fram af Íslendingum sjálfum allnákvæma athugun á því og safna þar með upplýsingum hvaða gildi þessi herstöð hafi fyrir varnir landsins. Við, sem höfum verið á móti hinni erlendu herstöð frá upphafi, teljum enn sem fyrr, að gildi herstöðvarinnar sé í rauninni ekkert, hafi, í rauninni aldrei verið neitt, en þó mætti það öllum vera enn ljósara nú en fyrir 17 árum, að gildi hennar í sambandi við varnir landsins hljóti að vera mjög lítið. En þetta er vitanlega hægt að kynna sér, og það er sanngjarnt, að lögð sé fram fyrir Alþ. ýtarleg rannsókn og skýrsla um það með upplýsingum frá ýmsum aðilum, hvaða gildi herstöðin hafi.
Það finnst mér ekki sæmilegt hjá hæstv. utanrrh. í sambandi við umr. um þetta atriði till. að slá því einfaldlega föstu án nokkurrar röksemdafærslu, að herstöðin hafi enn mikið gildi. Slíkt er vitanlega ákaflega lítils virði að slá slíku fram og eins og hér hefur verið sagt í þessum umr., ef hann tryði því virkilega að svo væri, ætti hann út af fyrir sig ekki að vera því mótfallinn, að sérstök n. yrði skipuð til þess að draga fram allt það, sem styddi þá þessa trú hans um það, að herstöðin hefði í raun og veru það gildi, sem hann vill vera láta fyrir varnir landsins. Hitt ætti svo öllum að vera ljóst, að þessi herstöð með hinum erlenda her felur alltaf í sér verulega hættu, ef til ófriðar drægi á milli þess aðila, sem herstöðina hefur í sínum höndum og einhverra annarra. Þá hefur herstöðin vissulega alltaf í för með sér aukna hættu hér fyrir landsmenn. Og því verður heldur ekki neitað, að það er veruleg hætta á því vegna dvalar hins erlenda hers hér, að hin almenna utanríkismálastefna Bandaríkjanna hafi sínar afleiðingar hér einnig fyrir okkur, að við kunnum að sogast inn í málefni Bandaríkjanna á beinan eða óbeinan hátt, og miðað við þá stefnu, sem þar er haldið uppi í utanríkismálum, sýnist það satt að segja ekkert keppikefli fyrir smáríki eins og okkar að eiga það á hættu að sogast inn í áhrifin af þeirri utanríkismálastefnu. Það hlýtur líka að vera kominn tími til þess, að landsmönnum sé gerð nokkur frekari grein fyrir því, hvenær þess megi vænta af ráðamönnum landsins, að talinn sé tími kominn til þess, að erlendur her verði ekki í landinu, því að ég á erfitt með að trúa því, að það sé opinber fyrirætlun þeirra, sem nú fara með stjórn í landinu, að við skulum búa hér við erlendan her um alla framtíð.
Þá er að því komið, að gerð sé grein fyrir því, hvaða skilyrði þurfi yfirleitt að vera fyrir hendi til þess að hægt sé að tala um friðartíma fyrir okkur Íslendinga, þannig að við getum verið lausir við erlendan her. Satt að segja er í þessum efnum framkoma þeirra, sem málum ráða í þessum efnum hjá okkur, þannig, að helzt er að sjá, að þeir séu farnir að sætta sig við það, að hér eigi að vera erlendur her í landinu til frambúðar, hvernig svo sem ástatt er í heimsmálum.
Í þeim umr., sem hér hafa farið fram um þessa till., hefur verið á það bent réttilega, að ýmsar þær breytingar hafa orðið einmitt nú á síðari árum í samskiptum stórvelda og í samskiptum þeirra landa, sem mest áhrif hafa hér á stöðu okkar Íslendinga sem eru í þá átt, að mjög hefur dregið úr spennunni, að friðsamlegra verður að teljast á þessum hjara heims en áður var, og því hlýtur sú spurning að koma upp, hvort nú verði ekki einnig af hálfu þeirra sem stóðu fyrir því að kalla hér erlendan her inn í landið, hvort nú verði ekki að telja, að komið sé upp það ástand, að ástæða sé til að endurskoða hersetumálin hér. Fram á þetta er farið með þeirri till., sem hér liggur fyrir, að efnt verði til rækilegrar athugunar á þessum málum, Alþ. geri skýrslu um mikilvægustu niðurstöðurnar, svo að auðveldara verði, eins og segir í till., fyrir Alþ. að taka. sjálfstæða afstöðu til herstöðvamálanna á árinu 1969.
Hér hafa komið fram till. um að breyta þessari till. í það form, að hér verði lagt til, að herstöðvasamningnum verði sagt upp og að hinn erlendi her verði látinn víkja úr landinu. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram, að það stendur ekki á okkur Alþb.-mönnum að samþykkja slíka till. eða flytja slíka till. Það höfum við gert hér þing eftir þing í mörg ár, og vissulega væri það gott, ef hægt væri að fá hér atkvgr, á Alþ, um slíka till. En þar sem það hefur ekki enn fengizt, höfum við nú lagt það til, að efnt yrði til rannsóknar um þessi mál með það í huga, að fyrir gæti legið allýtarleg skýrsla um málið sem heild og mikilvægustu þætti þess á næsta ári, þegar tekin verður afstaða til þess, hvort við ætlum að halda áfram veru okkar í hernaðarbandalaginu NATO, sem að formi til hefur þá herbækistöð, sem hér er um að ræða í okkar landi.
Mér finnst nú, að afstaða hæstv. utanrrh. fyrir þessari till. sé, eins og ég hef sagt, furðulega neikvæð og óeðlileg í sjálfu sér, og mér sýnist, að hann hafi ekki fært nein rök fyrir þeirri afstöðu sinni að vilja fella till. og þá enn þá síður fyrir því að vera því sammála, að till. fari til n., og það væri vitanlega hægt að hugsa sér allmiklar breytingar á henni, en leggja eigi að síður til, að hún verði felld, jafnvel þó að hann viti ekki um það, hvernig hún kemur til með að líta út, þegar hún kemur frá n. Mér finnst þessi afstaða hans bera vott um það, að hann vilji ekki helzt af öllu ræða um þetta mál eða takast á við þetta stóra vandamál. sem hér er um að ræða ekki einu sinni láta fara fram sanngjarna og hlutlausa athugun á málinu sem heild, leiða fram helztu staðreyndir málsins, til þess að þm. geti með eðlilegum hætti tekið afstöðu til þess á næsta ári, hvort við eigum að halda áfram þátttöku okkar í Atlantshafsbandalaginu og hvort við eigum að standa að því áfram að hafa erlendan her í okkar landi, þrátt fyrir það ástand, sem nú er hér í utanríkismálum í löndunum í kringum okkur. En þrátt fyrir þessa afstöðu, sem hér hefur komið fram hjá hæstv. utanrrh., sem mér finnst vera mjög neikvæð, vænti ég þess, að þessi till. fái hér þinglega meðferð. Samþ. verði, að hún gangi til n., þar verði hún athuguð og að megintilgangur þessarar till. verði viðurkenndur réttur og málið samþ., þó að hér gæti vissulega orðið um einhverjar breytingar á till. að ræða eins og hefur komið fram frá þeim, sem hafa talað fyrir till. Við því er ekkert að segja en megintilganginn tel ég að þurfi að samþykkja, þ.e., að sú athugun fari fram, sem lagt er til með till. að gera.